Bændablaðið - 11.02.2021, Qupperneq 40
Bændablaðið | Fimmtudagur 11. febrúar 202140
MATARKRÓKURINN
LÍF&LYST – BÆRINN OKKAR
Hilmar Smári Birgisson er fædd-
ur og uppalinn á Uppsölum, hann
kom inn í búskapinn eftir nám
sitt í Landbúnaðarháskólanum
á Hvanneyri árið 2014. Hann
kynntist Söru á Hvanneyri 2012
en samband þeirra byrjaði seinni-
hluta 2014.
Hann flytur hana heim að
Uppsölum 2015 eftir að hún útskrifast
úr búvísindum frá sama skóla. Sara
er sjálf ekki frá neinu búi, en var í
sveit í Gröf á Vatnsnesi hjá Stellu og
Tryggva.
Þau hafa séð að mestu leyti um
sauðfjárbúskapinn frá 2015 en fá
dygga aðstoð frá Bigga og Siggu
(foreldrum Hilmars) á álagspunktum.
Um áramótin 2020 kláruðu þau
kaupin á jörðinni og eru eldri hjónin
frelsinu fegin.
Býli: Við búum á Uppsölum í Austur-
Húnavatnssýslu.
Staðsett í sveit: Erum staðsett við
sýslumörkin á Austur- og Vestur-
Húnavatnssýslu, erum fyrir ofan
Vatnsdalinn (horfum niður í hann).
Ábúendur: Hilmar Smári Birgisson
og Sara Björk Þorsteinsdóttir eru
ábúendur í gamla bænum sem afi og
amma hans Hilmars bjuggu í.
Foreldrar Hilmars, Birgir
Ingþórsson og Sigríður Bjarnadóttir,
búa í húsi sem þau byggðu árið 1991.
Fjölskyldustærð (og gæludýra):
Hilmar og Sara eiga tvo syni, Birgi
Stein, sem verður 6 ára í haust, og
Tryggva Þór, sem verður 3 ára í
sumar. Gæludýrið þeirra er fjárhund-
urinn hann Tumi sem er 3 ára blanda
af áströlskum fjárhund og border
collie. Síðan eru nokkuð margar vel
valdar gæfar í húsunum.
Stærð jarðar? Jörðin Uppsalir er um
530 hektarar. Hins vegar nýtum við
jörðina Melrakkadal sem foreldrar
Hilmars eiga, sú jörð er 3.000 hekt-
arar.
Gerð bús? Sauðfjárbúskapur og véla-
verktaka.
Fjöldi búfjár og tegundir? Erum
með 1.340 kindur og nokkur hross.
Hvernig gengur hefðbundinn
vinnudagur fyrir sig á bænum?
Eins og á flestum býlum þá er enginn
dagur eins og einnig eru störfin árs-
tíðabundin.
Á veturna, þegar búið er að taka
kindurnar inn á hús, hefst dagurinn
á skólaakstri, að honum loknum
er gefin fyrri gjöf í húsunum. Eftir
skólaakstur seinnipartinn er farið í
seinni gjöfina. Þess á milli er farið í
önnur tilfallandi störf, við skiptumst
t.d. á að hlaupa í gripaflutninga með
Bigga, sem og Sara vinnur utan bús
sem hjúkrunarfræðingur. Á vorin á
sauðburður hug okkar allan, síðan
að koma fé á fjall. Einnig flytjum
við fé á heiði fyrir nokkra nágranna
okkar. Á sumrin er það heyskapur allt
sumarið, þar sem við erum í heyverk-
töku. Rúllum 1.500 rúllur fyrir okkur,
6.500 fyrir aðra bæi hér í kring. Á
haustin eru það hlaup upp á fjöllum
eftir kindum, fjárrag og fjárflutningar
fyrir SAH afurðir á Blönduósi.
Skemmtilegustu/leiðinlegustu
bústörfin? Sauðburður er alltaf
skemmtilegur og heyskapur í góðu
veðri. Í rauninni finnst okkur ekk-
ert leiðinlegt verk í sambandi við
búskapinn, annars værum við lík-
lega ekki með svona margt fé. Ætli
veikir gripir og ullarflokkun sé ekki
í neðstu sætunum.
Hvernig sjáið þið búskapinn fyrir
ykkur á jörðinni eftir fimm ár?
Framtíðarsýn Hilmars er: fleiri
börn, fleiri kindur, ný fjárhús og
sólpallurinn sem hann átti að smíða
2018.
Framtíðarsýn Söru: betri ræktun,
betri afurðir.
Hvar teljið þið að helstu tækifær-
in séu í framleiðslu á íslenskum
búvörum? Ef horft er til innanlands-
markaðar þá teljum við að bæta mætti
framsetningu vöru í búðum, hafa
umbúðir notendavænni og sýnileika
vöru betri til þess að laða kúnnann
að. Líkt og gert er með grænmetið,
ekki hafa það í djúpum og dimmum
kælum þar sem þarf að róta í mis-
munandi kjöttegundum sem oft eru
bara í poka.
