Skessuhorn - 10.02.2021, Side 23
MIÐVIKUDAGUR 10. fEbRúAR 2021 23
Um fjórðungur launafólks á erf-
itt með að ná endum saman sam-
kvæmt nýrri könnun Vörðu –
rannsóknastofnunar vinnumark-
aðarins. Erfiðleikarnir eru mest-
ir hjá atvinnulausum og inn-
flytjendum. Varða lagði nýver-
ið könnun fyrir félaga í aðild-
arfélögum Alþýðusambands Ís-
lands og bSRb þar sem spurt
var um stöðu launafólks og at-
vinnulausra. Ákveðið var að ráð-
ast í gerð könnunarinnar meðal
annars vegna þeirra miklu erfið-
leika sem hluti launafólks býr við
vegna heimsfaraldur kórónuveir-
unnar, sérstaklega sá stóri hópur
sem misst hefur vinnuna.
Niðurstöðurnar sýna veru-
legan mun á fjárhagsstöðu félags-
fólks aðildarfélaga ASÍ og bSRb
eftir kyni. Alls sögðust 23,7%
þeirra sem tóku þátt í könnun-
inni að þeir ættu frekar erfitt eða
erfitt með að láta enda ná saman.
Hlutfallið var mun hærra með-
al kvenna, 27,2% en hjá körlum
mældist það 19,5%.
Staða atvinnulausra var mun
verri en staða launafólks. Rétt
rúmlega helmingur atvinnulausra
sagðist eiga frekar erfitt eða erfitt
með að láta enda ná saman. At-
vinnulausir eru líka mun líklegri
til að þurfa að leita til sveitar-
félaga eða vina og ættingja eft-
ir fjárhagsaðstoð, þiggja aðstoð
hjálparsamtaka eða fá matarað-
stoð.
Atvinnuleysi er mun hærra
meðal innflytjenda en inn-
fæddra, um 24% samanborið við
15,2% samkvæmt tölum Vinnu-
málastofnunar sem vitnað er til
í skýrslu Vörðu og því ljóst að
um viðkvæman hóp er að ræða.
Alls sögðust um 34,9% innflytj-
enda eiga erfitt eða frekar erfitt
með að láta enda ná saman. Það
er mun hærra hlutfall en meðal
innfæddra, þar sem 26,2% voru
í sömu stöðu. Innflytjendur líða
frekar efnahagslegan skort og
hafa í meira mæli þurft að þiggja
matar- og/eða fjárhagsaðstoð.
Í könnun Vörðu var einnig
spurt um andlega og líkamlega
heilsu. Niðurstöðurnar sýna að
andleg og líkamleg heilsa at-
vinnulausra er verri en þeirra
sem eru í vinnu og þeir eru lík-
legri til að hafa neitað sér um að
sækja heilbrigðisþjónustu. And-
leg heilsa atvinnulausra mælist
einnig mun verri hjá konum en
körlum en athygli vekur að um
fjórðungur kvenna á vinnumark-
aði, þeirra sem eru í vinnu, sagð-
ist búa við slæma andlega heilsu.
mm
Síðastliðinn föstudag var kvikmynd-
in Hvernig á að vera klassa drusla
frumsýnd og var myndin söluhæsta
mynd helgarinnar. Myndin var tek-
in upp í Hvalfirði og á Akranesi
2019. Handritið skrifaði Ólöf birna
Torfadóttir, en þetta er fyrsta kvik-
mynd hennar í fullri lengd. Myndin
fjallar um vinkonurnar Karen, sem
er þrælvön sveitastelpa, og Tönju,
sem er mikið borgarbarn. Þær fara
í saman út á land að vinna á stórum
sveitarbæ yfir sumarið. Þar reyn-
ir Tanja að heilla sveitarsták upp úr
skónum en gengur það heldur illa.
Hún biður þá Karen að kenna sér
að vera frakkari og hvernig eigi að
vera klassa drusla. Þetta hefur ýms-
ar spaugilegar afleiðingar sem kitla
hláturtaugarnar. Myndin hefur
fengið einróma lof gagnrýnenda og
komið áhorfendum skemmtilega á
óvart.
