Víkurfréttir - 05.05.2021, Qupperneq 20
Gerum flott prófkjör!
Í lok mánaðarins, 29. maí,
verður prófkjör Sjálfstæð
isflokksins í Suðurkjör
dæmi vegna Alþingskosn
inganna 25. september
næstkomandi. Ég hef
ákveðið að gefa kost á mér
í 2. sæti á lista flokksins og
bið um stuðning í það sæti. Ég hef
setið á Alþingi síðan í apríl 2013 og
látið helst til mín taka á vettvangi
atvinnu og velferðarmála og setið
í þeim nefndum frá fyrsta þingdegi.
Það þekkja mig flestir fyrir festu í
málum og dugnaði við að halda
sambandi við kjósendur í mínu
kjördæmi og reyndar um land allt.
Það skiptir miklu fyrir okkur sem
tökum þátt í prófkjörinu að það fari
vel fram og verði flokknum og þátt-
takendum til sóma og framdráttar í
kosningunum í september. Ekkert er
betra fyrir góð kosningaúrslit Sjálf-
stæðisflokksins en fjölmennt og vel
sótt prófkjör í aðdraganda kosninga.
Það er fjölbreyttur hópur góðra
frambjóðenda í prófkjörinu
og engin ástæða önnur en
að niðurstaðan verði góður
listi fyrir Sjálfstæðisflokkinn
í Suðurkjördæmi. Það er
merkileg upplifun að vera
elstur þátttakenda en ég
finn ekki að krafturinn hafi
minnkað fyrir vikið. Ég legg mikið
upp úr að vinna vel með öðrum
frambjóðendum og vera fyrirmynd
í öllu samstarfi við þau öll. Ég hef
síðustu vikur farið með öðrum
frambjóðendum í heimsóknir um
kjördæmið og lagt mig fram um að
kynna okkar frábæru frambjóðendur.
Ég óska eftir stuðningi ykkar í 2.
sætið og hvet fólk til þátttöku í próf-
kjörinu. Við skulum kjósa af ábyrgð
svo listinn endurspegli vilja kjósenda
í öllu kjördæminu og dragi þá á kjör-
stað í kosningunum að hausti.
Með vinsemd og virðingu,
Ásmundur Friðriksson
alþingismaður.
Matthildur Ingvarsdóttir frá Bjargi í Garði – minning
Matta á Bjargi
Ég hitti Möttu á Bjargi í fyrsta skipti á
Flösinni þegar hún rak veitingastaðinn
sem var í eigu sveitarfélagsins í Garði.
Ég, nýlega ráðinn bæjarstjóri, kom til
að kynna mér starfsemina. Mjúk en
svo hressileg röddin sem gat líka verið
hryssingsleg eins og norðanáttin sem
tók á móti mér. Sagan segir að Lýðveldis-
vitinn skýli lágreistri byggðinni við ysta
nes Skagans fyrir kaldri norðanáttinni
sem kemur askvaðandi yfir Flóann. Þar
skellur hún á land þar sem fyrirstaðan
er engin og þá þarf konan sem skýlir mörgum fyrir
norðannepjunni að vera það bjarg sem aldrei bifast.
Hún tók ekki sérstaklega hátíðlega á móti nýjum bæj-
arstjóra. Sagði honum að hún hefði nóg annað að gera
að sitja á rassgatinu í einhverju óþarfa spjalli þegar
nóg væri að gera í vinnunni. Bæjarstjórinn gæti bara
komið þegar róaðist um og viðskiptavinirnir farnir.
Það er svona fólk sem allir vilja hafa í vinnunni hjá
sér. Starfsfólk sem tekur starfið fram yfir spjall við
bæjarstjóra sem kemur á röngum tíma og nóg að gera.
