Skessuhorn


Skessuhorn - 10.02.2021, Qupperneq 28

Skessuhorn - 10.02.2021, Qupperneq 28
MIÐVIKUDAGUR 10. fEbRúAR 202128 Vörur og þjónusta R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 H P Pípulagnir ehf. Alhliða pípulagnaþjónusta Hilmir 820-3722 Páll 699-4067 hppipulagnir@gmail.com S K E S S U H O R N 2 01 8 Fyrir alla vigtun Húsarafmagn Töflusmíði Iðnaðarrafmagn Bátarafmagn Bílarafmagn RAFMAGN vogir@vogir.is Sími 433-2202 VOGIR Bílavogir Kranavogir Skeifuvogir Pallvogir Aflestrarhausar Hönnun prentgripa & alhliða prentþjónusta Drei bréf - Boðsbréf Ritgerðir - Skýrslur Reikningar - Eyðublöð Umslög - Bréfsefni Fjölritunar- og útgáfuþjónustan Getum við aðstoðað þig? sími: 437 2360 olgeirhelgi@islandia.is • Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS S: 860-0708 • Smiðjuvellir 7, Akranesi • bv.sprautun@gmail.com Vinnum fyrir öll tryggingafélög Pennagrein fasteignagjöld í borgarbyggð hafa um árabil verið einhver þau hæstu á landinu. Í ár er engin breyting þar á, enda líklega þörf á sem mestum tekjum til sveitarfélagsins til þess að kosta óreiðuna í fjármálum undir stjórn núverandi meirihluta. Ég hef áður í greinum sýnt mismuninn á fasteignasköttum, annarsvegar á mínu húsi í borgarnesi, og húsi vinar míns í Grafarvogi sem er aðeins minna en mitt í fermetrum talið, en fasteignamat þess er hærra. Mismunurinn á gjöldum í Borgarbyggð og Reykjavík er sláandi Samkvæmt grein í Skessuhorni nú nýlega þá talaði einn fulltrúi meirihlutans í borgarbyggð fjálglega um að fasteinga- skattar hækkuðu ekki þar sem álagningarprósentan hækkaði ekki. Veruleiki íbúanna sem þurfa að greiða fasteignaskatta er þessi: Hækkun fasteignatengdra gjalda borgarbyggðar er tæplega tvöföld verðlagshækkun milli ára. Skoðum aðeins hvaða tekjur þarf að hafa til þess að greiða fasteignagjöld af húsi eins og mínu: Það er því dýrt spaug að eiga og reka íbúðarhúsnæði í borg- arbyggð! Skv. pistli fulltrúa meirihlutans hækka skuldir sveitarfélags- ins lítið sem ekkert. Hann tekur hækkun milli áranna 2022 og 2024 sem dæmi. Raunveruleikinn er sá ef miðað er við síðasta þekkta uppgjör borgarbyggðar 2019 og síðasta ár langtíma- áætlunar núverandi meirihluta þá eru horfurnar þessar: Áætlunin gerir því ráð fyrir að skuldir og skuldbinding- ar hækki um tæplega 1,3 milljarða króna. Og þar sem fram- kvæmdir á tímabilinu eru áætlaðar 1,4 milljarðar króna og hafa gjarnan farið 50% til 80% fram úr áætlun þá er líklegra að skuldaaukningin verði nær 2 milljörðum króna þegar upp verður staðið. flest bendir til þess að núverandi meirihluti hafa litla sem enga stjórn eða yfirsýn yfir fjármál og rekstur sveitarfélagsins. Ef til vill er það ástæðan fyrir feluleiknum um skýrslu KPMG um innra eftirlit og fjárhagskerfi sveitafélagsins. Borgarnesi, 3. febrúar 2021. Guðsteinn Einarsson. Af fasteignagjöldum og fleiru Norðvesturkjördæmi spannar stórt landsvæði með fjölbreytt landslag, fallega náttúru, mikla möguleika og áskoranir. Kjördæmið býður upp á margbreytileg atvinnutækifæri og sóknarfærin eru mörg. Í