Skessuhorn


Skessuhorn - 10.02.2021, Blaðsíða 30

Skessuhorn - 10.02.2021, Blaðsíða 30
MIÐVIKUDAGUR 10. fEbRúAR 202130 Ef þú þyrftir að skipta um nafn, hvað nafn myndir þú velja? Spurning vikunnar (Spurt á netinu) Jón Þór Jónsson Ég myndi auðvitað vilja heita Jón Auðunn eins og pabbi og sonur minn. Hugmyndaflugið er nú bara ekki meira en þetta í fjölskyldunni. Guðrún Hjaltalín Ég myndi vilja heita Hallgerður eftir hinni merku Hallgerði lang- brók eða Gyða Sól eftir persón- uninni sem Helga braga lék, hef verið kölluð það stundum. Ása Birna Viðarsdóttir Ég er skírð í höfuðið á ömmu Ásu og afa bjarna sem mér þótti svo ákaflega vænt um og myndi því velja nöfn sem vísaðu í nöfn- in þeirra, t.d. Ásdís bjarney. Arinbjörn Rebel Kúld Rebel sonur byltingarinnar. Eyþór Óli Frímansson Mjög sáttur við mitt nafn en ætli ég myndi þá ekki bara nota millinafnið Ólafur eða Óli. Sveinbjörn Eyjólfsson hafði veg og vanda að ístöltmóti sem haldið var á spegilsléttu Vatnshamravatni í Andakíl síðastliðinn sunnudag. Ein- muna vetrarblíða var og aðstæður allar hinar ákjósanlegustu. Keppt var í þremur flokkum á mótinu; framtíðin - 17 ára og yngri, Skvís- ur - konur 18 ára og eldri og Töff- arar - karlar 18 ára og eldri. Dóm- arar voru Lára Gísladóttir í Stóra- Ási og Jón Eyjólfsson á Kópareykj- um. úrslit urðu þessi: Framtíðin: 1. Kristín Eir Hauksdóttir á Sóló frá Skáney 2. Hilmar Oddsson á Skildi frá Steinum 3. Aníta Eik á Rökkurró frá Reykja- vík 5. Gísli Sigurbjörnsson á Drift frá Minni-borg 5. Emma Li á Sóley frá Oddstöð- um. Skvísur: 1. Elisabeth Marie á Hlökk frá flagveltu 2. Heiða Dís fjeldsted á Hrafni frá ferjukoti. 3. Viktoría Gunnarsdóttir og Mír frá Akranesi 4. Tinna Rut Jónsdóttir Elizondo og Harpa frá blönduósi 5. Þórdís fjeldsted Þorsteinsdóttir og Smyrill frá Álftárósi. Töffarar: 1. Viggó Sigurðsson og björt frá Akureyri. 2. Ómar Pétursson og Mósa frá Ár- dal 3. Ólafur Guðmundsson og Eldur frá borgarnesi 4. bjarki Þór Gunnarsson og Greifi frá Söðulsholti 5. Heiðar Árni baldursson og Víg- þór frá Hveravík. Þess má einnig geta að Guðlaugur Óskarsson tók fjölmargar skemmti- legar myndir á mótinu sem finna má m.a. á facebook síðu hans og Sveinbjarnar. mm/se Í tilefni Alþjóðadags móðurmáls- ins 21. febrúar næstkomandi var verkefnið „Íslandskort – leitin að tungumálaforðanum 2021“ sett af stað. Um er að ræða vitundarvakn- ingu um þann fjársjóð sem felst í tungumálum okkar. Hugmyndin er að kortleggja öll tungumál töluð af börnum í leik- og grunnskólum landsins til þess að vekja jákvæða umræðu um tungumál og fjöltyngi í barna- og unglingahópum. Til þess var send út könnun á alla leik- og grunnskóla landsins og verð- ur afrakstur könnunarinnar birtur gegnum gagnvirkt Íslandskort þar sem hægt verður að skoða og gleðj- ast yfir tungumálaforða á hverjum og einum stað. „Mikilvægt atriði í verkefninu er að ýta undir veruleika þar sem börn og ungmenni finna að það að tjá sig á fleiri tungumálum en á ís- lensku getur aukið lífsgæði og til- finningalíf þeirra og að þau finni fyrir stolti yfir að hafa fleiri en eitt tungumál á valdi sínu. Eins og við öll vitum eykur jákvæð sjálfsmynd námsgleði og -möguleika. Á sama tíma verður stuðlað að forvitni og áhuga á tungumálum almennt,“ segir í tilkynningu en að verkefninu standa Menntamiðja, Menntavís- indastofnun HÍ, Menningarmót - fljúgandi teppi, Tungumálatorg, Skóla- og frístundasvið Reykjavík- urborgar, og Móðurmál – samtök um tvítyngi. Hægt er að fylgjast með verk- efninu og fá fróðleiksmola um fjöl- tyngi og tungumál í fb-viðburðin- um: “Alþjóðadagur móðurmálsins 2021 - Leitin að tungumálaforða barna og unglinga”. mm Skátarnir í Grundarfirði eru vænt- anlega orðnir þyrstir í ferðalög og ævintýri eins og aðrir landsmenn enda lítið verið aðhafst síðasta árið. Þeir brugðu á það ráð að fara í óhefðbundna útilegu um liðna helgi. Þá var tjöldum slegið upp í íþróttahúsi Grundarfjarðar og haldin kvöldvaka og gist í tjöldum. Þetta var hluti af undirbúningi fyr- ir fimm daga útilegu á úlfljótsvatni í sumar. Lína Hrönn Þorkelsdótt- ir smellti af þessari skemmtilegu mynd þar sem að Aðalsteinn Þor- valdsson og Marta Magnúsdótt- ir, skátahöfðingi Íslands, fara fyrir kvöldvöku með krökkunum. tfk Óhefðbundin útilega Blés til Matfuglsmóts á ísilögðu Vatnshamravatni Frumkvöðullinn með gjallarhornið. Ljósm. Helga Jónsdóttir. Lárus Ástmar Hannesson í brautinni. Ljósm. Guðlaugur Óskarsson. Þessir gerðu brautina klára; Jón Ólafsson, Ómar Pétursson og Helgi Björn Ólafs- son. Ljósm. Sveinbjörn Eyjólfsson. Leitin að tungumálaforða barna og unglinga

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.