Matta var líka þeirrar gerðar að horfa beint í augun á
bæjarstjóranum og þeim sem hún talaði við og sagði
alltaf sína meiningu. Kona með bjargfasta meiningu
og trú. Það er kostur við starfsmann sem vinnur sér
inn traust með slíkum hætti. Samstarf okkar Möttu
varð gott og þróaðist í vináttu og virðingu í garð
hvors annars. Tíminn var ekki nýttur í meiningar-
laus samtöl en við áttum góðar stundir þegar við
hittumst. Í veikindum hennar fylgdist ég vel með en
Covid-fjandinn kom í veg fyrir heimsóknir til hennar.
Við heyrðumst reglulega í síma og í þeim samtölum
upplifði ég þessa sterku konu sem var óbifanlegt
bjarg í veikindum sínum sem öðru. Þar
upplifði ég þennan sterka grunn og arf-
leið sem hún reisti líf sitt á. Matta sagði
mér í hispursleysi frá veikindum sínum.
Gerði ekki mikið úr stöðunni en ég vissi
betur. Matta endaði alltaf stutta yfirferð
af veikindum sínum með því að segja á
sinn einlæga hátt: „Það eru nú margir Ási
minn sem hafa það verr en ég.“ Þannig
stóð hún sjálf af sér norðanáttina í sínu
lífi, það voru nefnilega alltaf einhverjir
sem höfðu það verr en hún. Líknandi
meðferðin gaf henni gleðistund daginn fyrir andlátið.
Helga Tryggvadóttir, nágranni hennar frá Laufási,
sat hjá henni. Það var kærleiksstund fyrir vinkon-
urnar frá Laufási og Bjargi að hittast eftir allt Covid-
farganið. Þær sátu í sólhúsinu og vissu báðar að þetta
gat verið síðasti sólardagurinn þeirra á æskuslóðum.
Maggi bakaði vöfflur og kom með rjóma og sultu. Þær
sátu saman og spjölluðu en Guð hlustaði. Þær eru
báðar í hans liði og að handan biðu margir sem þær
söknuðu. Matta dó innan sólarhrings og tók með sér
kveðjuna til Eyjólfs og hún mun kasta kveðjum á
fleiri gamla vini í Garðinum við sjónarrönd. Bjargið
sem skýldi svo mörgum fyrir napri norðanáttinni
hafði gengið frá öllu á lokadegi. Talað við prestinn,
valið sálmana í útförina og gert sjóklárt fyrir síðustu
siglinguna gegn norðanáttinni þegar Matta sigldi út
Flóann á ný mið.
Votta Magnúsi og fjölskyldunni hjartans samúð.
Ásmundur Friðriksson,
alþingismaður.
Matthildur Ingvarsdóttir – minning
Þegar einhver fellur frá
fyllist hjartað tómi
en margur síðan mikið á
í minninganna hljómi.
Á meðan hjörtun mild og góð
minning örmum vefur
þá fær að hljóma lífsins ljóð
og lag sem tilgang hefur.
Ef minning geymir ást og yl
hún yfir sorgum gnæfir
því alltaf verða tónar til
sem tíminn ekki svæfir.
(Kristján Hreinsson)
Látin er kær vinkona Matta á Bjargi. Matta hefur
verið mér afar kær allt mitt líf í leik og ráðleggingum.
Við skautuðum á síkinu, renndum okkur á skíða-
sleðum, sippuðum um allan Garð svo fínu hvítu
sportsokkarnir urðu allir í slettum. Við gerðum líka
smá prakkarastrik stundum en gleymdum þeim mjög
fljótt, fórum þann sama dag að sníkja servettur og
vorum þá teknar og skammaðar.
En Matta var fljót að svara fyrir okkur.
Hún var ráðgjafi minn er ég eignaðist frumburðinn,
hafði hún eignast sinn fjórum árum áður.
Gat ég endalaust hlustað á hennar góðu ráð og frá-
sagnir.
Minning þín sem stjarna skær
skín í huga mér svo kær.
