Skessuhorn - 10.02.2021, Side 19
MIÐVIKUDAGUR 10. fEbRúAR 2021 19
Langá á Mýrum er núna öll í hörku
klakaböndum. Um helgina tók Jó-
hannes Viggósson meðfylgjandi
mynd af klakabunkum við Skugga-
foss. Á myndinni er dóttir hans
Arna Maren en hún stendur við
einn klakann. Þar sést vel hvað
þetta er mikið ísmagn sem er í ánni
og á bökkum árinnar. mm
Hafrannsóknastofnun hefur nú lagt
til að loðnukvóti á vertíðinni 2020/21
verði aukinn í 127.300 tonn. Kemur
sú ráðgjöf í stað þeirrar sem gefin
var út 24. janúar síðastliðinn. bygg-
ir ráðgjöfin á summu tveggja leið-
angra sem fóru fram seinni part janú-
ar og gáfu mat á stærð hrygningar-
stofns loðnu upp á samtals 650 þús-
und tonn.
„Dreifing loðnu ásamt forsendum
um göngustefnu og tímasetningar
var lögð til grundvallar á ákvörðun
um samlagningu mælinganna með
þessum hætti. Heildaryfirferð þess-
ara tveggja leiðangra er talin ná yfir
allt útbreiðslusvæði hrygningar-
loðnu. Það gilti ekki um mælingar í
desember og fyrri hluta janúar og því
voru niðurstöður þeirra ekki notað-
ar í þessari lokaráðgjöf. Ráðgjöf um
aflamark byggist á því að 95% líkur
séu á að hrygningarstofninn í mars
verði yfir 150 000 tonnum að teknu
tilliti til afráns. Samkvæmt því leiðir
þessi heildarmæling til veiðiráðgjafar
upp á 127 300 tonn veturinn 2020/21
og kemur í stað fyrri ráðgjafar frá
því í janúar,“ segir í tilkynningu frá
Hafró síðastliðið fimmtudagskvöld.
Kristján Þór Júlíusson sjávarút-
vegsráðherra beið ekki boðanna og
undirritaði morguninn eftir reglu-
gerð um veiðar á loðnu. Hún heimil-
ar íslenskum skipum að veiða 69.834
tonn. Taka þarf tillit til gildandi
samninga við önnur ríki áður en til
úthlutunar á loðnukvóta kemur til ís-
lenskra skipa. Annars vegar er samn-
ingur við Norðmenn vegna þorsk-
veiða íslenskra skipa í barentshafi
og hins vegar tvíhliða samningur við
færeyjar.
mm
Nokkur umræða hefur undan-
farið verið hér á Vesturlandi um
skort á vindmælum við þekkta,
sviptivindasama kafla á þjóðveg-
um landshlutans. Meðal annars
var fjallað um málið í Skessuhorni
vegna tveggja óhappa þegar bílar
fóru nýverið út af veginum við
Skorholtsmela í Hvalfjarðarsveit.
Vegagerðin á og rekur þá vind-
mæla sem eru við þjóðveg lands-
in en stundum getur veður verið
ágætt nákvæmlega þar sem mælir
er staðsettur en hreinlega kolvit-
laust stutt þar frá. Því er ljóst að
fjölga þarf vindhraðamælum.
Tók málin í sínar
hendur
Elmar Snorrason er ábúandi á
Leirá í Leirársveit og áhugamað-
ur um veðurmælingar. Hann hef-
ur síðan í ársbyrjun átt tvær veð-
urstöðvar við heimili sitt að Leirá.
Eftir umferðarslys sem varð nýlega
neðan við Skorholt setti hann inn
færslu á facebook síðuna Vöru- og
flutningabíla um veður og veður-
stöðvar. Þar greindi hann frá því
að á svipuðum tíma og slys varð
á Skorholtsmelum sló vindmælir-
inn á Leirá í 49 metra á sekúndu.
Í þeirri NA vindátt sem ríkti þeg-
ar slysið átti sér stað er sami vind-
strengur á Leirá og slysstaðnum
þar sem bíllinn fauk útaf. Á sama
tíma var skaplegra veður við stöð-
ina frá Vegagerðinni sem staðsett
er vest-norðvestan við Hafnarfjall.