Hvað er alltaf til í ísskápnum?
Mjólk, smjör, ostur, egg og AB-mjólk
með bananabragði.
Hver er vinsælasti maturinn
á heimilinu? Heimagerðar
kjötfarsbollur úr heimahökkuðu
ærhakki.
Eftirminnilegasta atvikið við
bústörfin? Þegar pabbinn sagði við
eldri soninn að klukkan væri orðin of
margt til þess að hann væri að koma
með honum út í seinni gjöfina. Sá
stutti var sko aldeilis ekki sáttur og
fór fram í bakdyrainngang, klæddi
sig sjálfur í útifötin tautandi við sjálf-
an sig hversu ómögulegur pabbinn
væri. Fór út og stóð fyrir framan eld-
húsgluggann fullklæddur, þar sem
faðirinn sat enn við eldhúsborðið,
og hrópaði inn um gluggann til hans:
„Ef klukkan er of mikið þá átt þú að
drífa þig,“ snerist á hæl og æddi upp
í fjárhús.
Pretzel hjúpað lamba-prime og grænmeti
Pretzel hjúpað lamba-prime
Hráefni
› 2 bollar saltstangir
› 1 bolli hveiti
› 3 stór egg
› 1 msk. Worcestershire sósa
› 2 rif ferskur hvítlaukur, saxaður fínt
› 3/4 tsk. þurrkuð eða ferskt rósmarín
› Lambakjöt að eigin vali, kótilettur eða
lambaprime
› olía, eftir þörfum
Aðferð
Hitið ofninn í 175 gráður.
Setjið einn bolla af saltstöngum í
matvinnsluvél, í heilar tvær mín-
útur þar til þær eru eins og hveiti.
Blandið þeim saman við hveitið,
þeytið eggin líka saman við,
Worcestershire sósu, hvítlauk og
hálfa teskeið af þurrkuð rósmaríni.
Brjótið saltkringlurnar sem eftir eru
í matvinnsluvélina. Vinnið varlega
þar til í blöndunni eru grófir molar,
stærri en brauðmolar. Setjið í
þrjár skálar, hveiti sér, egg sér og
grófsaxaðar saltstangir – í þessari
röð.
Hjúpið kjötið á báðum hliðum með
mjölinu, hristið það sem umfram er,
síðan er kjötið sett í eggið og síðan í
grófsaxaðan saltstanga-mulninginn
og þrýstið honum í kjötið svo hann
festist betur. Setjið til hliðar.
Hitið þunnt lag af olíu í pönnu við
meðalhita. Bætið við lambasteik-
um, nokkrum í einu, reynið að fylla
ekki á pönnuna, svo kjötið soðni
ekki. Ekki hreyfa lambið þegar það
er komið á pönnuna. Þegar molarn-
ir eru gullinbrúnir (um það bil ein
til tvær mínútur), notið töng til að
snúa hverjum bita við, eldið í eina
til tvær mínútur til viðbótar, þar til
molinn er orðinn gullinn. Setjið
lambakjötið aftur í grind og haldið
áfram þar til allt er búið. Þurrkið
pönnuna á milli umferða og bætið
við meiri olíu eftir þörfum. Setjið
rekkann af lambakjötinu í ofninn og
eldið lambið í 10 mínútur. Miðjan
ætti samt að vera bleik eða eftir
smekk.
Ristað blómkál og brokkolí með
parmesanosti og hvítlauk
Þessi heilsusamlega uppskrift
með ristuðu spergilkáli, blómkáli,
parmesan og hvítlauk er fljótleg og
auðveld með aðeins fimm innihalds-
efnum.
Ljúffeng leið til að bera fram
grænmeti!
Hráefni
› 1 haus spergilkál
› 1 haus blómkál
› 1/3 bolli ólífuolía
› 2 geirar hvítlaukur (saxaður)
› 2/3 bolli rifinn parmesanostur
› salt
› svartur pipar
Aðferð
Hitið ofninn í 200 gráður. Setjið
á bökunarplötu með smjörpappír.
Blandið spergilkálinu og blómkáli
í stóra skál.
Bætið ólífuolíu, hvítlauk og helm-
ingnum af parmesanostinum út í.
Blandið saman. Stráið sjávarsalti
og svörtum pipar yfir og blandið
síðan aftur.
Raðið grænmetinu á bökunar-
plötuna og gefið því gott svigrúm
til að það festist ekki saman.
Bakið í 18–22 mínútur, þar til það
er brúnað.
Rétt áður en það er borið fram, er
aukaskammti af parmesanosti bætt
við, eða því sem eftir er, og salti og
pipar stráð yfir eftir smekk.
Bjarni Gunnar Kristinsson
matreiðslumeistari
Uppsalir