Skessuhorn


Skessuhorn - 10.02.2021, Qupperneq 17

Skessuhorn - 10.02.2021, Qupperneq 17
MIÐVIKUDAGUR 10. fEbRúAR 2021 17 brátt var Laxfoss bundinn við bryggjuna á Akranesi og hermenn- irnir tíndust í land. Þeir voru eitt- hvað um fjörutíu, að sögn Sveins, og einn foringi virtist fyrir lið- inu, sem fylkti sér á garðinum. Þar lögðu þeir riffla sína á hafnargarð- inn og nú upphófst uppskipun. Ein- hvern veginn náðu þeir í vörubíl og annan. Svo þegar hafurtaskið var komið frá borði bakkaði Laxfoss frá en stríðsmenn breska heimveldisins tóku hólka sína, skriðu upp á vöru- bíla ofan á dótið og héldu upp úr bænum. Hernám var hafið á Akra- nesi. Herinn flytur í líkhúsið Á hinu forna prestssetri að Görð- um stendur elsta steinhús landsins. Það hafði um þessar mundir verið dubbað upp. Var notað sem líkhús, og stendur enda hið næsta kirkju- garðinum. „Til Garðahússins hélt nú breski herinn,“ skrifaði Sveinn. „Strákunum á Akranesi, sem voru vitni að landgöngu breska hersins þennan dag þótti mikils um vert að fylgjast náið með því sem fram fór uppi í Görðum um kvöldið. Næstu dagar voru viðburðaríkir á Akra- nesi. fleiri hermenn komu og líka bílar, og tjöld risu upp á túnun- um í bænum hér og þar. Við veg- inn gegnt fögrugrund settu þeir upp varðstöð og hermenn voru langtímum saman á Langasandi og mokuðu sandi í litla poka. Þeir hlóðu vegatálmanir úr þessum pok- um og líka virki og nú kom að því að breski herinn gerði sig heima- kominn og hernam ýmis hús hvort sem eigendum og umráðamönnum líkaði betur eða verr. bóndi sem nýlega var fluttur á Akranes átti litla hlöðu og útihús við tún neðar- lega á Skaganum. Enskir hermenn fluttu drasl í hlöðuna og bóndi fékk ekki að gert. Líkaði að vonum stór- illa og sagði með þunga: „Hefði ég kunnað málið hefðu þeir aldrei tekið hlöðuna.“ Svo var barnaskól- inn hertekinn og Skátahúsið og nú fóru hermenn daglega eftir götun- um í löngum röðum og foringinn fremstur með skammbyssu í belti.“ Sambýlið reyndi á Að mati Sveins og unga fólksins á Akranesi voru hermennirnir sum- ir orðið kunningjar þeirra og virt- ust meinleysisskinn. Þeir hafi flest- ir verið ánægðir með að vera á Ís- landi fyrsta sumarið þeirra í stríði. Þó leiddist mörgum dátunum og lágu dögum saman utan við tjöld- in og skrifuðu löng bréf heim eða lásu bréf sem bárust frá bretlandi. „Sumarið leið og haustið kom. Sambýlið, sem hafði á marga lund verið gott og tiltölulega laust við árekstra í upphafi versnaði þegar frá leið. Nýir herflokkar komu á Skag- ann og aðrir fóru. Nú fór að kastast í kekki við unglingana, og stundum kom til slagsmála. Skagamenn hafa aldrei verið fyrir að láta hlut sinn og eitt sinn þegar drukknir sjólið- ar gerðu aðsúg að þrem strákum á Vesturgötunni var barist upp á líf og dauða. Þetta spurðist út daginn eftir og þeir sem voru viðstaddir og tóku þátt í slagnum voru kallaðir fyrir. Menn höfðu átt hendur sín- ar að verja og sluppu með skrám- ur. Þórhallur lögreglustjóri áminnti strákana um að komast hjá vand- ræðum og allir samsinntu því.