Skessuhorn


Skessuhorn - 10.02.2021, Side 8

Skessuhorn - 10.02.2021, Side 8
MIÐVIKUDAGUR 10. fEbRúAR 20218 Neyðar- blys reyndist stjörnuhrap HVALFJ: Á sunnudagskvöld barst Neyðarlínu tilkynning frá Grundartanga við Hval- fjörð um að grænt neyðar- blys hefði sést bera við Esj- una. Lögreglumenn ræddu við tilkynnanda og bentu á að neyðarblys væru ekki græn. Í sömu mund barst lögreglu tilkynning frá lög- reglunni á Keflavíkurflug- velli um að stjörnuhrap hefði sést frá flugvellinum bera við mynni Hvalfjarðar. -frg Kappakstur AKRANES: Seint á sunnu- dagskvöld barst Neyðarlínu tilkynning um kappakstur á Ægisbraut á Akranesi. Að sögn tilkynnanda var um að ræða ökumenn tveggja bíla sem voru að spyrna og höfðu þeir farið nokkrar ferðir. Til- kynnandi gat gefið greinar- góðar lýsingar á bifreiðun- um og taldi hann að hraði bílanna hefði verið um 150 kílómetrar á klukkustund. -frg Aflatölur fyrir Vesturland 30. janúar - 5. febrúar Tölur (í kílóum) frá Fiskistofu Akranes: 2 bátur. Heildarlöndun: 35.679 kg. Mestur afli: Eskey Óf-80: 31.072 kg. í einni löndun. Arnarstapi: 3 bátar. Heildarlöndun: 177.060 kg. Mestur afli: Kristinn HU-812: 47.511 kg. í tveim- ur löndunum. Grundarfjörður: 8 bátar. Heildarlöndun: 595.365 kg. Mestur afli: Harðbakur EA-3: 119.992 kg. í tveimur löndunum. Ólafsvík: 11 bátar. Heildarlöndun: 371.410 kg. Mestur afli: Hafdís SK-4: 48.687 kg. í þremur lönd- unum. Rif: 17 bátar. Heildarlöndun: 843.560 kg. Mestur afli: Örvar SH-777: 149.540 kg. í tveimur lönd- unum. Stykkishólmur: 4 bátar. Heildarlöndun: 12.868 kg. Mestur afli: fjóla SH-7: 3.905 kg. í fimm löndunum. Topp fimm landanir á tímabilinu: 1. Tjaldur SH-270 RIF: 93.509 kg. 1. feb. 2. Örvar SH-777 RIF: 84.166 kg. 4. feb. 3. Áskell ÞH-48 GRU: 82.484 kg. 31. jan. 4. Sigurborg SH-12 GRU: 76.872 kg. 1.feb. 5. Vörður ÞH-44 GRU: 76.581 kg. 31. jan. -frg Gelkerti fannst eftir sinubruna AKRANES: Sinubruni varð við rætur Akrafjalls á föstu- dag í liðinni viku. Slökkvi- liðsmenn voru í nokkra klukkutíma að ráða niður- lögum eldsins. Ekkert tjón varð á öðru en sinu vegna brunans. Við skoðun á vett- vangi fundu slökkviliðsmenn svokallað gelkerti en það er ekki í fyrsta skipti sem slíkt finnst á vettvangi bruna í umdæminu. Síðar kom í ljós að starfsmaður á Garða- velli hafði séð bjarma um kl. 07:45 um morguninn og nokkru síðar aðila á reiðhjóli bruna fram hjá. Ekki er vitað hver sá aðili var en nokkuð öruggt þykir að sinubruninn hafi verið af mannavöldum. -frg/ Ljósm. ki. Mikið um hraðakstur VESTURLAND: Að sögn lögreglu á Vesturlandi var mikið um hraðakstur í lands- hlutanum í liðinni viku. Sá sem hraðast ók mældist á 132 kílómetra hraða þar sem leyfilegur hraði er 90 km. Eru viðurlög við slíku broti 120 þúsund króna sekt og tveir punktar í ökuferilsskrá. Er líklegt að bjarni bene- diktsson, fjármálaráðherra kætist yfir þessum framlög- um þeirra sem aka of hratt í ríkissjóð en að öllum lík- indum minna yfir brotunum sjálfum. -frg Undir mörkum en bannað að keyra SNÆFELLSNES: Aðfarar- nótt sunnudags stöðvuðu lögreglumenn ökumann á sunnanverðu Snæfellsnesi. Ökumaður var látinn blása í áfengismæli og reyndist hann undir mörkum. Þar sem hann hafði neytt áfeng- is var ökumanni bannað- ur frekari akstur en þar sem hann var ekki með ökuskír- teini