Víkurfréttir - 05.05.2021, Síða 19
Elmar Þór Hauksson verkstjóri og starfsmaður í móttöku hjá
Nýsprautun ehf. vill að Ljósanótt verði sú stærsta og flottasta
í ár með tilheyrandi gleði í hjarta hvers bæjarbúa.
– Hvað er efst í huga eftir veturinn?
Allar utanlandsferðirnar og litlu
krúttlegu stundirnar með fjölskyldu,
maður hefur lítið farið út fyrir boxið
síðastliðið ár.
– Er eitthvað eftirminnilegt í per-
sónulegu lífi frá vetrinum?
Svo sem ekki frá síðasta vetri, en það
sem lifir hvað skærast í huga mínum
er afmælisferð sem ég fór með for-
eldrum mínum til New York í mars-
mánuði á síðasta ári, þar fögnuðum
við 70 ára afmæli pabba. Sumir segja
að ég hafi verið síðasti Íslending-
urinn sem slapp til New York.
— Hversu leiður ertu orðinn á
Covid?
Maður er náttúrulega orðin mjög
þreyttur á því og sem betur fer
hefur maður sloppið ennþá og von-
andi sleppur maður alveg fram að
stungunni. Þetta er ekki eitthvað
sem maður ræður við og ekki hægt
að pirra sig á þessu.
— Ertu farin að gera einhver plön
fyrir sumarið, ferðalög t.d. ætlarðu
til útlanda?
Já það er svona aðeins farið að huga
að þessu, búið að fá úthlutað orlofs-
húsi og svo kíkir maður vonandi
eitthvað á Þórshöfn, heimahaga
pabba. Einnig er stefnan tekin á að
keppa í Íslandsmótinu kvartmílu og
slá persónulega met. Svo væri al-
gjör draumur að komast til útlanda,
stefnan er að skreppa til Þýskalands,
Ítalíu og Flórída.
– Hvað myndir þú gera ef heimurinn
yrði Covid-frír í næstu viku?
Hrópa þrefalt húrra og drífa sig að
panta flug. Svo væri gaman að henda
í smá kveðju Covid tónleika.
– Uppáhaldsmatur á sumrin?
Grillmatur er voðalega góður,
svo væri gaman að fjárfesta í Uni
pizzaofn eða sambærilegu og prófa
sig áfram á þeim bænum. Mér finnst
pizzur voðalega góðar.
– Ertu mikill grillari? Hvað finnst
þér best á grillið?
Því miður þá hef ég ekki náð tökum
á grillinu, en það stendur til bóta.
En það besta sem ég fæ á grillið er
svínahnakki a la Mamma. Hennar
töfrabragð er leyni marineringin sem
slær öllu við.
– Uppáhaldsdrykkur á sumrin?
Það er bara þetta hefðbundna, Coca
Cola eða Pepsi. Ég hef ekki ennþá
náð þeim aldri að mega smakka
áfengi og er ég stoltur af því.
– Hvert myndir þú fara með gest á
Reykjanesinu (fyrir utangosslóðir)?
Reykjanesið er algjör perla í heild
sem gaman er að skoða. Maður er
alltaf að sjá eitthvað nýtt. Ég myndi
sýna völlinn þar sem mikil saga er,
heilt samfélag til áratuga sem var
sópað í burtu á einu augnabliki.
Einnig er hægt að taka dagstúr
sem byrjar í Kúagerði og endar í
Krýsuvík, þar sem stígvélið væri
alveg þrætt.
– Hver var síðasta bók sem þú last?
Lífið á vellinum eftir Dagný Mag-
gýjar er sú síðasta. Ég er ekki mikill
lestrarhestur því miður.
– Hvaða lag er í uppáhaldi hjá þér
núna?
Þau eru svo mörg, ekki hægt að
festa puttann á eitt, en það sem ég
hlustaði síðast á var Shine a light
með Rolling Stones.
