Skessuhorn - 10.02.2021, Blaðsíða 12
MIÐVIKUDAGUR 10. fEbRúAR 202112
Þróunarfélagið breið var stofnað
á Akranesi síðastliðið sumar þeg-
ar fulltrúar 17 fyrirtækja og stofn-
ana skrifuðu undir samkomulag um
stofnun félagsins. Síðan hefur fé-
lagið opnað nýsköpunar- og rann-
sóknasetur í gamla Hb húsinu þar
sem einstaklingar og fyrirtæki geta
deilt vinnuaðstöðu. Mikil upp-
bygging hefur nú þegar átt sér stað
í húsinu en margt er enn á teikni-
borðinu. blaðamaður Skessuhorns
kíkti í heimsókn í breið nýsköpun-
arsetur og ræddi við Gísla Gíslason,
stjórnarformann Þróunarfélagsins
breiðar, og Valdísi fjölnisdóttur
framkvæmdastjóra, um starfsemina
í húsinu og næstu verkefni.
Störf án staðsetningar
Valdís og Gísli segja starfsemina í
nýsköpunarsetrinu hafa farið mjög
vel af stað þrátt fyrir ástandið í
samfélaginu. „Það var kannski ekki
besta hugmyndin að opna sam-
vinnurými í miðjum samkomutak-
mörkunum vegna heimsfaraldurs,“
segir Valdís. Þau segja þó margt já-
kvætt hafa komið út úr heimsfar-
aldrinum fyrir starfsemi nýsköpun-
arsetursins. Meðal annars hafa störf
án staðsetningar orðið að veruleika
hjá mörgum fyrirtækjum og fram-
boð af styrkjum til nýsköpunar hef-
ur aukist. „Það er líka aukin meðvit-
und um nýsköpun almennt og fólk
sem hefur kannski haft hugmyndir
í kollinum lengi hefur loksins núna
haft tíma til að koma þeim í fram-
kvæmd,“ segir Valdís. „Þessi tími
hefur líka sýnt okkur að það er ekk-
ert mál að vera í fjarvinnu og það er
núna orðinn raunverulegur mögu-
leiki hjá mörgum fyrirtækjum. fólk
vill kannski vinna nær heimili sínu
en ekki endilega inni á heimilinu og
þá er hægt að vera með aðstöðu hjá
okkur. Þannig losnar fólk sem vinn-
ur til dæmis í Reykjavík við þann
tíma og kostnað sem felst í akstri en
getur samt mætt til vinnu og unnið
með öðru fólki,“ segir Valdís. „Þessi
aðstaða sem við erum með er kjör-
in fyrir störf án staðsetningar. Ég er
líka viss um þetta nýsköpunarset-
ur styrki Akranes sem áhugaverðan
stað að búa á,“ bætir Gísli við.
Fjölbreytt starfsemi
í húsinu
Í dag eru á bilinu 30 til 35 manns
sem starfa í nýsköpunarsetrinu,
ýmist í sér skrifstofurými eða sam-
vinnurými þar sem hægt er að leigja
skrifborð. „Það er mjög lifandi og
skemmtileg stemning á þessum
vinnustað,“ segir Valdís og bætir
við að starfsemin í húsinu sé alls-
konar. Þar eru starfsmenn stærri
fyrirtækja í Reykjavík með skrif-
stofuaðstöðu, SSV og Símenntun-
armiðstöð Vesturlands er komin
með skrifstofur í húsinu og KPMG
er einnig með aðstöðu þar auk þess
sem smærri fyrirtæki og einyrkj-
ar starfa þar. „Hér er fjölbreytt og
spennandi starfsemi. Hjá okkur er
til dæmis Grammatek máltækni-
fyrirtæki sem er að vinna í forritun
á íslensku talmáli fyrir tölvur. Það
er hér fyrirtæki að gera rannsóknir
á nýtingu grjótkrabba og Sigríður
Kristinsdóttir er hjá okkur að vinna
að þróun á þara og þangi til að nýta
í matvælaplast. Svo var að bætast
fyrirtækið Algó sem er að vinna
með þang og þörunga, sem virð-
ist vera vaxandi hráefni sem fólk
er að beina spjótum sínum að við
ýmsa þróun, en hann er að vinna
með sjávarfangið til manneldis. Svo
er hún Kolbrún Sigurðardóttir að
byrja að skoða hagnýtan leir til leir-
brennslu. Hér eru líka kvikmynda-
gerðar- og fjölmiðlafólk og fleiri,“
segir Gísli.
