Skessuhorn - 10.02.2021, Síða 25
MIÐVIKUDAGUR 10. fEbRúAR 2021 25
Stóriðjan hefur verið líkt og heit
kartafla undanfarin ár, m.a. í opin-
berri umræðu. Í vaxandi mæli hef-
ur verið togast á um mengunarmál
og loftslagsþáttinn en sérstaklega
þó um orkuverð. Í því efni er eng-
in spurning að landsmenn þurfa og
eiga að krefjast eðlilegs verðs fyr-
ir selda raforku. Þjóðarbúið þarf á
því að halda.
Uppbygging á
Grundartanga
Stóriðjan hefur haft gríðarlega mik-
il áhrif á íslenskum vinnumarkað,
stuðlað að festu og atvinnuöryggi
hjá þúsundum einstaklinga og víða
haft úrslitaáhrif, skapað ný störf og
verkefni, jafnvel í ólíkum greinum.
Á öflugu athafnasvæði á Grund-
artanga eru afar mikilvæg fyrirtæki,
bæði í þjóðhagslegu tilliti og fyr-
ir atvinnulíf á suðurhluta Vestur-
lands. Áhyggjur eru hins vegar uppi
um að starfsemi þessara fyrirtækja
sé ekki tryggð til framtíðar vegna
minnkandi samkeppnishæfni orku-
sækins iðnaðar.
Græn og væn framtíð
Þróunarfélag Grundartanga var
stofnað fyrir 5 árum en hlutverk
þess er að stuðla að þróun og upp-
byggingu á atvinnusvæðinu. Á veg-
um félagsins er nú unnið hörðum
höndum að ýmsum verkefnum í
græna og umhverfisvæna átt. Dæmi
um það er nýting á glatvarma til
uppsetningar á hitaveitu eða jafnvel
í raforkuframleiðslu. Sömuleiðis er
unnið að þróun og vinnslu á svo-
kölluðu rafeldsneyti til notkunar á
bílum og skipum sem er áhugavert
verkefni sem nýlega hlaut lítilshátt-
ar fjárstuðning stjórnvalda.
Lykill að lausnum?
Á þessum sviðum geta leynst ýmis
mikilvæg skref og jafnvel svör við
loftslagsvanda Íslands sem verða
stöðugt ágengara umfjöllunarefni.
Þetta gæti að auki skapað fjölmörg
störf með lítið umhverfisspor.
Mögulegt yrði ef vel tekst til að hita
upp allt að 15.000 hús. Með föngun
kolefnis úr útblæstri verksmiðjanna
og með framleiðslu á kolefnishlut-
lausu eldsneyti væri þannig mögu-
legt að minnka kolefnisspor Íslands
um jafnvel 12% eða u.þ.b. 450.000
tonn af koltvísýringi.
Það er því mikilvægt að stjórn-
völd komi með öflugum hætti til
móts við sprotastarfsemi og fyr-
irtæki sem vinna af kappi í þessa
veru. Athafnasvæðið á Grundar-
tanga er þarna kjörinn vettvangur,
getur orðið fyrirmynd og tryggt
starfsemina til langrar framtíðar í
sátt við umhverfið.
Ábyrgð stjórnvalda
Óhreinu börnin hennar Evu og
stóriðjan eru oft nefnd í sömu and-
ránni, að stóriðjan sé tímaskekkja
og þurfi að víkja hið fyrsta. Því skal
haldið til haga að þessari mikilvægu
starfsemi var komið á fót hér á sín-
um tíma með vilja stjórnvalda og
jafnvel fyrir áeggjan og að frum-
kvæði þeirra. Ábyrgð stjórnvalda
er því mikil og stjórnvöld verða að
haga orðræðu sinni og athöfnum
með það í huga, það er mikið í húfi.
Við eigum hins vegar að vera ein-
örð í kröfunni um loftslags- og um-
hverfisþættina. Þar eru ófrávíkjan-
leg markmið sem vinna verður að,
og mörg tækifæri eru enn ósótt.