“ Lýkur hér tilvitnunum í hluta frásagnar Sveins Sæmundssonar úr Helgarpóstinum. Var á bryggjunni við komuna Hafsteinn Sigubjörnsson var átta árum yngri en Sveinn Sæmunds- son þegar hernám breta hófst, var níu ára. Skessuhorn ræddi við Haf- stein sem nú er á nítugasta aldurs- ári en hann á fjölmargar minning- ar frá þessu örlagaríka ári. „Hópur breta kom siglandi yfir faxaflóann um borð í Laxfossi. Ég var þá níu ára gamall og úlli vinur minn, Júl- íus Júlíusson, var átta ára. Við vor- um niðri á bryggju þar sem við lék- um okkur iðulega og sáum þeg- ar þeir komu. Þegar farþegarn- ir og vörurnar voru komnar í land var á afturdekki skipsins stór hóp- ur manna með stálhjálma á höfði og byssur. Við göptum af þessari sjón strákarnir. Þeir komu í land og skipuðu sér upp í tvöfaldri röð á bryggjunni. Einn þeirra öskraði; „left – right“ og marseraði hóp- urinn þá upp bryggjuna. Við vor- um orðnir skíthræddir og hlupum heim og sögðum frá hvað við höfð- um séð. Þóttu þetta mikil tíðindi,“ rifjar Hafsteinn upp. Þakklátir nýmetinu Dagana á eftir var stöðugur straum- ur af allskonar vöruflutningum á Akranes; byggingarefni og her- gögn sem var fylgifiskur hernáms- ins. fleiri hermenn bættust í hóp- inn. „byrjað var á að reisa húsnæði fyrir hermennina, bragga. Þeir voru reistir á nokkrum stöðum í bænum; niðri á breið, vestur á Grenjum, upp við skógrækt en aðal bragga- hverfið var við Vesturgötu, norðan við þar sem Norðanfiskur er í dag og upp að neðstu húsunum við göt- una. Þar voru 8-9 braggar hver við hlið annars. Samfara svona stórri sveit hermanna kom nokkrum dög- um síðar sjúkraliðasveit; sjö manna hópur og þar af tveir læknar. Þessi hópur setti upp búðir; fjögur tjöld, eitt mjög stórt sem þakti 15-18 fer- metra og þrjú tveggja manna tjöld. Risu þau á bakkatúninu, rétt fyrir neðan Deildartún 7. Ég átti heima þar, en þá hét gatan reyndar fáfn- isvegur. Voru sjúkratjöldin rétt hjá húsinu okkar. Ég minnist þess að pabbi gaf hermönnunum stund- um ýsuspyrðu eða lúðulok sem þeim þótti herramannsmatur. Voru sjálfsagt aðallega með dósamat og þakklátir nýmetinu sem að þeim var gaukað.“ Fyrsta súlfatið Hafsteinn rifjar upp að Margrét móðir hans hafi um þetta leiti brennt sig illa á handlegg þegar hún var að steikja kleinur. „Kallað var á lækni sem Hallgrímur hét og setti hann vaselín á sárið og sagð- ist koma aftur eftir þrjá daga og skipta um umbúðir. Daginn eftir þegar hún var að hengja upp þvott sjá sjúkraliðarnir að hún er með umbúðir á handleggnum. Komu þá læknarnir, ég man að þeir hétu Tony og Red, til hennar og vildu fá að skoða hvað hefði komið fyr- ir. Mamma vildi það ekki því hún skildi ekki ensku en þar sem henni leið mjög illa í hendinni ákvað hún að leyfa þeim að líta á sárið. Klippa þeir umbúðirnar af og sáu þá að þetta var mjög slæmt brunasár. Þeir náðu strax í hvítt duft og stráðu því yfir sárið og bjuggu svo um það aft- ur. Þegar Hallgrímur læknir kom til hennar daginn eftir sagði mamma honum hvað hefði hent. „frú Mar- grét,“ sagði Hallgrímur sem var alltaf mjög formlegur. „Þeir hafa sett þetta nýja efni sem heitir súlfa og er sagt mjög gott við bruna, en hefur ekki komið til landsins fyrr en nú.“ Sennilega var móðir mín því fyrst til að njóta þessa nýja súlfalyfs hér á landi.