Fab Lab smiðja
Verið er að undirbúa framkvæmd-
ir á annarri hæð hússins í tengslum
við fab Lab smiðju og fleiri verk-
efni. fab Lab er smiðja með tækjum
og tólum sem hægt er að nota til að
búa til nærri því hvað sem er. fab
Lab smiðjan á breiðinni á að hafa
þann tilgang að gera öllum kleift
að framkvæma sínar hugmyndir,
hvort sem það eru nemendur, ein-
staklingar eða fyrirtæki. „Við vilj-
um að til okkar geti allir komið sem
hafa hugmyndir og notað aðstöð-
una til að framkvæma verkefnin
eða láta framkvæma fyrir sig,“ seg-
ir Valdís og bætir við að einnig sé
lögð áhersla á að eldra fólk geti leit-
að til þeirra og þar verður sérstak-
lega unnið með verkefni sem kall-
ast Karlar í skúrnum. „Við verð-
um með ákveðinn tækjabúnað og
erum með væntingar um samstarf
við fyrirtæki sem er með tæki hér
á Akranesi. Við ætlum að vera með
öfluga fab Lab smiðju sem verð-
ur nokkur skonar móðurstöð fyrir
allt Vesturland en það eru nú þeg-
ar smærri smiðjur í landshlutanum.
Við viljum samt geta þjónað öllum
og ekki binda okkur við landshluta
eða hreppamörk,“ segir Gísli.
Samtal við háskóla
Þróunarfélagið er nú í samtali við
Háskóla Íslands, sem er einn af að-
ilunum sem skrifuðu undir sam-
starfsviljayfirlýsinguna síðasta sum-
ar, um að styðja við starfsemi breið-
arinnar með þrónarverkefnum en
Háskólinn á bifröst og Landbún-
aðarháskóli Íslands eru einnig að-
ilar að samstarfinu á breiðinni.
„Það er ekki spurning að slíkt væri
mjög gott fyrir Skagann. Við höf-
um bara séð það síðan fjölbrauta-
skóli Vesturlands var fyrst opnað-
ur að það hefur færst í vöxt að fólk
haldi í langskólanám. Nú er bara
næsta skref að færa rannsóknir og
þróun á háskólastigi nær Akranesi,
og styrkja enn frekar háskólaum-
hverfið á öllu Vesturlandi,“ seg-
ir Gísli. „Það má líka segja að við
Skagamenn og breiðin eigi góða
tengingu við HÍ en hann Sigmund-
ur Guðbjarnason, fyrrum rektor,
kemur úr Ívarshúsum hér á Akra-
nesi og á ættir að rekja hingað. Svo
gaf hann Guðmundur bjarnason á
Sýruparti, sem var hér á Pörtun-
um sem kallað er, mikla fjármuni
til HÍ og voru þeir fjármunir uppi-
staðan í einum stærsta styrk sem
verkfræðideildin veitir til nemenda.
Við vonum að verk þessara tveggja
góðu manna skili sér núna í sprota
háskólans hér á Skaganum,“ segir
Gísli og brosir.
Hugmyndir taka
ekki pláss
Aðspurð segja þau nóg pláss í hús-
inu til að halda uppbyggingu áfram
næstu árin. Það þurfi bara að að-
laga aðstæður að þeirri starfsemi
sem kemur í húsið. „Við viljum
vinna í aðstöðunni í takt við þró-
unina, sjá hverjir leita til okkar
og spila þetta samhliða því. Eftir-
spurnin sýnir okkur hvernig að-
stöðu við þurfum,“ segir Valdís
og bætir við að þetta fyrirkomu-
lag hafi gengið mjög vel. „Það er
ekki skortur á plássi, svo þurfa hug-
myndir líka ekki pláss og við tök-
um vel á móti öllum hugmyndum
sem fólk hefur. Við erum bara rétt
búin að taka fyrstu skrefin að búa
til hér lítið hreiður fyrir allskonar
starfsemi og það hefur gengið vel.
