Víkurfréttir - 17.03.2021, Page 21
CrossFit-afrekskonan Sara Sigmundsdóttir var fyrir því óhappi að meiðast
illa á æfingu nýlega. Hún hefur undirgengist rannsóknir sem staðfesta að
um slitin krossbönd sé að ræða. Sara segir í Facebook-færslu að hún sé
að upplifa sína verstu martröð en það er ljóst að CrossFit-tímabilinu er
lokið hjá henni í ár.
„Ég er enn að átta mig á því að þetta
hafi gerst í raun og veru og að ég
muni ekki taka þátt í CrossFit-tíma-
bilinu 2021. Bataferlið krefst þess að
ég gangi samstundis undir aðgerð og
svo taka við mánuðir af endurhæf-
ingu. Þegar hlutirnir skýrast betur
mun ég segja frá framvindu mála,“
segir Sara í færslu sinni.
Fjölmargir hafa skrifað uppörvandi
skilaboð við færslu hennar og það er
ljóst að þeir eru margir sem styðja
Söru og óska henni skjóts bata.
Sara segist jafnframt vera þakklát
fyrir þann stuðning sem henni
hefur verið sýndur af samherjum
og stuðningsaðilum – og auðvitað
öllum aðilum sem hafa stutt hana í
gegnum súrt og sætt en hún segir þá
hafa verið hennar helstu hvatningu
síðan hún byrjaði í íþróttinni.
Að lokum segir Sara: „Þetta er mín
áskorun núna. Áskorun tekið,“ og
það er augljóst að kraftakonan Sara
Sigmundsdóttir er ekkert á þeim
buxunum að gefast upp.
Tímabilinu lokið
hjá Söru
Sara Sigmundsdóttir keppir ekki meira í ár.
Mynd af Facebook-síðu Söru
TÓNLEIKAR Á NÆSTUNNI
TÓNLEIKAR FORSKÓLA 2 OG LÚÐRASVEITAR
Tvennir forskólatónleikar verða haldnir í Stapa, Hljómahöll, fimmtudaginn
18. mars. Fram koma Forskóli 2 ásamt elstu lúðrasveit skólans.
Fyrri tónleikarnir hefjast kl. 17.
Fram koma nemendur úr Akurskóla, Háaleitisskóla, Heiðarskóla og Holtaskóla.
Seinni tónleikarnir hefjast kl.18.
Fram koma nemendur úr Njarðvíkurskóla, Myllubakkaskóla og Stapaskóla.
Tónleikunum verður streymt á Youtube-rás skólans:
Tónlistarskóli Reykjanesbæjar
TÓNLEIKAR PÍANÓ- OG SÖNGNEMENDA
Söngdeild og hljómsborðsdeild skólans standa fyrir tónleikum í Bergi, Hljómahöll,
föstudaginn 19. mars kl.17.30. Á tónleikunum munu söngnemendur flytja lög
við ljóð nokkurra helstu skálda þjóðarinnar við meðleik píanónemenda.
Tónleikunum verður streymt á Youtube-rás skólans:
Tónlistarskóli Reykjanesbæjar
TVENNIR TÓNLEIKAR
LENGRA KOMINNA NEMENDA
Tónleikar lengra kominna nemenda verða haldnir í Bergi, Hljómahöll,
mánudaginn 22. mars og þriðjudaginn 23. mars.
Báðir tónleikarnir hefjast kl. kl.19.30.
Fram koma nemendur á framhaldsstigi sem og nemendur sem komnir eru fast að miðprófi.
Tónleikunum verður streymt á Youtube-rás skólans:
Tónlistarskóli Reykjanesbæjar
Með bestu kveðju og von um víðtækt áhorf,
skólastjóri
rausnarleg gjöf til grindvíkinga
Sjávarútvegsfyrirtækið Einhamar færir UMFG rútu að gjöf
Ungmennafélag Grindavíkur fékk
sannarlega frábæra gjöf þegar for-
svarsfólk sjávarútvegsfyrirtækisins
Einhamars Seafood færði félaginu
að gjöf tuttugu og tveggja manna
Mercedes-rútu sem hefur verið
merkt UMFG.
Um er að ræða frábæra gjöf sem
mun nýtast öllu félaginu vel í keppn-
isferðir á vegum þess. Rútan hefur
verið í eigu Einhamars í nokkur
ár og stóð til að skipta henni út og
selja. Þess í stað ákváðu stjórn-
endur Einhamars að taka rútuna í
gegn, lagfæra og færa Ungmenna-
félaginu að gjöf. Rútan, sem er af
gerðinni Mercedes Sprinter, kemur
því nánast sem ný til félagsins.
Rútan var formlega afhent í síð-
ustu viku og voru þau Rakel Lind
Hrafnsdóttir, frá körfuknattleiks-
deild UMFG, og Gunnar Már Gunn-
arsson, frá knattspyrnudeild
UMFG, sem tóku við rútunni
frá Söndru Antonsdóttur,
einum eigenda Einhamars.
„Við þökkum ótrúlegan
hlýhug frá Einhamar Sea-
food í garð félagsins. Það
hefur lengi verið draumur
félagsins að eignast svona
rútu til að geta farið sem
ein heild í keppnisferðir út
á land, hvort sem það eru
meistaraflokkar félagsins eða fyrir
yngri flokka. Rútan mun standa
öllum deildum félagsins til boða og
ætti að lækka ferðakostnað félagsins
verulega þegar fram líða stundir,“
sagði Bjarni Már Svavarsson, for-
maður UMFG, við þetta tilefni
„Aðalstjórn Ungmennafélags
Grindavíkur, vill koma á fram-
færi kærum þökkum til Einhamars
Seafood fyrir þessa ótrúlegu gjöf
sem við vonum svo sannarlega að
muni nýtast mörgum ungum Grind-
víkingum um ókomin ár. Svona gjöf
gefur félagið byr undir báða vængi
til að gera gott starf enn betra,“ segir
á vef UMFG.
„ÞAÐ VERÐUR ENGIN RÚTA HELDUR LANGFERÐABIFREIÐ!“
sögðu Stuðmenn í kvikmyndinni Með allt á hreinu hér um árið. Það sama má
segja um þessa glæsibifreið sem Grindvíkum var færð að gjöf og mun hún
án efa nýtast félaginu vel á keppnisferðum þess um landið vítt og breitt.
Á innfelldu myndinni má sjá Söndru Antonsdóttur
frá Einhamar Seafood afhenda bifreiðina.
FIMMTUDAG KL. 20:30
HRINGBRAUT OG VF.IS
Arnór Ingvi til
Bandaríkjanna
Arnór Ingvi Traustason hefur
gengið til liðs við New England
Revolution sem spilar í Banda-
rísku MLS-deildinni!
Arnór Ingvi hefur leikið með
sænska stórliðinu Malmö síðan
2018 og varð sænskur meistari
með liðinu á síðustu leiktíð.
Arnór Ingvi spilaði með Kefl-
víkingum 56 leiki og skoraði í
þeim tíu mörk áður en hann hóf
atvinnumensku sína þegar hann
var seldur til Sandnes Ulf í norsku
úrvalsdeildina árið 2012. Síðan
þá hefur Arnór átt glæstan ferill
í atvinnumennsku og spilað með
mörgum stórliðum, þá hefur
Arnór Ingvi einnig verið fasta-
maður í íslenska A-landsliðinu
undanfarin ár.
vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM Í 40 ár // 21