Víkurfréttir - 17.03.2021, Blaðsíða 7
FIMMTUDAG KL. 20:30
HRINGBRAUT OG VF.IS
Katrín forsætisráðherra
og Hafsteinn Guðnason
í þætti vikunnar
Við leitum að einstaklingum með jákvætt viðmót og ríka
þjónustulund í störf flugöryggisvarða í sumar.
Helstu verkefni flugöryggisvarða eru öryggisleit einstaklinga,
farangurs, birgða og ökutækja ásamt aðgangsstýringu og
eftirliti á Keflavíkurflugvelli. Unnið er á vöktum.
Allir umsækjendur þurfa að geta sótt undirbúningsnám-
skeið og standast próf í lok námskeiðs áður en þeir hefja
störf. Möguleiki er á áframhaldandi ráðningu í lok sumars.
Hæfniskröfur
• Rík þjónustulund og lipurð í mannlegum samskiptum
• Góð samstarfshæfni
• Gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu máli
• Rétt litaskynjun
• Aldurstakmark 20 ár
Við óskum eftir að ráða sumarstarfsfólk í farþegaþjónustu
Keflavíkurflugvallar.
Helstu verkefni eru PRM þjónusta, flæðisstýring,
upplýsingagjöf til farþega sem og eftirlit með innritunar-
búnaði. Í PRM þjónustu felst aðstoð við einstaklinga með
fötlun og /eða skerta hreyfigetu sem þarfnast aðstoðar
við að komast um flugvöll og úr eða í flugvél. Möguleiki er á
áframhaldandi ráðningu í lok sumars.
Við leitum að einstaklingum með jákvætt viðmót og ríka
þjónustulund sem taka fagnandi á móti fjölbreyttum
verkefnum sem upp koma á Keflavíkurflugvelli.
Hæfniskröfur
• Góð færni í íslensku og ensku, þriðja tungumál er kostur
• Reynsla af umönnunarstörfum er kostur
• Sjálfstæð vinnubrögð og lipurð í samskiptum
• Aldurstakmark 18 ár
S TA R F S S T Ö Ð :
K E F L AV Í K
U M S Ó K N I R :
I S AV I A . I S/AT V I N N A
U M S Ó K N A R F R E S T U R :
2 8 . M A R S
V I L T Þ Ú V E R Ð A H L U T I A F
G Ó Ð U F E R Ð A L A G I Í S U M A R ?
Vegna kröfu reglugerðar um flugvernd þurfa umsækjendur að fylla út og skila inn umsókn vegna
bakgrunnsskoðunar lögreglu og vera með hreint sakavottorð. Nánari upplýsingar er að finna á isavia.is.
Hjá Isavia starfar öflugur hópur fólks sem allt hefur það að markmiði að vera hluti af góðu ferðalagi þeirra
sem fara um flugvelli félagsins og íslenska flugstjórnarsvæðið. Isavia ber Jafnlaunamerkið með stolti enda
er það staðföst trú okkar að launaákvarðanir skuli ávallt byggja á faglegum og málefnalegum rökum.
F L U G V E R N D FA R Þ E G A Þ J Ó N U S TA