Bændablaðið - 11.02.2021, Blaðsíða 28
Bændablaðið | Fimmtudagur 11. febrúar 202128
Í huga margra er allt freyðivín
kampa vín en það er ekki rétt.
Kampavín er freyðivín en freyði
vín er ekki endilega kampa vín.
Samkvæmt lögum Evrópu sam
bandsins er bannað að merkja
freyðivín sem kampavín nema
það komi frá Champagne
vínræktar héruðum í Norðaustur
Frakklandi.
Reglur um framleiðslu á kampa-
víni eru strangar og aðallega þrjár
gerðir af þrúgum notaðar við fram-
leiðsluna. Þrúgurnar eru Pinot noir,
Pinot Meunier og Chardonnay, auk
þess sem Pinot blanc, Pinot gris,
Arbane og Petit Meslier eru notað-
ar til kampavínsgerðar en í minna
mæli.
Víngerðarmenn í Champagne á
17. öld lögðu áherslu á að tengja
freyðivínið sitt við aðals- og kónga-
fólk með auglýsingum og vönduð-
um pakkningum. Í framhaldinu
fór millistéttinni að þykja vín frá
héraðinu fín og hefur það loðað við
þau síðan.
Saga
Rómverjar voru fyrstir til að
gróðursetja vínvið í Champagne-
héraði sem í dag er norðan við
París. Ræktunin gekk illa í fyrstu
þar sem Domitan Rómarkeisari á
fyrstu öld bannaði nýplöntun á vín-
við og krafðist þess að vínekrur í
nýlendunum yrðu upprættar um
helming. Tilskipun Domotan var
hugsuð til að auka kornrækt og auka
þannig matvælaframleiðslu og draga
úr framleiðslu annars flokks vína.
Ákvörðun keisarans var óvinsæl og
alls óvíst að henni hafi alls staðar
verið fylgt.
Probus Rómarkeisari á þriðju
öld, sem var sonur garðyrkju-
manns, ógilti tilskipun Domotan og
í framhaldi af því var reist musteri
til heiðurs Bakkusi í Champagne-
héraði og vínframleiðslan blómstr-
aði.
Á fimmtu öld var héraðið þekkt
fyrir létt og ávaxtarík rauðvín og á
vínekrum sem voru í eigu kirkna
og klaustra var framleitt vín sem
tengdist helgihaldi. Hefð var fyrir
því að Frakkakonungar væru krýnd-
ir í borginni Reims og að boðið væri
upp á Búrgúndi-vín við athöfnina.
Vínræktendur í Champagne-héraði
töldu sig geta boðið betra vín og
lögðu mikla vinnu í að finna þrúgur
sem hentuðu loftslagi og jarðvegi
héraðsins.
Freyðivín verður til
Elsta þekkta heimildin um freyð-
andi vín er frá 1531. Vínið kall-
ast Blanquette de Limoux og var
framleitt af Benediktusarmunkum
í klaustri Saint-Hilarie í Suður-
Frakklandi.
Benediktusarmunkurinn Don
Pérignon fæddist í Champagne-
héraði og gekk í klaustur í sinni
heimasveit. Þrátt fyrir að Pérignon
hafi ekki fundið upp freyðivín, eins
og stundum er haldið fram, vann
hann ötullega að því að bæta fram-
leiðsluaðferðir og gæði vínsins.
Meðal annars með því að setja vín
á flöskur áður en gerjun lauk. Að
mati Pérignon voru Pinot noir þrúg-
ur bragðbestar og því átti eingöngu
að nota þær til að búa til freyðivín.
Hann vildi líka að vínviðurinn væri
klipptur reglulega þannig að hann
færi aldrei yfir einn metra að hæð
og að hver planta gæfi hæfilega af
sér af þrúgum og alls ekki of mikið
því að þannig næðust betri gæði.
Bubblur í glasi
Vilmundur Hansen
vilmundur@bondi.is
SAGA MATAR&DRYKKJA
Freyðivíni hellt í glas.
Pinot noir þrúgur. Chardonnay þrúgur.
Þrúgur Pinot Meunie.