Ég sendi út í húmið hljótt
hundrað kossa-góða nótt.
(Íris Dungal)
Blessuð sé minning þín elsku vinkona.
Guðveig Sigurðardóttir
(Veiga í Brautarholti)
Úr myrkrinu í ljósið 2021
Búðu til þinn eigin viðburð 8. maí næstkomandi í minningu þeirra sem
látist hafa í sjálfsvígi og til að efla von þeirra sem eiga um sárt að binda
vegna vanlíðunar, sjálfsvígshugsana og sjálfsskaða.
Þinn viðburður er til styrktar Píeta
samtökunum, sem bjóða ókeypis
úrræði fyrir fólk í sjálfsvígshug-
leiðingum, við sjálfsskaða og veita
aðstoð fyrir aðstandendur og þá sem
misst hafa ástvini í sjálfsvígi.
Við hvetjum alla til að búa til
sinn eigin viðburð en undanfarin ár
höfum við gengið fimm kílómetra
víða um land við sólarupprás, sem
er um miðja nótt. Í ár verður ekki
hefðbundin ganga vegna samkomu-
takmarkana og því biðjum við fólk
að taka þátt með öðruvísi hætti.
Hvað er hægt að gera 8. maí?
Við hvetjum alla til að fara út að
ganga, hlaupa eða hjóla, fara á
rúntinn og skoða sólarupprásina,
kíkja á gosið og jafnvel ganga á fjöll.
Sérstaklega hvetjum við unga
fólkið okkar í framhaldsskólum og
háskólum að taka þátt en einnig fyr-
irtæki, starfsmannafélög og hlaupa-
hópa.
Við hvetjum alla landsmenn til að
stíga fram 8. maí, fara í gula bolinn,
búa til sinn eigin viðburð og fara inn
á tix.is og styrkja Píeta samtökin.
Hægt er að fá nánari upplýsingar á
heimasíðu samtakanna www.pieta.is
en skráning fer fram á www.tix.is.
Upplýsingar veitir Benedikt Þór
Guðmundsson, verkefnastjóri,
benni@pieta.is
Píeta samtökin eru sjálfsvígsfor-
varnasamtök sem reka gjaldfrjálsa
þjónustu fyrir fólk í sjálfsvígshættu,
sem glímir við sjálfsvígshugsanir og
aðstandendur þeirra.
Píeta á Baldursgötu 7 var opnað
i byrjun 2018 til mæta þeirri miklu
þörf í samfélaginu fyrir úrræði fyrir
fólk í sjálfsvígshættu og með sjálfs-
skaða. Fólk getur alltaf leitað til Píeta
og þjónustan er öllum opin, ókeypis.
Hægt er að hringja í síma 552-2218
allan sólarhringinn, alla daga ársins.
Þeir sem vilja styrkja Píeta Ísland
geta lagt inn á reikning: 30126
041041 kennitala: 4104160690
– framkvæmdastjóri Píeta samtak
anna er Kristín Ólafsdóttir.
Jafningjastuðningur
karla sem greinst
hafa með krabbamein
Þann 8. maí ætlar Krabbameinsfélag Suðurnesja að bjóða upp á karla
hitting fyrir karlmenn á öllum aldri sem hafa greinst með krabbamein.
Það skiptir ekki máli hvar þú ert staddur í ferlinu né hvenær þú greindist
með krabbamein, þú ert velkominn.
Þetta verkefni er partur af stuðn-
ingsneti þar sem krabbameins-
greindir einstaklingar geta spjallað
saman og deilt reynslu sinni að
greinast með krabbamein. Mark-
miðið með jafningjastuðning er að
það getur verið hjálplegt að ræða
við einhvern sem hefur skilning og
gengið í gegnum svipaða reynslu.
Rannsóknir sýna að þeim sem taka
þátt í stuðningshópum líður oft
betur og upplifa aukin lífsgæði. Þeir
eru líklegri til að hafa meiri von og
eru oft ákveðnir í því að takast á við
viðfangsefnið.
