Skessuhorn


Skessuhorn - 10.02.2021, Page 13

Skessuhorn - 10.02.2021, Page 13
MIÐVIKUDAGUR 10. fEbRúAR 2021 13 Safnahús Borgarfjarðar Myrka Ísland er sögulegt hlaðvarp á vegum Borghreppinganna Sigrúnar Elíasdóttur og Önnu Drafnar Sigurjónsdóttur. Mánudagurinn 15. febrúar er upphafsdagur sýningar á verkum eftir Lúkas Guðnason og Sigurjón Líndal Benediktsson (Jónsa) sem hafa myndskreytt þættina. Verður henni fylgt úr hlaði með rafrænni sögustund sem hægt verður að nálgast á kvikborg.is og á Facebook síðu Myrka Íslands. Sýningin er í Hallsteinssal og er síðasti sýningardagur 19. mars. Ekki verður um formlega opnun að ræða vegna aðstæðna en gestir boðnir hjartanlega velkomnir til að skoða sýninguna á opnunatíma, kl. 13 til 18 alla virka daga. Farið verði að reglum um sóttvarnir hvers tíma. Hallsteinssalur er í Safnahúsinu að Bjarnarbr. 4-6 í Borgarnesi. Opið er 13.00-18.00 virka daga. Ókeypis aðgangur en söfnunarbaukur á staðnum. 433 7200 - www.safnahus.is Sýning á myndskreytingum hlaðvarpsins 15.02. - 19.03. 2021 Lúkas, Jónsi og Myrka Ísland Afþreyingarsetur á Akranesi Upphitun fyrir Öskudaginn í fjölskyldutímanum sunnudaginn 14. febrúar kl. 11-14 Kl. 14-16: Opið í klifur fyrir 14 + Klifur í öryggislínu, söngstund, opinn hljóðnemi, leiktæki, spil, leikföng og litir. Vegna fjöldatakmarkana er hægt að bóka tíma gegnum Facebook eða í síma 6239293 Tónlist 3-5 ára nýtt námskeið hefst 14. febrúar Skráning á smidjuloftid@gmail.com smidjuloftid.is Smiðjuvöllum 17 • Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS S: 860-0708 • Smiðjuvellir 7, Akranesi • bv.sprautun@gmail.com Vinnum fyrir öll tryggingafélög Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) stóðu síðastliðinn miðviku- dag fyrir opnum Teams-fundi þar sem kynntir voru möguleikar í uppbyggingu smávirkjana á Vest- urlandi. Á fundinum kynntu þeir Arnar bergþórsson og Arnar Már björgvinsson frá fyrirtækinu Arnar- læk skýrslu sem þeir unnu um smá- virkjanir á Vesturlandi. Skýrslan gefur góða mynd af virkjanamögu- leikum í landshlutanum. Skýrsl- an er nokkuð yfirgripsmikil er far- ið er í henni yfir frummat á 70 álit- legum valkostum fyrir smávirkjanir á Vesturland en úttektin er almenn en ekki tæmandi. Í viðauka við skýrsluna er gerð grein fyrir flokk- un þessara 70 virkjanakosta í hag- kvæmniflokka og í hvaða flokk hver virkjunarkostur fellur. Þeir félagar fóru í kynningunni yfir hvernig vali og mati á virkjana- kostum er háttað svo og hvernig vatnafar svæða og mat á rennsli hef- ur áhrif á matið. fram kom meðal annars að Orkustofnun gerir kröfu um að lágmarki tveggja ára rennsl- ismælingar liggi fyrir áður en leyfi er veitt. Í kynningunni var farið yfir hvernig undirbúningi þarf að vera háttað fyrir uppbyggingu smávirkj- ana en hann getur tekið nokkur ár. Einnig var fjallað um skrefin sem þarf að taka í undirbúningsferl- inu, svo sem samninga við vatns- réttarhafa, rennslismælingar sem þurfa að ná yfir tvö ár og fleira. Þá fóru Arnar og Arnar yfir möguleika smávirkjana til tengingar við raf- orkukerfið. Á Vesturlandi eru nú í rekstri tíu smávirkjanir sem tengdar eru dreifikerfi RARIK og er uppsett afl þeirra samtals um 16 megavött og árs orkuvinnsla um 87 gíga- vattsstundir. Þær eru mikilvægar varaaflstöðvar og skipta því raun- verulegu máli fyrir raforkukerfið. Kostnaður við tengingu smávirkj- ana við raforkukerfið getur ver- ið mjög mismunandi eftir stærð virkjana. Stofnkostnaður lækk- ar hlutfallslega við stærri virkjanir en kostnaður við tengingu við raf- orkukerfið vegur þar upp á móti. fram kom í kynningu þeirra nafnanna að skipulagsmál vegna virkjana, hönnun og önnur stjórn- sýsla eru flókin og þung í vöfum og í umræðum eftir kynninguna mátti heyra að fundarmenn vildu ein- falda og stytta regluverkið og ferlið og að sveitarfélög og hið opinbera þurfi að taka sig verulega á í þeim efnum. Skýrslan er aðgengileg á vef Samtaka sveitarfélaga á Vestur- landi, www.ssv.is -frg Arnar Már Björgvinsson og Arnar Bergþórsson kynntu skýrslu um smávirkjanir á Vesturlandi. Ljósm. úr safni/mm Tækifæri í smá- virkjunum á Vesturlandi Rjúkandavirkjun í Ólafsvík. Frá lóni Urðarfellsvirkjunar í Húsafelli.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.