Víkurfréttir


Víkurfréttir - 05.05.2021, Qupperneq 22

Víkurfréttir - 05.05.2021, Qupperneq 22
er þemað í nýjum varabúningi Grindvíkinga sem var kynntur til sögunnar í vikunni Það er óhætt að segja að Grind- víkingum hafi tekist einstaklega vel til með hönnun nýju búninganna en þeir tengjast því sjónarspili sem náttúruöflin hafa leikið í nánasta umhverfi Grindvíkinga að undan- förnu. Grindvíkingar kynna búninginn í samvinnu við Jóa Útherja nú rétt fyrir fyrstu leiki liðanna í Lengju- deildinni. Meistaraflokkur kvenna hefur leik á fimmtudag á útivelli gegn Aftureldingu en meistara- flokkur karla mæta Eyjamönnum á Grindavíkurvelli á föstudaginn. Grindavík hefur til fjölda ára leikið í bláum varabúningum en í tilefni af eldsumbrotunum sem hafa átt sér stað í nálægð við Grindavík var ákveðið að tengja nýjan búning við náttúruöflin sem eru þar allt um kring. Í tilkynningu sem knattspyrnudeild sendi frá sér við tilefnið segir m.a.: „Þeman í búningnum er nýstorknað hraun sem flæðir fram með kröftugan kvikugang beggja vegna. Bleiki liturinn vísar til rauðglóandi skýjaþoku sem hvílir yfir bænum að næturlagi. Búningurinn rammar vel inn þann nýja veruleika sem blasir daglega við okkur Grindvíkingum en veitir okkur Kraft, Eldmóð og Hugrekki. Við vonum að nýr búningur falli vel í kramið hjá stuðningsmönnum, bæjarbúum og knattspyrnuáhugamönnum um land allt. Hér er aðeins stigið út fyrir þægindarammann og vonum við að nýr varabúningur færi okkar liðum gæfu á vellinum í sumar!“ SMELLTU Á MYNDSKEIÐIÐ TIL AÐ HORFA OG HLUSTA MYNDSKEIÐIÐ ER AÐEINS AÐGENGILEGT Í RAFRÆNNI ÚTGÁFU VÍKURFRÉTTA Þeir eru sannarlega stórglæsilegir nýju varabúningarnir hjá Grindavík. FIMMTUDAG KL. 19:30 HRINGBRAUT OG VF.IS Fjölmargir nýta sér Bikarpallinn Knattspyrnudeild Keflavíkur réðist í það verkefni nú í vetur að byggja veglegan pall við vesturenda stúku Nettóvallarins. Pallurinn var formlega vígður á dög­ unum þegar KSÍ loks afhenti Keflvíkingum, Lengju­ deildarmeisturum karla í knattspyrnu 2020, verð­ launagripina fyrir sigurinn í deildinni. Við það tilefni sagði Sigurður Garðarsson, formaður knattspyrnu­ deildarinna, að héðan í frá yrði pallurinn nefndur Bikarpallurinn. Stjórn knattspyrnudeildarinnar tók að sér að byggja pallinn í sjálfboðavinnu og naut við það stuðnings frá Húsamiðjunni, EJS verktökum og Grjótgörðum. Sigurður Garðarsson segir að stjórnin hafi litið á pallasmíðina sem gott samfélagsverkefni en það eru ekki einungis knatt- spyrnuáhorfendur sem njóta góðs af þessu framtaki. „Við urðum fljótt varir við það að pallurinn var ekki aðeins fyrir fótboltaáhorfendur, heldur einnig trimm- arana sem nota göngubrautina í kringum völlinn,“ segir Sigurður og tiltekur jafnframt að pallurinn hafi alfarið risið með framlagi knattspyrnudeildar Keflavíkur. Hann sagðist einnig vera búinn að senda erindi til Reykjanes- bæjar til að reyna að fá bæinn í lið með sér með hellulögn og frágang í kringum pallinn. Hlaupabrautin í kringum knattspyrnuvöll Keflvíkinga er mikið notuð af göngu- og hlaupafólki allt árið um kring og því er nokkuð ljóst að fjölmargir njóta góðs af þessu framtaki knattspyrnudeildarinnar og njóta betri aðstöðu til að stunda sína útivist. Keflavíkingar eru með karla­ og kvennalið í Pepsi Max­deildunum. Í karlaflokki tapaði Keflavík fyrir Víkingi í fyrstu umferðinni en fyrsti heimaleikurinn er á sunnudag gegn Stjörnunni. Kvennaliðið leikur sinn fyrsta leik miðvikudaginn 5. maí. Nánar um þessa leiki á vf.is og leiki Suðurnesjaliðanna í öðrum deildum næstu daga. Keflvíkingar tryggðu sér deildarmeistaratitilinn í Domio’s-deild karla í körfubolta þegar þeir unnu KR 95:87 í Blue-höllinni á föstudaginn. Nú er komið á lokametra deildarkeppninnar og úrslitakeppnin framundan en hjá körlunum hefst hún þann 15. maí næstkomandi. Grindvíkingar eru um miðja deild með tuttugu stig og búnir að tryggja sig áfram í úrslita- keppnina. Njarðvíkingar mega ekki við því að misstíga sig í síðustu leikjunum en þeir eru óþægilega nærri fallsæti. KEFLVÍKINGAR DEILDARMEISTARAR TIL 7.JÚNÍ Heimavist MA og VMA 8 MÍ NÚT UR 3 MÍNÚTUR 7 MÍ NÚT UR 3 MÍNÚTUR 15 M ÍN ÚT UR 2 M ÍN ÚT UR 8 M ÍN ÚT UR MENNINGARHÚS SU ND RÆ KT IN ÍÞ RÓ TT AH ÚS M IÐBÆ RINN VERSLANIR BÍÓHÚS LYSTIGARÐURINN KAFFIHÚS HL ÍÐ AR FJ AL L VE IT IN GA RS TA ÐU R MA HE IM AV IST MA OG VMA Á AKUREYRI VMA NÁNARI UPPLÝSINGAR OG UMSÓKNIR HEIMAVIST.IS FRAMHALDSSKÓLANEMENDUR ALLS STAÐAR AÐ AF LANDINU Pallurinn er notaður af fjölmörgum sem leggja stund á heilsueflingu í bænum. Keflvíkingar fengu tækifæri til að lyfta sigurverðlaunum síðasta árs skömmu áður en Íslandsmótið hófst í ár. Miðvikudagur 5. Maí 2021 // 18. tbl. // 42. árg.sport

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.