Skessuhorn


Skessuhorn - 10.02.2021, Side 1

Skessuhorn - 10.02.2021, Side 1
Ert Þú í áskrift? Sími 433 5500 www.skessuhorn.is FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 6. tbl. 24. árg. 10. febrúar 2021 - kr. 950 í lausasölu MATSTOFA GAMLA KAUPFÉLAGSINS HÆGT AÐ BORÐA HJÁ OKKUR OG TAKA MEÐ Opið alla virka daga frá 11:30 - 14:00 Sími: 431 4343 Kirkjubraut 11 www.vogv.is KÍKTU VIÐ Í HJARTA BÆJARINS Máltíð 1.795 kr. Gos úr vél frá CCEP fylgir meðBorgarnes: Akranes: Tilboð gildir út febrúar 2021 Eins og lesendur geta gert sér í hugarlund er mynd þessi gömul. Hana tók Árni Böðvarsson ljósmyndari sumarið 1940 þegar bresk hersveit hafði hertekið Akranes. Í blaðinu í dag er koma og vera Bretanna rifjuð upp og stuðst við frásögn og skrif tveggja heimildamanna; Sveins Sæmundssonar og Hafsteins Sigurbjörnssonar. Fyrir tvo unga menn, annan sautján og hinn níu ára, var þetta að vonum mikið ævintýri eins og gefur að skilja. Þeir urðu vitni að heimsviðburði, eins og það var orðað. Sjá bls. 16-18. Öll tíu sveitarfélögin á Vesturlandi hvetja í yfirlýsingu, sem þau senda í sameiningu frá sér í gær, til þess að þegar verði hafist handa við und- irbúning að framkvæmdum við Sundabraut. „Sveitarfélögin á Vest- urlandi fagna nýrri skýrslu um lagn- ingu Sundabrautar þar sem skýrðir eru helstu valkostir um legu henn- ar og þverun Kleppsvíkur. Skýrsl- an er vel unnin og greinargóð og ljóst að hún er góður grunnur fyrir ákvörðunartöku um að hefja und- irbúning að lagningu Sundabraut- ar nú þegar.“ Þá segir í yfirlýsingu sveitarfélag- anna að samkvæmt niðurstöðum skýrslunnar sé hábrú yfir Klepps- vík talin mjög vænlegur valkostur, bæði hvað varðar kostnað og einn- ig myndi hún nýtast betur fyrir al- menningssamgöngur, hjólandi og gangandi umferð. „Það er von okkar að þessi lausn höggvi á þann hnút sem verið hefur varðandi val á samgöngumannvirki til þverun- ar Kleppsvíkur. Hins vegar er afar mikilvægt að fara á sama tíma í allt verkefnið, þannig að framkvæmd- ir við þverun Kollafjarðar og vega- lagningu á Álfsnesi, Gufunesi og Geldinganesi verði ekki látnar bíða efir því að þverun Kleppsvíkur verði lokið. Jafnvel mætti hugsa sér til að flýta framkvæmdum eins og kostur er að hefja lagningu Sunda- brautar að norðanverðu. Engin vafi er um mikilvægi Sundabrautar og ljóst er að hún verður ekki aðeins mikilvæg sam- göngubót fyrir íbúa höfuðborgar- innar, hún verður ekki síður stór samgöngubót fyrir Vestlendinga, Vestfirðinga, Norðlendinga og jafnvel Austfirðinga. Sundabraut styttir vegalendir, eykur umferðar- öryggi, bætir almenningssamgöng- ur og tryggir greiðari umferð. Það felur síðan í sér sterkari og heild- stæðari vinnumarkað á suðvest- urhorni landsins sem og að bæta aðgengi Vesturlands og annarra landshluta að Reykjavík og styrkja þar með hlutverk hennar sem mið- stöð viðskipta og stjórnsýslu. Sveit- arfélögin á Vesturlandi hvetja því samgöngu- og sveitarstjórnarráðu- neytið og Reykjavíkurborg að hefja nú þegar undirbúningsvinnu við lagningu Sundabrautar þannig að verkefninu verði lokið eigi síðar en árið 2030.“ Sjá nánar frétt um skýrslu starfshóps Vegagerðarinnar á bls. 2. mm Hér má sjá frumhönnun um hvernig Sundabraut frá Reykjavík gæti litið út frá Gufunesi og yfir Kollafjörð. Teikning: Skýrsla starfshóps Vegagerðarinnar um legu Sundabrautar. Sveitarfélög á Vesturlandi vilja flýta undirbúningsvinnu við Sundabraut Arion appið Lífeyrismálin eru komin í Arion appið Nú getur þú fylgst með stöðu lífeyrissparnaðarins í appinu, skoðað stöðu og greitt inn á lán og sótt um viðbótarlífeyrissparnað.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.