„Í framhaldi af þessari færslu höfðu
nokkrir aðilar samband við mig og
æstu mig upp í þeirri hugdettu
að koma upp veðurstöð á þessum
slóðum,“ segir Elmar. Hann tók
sig því til, setti saman sólarknúna
og nettengda veðurstöð og setti
upp á Skorholtsmelum, skammt
frá fyrrgreindum slysstað. Hann
fékk leyfi landeigenda fyrir upp-
setningu stöðvarinnar og jafnframt
var þess gætt að stöðin væri utan
veghelgunarsvæðis Vegagerðar-
innar.
Vakið hefur nokkra athygli að
einstaklingur skuli geta sett upp
slíka veðurstöð en að Vegagerð-
in skuli eiga í erfiðleikum með að
tryggja að vindur og vindhviður
séu mældar á þekktum vindastöð-
um og upplýsingum komið á fram-
færi. Elmar segir að hann muni láta
stöðina standa á Skorholtsmelum
eitthvað áfram en hann segir jafn-
framt að hann geti ekki staðið í að
fjármagna slíka stöð því þó kostn-
aðurinn sé ekki mjög hár, eða 275
þúsund króna stofnkostnaður við
umrædda stöð, sé ekki hægt að
ætlast til þess að einstaklingar taki
fjármagn út úr heimilisbókhaldinu
sínu til þess að fjármagna verkefni
sem varðar almannaheill.
Vekur athygli
Elmar segist vilja sjá sveitarfélög
og fyrirtæki koma að verkefninu
ef Vegagerðin gerir það ekki því
að ljóst sé að kostnaður við slíka
veðurstöð sé mjög lágur ef hægt
er að koma í veg fyrir óhöpp og
slys vegna vindstrengja á vegum
landsins. Tilgangur hans með því
að setja stöðina upp hafi eingöngu
verið sá að sýna fram á hve einfalt
og ódýrt það væri í raun og veru og
á hvers manns færi að gera slíkt.
Mikill áhugi hefur verið á þessu
verkefni Elmars eftir að hann setti
ofangreinda færslu inn á facebook
og hafa fjölmargir haft samband
við hann til þess að afla frekari
upplýsinga. Elmar hefur flutt sínar
veðurstöðvar inn frá bandaríkjun-
um og sett þær saman hér heima.
Hann hyggst flytja stöðvarnar inn
í auknum mæli og selja stakar eða
samsettar með þeim búnaði sem
þarf, svo sem sólarsellu, rafgeymi
og stjórnbúnaði. Þá hyggst hann
einnig vera með á lager alla vara-
hluti sem þarf í stöðvarnar. Stöðv-
arnar eru knúnar af sólarrafhlöðu
og hafa einnig símkort og tengjast
netinu í gegnum 4G kerfið. Elmar
setur fyrirvara bæði um nákvæmni
stöðvanna og hámarks vindþol.
„Þær eiga að þola 100 mph vind
sem eru 44 m/s en mín stöð hefur
lifað af 49 m/s og verður forvitni-
legt að vita hvað þarf mikinn vind
til að hún fari í fýlu.“
Vill sjá vindmæla
setta upp
Í framtíðinni segist Elmar sjá fyrir
sér að vegfarendur geti kynnt sér
veðurfar á fyrirhugaðri akstursleið,
annað hvort í gegnum vef eða app
í síma. Hann segist vilja sjá vind-
mæla á þekktum hviðustöðum, svo
sem við berjadalsá og Kvígsstaði
í Andakíl svo einhverjir staðir séu
nefndir.
Hægt er að sjá veðurupplýs-
ingar í gegnum heimasíðu Elm-
ars, www.jeppafelgur.is/vedur
Kerfið er þó amerískt og þarf hver
notandi að breyta stillingum í Cel-
cius og metrakerfið en einfaldar
leiðbeiningar til þess eru á ofan-
greindri síðu.
frg
Setti upp veðurstöð á Skorholtsmelum
Elmar Snorrason.
Veðurstöðin Elmars við Skorholtsmela.
Loðnukvótinn tvöfaldaður
miðað við síðustu tillögur
Dreifing loðnu
í leiðangrinum
26.-30. janúar
síðastliðinn.
Graf: Hafró.
Langá í klakaböndum