þessari yf- irferð langar mig aðeins að tala um landbúnað, sem er ein af grunnstoð- um atvinnulífs og byggðar í kjör- dæminu. Landbúnaður er á margan hátt undirstaða dreifðari byggðar og mik- ilvægi hans í byggðarþróun landsins er sjaldan ofmetið. Það er staðreynd að atvinnumöguleikar eru fjölbreytt- ari í þéttbýli. Þess vegna verður öfl- ugur landbúnaður að vera lykill að góðum búsetuskilyrðum í dreifbýli. Undanfarin ár hefur þessi forna og mikilvæga atvinnugrein átt undir högg að sækja. Oft eru t.d. ekki for- sendur fyrir komandi kynslóðir að taka við búrekstri. Afurðaverð bænda er í mörgum tilfellum ekki nægilega gott til að standa straum af kostn- aði við búrekstur og sérhæfð láns- fjörmögnun af skornum skammti. Staða sauðfjárbænda er sérstaklega erfið og margir sjá það sem sinn eina kost að vinna utan heimilis samhliða búskap. Nautgriparækt hefur heldur ekki skilað miklum tekjum, umfram framleiðslukostnað, undanfarin ár og stendur tæplega undir búrekstri án þess að vera hliðargrein mjólkur- framleiðslu. Íslenskur landbúnaður stendur því á tímamótum og óljóst hvert leiðin liggur. Þó að ferðamannastraumur hafi aukist umtalsvert undanfarin ár, þá sérstaklega sunnanmegin á landinu, eru þessar landbúnaðargreinar ekki að njóta góðs af. Þróun afurðaverðs sauðfjárbænda árin 2013-2020 tók stóra dýfu. Þannig fengu bændur hærra verð fyrir framleiðslu sína árið 2013 en haustið 2020. Það sjá allir að slík þróun getur ekki gengið á sama tíma og launa- og rekstrakostnaður hækkar. Ef ekki er brugðist við þess- ari þróun á íslensk sauðfjárrækt sér enga framtíð. Tollalækkanir hjálpa til við að halda verði niðri gagnvart bændum og viðheldur þessari þróun. Inn- flutt nautakjöt árið 2019 var rúm 800 tonn og sama ár var innflutt svínakjöt rúm 1200 tonn. Á það skal bent að innflutt kjöt er að stórum hluta úrbeinað kjöt, sem rýrnar um 30 - 35% við úrbeiningu, svo raun- samanburður við íslenska kjötfram- leiðslu með beini hækkar þessar inn- flutningstölur enn frekar. Það er al- veg ljóst að elsta atvinnugrein lands- ins fær enga viðspyrnu með þessu regluverki. Þessa vegferð þarf að stoppa og það strax. Við viljum sterkari innlendan landbúnað og öflugan matvælaiðn- að. Jafna þarf sam- keppnisstöðu hans með sanngjörnum tollum á innflutn- ing. Við viljum skapa atvinnu við matvælaframleiðslu úr gæða hráefn- um frá íslenskri sveit. Við viljum að matvæli fari í gegnum okkar gæða- kerfi til að tryggja hreinleika og gæði frá upphafi til enda. Ég treysti bænd- um landsins best til að anna þörf- um innanlandsmarkaðar. Móta þarf rétta stefnu og framkvæma. Það get- ur ekki verið okkar eini möguleiki að selja ferðamönnum hamborgara með innfluttu nautakjöti og beikoni. Það er hagsmunamál allra íbúa Norðvesturkjördæmis að leggja ríka áherslu á að styrkja stöðu landbún- aðar og íslenskrar matvælafram- leiðslu. Gunnar Tryggvi Halldórsson Höf. er frambjóðandi í 3. sæti Framsóknarflokks í Norðvesturkjör- dæmi. Íslensk kjötsúpa, Já takk! Pennagrein

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.