Víkurfréttir - 05.05.2021, Qupperneq 15
Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Keflavíkurflugvallar 2013-2030.
Breyting á byggingarheimildum á öryggissvæðinu (svæði B).
Utanríkisráðuneytið og Skipulagsnefnd Keflavíkurflugvallar hafa samþykkt að
kynna tillögu að breyu aðalskipulagi Keflavíkurflugvallar í samræmi við
1. mgr. 36. gr skipulagslaga nr. 123/2010. Breyting felur í sér auknar byggingar-
heimildir á öryggissvæði Keflavíkurflugvallar. Óskað er e
ir ábendingum vegna
tillögunnar fyrir 9. júní 2021. Tillagan er kynnt á heimasíðu Isavia;
isavia.is/skipulag-i-kynningu og á samráðsgá stjórnvalda (samradsga.is),
frá og með 28. apríl 2021.
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi öryggissvæðisins á Keflavíkurflugvelli
Utanríkisráðuneytið hefur falið Landhelgisgæslu Íslands að vinna breytingu á
deiliskipulagi fyrir öryggissvæðið á Keflavíkurflugvelli. Landhelgisgæsla Íslands
auglýsir hér með í samræmi við 1. mgr. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr.
123/2010 tillögu að breytingu á deiliskipulagi öryggissvæðisins á Keflavíkurflugvelli.
Deiliskipulagssvæðið er um 760 ha að stærð og afmarkast samkvæmt auglýsingu nr.
720/2015 um landfræðileg mörk öryggis- og varnarsvæða. Helstu breytingar eru m.a.
viðbótar byggingarheimildir, breytingar og stækkun á byggingarreitum og nýir
byggingarreitir. Þá eru afmörkuð svæði fyrir efnisvinnslusvæði, skotvöll og
birgðageymslusvæði, breytingar gerðar á byggingarreitum í því samhengi og
byggingarheimild hækkuð.
Deiliskipulagstillagan verður aðgengileg á samráðsgá stjórnvalda
(samradsga.is), frá og með 28. apríl 2021.
Nánari upplýsingar veitir skipulagsfulltrúi Keflavíkurflugvallar og öryggissvæða,
sveinn.valdimarsson@isavia.is
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta gefst kostur á að gera athugasemdir við
tillögurnar. Skila má skriflegum athugasemdum í gegnum Samráðsgáina, með bréfi
til Landhelgisgæslu Íslands (b.t. Sveinn Valdimarsson, skipulagsfulltrúa, Þjóðbraut 1,
235 Keflavíkurflugvöllur) eða með því að senda tölvupóst á netfangið
sveinn.valdimarsson@isavia.is. Frestur til að gera athugasemdir er til 9. júní 2021.
AUGLÝSING UM BREYTINGU Á AÐALSKIPULAGI
KEFLAVÍKURFLUGVALLAR OG DEILISKIPULAGI
Á ÖRYGGISSVÆÐINU Á KEFLAVÍKURFLUGVELLI
Lögreglan á Suðurnesjum er með
vakt við gosstöðvarnar frá hádegi og
til miðnættis. Svæðið er ekki rýmt
en lögregla yfirgefur svæðið á mið-
nætti og það er látið berast til göngu-
manna. „Þetta er okkar verklag og
það hefur gefið góða raun síðustu
daga,“ segir Úlfar.
– Hefur þú farið sjálfur að skoða
þetta?
„Já, ég hef verið þarna tvisvar. Ég
var þarna í fyrstu viku gossins og
svo var ég þarna á föstudaginn í þar-
síðustu viku. Það er gaman að segja
frá því að þetta er mjög ólíkt að vera
þarna í upphafi goss og svo núna.
Við erum að sjá allt annað landslag.
Þetta er stórkostlegur staður.“
– Þegar horft er til baka, er þá hægt
að segja að þetta hafi gengið ótrú-
lega vel?
„Þetta hefur gengið virkilega vel.“
– Þetta er að því er virðist hvergi
nærri búið og verður risastór aug-
lýsing fyrir Suðurnes. Er eitthvað
farið að skoða framhaldið?
„Það er vinna sem er í gangi og
komin vel á veg. Við eigum eftir
að sjá fljótlega landverði þarna
við störf. Þessu er sinnt vel og ég
bind miklar vonir við það. Þetta er
klárlega náttúruperla sem ferða-
menn, Íslendingar og útlendingar,
munu koma til með að heimsækja á
komandi árum, það er ekki nokkur
spurning. Þannig að þetta eru tæki-
færi fyrir svæðið.“
„Það er spennandi
áskorun að
koma hingað til
Suðurnesja.“
Vegna fjölda ábendinga frá íbúum í
Reykjanesbæ tilkynnir byggingarfulltrúi
um aukið eftirlit á mannvirkjum.
Á næstu mánuðum munu starfsmenn
embættisins vera á ferðinni um svæðið þar
sem áhersla verður lögð á að skoða hvort
viðhaldi mannvirkja og húsa séu viðhlítandi,
hvort framkvæmdir hafi tilskilin leyfi
embættisins og m.a. hvort smáhýsi og aðrir
lausafjármunir á lóðum séu rétt staðsett og
hvort þau hafi tilskilin leyfi eins og við á.
Með sumarkveðju,
Embætti byggingarfulltrúi Reykjanesbæjar
Aukið
eftirlit á
mannvirkjum
víkurFrÉttir á SuðurNESJuM í 40 ár // 15