Fyrsti hittingur verður þann 8.
maí kl. 11.00 á þjónustuskrifstofu
Krabbameinsfélags Suðurnesja, sem
er staðsett í húsi Rauða krossins á
Smiðjuvöllum 8.
Umsjón með hópnum er Árni
Björn Ólafsson en hann greindist
með ristilskrabbamein 10. september
2020
„Krabbi hefur tvær klær,
ef þú hunsar aðra þeirra þá
verður þú klipinn í rassinn“
„Skömmu eftir að ég greindist,
þá leitaði ég til konu minnar eftir
huggun og öxl til að gráta. Þetta var
sjálfsögð viðbrögð af okkar hálfu,
þegar annað okkur á bágt þá kemur
hinn helmingurinn að hjúkra.
Í fyrra lenti ég í nokkrum hremm-
ingum, uppsögn, móðurmissi og
greindist með krabbamein. Þegar ég
missti atvinnuna mína leitaði ég til
konunnar minnar og hún hjálpaði
mér í gegnum það. Þegar ég missti
mömmu, þá leituðu við til hvors
annars og saman fórum við í gegnum
það. Þegar ég greindist með krabba-
mein, þá gekk gamla formúlan ekki
upp og hversu mikið sem tárin féllu
þá fengu við enga huggun. Svo að
formúlan virki þá þarf annar aðilinn
að vera í andlegu jafnvægi en ef
báðir aðilar eru á botninum, þá er
ansi erfitt að komast á yfirborðið.
Ég veit að konan mín vill vera
sterki aðilinn því ég var sá sem
veiktist en ég vil ekki leggja á hana
meira en ég þarf því ég veit að hún
er sjálf að glíma við andlegu hliðina
sem aðstandandi krabbameins-
sjúklings.
Ég þarf að hugsa um að ef illa fer
hjá mér, ef ég fyllist reiði eða dett í
þunglyndi þá vil ég ekki að hún taki
við því. Við huggum hvort annað
með því að leita aðstoðar út á við,
með því að vinna í okkur sjálfum og
fá aðstoð frá öðrum.
Ég greindist en við fengum bæði
sama krabbameinið sem við þurfum
að tækla á sitt hvorum hætti:
* Ég fékk fréttir að það eru líkur á
að ég lifi þetta ekki af og að lík-
aminn minn verður kannski aldrei
eins þó ég sigri líkurnar, framtíðar-
plön og starfsframi eru sett ofan í
skúffu.
* Konan mín fékk fréttir að það eru
líkur að hún sé að fara að missa
manninn sinn, að standa ein eftir
22 ára samband, ábyrgð, óvissan
og óöryggi.
Ég get ekki rætt við hana um suma
hluti, t.d. hversu ánægður ég er með
allt sem ég hef upplifað, gamlar
minningar og takmörkuð framtíð-
arsýn. Það minnir hana á að missa
manninn sinn og þegar hún talar um
líkurnar, endur meinvarp og fallna
félaga, það minnir mig á dauðann.
Mér finnst þetta vera mjög mikil-
vægur tjáningamáti þar sem báðir
aðilar geta tjáð sig á þennan hátt og
sagt þetta upphátt á uppbyggilegum
vettvangi. Þetta er allavega mín
sýn á stuðningsneti krabbameins-
greindra og aðstandenda, að hver og
einn hafi einhvern sem hlustar, skilur
Og hefur gengið í gegnum það
sama.
Allir velkomnir og heitt á könnunni.
Grímur og sóttvarnir á staðnum.
Sigríður Erlingsdóttir,
forstöðumaður Krabbameinsfélags
Suðurnesja.
Árni Björn Ólafsson, sjálfboðaliði
og umsjónarmaður hópsins.
20 // víkurFrÉttir á SuðurNESJuM í 40 ár