Bændablaðið - 11.02.2021, Qupperneq 27
Bændablaðið | Fimmtudagur 11. febrúar 2021 27
Nú á að fara í endurbyggingu
Halldórsbúðar í Vík í Mýrdal,
sem hýsti Verslun Halldórs
Jónssonar, bónda í Suður-
Vík, verslunarmanns, oddvita
og eins helsta athafnamanns
Skaftfellinga, en húsið hefur
staðið á Víkursandi í 118 ár.
Halldórsbúð er illa farin en til
stendur að nýta efnivið úr henni
við uppbygginguna. „Vinna við
grunninn er lokið en fjármagn
ræður því hvað við komumst langt
á þessu ári með framkvæmdina.
Minjastofnun og Mýrdalshreppur
hafa styrkt verkefnið ásamt því
að 13 milljónir af þeim peningum
sem ríkisstjórnin úthlutaði til
að efla framkvæmdir í þeim
sveitarfélögum sem glíma við
hvað mest atvinnuleysi fara
í verkefnið,“ segir Þorbjörg
Gísladóttir, sveitarstjóri Mýrdals
hrepps. /MHH
Að mína mati verða að nást mun
meiri samlegðaráhrif land búnaðar
og við umhverfis. Einstaklings
framtakið hefur verið undirstaða
landbúnaðar á Íslandi og gefa þarf
bændum frelsi til að grípa tækifær
in þannig að þeim takist að marka
sína sérstöðu innan hverrar búgrein
ar. Það þarf að auka heimildir og
möguleika bænda á að slátra heima
og selja sínar afurðir.
Ég sem áhugamanneskja um
mat er mjög umhugað um fæðu
öryggismál landsmanna og þátt
landbúnaðarins í þeim efnum. Að
mínu viti þarf að stefna að því
markmiði að tryggja fæðuöryggi
Íslendinga með því að efla innlenda
framleiðslu og tryggja samkeppn
ishæfni framleiðslunnar gagnvart
innflutningi. Til framtíðar liggja
tækifærin í landbúnaði og mat
vælaframleiðslu.
Framleiðsluverðmæti land
búnaðar afurða er um 65 milljarðar
króna sem sýnir að umhverfið okkar
miðað við stærð landsins og fjölda
íbúa er hreinlega af allt annarri
stærðargráðu en annars staðar. Að
bera saman landbúnaðinn hér á
landi og það sem á sér stað í löndun
um í kringum okkur, í Skandinavíu
og í Evrópu, er því eins og að bera
saman epli og appelsínur og því
megum við ekki gleyma.“
Fjallgöngur og eldamennska
Að sögn Vigdísar á hún fjölda áhuga
mála sem hún leggur stund á í frí
stundum. „Ég á enskan cocker spaniel
sem heitir Bastian og er dásamlegur
hundur í alla staði. Fjölskyldan
fer reglulega í Skötubótina við
Þorlákshöfn og út á Reykjanes, þar
sem bæði menn og dýr taka góða
spretti meðfram ströndinni. Í fyrra,
eftir að COVID19 fór að herja á
heiminn, fór ég að ganga á fjöll, sem
er nýtt hjá mér, en vonandi eitthvað
sem ég mun halda áfram að gera á
komandi sumri.
Annars stóð reyndar til að ein
beita sér að golfinu sem byrjaði í
fyrrasumar og ég steinféll fyrir.
Mitt stærsta áhugamál er hins
vegar matur og matargerð og upp
áhaldsréttir mínir eru kjötsúpa
og slátur og við mamma tókum
lengi saman slátur áður en hún dó.
Mamma eldaði alltaf bestu kjötsúpu
í heimi á afmælisdeginum mínum.
Hennar leynitrikk var að setja eina
matskeið af sykri í súpuna og fyrir
vikið varð súpan miklu betri og ólík
allri annarri kjötsúpu. Ég verð líka
að nefna að hægeldaðir svínaskankar
í bjórsósu og nautatartar með hráu
eggi eru ofarlega á listanum þegar
við hjónin viljum gera vel við okkur.
Við hjónin hengdum upp nauta
ribeye á beini og lambahrygg í lítinn
kæli inni í bílskúr fyrir skömmu og
ætlum að látum það hanga í 6 til 8
vikur og það er gífurleg tilhlökkun
með útkomuna,“ segir Vigdís að
lokum. /VH
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
STÝRISENDAR í flestar
gerðir dráttarvéla
Skeifunni 3h ll Sími: 588 5080 ll dynjandi.is
VEL BÚIN
Í VETUR!
Dynjandi býður upp á vinnu-
og vetrarfatnað sem uppfyllir
ströngustu kröfur markaðarins.
Hafðu samband.
Við veitum þér faglega aðstoð.
Hýsi-Merkúr hf. | Lambhagavegi 6 | 113 Reykjavík | Sími 534 6050 | merkur@merkur.is | www.merkur.is
Láttu sjá þig
HIMOINSA Apolo Compact Heavy Duty
- 6,4 kVA
- Eigin þyngd: 895 kg.
- 100 L. eldsneytisgeymir
- Orkunotkun með aðeins ljósum er 0,8 L / Klst.
1.990.000 kr. + vsk
Fjöruferð í Sandvík, suður af Hafnar-
bergi á Reykjanesi með Bastian.
Sheperd‘s pie, með íslensku lambahakki, einn af réttunum sem Vigdís lærði
að elda í Brighton.
Sími: 517-8240 - Súðarvogur 20 - www.eyjalind.is
Vertu vinur okkar á Facebook
Sæti og varahlutir í
- Lyftara
- Vinnuvélar
- Vörubíla
- Báta
SAGA& MENNING
Endurreisn Halldórsbúðar í Vík
Eins og sjá má þá er húsið Halldórsbúð í Vík mjög illa farið en samt á að fara að
endurbyggja húsið sem hefur staðið á Víkursandi í 118 ár. Mynd / Örlygur Karlsson