– Hvað viltu sjá gerast í þínu bæjar-
félagi á þessu ári?
Að ljósanótt verði sú stærsta og
flottasta í ár, með tilheyrandi gleði
í hjarta hvers bæjarbúa. Þetta var
hlutlaust svar, ekki satt?
Sindri Kristinn Ólafsson, háskólanemi, þjálfari og fótbolta-
maður, er bæði orðinn þreyttur á Covid en líka þakklátur.
Hann gat varið meiri tíma með kærustunni. Hann hefur engin
sérstök plön fyrir sumarið önnur en að vinna og spila fótbolta.
– Hvað er efst í huga eftir veturinn?
Að sumarið sé framundan.
– Er eitthvað eftirminnilegt í per-
sónulegu lífi frá vetrinum?
Þakklæti.
– Hversu leiður ertu orðinn á
Covid?
Ég er orðinn frekar leiður á því,
viðurkenni það. Það er samt margt
sem ég get persónulega verið þakk-
látur fyrir í Covid, eyddi meiri tíma
með kærustunni minni heldur en
hefði verið möguleiki. Sýnum smá
Covid-þakklæti í allri neikvæðninni.
Er samt orðinn þreyttur á því svo
því sé haldið til haga.
– Ertu farin að gera einhver plön
fyrir sumarið, ferðalög t.d. Ætlarðu
til útlanda?
Engin sérstök plön fyrir sumarið
sjálft annað en að vinna og spila
fótbolta. Annars er plönuð utan-
landsferð í október þegar tímabilið
er búið.
– Hvað myndir þú gera ef heim-
urinn yrði Covid-frír í næstu viku?
Þá myndi ég boða í eitt gott partý og
knúsa alla sem myndu mæta.
– Uppáhaldsmatur á sumrin?
Erfið spurning, ætla að segja pizza
þar sem ég er sökker fyrir góðri
pizzu.
– Ertu mikill grillari? Hvað finnst
þér best á grillið?
Já ég er alltaf að komast meira og
meira á grillvagninn. Folaldasteikin
er langbest á grillinu svo það sé á
hreinu.
– Uppáhaldsdrykkur á sumrin?
7up free á þennan leik.
– Hvert myndir þú fara með gest á
Reykjanesinu (fyrir utan gosslóðir)?
Keflavíkurvöll og Blue-höllina. Til
vara myndi ég fara Bláa lónið lík-
legast.
Hver var síðasta bók sem þú last?
Hvíti Dauði eftir Ragnar Jónasson
– Hvaða lag er í uppáhaldi hjá þér
núna?
Þarf að nefna nokkur lög hérna en
það er Ég var að spá með Rakel og
JóaPé, Ástrós með Bubba Morthens
og svo Walking in Memphis með
Marc Cohn. Síðan er Fleiri í takinu
með Gumma Tóta sturlað gott lag.
– Hvað viltu sjá gerast í þínu bæjar-
félagi á þessu ári?
Hvar á ég að byrja? Fyrst og fremst
væri ég til í að sjá bætingu á aðstöðu
íþróttafélagana í Reykjanesbæ. Við
erum fjórða stærsta bæjarfélag
landsins og íþróttafélögin okkar
eru með aðstöðu vítt og dreift um
bæinn í stað þess að mynda kjarna
fyrir hvert og eitt félag. Setja meira
púður í íþrótta- og æskulýðsstarf.
Höldum síðan áfram að fegra bæinn
okkar með listaverkum og gera upp
götur og hús.
ELMAR ÞÓR HAUKSSON VÆRI TIL Í DAGSTÚR SEM BYRJAR Í KÚAGERÐI OG ENDAR Í KRÝSUVÍK
SÍÐASTI ÍSLENDINGURINN
SEM SLAPP TIL NEW YORK
Myndi boða í
eitt gott partý ef
Covid væri búið
víkurFrÉttir á SuðurNESJuM í 40 ár // 19