“ Braggabyggð reis Enginn vafi er á að fyrir íbúa á Akranesi var koma dátanna stórvið- burður og töluverð röskun á dag- legum högum fólks í sjávarþorp- inu. Reist voru tjöld á túnum og braggar byggðir. Hafsteinn rifj- ar upp að hann hafi verið í hópi tápmikilla krakka sem þá voru að alast upp á Skaganum. „Mínir leik- félagar voru meðal annars Egg- ert Vigfússon, Þorvaldur Sigurðs- son, bakkabræður og fleiri. Hlut- verk bresku hermannanna var að sinna varðgæslu einkum með flug- umferð inn á Hvalfjörð og voru settar upp varðstöðvar, útsýnisskíf- ur, skothylkjapönnur og birgi til að geta sinnt loftvörnum. Á þessum varðstöðvum gátu dátarnir fylgst með skipa- og flugumferð. Tvisvar sáum við krakkarnir þýska herflug- vél fljúga í njósnaleiðangur inn á Hvalfjörð og vafalítið hefur blóðið í æðum bretanna farið á mikla ferð við það. Annars voru bretarnir ekki eiginlegir hermenn í mínum huga. Sumir þeirra voru miðaldra menn og vafalítið verið hluti af heima- varnaliði sem fékk það hlutverk að fara til Íslands og verja landið. Þeir aðhæfðust lítið þegar þeir voru hér á Akranesi, voru meira svona varð- menn en sumir sinntu lækningum,“ segir Hafsteinn. „Við vorum hópur krakka sem ólumst upp skammt hjá Krókalóninu og fylgdumst grannt með þegar braggar og tjaldbúðir voru reistar. Þeir komu sér m.a. fyr- ir vestur á Grenjum þar sem slipp- urinn er í dag og svo niður á breið. Það voru byggðir 10-15 braggar á Skaganum; átta þeirra voru m.a. á Vesturgötunni og einn á breið- inni þar sem steyptur var veggur í kring. Þá var loftvarnabirgi í end- anum á húsinu þar sem nú er nytja- markaður búkollu. Siggi Vikk hafði svo það hlutverk að vakta svæðið og átti að reka okkur krakkana í birgi ef gerð yrði loftárás.“ Tjaldað við bæinn Hafteinn segir að bretarnir hafi verið tillitssamir við íbúa og jafnvel tilbúnir að leika sér við krakkana í þorpinu. „Í mínum huga voru þetta allt mjög vandaðir menn og ég á einungis góðar minningar um þessa stuttu veru þeirra hér. Þeir meira að segja léku við okkur börnin. festu til dæmis segldúk við vegg og létu okkur krakkana standa á dúknum miðjum og kipptu svo í hinn end- ann. Við flugum hátt í loft upp og þótti þetta mjög skemmtilegt.“ böðvarstún og bakkatún við Krókalónið voru þegar þetta var óbyggð græn svæði og þar voru reist tjöld sem þjónuðu sem lækn- ingaskýli. Þar voru tveir læknar og fjórir til aðstoðar. „Þessi tjöld voru rétt við heimili mitt. Mamma mín var með vinnuborð í kjallaranum. Þar fengu bretarnir stundum að sitja þegar þeir skrifuðu bréf til ást- vina sinna á bretlandi. Þeir gauk- Í meðfylgjandi frásögn er m.a. stuðst við grein sem Sveinn Sæmundsson ritaði 1979 um hernámsvorið 1940 á Akranesi. Sveinn var fæddur 1923 en lést 2017. Hann var menntaður rafvélavirki, starfaði sem blaðamaður, skrifaði bækur og var m.a. blaða- fulltrúi Flugleiða. Sem slíkur stóð hann að margvíslegri landkynningu fyrir Ísland. Breskir hermenn marséra ofan Skólabraut 1940. Á myndinni sjást Vinaminni og Akraneskirkja. Ljósmyndasafn Akraness/ Ljósmyndari óþekktur. „Við vorum hópur krakka sem ólst upp skammt frá Krókalóninu og fylgdumst grannt með þegar braggar og tjaldbúðir voru reistar,“ rifjar Hafsteinn Sigur- björnsson upp. Böðvarstún og Bakkatún við Krókalónið voru þegar þetta var óbyggð græn svæði en þar voru reist tjöld sem þjónuðu hlutverki lækningaskýla. Ljósm. mm.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.