Víkurfréttir - 17.03.2021, Blaðsíða 10
Skugganefju rak
á land við Hafnir
– sjaldgæft smáhveli við Ísland
Um fimm metra langt smáhveli rak á land
neðan við Merkines í Höfnum á Reykjanesi
nýlega. Tali er að hvalurinn sé Skugganefja
en það er sjaldgæfur djúpsjávarhvalur. Andar-
nefja úr sömu ætt smáhvela, svínhvalaætt,
hefur oftar rekið á land við Íslandsstrendur.
Ekki er vitað hvað hvalurinn hefur verið
lengi í fjörunni í Höfnum. Íbúar í Höfnum sáu
hræið nýlega. Skugganefja heldur sig djúpt í
hafinu og á síðustu fjórum áratugum frá því
Hafrannsóknastofnun hóf skráningu hafa
innan við fimmtán svona hvalir verið skráðir
hér við land. „Þessi tegund hvala kafar mjög
djúpt, alveg niður á tveggja kílómetra dýpi og
er sjaldgæf. Hún er vanalega ekki svona norðar-
lega í hafinu,“ sagði Gísli Víkingsson, hvalasér-
fræðingur hjá Hafró, við Víkurfréttir.
Gísli sagði að svona smáhveli veiði með bergmálstækni og éti mest smokk-
fiska og kolkrabba. Skugganefja getur kafað mjög djúpt og lengi. Einhver
dæmi séu um að hvalir af svínhvalaætt hafi drepist eftir að hafa innbyrt
plast. Skugganefju rak síðast á land í norðanverðum Reyðarfirði árið 2018.
VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | 510 1700 | WWW.VR.IS
VR óskar eftir vönduðum sumarhúsum eða orlofs-
íbúðum á leigu til framleigu fyrir félagsmenn sína.
Við leitum að húsnæði á landsbyggðinni fyrir
næsta sumar.
Áhugasöm sendi upplýsingar á vr@vr.is fyrir 15. apríl 2021.
Nauðsynlegt er að góðar ljósmyndir og lýsing á umhverfi fylgi með.
Öllum tilboðum verður svarað.
Eftirfarandi upplýsingar þurfa að fylgja tilboði:
– Lýsing á eign og því sem henni fylgir
– Ástand eignar og staðsetning
– Stærð, öldi svefnplássa og byggingarár
– Lýsing á möguleikum til útivistar og
afþreyingar í næsta nágrenni
Sextán metra langur hnúfubakur
gerði sig heimakominn á Garð-
skaga snemma í síðustu viku. Hans
varð fyrst vart þar sem hann flaut
eins og korktappi á ógnarhraða
í Garðsjó með stefnuna á Garð-
skaga. Hvalurinn flaut yfir Flösina
og strandaði á Garðhúsvíkinni. Þar
hafði hræið náttstað áður en það
flaut upp á nýju á næsta strand-
stað. Hann var í Lambarifi. Ekki
stoppaði hnúfubakurinn lengi þar,
heldur hélt áfram hraðferð sinni og
næsti áfangastaður var í fjörunni
neðan við golfvöllinn að Kirkjubóli.
Við golfvöllinn sat hræið sem
fastast. Útblásið af metangasi vakti
hnúfubakurinn athygli, því belg-
meiri hval höfðu heimamenn ekki
séð árum saman. Vísindamenn frá
Hafrannsóknarstofnun voru kallaðir
til og vopnaðir sýnatökupinnum og
hnífum tóku þeir þau sýni sem
þurfti. Það er gott að vita hvort
hvalurinn hafi drepist af veikindum
eða með öðrum hætti. Vísindafólkið
varaði við því að fólk myndi nálgast
hvalinn, enda þrýstingurinn orðinn
mikill í kvið skepnunnar vegna gas-
myndunar og dýrið gæti sprungið í
loft upp á hverri stundu.
Hvalurinn ákvað hins vegar að
vera eins og kvikugangurinn á
Reykjanesskaga. Var ekki á því að
springa strax – og þar sem vísinda-
menn höfðu sagt fólki að koma alls
ekki nærri dýrinu vegna sprengi-
hættunnar þá mættu um tólf þúsund
manns í fjöruna til að pota í hræið.
Börnum var leyft að klifra upp á
hræið og hnúfubakurinn var orðinn
ein helsta Instagram- og TikTok-
stjarna landsins.
Átroðningur á golfvöllinn að
Kirkjubóli var einnig mikill enda
stormuðu þúsundir yfir völlinn
um liðna helgi og virtu aðvaranir
Útblásinn hnúfubakur varð
stjarna á Instagram og TikTok
að vettugi. Þá var erfitt að stunda
vetrargolf við þessar aðstæður.
Á mánudagsmorgun mættu svo
menn frá Köfunarþjónustu Sigurðar
og áhöfn á björgunarskipinu Hannesi
Þ. Hafstein. Hvalurinn var dreginn á
flot og stefnan tekin til hafs. Illa gekk
þó að sökkva dýrinu þó svo það hafi
verið losað við illa lyktandi gasið.
Þá var afleitt sjóveður og í samráði
við Landhelgisgæsluna var hræinu
sleppt dágóðan spöl frá landi í þeirri
von að hafstraumar myndu grípa
hræið og bera það langt í burtu frá
landinu. Ekkert hafði spurst frekar til
hvalsins þegar blaðið fór í prentun.
Hætta skapaðist þegar fólk gekk yfir völlinn þar sem kylfingar voru við leik. VF-mynd: Hilmar Bragi
Vísindamenn taka sýni úr hvalnum í fjörunni
við Kirkjuból. VF-mynd: Marta Eiríksdóttir
Hvalurinn strand á Lambarifi.
Þetta er ein af mörgum
myndum sem lesendur
sendu okkur af dýrinu.
Skugganefjan. VF-myndir: Gísli Kristjánsson
Fjölmenni skoðaði hræið í fjörunni við golfvöllinn
að Kirkjubóli. VF-mynd: Hilmar Bragi
10 // vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM Í 40 ár