Víkurfréttir - 05.05.2021, Side 2
FINNDU OKKUR Á FACEBOOK
DAGLEGAR FERÐIR ALLA VIRKA DAGA
S U Ð U R N E S - R E Y K J A V Í K
845 0900
FERÐIR Á DAG
ALLTAF PLÁSS
Í BÍLNUM
HREINSUM
RIMLAGARDÍNUR OG
MYRKVUNARGARDÍNUR
NÁNARI UPPLÝSINGAR Á ALLTHREINT.IS
Rúmfatalagerinn
opnar í Reykjanesbæ
Rúmfatalagerinn opnar nýja
verslun seinni hluta maímánaðar
að Fitjum í Reykjanesbæ. Nýja
verslunin er í húsnæði sem áður
hýsti Hagkaup og deilir inngangi
með Bónus.
Verslun Rúmfatalagersins að
Fitjum er sú fyrsta á Íslandi sem
byggir á nýju útliti frá JYSK, en þar
er notast við ný hillukerfi og uppstill-
ingar sem gefa nýjan og ferskan blæ
á vel þekkt verslunarrými Rúmfa-
talagersins, viðskiptavinum til hags-
bóta og hægðarauka, segir í tilkynn-
ingu frá Rúmfatalagernum.
„Við erum afskaplega ánægð
að geta boðið íbúum Reykjanes-
bæjar í heimsókn til okkar í nýtt
og skemmtilegt verslunarumhverfi.
Verslunin er hönnuð með þægindi
og notagildi fyrir viðskiptavini í huga
og það gleður okkur að verslunin
að Fitjum sé sú fyrsta í þessu nýja
útliti. Þá bjóðum við nýtt starfs-
fólk Rúmfatalagersins velkomið til
starfa,“ segir Björn Ingi Vilhjálmsson,
framkvæmdastjóri Rúmfatalagersins.
Isavia og Verkfræðistofa Suður
nesja hafa undirritað samning
um framkvæmdaeftirlit og ráðgjöf
vegna nýrrar viðbyggingar við
Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Fram
kvæmdir hefjast á næstu vikum og
eru hluti af vinnu við ýmis verkefni
sem tengjast stækkun Flugstöðvar
Leifs Eiríkssonar og umbótum á
Keflavíkurflugvelli í framhaldi af
hlutafjáraukningu ríkisins í Isavia.
Mörg hundruð ný störf verða til í
sumar í tengslum við fyrirhugaðar
framkvæmdir, sem undirbúnar hafa
verið á síðustu mánuðum með út
boðum og verðkönnunum.
Viðamesta framkvæmdin er fyrir-
huguð stækkun austurbyggingar
flugstöðvarinnar. Þrjú tilboð bárust
í framkvæmdaeftirlit og tilheyrandi
ráðgjöf í tengslum við framkvæmd-
irnar. Lægsta tilboðið var frá Verk-
fræðistofu Suðurnesja (VSS), 200
milljónir króna. Aðrir sem buðu í
verkið voru JT Verk og Hnit. Tilboð
VSS var samþykkt og undirrituðu
Sveinbjörn Indriðason, forstjóri
Isavia, og Brynjólfur Guðmundsson,
framkvæmdastjóri VSS, samninginn.
„Þetta er mikilvægt skref fyrir
okkur öll sem höfum verið að und-
irbúa næstu áfanga í uppbyggingu
Keflavíkurflugvallar. Segja má að
samningurinn við VSS marki viss
tímamót. Heimsfaraldurinn hefur
haft gríðarlega mikil áhrif á okkur
en það er afar ánægjulegt að hafa
núna fengið tækifæri til að hefja
vinnu við uppbyggingaráætlun flug-
vallarins á ný. Við hlökkum til að sjá
framkvæmdaumsvifin hefjast á ný
og bíðum spennt eftir því að flug-
samgöngur komist einnig smám
saman í eðlilegt horf,“ segir Svein-
björn Indriðason
„Við hjá VSS erum mjög ánægð.
Samningurinn við Isavia um eftirlit
og ráðgjöf vegna framkvæmdanna
við austurbyggingu flugstöðvarinnar
tryggir mikilvæg störf hér á Suður-
nesjum, bæði fyrir verkfræðinga og
annað tæknifólk, þetta mun skapa
okkur 4-6 störf næstu tvö árin. Þá
eru ótalin störf við sjálfar fram-
kvæmdirnar. Vonandi fara hjólin
að snúast hraðar – ekki síst hér á
Suðurnesjum,“ segir Brynjólfur
Guðmundsson. Hjá VSS starfa nú 15
manns sem allir nema einn eru bú-
settir á Suðurnesjum og hefur verk-
fræðistofan aðsetur í Reykjanesbæ.
