Bændablaðið - 11.02.2021, Blaðsíða 47
Bændablaðið | Fimmtudagur 11. febrúar 2021 47
Glerárgata 34b við Hvannavelli • S 461 1092 • asco.is
OKKAR ÆR OG KÝR
— STARTARAR OG ALTERNATORAR —
S: 5272600 - www.velavit.is
Varahlutir - Viðgerðir
Vélavit
Sala Þjónusta
www.velavit.is
Erum með varahluti og þjónustu fyrir allar JCB vélar
S: 527 2600
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
HAUGHRÆRUR
Varmadæluskjól
Vönduð - evrópsk framleiðsla
Tilboð
kr. 27.990
Verð áður kr. 39.986
á meðan birgðir endast
Varmadælubúðin Allar frekari upplýsingar: www.kgg.iswww.kgg.is - 55-20000 - kgg@kgg.is
-heildverslun síðan 1941
Kristinn Sigurbjörnsson
Löggiltur fasteignasali og byggingafræðingur.
Sími: 560-5502
Netfang: kristinn@allt.is
Sérsniðin þjónusta
að þínum þörfum
PÓSTKASSAR
þessir sígildu -
sterkir úr stáli.
Verð 11.500kr
Sími 567-6955
lettitaekni@lettitaekni.isBÆKUR& MENNING
Sveppir gegna lykilhlutverki í
lífríkinu með því að umbreyta
plöntu- og dýra leifum í
einföld efna sam bönd, sem
plöntur og ýmis smádýr geta
tekið upp, og viðhalda þannig
hringrás næringarefnanna.
Lífið í núverandi mynd væri
óhugsandi án sveppa.
Sveppaþræðir mynda
víðfeðmt net í jarðvegi sem
tengist rótum plantna og
aðstoðar þær við fæðuöflun.
Í sambýli við þörunga mynda
þeir fléttur, sem geta jafnvel
lifað á beru grjóti.
Afmælisgjöf frá Þorsteini
Þorsteinn Úlfar Björnsson,
höfundur og útgefandi,
fagnar 70 ára afmæli um
þessar mundir og segir hann
að bókin sé afmælisgjöf
hans til íslensku þjóðarinnar
og hana má finna á
vefslóðinni: FUNGA
ríki sveppakóngsins by
Þorsteinn Úlfar. Bókin er
ríkulega myndskreytt.
„Fyrir mörgum árum, á því
herrans ári 1997, sendi ég frá mér
bók sem heitir Villigarðurinn,
garðyrkjuhandbók letingjans, og
fjallaði um vistvæna umgengni við
náttúruna, sérstaklega í garðinum.
Að mínu mati var Villigarðurinn
ekki nógu ítarleg í kaflanum
um jarðveginn og lífið í honum.
Jarðvegurinn er jú undirstaðan og
sá hluti sem plönturnar lifa í og á.
Þar er líka fjölbreyttasta lífið og enn
er það ekki fullkannað. Við
vitum ekki einu sinni hversu margar
tegundir lifa þar. Þær gætu skipt
milljónum, jafnvel milljörðum.
Í framhaldi af henni ætlaði ég
því að skrifa bók um sveppi sem átti
að verða nokkurs konar framhald
hennar. Það hefur þó dregist því á
þeim tíma sem liðinn er hafa komið
fram sífellt nýjar upplýsingar um
sveppi og þekking á þeim orðið
aðgengilegri. Ég setti mér því það
markmið að klára bókina
áður en ég yrði sjötugur
og gefa hana út á vefnum
á afmælisdaginn.“
Hvað eru sveppir?
Ríki sveppakóngsins er
flest um hulið enda sveppir
lítt áberandi í náttúrunni
nema skamman tíma ársins. Í
bókinni veltir Þorsteinn fyrir
sér spurningum eins og; hvað
eru sveppir, hvaðan koma þeir
og hvert er hlutverk þeirra í
náttúrunni?
Að sögn Þorsteins
eru sveppir ein af undir
stöðulífverum alls annars
lífs á jörðinni. „Þeir eru til
dæmis nánast næstum eina
lífveran á jörðinni sem getur
lifað á grjóti og ein af fáum
lífverum sem getur leyst upp
harðasta berg og gert það
aðgengilegt öðrum lífverum
í formi steinefna. Sveppir eru
lífverur sem búa til jarðveginn
með aðstoð fjölda annarra
smásærra lífvera og þeir eru
alltaf að, dag og nótt, og taka
sér aldrei frí. Það eru sveppir sem
líma saman jarðveginn og búa til
efni sem gera hann aðgengilegan
öðru lífi.
Það er von mín að bókin muni að
einhverju leyti bæta úr vanþekkingu,
draga úr fordómum gagnvart
sveppum og minnka hræðslu, en
stundum fara jafnvel bestu áætlanir
út í veður og vind og verkið verður
allt annað en lagt var upp með.“ /VH
Funga:
Í ríki sveppakóngsins
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið:
Frumvarp um vernd, velferð og veiðar á villtum dýrum
Guðmundur Ingi Guðbrandsson
umhverfis- og auðlindaráðherra
mælti fyrir skömmu á Alþingi fyrir
frumvarpi um vernd, velferð og
veiðar á villtum fuglum og villtum
spendýrum. Um er að ræða
heildarendurskoðun laga, sem
kveðið er á um í stefnuyfirlýsingu
ríkisstjórnarinnar.
Í skýrslu nefndar um lagalega
stöðu villtra fugla og spendýra
frá apríl 2013, sem skipuð var af
umhverfis og auðlindaráðherra,
voru ýmsar tillögur sem horft var
til við gerð frumvarpsins.
Á vef umhverfis og auðlinda
ráðuneytisins segir að umhverfi
málaflokksins hafi tekið töluverðum
breytingum frá því núverandi
löggjöf tók gildi fyrir 25 árum,
til að mynda með aukinni áherslu
á umhverfis og loftslagsmál,
breyttum skuldbindingum Íslands
á grundvelli alþjóðasamninga og
fjölgun ferðamanna sem vilja skoða
náttúru og dýralíf landsins.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson
umhverfis og auðlindaráðherra
segir að lögfesting stjórnunar
og verndaráætlana fyrir villta
dýrastofna sé í raun hjartað í þessu
frumvarpi og meginbreytingin frá
gildandi lögum um þetta efni.
„Með gerð stjórnunar
og verndaráætlana er lagður
mikilvægur grunnur að því að ávallt
verði byggt á haldbærum, faglegum
og vísindalegum upplýsingum
við vernd, stýringu og stjórnun
á stofnum villtra dýra. Á þeim
aldarfjórðungi síðan lögin tóku
gildi hefur margt tekið breytingum,
ekki einungis í náttúrunni sjálfri
heldur líka í afstöðu til nýtingar og
umgengni við hana. Ég er sérstakur
talsmaður þess að við leggjum
vísindin að leiðarljósi í allri okkar
ákvarðanatöku og þetta frumvarp er
því kærkomin breyting á núgildandi
lögum.“
Meðal helstu áherslna í frum
varpinu er aukin dýravernd og
dýravelferð. Þá er kveðið á um að
allar veiðar á villtum dýrum, þar
með talið hlunnindaveiðar, eigi að
vera sjálfbærar, mælt er fyrir um
virka veiðistjórnun og veiðieftirlit
á landinu öllu og að tekið verði
með markvissum hætti á tjóni sem
villt dýr og fuglar valdi. Þá er þar
komið til móts við sérstakar þarfir
veiðimanna sem bundnir eru við
hjólastól. /VH