hlaut hann 10 þúsund króna sekt. -frg Ekið greitt í gegnum Borg- arnes BORGARNES: Mikið hef- ur verið um hraðakstur í borgarnesi undanfarna daga. Þar sem þjóðvegurinn ligg- ur í gegnum bæinn virð- ast ökumenn ekki gæta sín nægilega. Þarna er mikið um gangandi vegfarendur og að sögn lögreglu hefur verið lögð áhersla á hraðamæling- ar á umræddum kafla. -frg fjölbrautaskóli Snæfellinga hefur sett upp hleðslustöð við húsnæði skólans. Hleðslustöðin, sem er frá Ísorku, er staðsett á bílaplani austan megin við skólann og er opin öllum. fjölbrautaskólinn sótti um styrk til Orkusjóðs fyrir stöðinni. fjöldi rafmagnsbíla á eftir að aukast en styrkurinn sem fékkst var í gegnum verkefnið Orkuskipti 2020 sem er átaksverkefni stjórnvalda. Þónokkr- ir starfsmenn fSN aka um á raf- bílum og geta nýtt hleðslustöðina á meðan þeir stunda vinnu. Þetta er fyrsta hleðslustöðin í Grundar- firði og sú fyrsta á Snæfellsnesi sem er frá Ísorku samkvæmt korti á vef fyrirtækisins. tfk Húsnæði Öldunnar, vinnu- og hæf- ingarstaðar í brákarey í borgar- nesi, var lokað síðastliðinn föstu- dag. borgarbyggð tók þá ákvörð- un í ljósi athugasemda eldvarna- eftirlits. Aldan hefur verið til húsa í fyrrum matsal sláturhússins. Gerð- ar voru athugasemdir við bruna- varnir í húsinu m.a. sökum þess að vatn hefur komist í rafmagns- töflu og skortur er á flóttaleiðum ef eldsvoði kemur upp. Samkvæmt tilkynningu frá borgarbyggð verð- ur starfsemin nú flutt tímabundið á 6. hæð fjölbýlishússins við borgar- braut 65. Þá verður dósamóttöku Öldunnar lokað tímabundið þar til annað verður ákveðið. Í kjölfar úttektarinnar á Öldunni ákvað eldvarnaeftirlitið að ráðast í úttekt á öllu húsnæði sveitarfélags- ins í brákarey, en þar er ýmis starf- semi til húsa, bæði í fyrrum fjárrétt og sláturhússbyggingunni. Niður- staðna úr þeirri úttekt er að vænta fljótlega, samkvæmt tilkynningu borgarbyggðar, en hugsanlega þarf að gera breytingar og munu starfs- menn sveitarfélagsins verða í sam- skiptum við þá leigjendur sem þar eru þegar niðurstöður liggja fyrir. „Ákvörðun um framtíðarhúsnæði Öldunnar mun liggja fyrir þegar nánari greiningarvinna hefur átt sér stað,“ segir í tilkynningu borg- arbyggðar síðastliðinn föstudag. mm Auður Inga Þorsteinsdóttir, fram- kvæmdastjóri UMfÍ, afhenti síð- astliðinn mánudag nemendum við Grundaskóla á Akranesi ávísun upp á 50.000 krónur sem skólinn hlaut í brenniboltaáskorun Hreyfiviku UMfÍ og Kristals í byrjun sumars í fyrra. Vegna Covid-faraldursins og ýmissa takmarkana var ávísunin ekki afhent fyrr en nú, en betra er seint en aldrei. Verðlaununum í Hreyfiviku UMfÍ fylgir sú krafa að hana á að gefa félagi að eigin vali. Sigurður Arnar Sigurðsson skólastjóri segir stefnt að því að gefa ÍA ávísunina og styðja þannig íþróttafélagið til að finna leiðir til að bjóða upp á íþróttir án aðgreiningar svo allir geti verið með í íþróttum. mm/ Ljósm. umfí. Starfsmenn Fjölbrautaskóla Snæfellinga voru fyrstu notendur stöðarinnar. f.v. Guðrún Jóna Jósepsdóttir, Ólafur Tryggvason, Lilja Magnúsdóttir og Hrafnhildur Hallvarðsdóttir skólameistari. Fyrsta hleðslustöðin sett upp í Grundarfirði Húsnæði Öldunnar í Brákarey hefur verið lokað Nemendum við Grundaskóla afhent verðlaun

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.