Guðjón S. Brjánsson
Höf. er alþingismaður Samfylking-
arinnar í NV kjördæmi.
borgarbyggð opnaði á mánudag-
inn netspjall á heimasíðu sveitar-
félagsins. Þegar vefsíðan borgar-
byggd.is er opnuð birtist gluggi
neðst í hægra horni þar sem hægt
er að fara inn í netspjallið. Spjallið
verður fyrst um sinn opið alla virka
daga frá kl. 9:30-15:00. Á heima-
síðu sveitarfélagsins er greint frá
því að netspjallið sé liður í því að
auka þjónustu þjónustuvers sveitar-
félagsins fyrir íbúa og gesti. „Hlut-
verk þjónustuversins er að veita há-
gæða þjónustu og að vera upplýs-
ingaveita fyrir íbúa borgarbyggð-
ar og aðra sem leita til þjónustu-
versins, óháð þeirri leið sem erindi
berast,“ segir á vef sveitarfélagsins.
Hægt verður að senda skilaboð í
gegnum netspjallið utan opnunar-
tíma og verður þeim þá svarað þeg-
ar spjallið er opnað aftur. arg
Katrín Sif Sigurgeirsdótt-
ir, fyrrverandi formaður
kjaranefndar Ljósmæðra-
félags Íslands, vill leiða Pí-
rata í Norðvesturkjördæmi
fyrir komandi alþingiskosn-
ingar. Hún er 45 ára hjúkr-
unarfræðingur og ljósmóð-
ir, gift Aðalsteini Ingólfssyni
og samtals eiga þau átta börn.
Katrín Sif starfar nú sem ljós-
móðir í mæðravernd og sinn-
ir heimafæðingaþjónustu. Í
tilkynningu kemur fram að
Katrín Sif velur að bjóða sig
fram í Norðvesturkjördæmi.
„Ég býð mig fram í Norð-
vesturkjördæmi vegna þess
að ég tel að reynsla mín og
kraftar muni nýtast því kjör-
dæmi einna best á næsta kjör-
tímabili. Ég á ættir að rekja
vestur og hef starfað þar
sem ljósmóðir með hléum undan-
farin ár bæði á Patreksfirði og Ísa-
firði. Ég veit því hversu mikilvægt
það er fyrir íbúa kjördæmisins að
fá öflugan talsmann fyrir traustu
aðgengi að heilbrigðisþjónustu á
landsbyggðinni til liðs við sig. Ég
hef komið víða að í heilbrigðiskerf-
inu, bæði sem þjónustuveitandi,
þjónustuþegi og aðstandandi. Ég
hef staðið ölduna í því kerfi í gegn-
um súrt og sætt, hrun og faraldur
og þannig séð, heyrt og lært. Allt
er þetta dýrmæt reynsla sem ég er
tilbúin að nýta mér á vettvangi Al-
þingis til að vinna að góðu og skil-
virku heilbrigðiskerfi.“
Katrín Sif segir að Píratar á Ís-
landi séu ungt afl sem hafi tekið út
mikinn þroska og vöxt á stutt-
um tíma. „Þetta er afl sem er
í stöðugri þróun og getur þar
af leiðandi boðið upp á mikil-
væga aðlögunarhæfni og lest-
ur í nútímaþarfir samfélags-
ins. Píratar byggja á góðum
þverskurði samfélagsins og
grunnstefna þeirra stendur
vörð um réttindi allra hópa.
Áhersla Pírata á að efla og
vernda réttindi jaðarsettra
hópa í samfélaginu höfðar
sérstaklega vel til mín því ég
brenn fyrir samfélagi þar sem
allir hafa tækifæri til að sitja
við sama borð. Ég trúi því að
ef grunnurinn er traustur, þ.e.
ef við hlúum vel að börnunum
okkar og veitum þeim öryggi
og fullnægjandi vaxtar- og
þroskaskilyrði, andleg, félags-
leg og líkamleg, þá komum
við í veg fyrir ansi víðtæka þjón-
ustuþörf í heilbrigðiskerfinu þeg-
ar fram í sækir. Ég tel að ég sé vel
til þess fallin að geta verið þessum
málaflokkum góður málsvari, ég
hef til þess traustan grunn, reynslu,
þekkingu og þroska,“ segir Katrín
Sif Sigurgeirsdóttir.
mm
frestur til að skila framboðum til
prófkjörs framsóknarflokksins í
Norðvesturkjördæmi rann út um
mánaðamótin. Póstkosning verð-
ur haldin dagana 16. febrúar til 13.
mars og verður kosning bindandi
um fimm efstu sætin á lista flokks-
ins fyrir alþingiskosningarnar 25.