Með aðalhlutverk fara þær Ásta
Júlía Elísdóttir og Ylfa Marín Har-
aldsdóttir auk þess sem Steinunn
Ólína Þorvaldsdóttir, Þorsteinn
bachmann og Ólafía Hrönn Jóns-
dóttir fara með hlutverk í mynd-
inni. Gerð myndarinnar er sjálf-
stætt framtak, unnið án styrkveit-
inga úr Kvikmyndasjóði. Myndin
fær þó 25% endurgreiðslu frá at-
vinnuvega- og nýsköpunarráðu-
neytinu.
arg/ Ljósm. aðsendar
Rannsóknanefnd samgöngu-
slysa skilaði 29. janúar síðastlið-
inn lokaskýrslu um atvikið þegar
blíða SH-277 sökk á breiðafirði 5.
nóvember 2019. Skipið hafði verið
á beitukóngsveiðum. Í atvikaskrán-
ingu af óhappinu kemur fram að
skipið hafi sokkið mjög skyndilega
en orsakir lekans liggja ekki fyrir.
Þrír skipverjar komust á kjöl björg-
unarbáts og var bjargað um borð í
Leyni SH-120. Í skýrslu Rannsókn-
arnefndar samgönguslysa kem-
ur fram að staðsetning skipsflaks-
ins sé þekkt og liggur það á um 40
metra dýpi norður af Langeyjum. Í
tönkum skipsins er talið að séu um
þrjú þúsund lítrar af gasolíu auk
400 lítra af glussaolíu. Rannsókn-
arnefndin telur afar mikilvægt, m.a.
vegna rannsóknarhagsmuna, að í
tilfellum sem þessum sé skipsflak
tekið upp og vísar í því samhengi til
atviks þegar Jón Hákon bA sökk á
Vestfjarðamiðum í byrjun júlí 2015.
mm
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðis-
ráðherra samþykkti fyrir helgi til-
lögur Þórólfs Guðnasonar sótt-
varnalæknis um tilslakanir á sam-
komutakmörkunum. Tillögurnar
tóku gildi síðastliðinn mánudag og
gilda til og með 3. mars. Almenn-
ar fjöldatakmarkanir eru áfram
20 manns en undantekningar eru
rýmri en áður. Enn gilda reglur
um tveggja metra reglu og grímu-
skyldu. börn fædd 2005 eða síð-
ar eru undanþegin ákvæðum um
fjöldatakmarkanir, nálægðarmörk
og grímuskyldu.
Skemmtistaðir og krár mega nú
hafa opið að nýju og einnig spila-
salir og spilakassar. Veitingastað-
ir með áfengisveitingar, þar með
talin veitingahús, kaffihús, krár
og skemmtistaðir, mega hafa opið
til kl. 22:00 og það sama gildir
um spilasali og spilakassa. Ekki er
heimilt að hleypa nýjum gestum
að á veitingastöðum eftir kl. 21:00
og veitingar skulu aðeins afgreidd-
ar gestum í sæti. fjöldatakmörkun
gesta í sviðslistum fór úr 100 í 150
manns og hámarksfjöldi í versl-
unum og á söfnum er 150 manns
að uppfylltum skilyrðum um fer-
metrafjölda. Leyfilegt er að opna
að nýju búningsaðstöðu í heilsu-
og líkamsræktarstöðvum. Æfingar
í tækjasal eru heimilaðar með þeim
skilyrðum að ekki séu fleiri en 20
manns í hverju rými og skulu þeir
skrá þátttöku sína fyrirfram. Leyfi-
legur hámarksfjöldi gesta er helm-
ingur af þeim fjölda sem kveðið er
á um í starfsleyfi. Allur búnaður
skal vera sótthreinsaður eftir hverja
notkun og tryggt að einstaklingar
fari ekki á milli rýma. Trú- og lífs-
skoðunarfélög hafa undantekningu
á 20 manna fjöldatakmörkunum
og mega vera 150 fullorðnir ein-
staklingar við athafnir en virða þarf
tveggja metra regluna og grímu-
skyldu. arg
Æfingar í tækjasal eru nú heimilaðar með þeim skilyrðum að ekki séu fleiri en 20
manns í hverju rými og skulu þeir skrá þátttöku sína fyrirfram.
Slakað hefur verið
á samkomutakmörkunum
Fjórðungur
launafólks á erfitt
með að láta enda
ná saman
Skjáskot úr myndinni
Hvernig á að vera klassa drusla
var söluhæst um helgina
Frá frumsýningu myndarinnar um helgina.
Handritshöfundur myndarinnar er Ólöf
Birna Torfadóttir. Ljósm. úr safni/ arg
Úr kvikmyndasal um helgina.
Fjórum árum áður en Blíða SH sökk hafði hún í október 2015 steytt á skeri og var
þessi mynd tekin þá. Ljósm. úr safni/ sá.
Skýrsla um þegar Blíða
sökk á Breiðafirði