Skessuhorn - 10.02.2021, Side 6
MIÐVIKUDAGUR 10. fEbRúAR 20216
Gefa út hrein-
dýrakvóta
LANDIÐ: Umhverfis-
og auðlindaráðherra hefur
ákveðið hreindýrakvóta fyr-
ir 2021 að fengnum tillög-
um frá Umhverfisstofnun.
Heimilt verður að veiða allt
að 1.220 dýr á árinu, 701 kú
og 519 tarfa. Veiðitími tarfa
er frá 1. ágúst til 15. septem-
ber, en þó getur Umhverf-
isstofnun heimilað veiðar á
törfum frá og með 15. júlí.
Veiðitími kúa er frá 1. ágúst
til 20. september. Sjá nánar á
vef Umhverfisstofnunar.
-mm
Synjun á inn-
flutningi á not-
uðum traktor
LANDIÐ: Atvinnuvega- og
nýsköpunarráðuneytið hef-
ur staðfest ákvörðun Mat-
vælastofnunar um að synja
um innflutning á notaðri
dráttarvél frá Danmörku.
„Óheimilt er að flytja til
landsins notuð landbúnað-
artæki. Matvælastofnun get-
ur þó heimilað innflutning
ef sannað þykir að ekki berist
smitefni með þeim er valda
dýrasjúkdómum,“ segir í til-
kynningu frá MAST. Inn-
flytjandinn hélt því fram að
dráttarvélin hefði aldrei ver-
ið notuð í landbúnaði heldur
einungis við slátt á fótbolta-
velli erlendis. Matvælastofn-
un taldi það ekki sannað
auk þess sem vélin væri það
ryðguð og illa farin að sótt-
hreinsun væri óframkvæm-
anleg. Þar við situr. -mm
Sýnilega undir
áhrifum
BORGARF.: Á sunnudag
stöðvaði lögregla á eftirlits-
ferð för ökumanns í borg-
arnesi. Við athugun reynd-
ist ökumaður sýnilega und-
ir áhrifum. Reyndist munn-
vatnssýni jákvætt fyrir ávana-
og fíkniefnum og var hann
handtekinn og fór málið í
hefðbundið ferli. -frg
Ökumenn
í símanum
myndaðir
VESTURLAND: Öku-
menn sem nota farsíma eða
snjalltæki við akstur nást oft
á mynd með ökumönnum
sem myndaðir eru af hraða-
myndavélum. Þannig fá öku-
menn sem aka á löglegum
hraða en nota slík tæki oft
40 þúsund króna sekt auk
punkts í ökuferilsskrá. -frg
Kortleggja
víðerni
LANDIÐ: Alþingi samþykkti
í vikunni sem leið frum-
varp Guðmundar Inga Guð-
brandssonar, umhverfis- og
auðlindaráðherra, um breyt-
ingu á náttúruverndarlög-
um. Lögin heimila ráðherra
að setja reglugerð um kort-
lagningu óbyggðra víðerna,
en slík kortlagning á að vera
til upplýsinga fyrir stjórnvöld
við stefnumótun um verndun
landslags og aðra landnotkun.
„Drög að greiningu víðerna á
hálendinu liggja þegar fyrir og
rétt þykir að kortleggja með
sama hætti óbyggð víðerni
annars staðar á landinu. Með
því verður til heildstætt yfirlit
yfir óbyggð víðerni á Íslandi,
sem mun auðvelda alla vinnu
við skipulagslegar ákvarð-
anir sveitarstjórna, svo sem
gerð og breytingu á skipulag-
sáætlunum sveitarfélaga, gerð
vegaskrár og ákvarðanir um
landnotkun. Lögunum er enn
fremur ætlað að stytta kynn-
ingartíma áforma um frið-
lýsingu og umsagnartíma um
drög að friðlýsingarskilmál-
um til þess að gera friðlýsing-
arferlið skilvirkara,“ segir í til-
kynningu frá ráðuneyti um-
hverfismála. Þá er í lögunum
kveðið á um að undanþágu-
heimild frá ákvæðum friðlýs-
inga verði færð frá ráðherra til
Umhverfisstofnunar sem og
heimild til að veita undanþágu
við banni við akstri utan vega.