Núna taka svo við stóru verkefnin
eins og heildarskipulag á breiðinni,
uppbygging í Hafbjargarhúsinu og
svo að sjálfsögðu að halda áfram að
vinna í þeirri aðstöðu sem við erum
hér með í þessu húsi. Það er okkur
ekkert óviðkomandi,“ segir Gísli.
Þróunarfélagið vinnur nú að
undirbúningi fyrir stofnun vetinga-
staðar í Hafbjargarhúsinu á breið.
„Þar er hugmyndin um að nýta þá
staðarkosti og staðarandann sem
myndast í svona nálægð við hafið
og með útsýni í allar áttir og opna
veitingastað með allskonar sjávar-
fangi,“ segir Gísli. „Þetta er eins og
er í frumskoðun en mjög spennandi
verkefni.“
Breytingar
í atvinnulífinu
Undanfarin ár hefur mikil breyt-
ing orðið í atvinnulífi á Akranesi
og kalla þessar breytingar á nýja
nálgun til að byggja upp atvinnu-
tækifæri í bænum og skiptir þar ný-
sköpunarsetrið miklu máli. Þang-
að geta allir sem hafa hugmynd að
verkefnum, nýsköpun eða rann-
sóknum leitað eftir aðstoð við
að koma því í framkvæmd eða að
sækja um styrki.
„Þessar breytingar á atvinnulíf-
inu hér á Skaganum hafa sett okkur
í þá stöðu að þurfa að snúa blaðinu
við og byggja upp nýja starfsemi.
Við sjáum merki þess að fólk hér
sé að taka við sér í þeim efnum og
að hér sé stuðlað að uppbyggingu
smærri fyrirtækja sem byggja á ný-
sköpun,“ segir Valdís og Gísli tek-
ur undir það. „Ég er sannfærður
um að við Skagamenn eigum eft-
ir að ná góðum árangri í nýsköp-
un,“ bætir hann við. Þá segja þau
að nýsköpunarsetrið ætli að taka
markvisst þátt í þeirri uppbygg-
ingu. „Matís, sem er einn af þeim
aðilum sem skrifuðu undir viljayf-
irlýsinguna, komu til okkar í síð-
ustu viku og voru með fyrirlestur
um sjóðakerfið og hvernig frum-
kvöðlar taka þátt í því. Þessum fyr-
irlestri var streymt á facebook síð-
unni okkar. Þetta er eitthvað sem
við höfum hug á að gera meira af,
bjóða upp á fræðsluefni til að hjálpa
fólki að taka fyrstu skrefin í að koma
sínum hugmyndum í framkvæmd,“
segir Valdís. „Við hvetjum alla sem
hafa hugmyndir að koma til okkar
og við munum aðstoða á þann hátt
sem við getum, hvort sem það er
með húsnæði, aðstoð við að sækja
um styrki eða annað,“ segja þau
Valdís og Gísli hjá Þróunarfélag-
inu breið. Hægt er að fylgjast með
starfsemi í nýsköpunarstetrinu á
facebook síðu setursins breið ný-
sköpunarsetur.
arg
Undirbúningur fyrir framkvæmdir á annarri hæð hússins er í fullum gangi.
Lifandi og skemmtileg stemning
í Nýsköpunarsetrinu Breið
Valdís Fjölnisdóttir framkvæmdastjóri og Gísli Gíslason stjórnarformaður
Þrónuarfélagsins Breiðar, í fundarsal í nýsköpunarsetrinu þar sem útsýni er
glæsilegt.
Horft yfir samvinnurýmið í nýsköpunarsetrinu. Þau Anna Björk Nikulásdóttir og Daniel Schnell hjá Grammatek að störfum.
Hjálmur Dór Hjálmsson, starfsmaður
KPMG, að störfum á skrifstofunni
sinni.