Bændablaðið - 11.02.2021, Qupperneq 33
Bændablaðið | Fimmtudagur 11. febrúar 2021 33
SAMFÉLAGSRÝNI
Óafturkræf náttúruspjöll í Hamarsdal
Góðir lesendur. Fyrirhugað er
að sökkva stórum hluta Hamars
dals í Djúpavogshreppi, nú
Múlaþingi og raska vatnasvæði
Hraunasvæðisins ósnortna með
allt að 50 m háum stíflum og
víðáttumiklum miðlunarlón
um. Það sem bítur höfuðið af
skömminni er að virkjunin er
réttlætt m.a. með því að svo „stutt
sé í veitur Kárahjúkavirkjunar
og Grímsárvirkjunar“ auk þess
er fullyrt að vötnin séu „snauð“.
Upptakasvæði ánna austan
Vatnajökuls eru Hraunin sem til
forna nefndust Sviðinhornahraun.
Þær renna um langa og litríka dali
og einkennist umhverfið meðal
annars af smájöklum, vötnum og
stöflum hraunlaga. Stórkostleg
náttúra jarðmyndana og fagurra
holufyllinga sem er æ verðmæt
ari óspillt fyrir komandi kynslóðir
og jarðarbúa alla. Sú virkjun sem
er hræðilegust er allt að 60 MW
virkjun í Hamarsdal sem myndi
eyðileggja dalinn og vatnasvæði
hraunanna, ásamt Hamarsvatni.
Arctic Hydro var veitt rannsóknar
leyfi árið 2016 og hyggst þröngva
virkjun þessari að í rammaáætlun.
Hamars virkjun er ekki í neinum
bið flokki í rammaáætlun
Staðreyndin er sú að Hamars
virkjun er ekki í neinum bið flokki
í rammaáætlun, verkefnis stjórn
á eftir að meta í hvaða flokk hún
verður metin og vonandi verður
henni vísað frá. Hamarsvirkjun var
einfaldlega ekki til sem sjálfstæður
virkjunarkostur í rammaáætlun
heldur áttu upptök Hamarsár að
vera hluti af Hraunaveitu hinni
stóru 126 MW skrímslavirkjun sem
átti að veita ofan í Berufjörð sem
er nú líkast til fallið alfarið frá, en
sú Hraunaveita var í biðflokki 3
ramma. Að sjálfsögðu á að falla
frá öllum áætlunum um virkjun
í Hamarsdal og friða dalinn frá
spjöllum.
„Smávirkjanir“ eru
alls engar smávirkjanir
Síðan byrjaði smávirkjana ballið,
með Geitdalsvirkjun 9,9 mw sem
er mjög umdeild og svo kom
orkumálastjóri með Ham ars
virkjun inn í fyrra sem nýja og
sjálfstæða tillögu til umfjöllunar
í verkefnisstjórn inn í ramma
áætlun, þrátt fyrir gríðarlega stærð
hennar og náttúruspjöll. Verið er
að sækja hart að sveitarstjórnum
víða um land með fagurgala um
„smávirkjanir“ sem eru alls engar
smávirkjanir. Það er aldeilis ekki
verið að virkja bæjarlækinn til
hagsbóta fyrir samfélagið heldur
er það græðgin sem er við völd.
Smávirkjanir ættu að vera að
hámarki 500 Kw1 MW. Orðið
„smávirkjun“ er nánast orðin að
orðskrípi líkt og orðið „vindmyllu
lundur“ hvort tveggja verið að gera
silkipoka úr svínseyranu. Það er
furðuleg ætlun að ráðst inn á
óspillt svæði í ljósi þess að offram
boð er af orku (150 MW á lausu)
og hægt að virkja á svæðum sem
eru spillt fyrir. HS orka er að ná um
30 MW sem áður runnu í sjóinn
og Landsvirkjun er og áformar að
„uppfæra“ sínar virkjanir sem er
vel gert.
Í meirihluta eigu franska
olíu risans Total og Engeyinga
Fyrirtækið Arctic Hydro, sem er
í meirihluta eigu franska olíu
risans Total og Engeyinga, hefur
fengið rannsóknarleyfi á mörgum
svæðum eystra. (Orkustofnun
skjal: OS 2016030057) Þess má
geta að heimilisfang Arctic Hydro
er að Glerárgötu 32, Akureyri.
Stjórnarformaður er Benedikt
Einarsson. Hamarsvirkjun ehf. (í
eigu Arctic Hydro) er með heimil
isfang á sama stað og stjórnarfor
maður er Skírnir Sigurbjörnsson.
Það er von mín og þeirra sem
vilja vernda svæðið að fallið
verði strax frá öllum áformum og
virkjun Hamarsár og Hraunanna.
Að forsvarsmenn Arctic Hydro
þyrmi Hamarsdal. Ég skora á
ráðherra orkumála, sveitarstjórna
og umhverfis að standa vörð um
óspillta íslenska náttúru og gleyma
ekki þeim loforðum sem voru
gefin eftir Kárahnúkavirkjun, að
ekki yrði gengið frekar á náttúru
Austurlands með óafturkræfum
náttúruspjöllum.
Stefán Skafti Steinólfsson
Ættaður frá Hamri í
Hamarsfirði.
Stefán Skafti Steinólfsson.
„Það er von mín og þeirra sem vilja vernda svæðið að fallið verði strax frá öllum áformum og virkjun Hamarsár
og Hraunanna.“
YLEININGAR ERU LÉTTAR STÁL-
KLÆDDAR SAMLOKUEININGAR
SEM FÁST MEÐ ÞÉTTIFRAUÐS-
EÐA STEINULLARKJARNA.
Einingarnar eru sterkar og burðarmiklar og
fást með mismunandi yfirborði og litum að
eigin vali. Helstu kostir þess að nota samloku-
einingar er auðveld og fljót uppsetning, auðveld
þrif, mikil burðargeta, mikið einangrunargildi og er
ódýr kostur ef miðað er við hefðbundnar lausnir.
Yleiningar henta vel fyrir eldri gripahús þar sem
skipta þarf út þak- og eða veggjaklæðningum.
BALEX yleiningar eru framleiddar undir
ströngu eftirliti samkvæmt viðurkenndum
evrópskum stöðlum.
Hafðu samband: bondi@byko.is
YLEININGAR
-fjögur ár í röð!
Næsta
Bændablað
kemur út
25. febrúar
www.bbl.is