Samningurinn við VSS er ekki
eingöngu bundinn við fyrsta áfanga
austurbyggingar Flugstöðvar Leifs
Eiríkssonar og því mun VSS mögu-
lega einnig koma að eftirliti og ráð-
gjöf vegna annarra verkefna sem
eru á döfinni á Keflavíkurflugvelli á
komandi mánuðum.
Skapar mörg störf hjá
Verkfræðistofu Suðurnesja
Verkfræðistofa Suðurnesja mun sinna framkvæmdaeftirliti
og ráðgjöf vegna nýbyggingar við Flugstöð Leifs Eiríkssonar:
Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia, og Brynjólfur
Guðmundsson, framkvæmdastjóri VSS, á framkvæmdasvæðinu
við flugstöðina eftir undirritun samningsins. VF-mynd/pket.
Atvinnuleitendur munu fá frítt í
sund í Sundmiðstöð Reykjanes
bæjar frá 15. maí til 1. ágúst. Beiðni
um frítt í sund fyrir atvinnuleit
endur barst frá íbúa í Reykjanesbæ
þar sem ráðið er hvatt til að veita
atvinnuleitendum frítt í sund tíma
bundið.
Íþrótta- og tómstundaráð Reykja-
nesbæjar ráð tók undir erindið og
fól íþrótta- og tómstundafulltrúa að
skoða málið nánar. Mjög misjafnt er
milli bæjarfélaga hvort boðið sé upp
á frítt í sund fyrir atvinnuleitendur.
Færa má veigamikil rök fyrir því í
ljósi heimsfaraldurs og mikils at-
vinnuleysis á svæðinu að æskilegt sé
að bjóða atvinnuleitendum í Reykja-
nesbæ frítt í sund tímabundið.
Tímabilið sem að íþrótta- og tóm-
stundaráð leggur leggur til er 15. maí
til 1. ágúst 2021, svo fremi sem sam-
komutakmarkanir hindri ekki fram-
kvæmdina. Áætlaður kostnaður er
250.000 kr. og rúmast innan fjár-
heimilda íþrótta- og tómstundaráðs.
Um verður að ræða samstarf við
Vinnumálastofnun og hefur íþrótta-
og tómstundafulltrúi átt fund með
forstöðumanni stofnunarinnar. At-
vinnuleitendur munu geta nálgast
staðfestingarblað þar og framvísað í
Vatnaveröld og þurfa að greiða 1.000
kr. og fá frítt frá 15. maí til 1. ágúst nk.
Íþrótta og tómstundaráð Reykja
nesbæjar hefur að undanförnu
fengið fjölmargar áskoranir um að
lengja opnunartímann í Sundmið
stöð Reykjanesbæjar. Á síðasta
fundi ungmennaráðs Reykjanes
bæjar vöktu þau einnig athygli á
opnunartímanum.
Aukinn opnunartími verður í
Sundmiðstöð Reykjanesbæjar frá og
með 1. maí. Opnunartíminn verður
frá 06:30 – 21:30 virka daga og frá
09:00 – 18:00 um helgar. Sami opn-
unartími verður á veturna sem þýðir
lengri opnun um eina klukkustund
virka daga og hálftíma um helgar.
Á síðasta fundi íþrótta- og tóm-
stundaráðs Reykjanesbæjar var
Hafsteini Ingibergssyni forstöðu-
manni íþróttamannvirkja falið að
kanna hver kostnaðurinn myndi
vera að auka opnunartímann enn
frekar, þannig að hann samræmist
opnunartíma hjá sambærilegum
sveitarfélögum. Hafsteini er falið að
skila tillögum þess efnis til íþrótta-
og tómstundaráðs sem fyrst.
Lengri opnun-
artími í sund í
Reykjanesbæ
Frítt í sund fyrir
atvinnuleitendur
– Framvísa staðfestingarblaði
og greiða einu sinni þúsund krónur
Frístunda og menningar
nefnd Sveitarfélagsins Voga
leggur til að ærslabelgur verði
staðsettur við gafl íþrótta
miðstöðvar. Óskað var eftir
tillögum nefndarinnar að
staðsetningu á ærslabelg en
nokkrir staðir þóttu koma til
greina.
Ærslabelgurinn
verði við gafl
íþróttamiðstöðvar
Laugafiskur ehf óskar eftir starfsfólki
í almenn störf, lyftararéttindi kostur
Vinnutími er 7–15 virka daga og einnig mögu-
leiki á eftirvinnu þegar þess þarf.
Mötuneyti er á staðnum og boðið er upp
á ferðir til og frá vinnustaðar.
Upplýsingar veitir Víðir í póstfangi vidir@laugafiskur.is
2 // víkurFrÉttir á SuðurNESJuM í 40 ár