september. Atkvæðisrétt hafa þeir
sem skráðir eru í flokkinn. Kjör-
stjórn hefur nú kynnt nöfn tíu ein-
staklinga sem gefa kost á sér í próf-
kjörinu. Ljóst er að nú stefnir í bar-
áttu um efstu sætin því þrír berjast
um forystusæti listans og fjórir óska
eftir öðru sæti. flokkurinn á nú
tvo þingmenn í kjördæminu; þau
Ásmund Einar Daðason, sem nú
hyggst bjóða sig fram í Reykjavík,
og Höllu Signýju Kristjánsdótt-
ur sem sækist eftir öðru af tveim-
ur efstu sætum listans. Nú blanda
Stefán Vagn Stefánsson á Sauðár-
króki og Guðveig Eyglóardóttir í
borgarnesi sér einnig í toppbarátt-
una.
Eftirfarandi gefa kost á sér:
Stefán Vagn Stefánsson, forseti
sveitarstjórnar í Skagafirði 1.
sæti
Guðveig Eyglóardóttir, sveitar-
stjórnarmaður í borgarbyggð 1.-2.
sæti
Halla Signý Kristjánsdóttir, al-
þingismaður í bolungarvík 1.-2.
sæti
Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir,
formaður SUf 2. sæti
Iða Marsibil Jónsdóttir, forseti
bæjarstjórnar í Vesturbyggð 2.-3.
sæti
Gunnar Tryggvi Halldórsson,
sveitarstjórnarmaður blönduósi
3. sæti
friðrik Már Sigurðsson, verkefna-
stjóri og sveitarstjórnarfulltrúi,
Húnaþingi vestra 3.-4. sæti
Gunnar Ásgrímsson, háskólanemi
á Sauðárkróki 5. sæti
Ragnheiður Ingimundardóttir,
verslunarmaður í Strandabyggð
5.-6. sæti
Tryggvi Gunnarsson, skipstjóri frá
flatey 3.-5. sæti. mm
Þrjú landshlutaráð Viðreisnar af
fimm hafa tekið ákvörðun um
hvaða leið verði farin við röðun
á framboðslista fyrir kosningar í
haust. Landshlutaráð Reykjavíkur,
Suðvesturkjördæmis og Suðurkjör-
dæmis hafa öll fundað og ákveð-
ið að nota uppstillingu við skip-
an á lista þessara fjögurra kjör-
dæma að þessu sinni. Landshluta-
ráð Norðvestur- og Norðaustur-
kjördæma munu fljótlega funda til
að taka ákvörðun um leið við röð-
un á framboðslista. Viðreisn á ekki
þingmann í Norðvesturkjördæmi
en bauð fram fyrir fjórum árum.
Ekki liggur fyrir hverjir sækist eftir
að komast í framboð að öðru leyti
en því að Guðmundur Gunnars-
son fyrrverandi bæjarstjóri á Ísa-
firði hefur gengið í raðir Viðreisnar
og sækist eftir sæti á lista flokksins í
Norðvesturkjördæmi. Það var stað-
fest í desember síðastliðnum.
„Hvert landshlutaráð fyrir sig
tekur ákvörðun um hvaða aðferð
verður beitt við skipan framboðs-
lista, í samræmi við samþykkt-
ir flokksins. Verði uppstilling fyr-
ir valinu skal landshlutaráð skipa
uppstillingarnefnd sem starfar
samkvæmt reglum sem stjórn Við-
reisnar setur. framboðslistar verða
bornir undir landshlutaráð og stjórn
Viðreisnar til samþykktar. Viðreisn
gætir fyllsta jafnréttis kynjanna og
vill endurspegla fjölbreytni mann-
lífs í framboðslistum sínum. Stjórn
Viðreisnar hefur ákveðið að auglýsa
eftir áhugasömu fólki til að starfa
með flokknum og taka sæti á listum
hans. Þessar auglýsingar munu líta
dagsins ljós á næstu dögum,“ segir í
tilkynningu. mm
Tíu gefa kost á sér í prófkjöri
Framsóknar í NV kjördæmi
Viðreisn velur uppstillingu og
auglýsir eftir áhugasömum
Katrín Sif vill leiða lista Pírata
Pennagrein
Stóriðjan
og ábyrgð
stjórnvalda
Hér má sjá hvar hægt er að fara inn í netspjallið.
Borgarbyggð hefur
opnað netspjall