-mm
Ríkiseignir hafa auglýst eftir iðn-
meisturum til þess að taka þátt í
örútboði vegna endurnýjunar A
og b deilda í C-álmu sjúkrahúss-
ins á Akranesi. Í auglýsingu segir
að verkið felist í því að endurnýja
í heild tvær legudeildir sjúkra-
hússins. Önnur er 565 fermetrar
á 2. hæð hússins og hin er 575 fer-
metrar á 3. hæð. Gert er ráð fyr-
ir að starfsemi í þessum rýmum
verði í algjöru lágmarki á með-
an framkvæmdum stendur, deild-
ir lokaðar að mestu leyti. Gæta
skuli að því að önnur starfsemi
í húsinu verði í fullum gangi og
skuli taka fullt tillit til þess. Áætl-
að er að lok framkvæmdatíma
verði 1. mars 2022 og eru kröf-
ur til bjóðenda meðal annars að
bjóðandi skuli hafa unnið a.m.k.
eitt verk svipaðs eðlis og eitt verk
stærra að umfangi en 150 millj-
ónir króna á síðastliðnum fimm
árum. Tilboð í verkið verða opn-
uð hjá Ríkiseignum fimmtudag-
inn 18. febrúar.
Að sögn Halldórs b Hallgríms-
sonar, deildarstjóra húsnæðis og
tækja hjá Heilbrigðisstofnun Vest-
urlands, er löngu orðið tímabært að
fara í umbætur á þessum deildum.
Lokið er við allan frágang á hús-
næðinu utanhúss en A deildin er
óbreytt að mestu síðan 1977 og b
deildin síðan 1968. Í gegnum tíð-
ina hefur ýmislegt verið endurbætt
í deildunum og hefur byggingin
verið endurnýjuð að utan með
nýrri álklæðningu og gluggum auk
þess sem skipt var um loftræstisam-
stæðu og ofnalagnir. En nú er kom-
inn tími til þess að fara í allsherjar
endurnýjun. Segja má að allt verði
hreinsað út, innréttingar, gólfefni,
milliveggir og fleira.
framkvæmdirnar eru því mjög
umfangsmiklar og óhjákvæmilegt
að þær hafi einhver áhrif á starfsemi
sjúkrahússins næsta árið. Hins veg-
ar sé rými í elstu byggingu sjúkra-
hússins þar sem áður var E deild
sem getur tekið við hluta starfsem-
innar. Það rými hefur þar til nýlega
verið nýtt til þess að mæta fráflæð-
isvanda Landspítalans.
Ýmsar framkvæmdir eru yfir-
standandi eða væntanlegar hjá
HVE, bæði á Akranesi og öðrum
starfsstöðvum en starfstöðvarnar
eru eins og kunnugt er átta talsins.
Í Ólafsvík er verið að skipta um og
lengja þak heilsugæslustöðvarinnar
auk þess sem skipt er um glugga og
þakrennur, þakkanti breytt og hús-
ið málað. fyrirtækið K-16 vinnur
að framkvæmdunum en það fyr-
irtæki vinnur einnig að verki við
þak heilsugæslunnar og skurðstofu
HVE á Akranesi. Í Stykkishólmi
standa fyrir dyrum talsverðar fram-
kvæmdir en þar verður þvottahús
á jarðhæð fært niður í kjallara og
skapast þá aukið rými fyrir sjúkra-
þjálfun á jarðhæðinni. frg
Halldór B. Hallgrímsson, deildastjóra húsnæðis og tækja hjá Heilbrigðisstofnun Vesturlands.
Endurnýjun A og B deilda á
Sjúkrahúsinu á Akranesi í útboð