Skessuhorn


Skessuhorn - 10.02.2021, Page 31

Skessuhorn - 10.02.2021, Page 31
MIÐVIKUDAGUR 10. fEbRúAR 2021 31 Á miðnætti á sunnudagskvöld tóku gildi rýmri samkomu- takmarkanir og máttu heilsu- og líkamsræktarstöðvar opna tækjasali á ný, með skilyrðum. Ekki mega fleiri en 20 manns vera í hverju rými og þeir skulu skrá þátttöku sína fyrir- fram. Á heimasíðu ÍA sagði á mánudaginn að engar breyt- ingar hefðu verið gerðar á opnun þreksala á Jaðarsbökk- um þann daginn. „Til að framfylgja sóttvarnarreglum og reglum um skráningu og fjölda þarf ÍA að fá, í samstarfi við Akraneskaupstað, lengri tíma til þess að skoða útfærslu á framkvæmd opnunar,“ sagði á vef ÍA. Vonast er til þess að lausn finnist á næstu dögum svo hægt verði að opna. arg finnski vinstri bakvörðurinn Eli- as Tamburini gekk nýlega til liðs við Skagamenn frá Grindavík. Elias sem er 25 ára gamall hefur leikið 54 leiki á Íslandi síðustu þrjú tímabil með Grindvíkingum áður en hann gekk til liðs við Skagamenn. Jóhannes Karl Guðjónsson þjálf- ari Skagamanna segist í samtali við Skessuhorn vera ánægður með það að fá Elias til liðs við félagið. „Ég var bú- inn að fylgjast með honum um tíma og hann hentar okkar leikstíl mjög vel. Hann er krafmikill og fljótur leik- maður og getur farið upp kantinn og á góðar fyrirgjafir. Ég er ekki í nokkr- um vafa um það að hann á eftir að styrkja hópinn,“ segir Jóhannes Karl. Spurður um frekari styrkingar inn í hópinn fyrir tímabilið sagði Jóhannes Karl: „Við erum auðvi- tað að líta í kring um okkur. En það er ekkert fast í hendi. En við erum að skoða leikmenn bæði hér heima og erlendis. Tíminn verður bara að leiða í ljós hvernig tekst til. En við megum ekki gleyma því samt að við erum með unga og efnilega stráka sem verða að fá sín tækifæri og ég treysti þeim. Nú nýlega voru níu leikmenn frá okkur valdir til æf- inga með U-16, U-18 og U-19 ára landsliðum Íslands. Það segir okkur að efniviðurinn er tl staðar,“ segir Jóhannes Karl. se/ Ljósm. kfia. Keppt var í sundi á alþjóðlegu móti Reykjavík International Ga- mes – RIG 2021 um síðustu helgi. Keppt var í Laugardalslauginni. Ellefu keppendur komu frá Sund- félagi Akraness og stóðu sig vel. Guðbjörg bjartey Guðmundsdótt- ir tryggði sér áfram sæti í ung- lingalandsliði Sundsambands Ís- lands með því að synda tvisvar und- ir lágmarki. Nokkur breyting var á mótinu sökum heimsfaraldursins og mátti til að mynda hver kepp- andi aðeins keppa í þremur grein- um. Keppendur í Sundfélagi Akra- ness náði góðum árangri á mótinu og voru margir sem syntu sig inn í úrslit. úrslit keppenda frá SA voru eftirfarandi: 2. sæti Guðbjörg bjartey Guðmundsdóttir – 100m skriðsund 3. sæti Enrique Snær Llorens Siguðrsson – 200m og 400m fjórsund Guðbjörg bjartey Guðmundsdóttir – 50m skriðsund Karen Karadóttir – 50m bringu- sund Ragnheiður Karen Ólafsdóttir – 100m bringusund Sindri Andreas bjarnasson – 100m skriðsund 4. sæti Erlend Magnusson – 50m baksund Enrique Snær Llorens Sigurðsson – 400m skriðsund 5. sæti Ragnheiður Karen Ólafsdóttir – 400m fjórsund Sindri Andreas bjarnasson – 50m skriðsund Ingibjörg Svava Magnusardóttir – 200m skriðsund Karen Karadóttir – 100m bringu- sund 6. sæti Sindri Andreas bjarnasson – 200m skriðsund 7. sæti Ragnheiðiur Karen Ólafsdóttir – 200m fjórsund Guðbjörg bjartey Guðmunsdóttir – 200m skriðsund Guðbjarni Sigþórsson – 100m skriðsund 8. sæti Einar Margeir Ágústsson – 50m skriðsund, 100m skriðsund og 200m skriðsund Karen Karadóttir – 200m bringusund arg/Ljósm. Sundsamband íslands Skagamenn töpuðu 1:5 gegn breiðabliki í úrslitaleik fótbolta.net æfingamótinu síðastliðið föstudags- kvöld. Leikurinn fór fram á Kópa- vogsvelli. Það var Ingi Þór Sigurðs- son sem skoraði mark Skagamanna í leiknum. blikar byrjuðu leikinn af miklum krafti og voru komnir með þriggja marka forystu eftir um 15 mínútna leik, og leiddu 4:0 í hálfleik. Leik- urinn var síðan mun jafnari í síðari hálfleik. Það vantaði nokkra fasta- menn í lið Skagamanna en blik- ar virtust tefla fram sínu sterkasta liði. En það jákvæða var að nokkrir ungir leikmenn Skagamanna fengu mikilvæga leikreynslu í leiknum. Á leið sinni í úrslitaleikinn sigr- uðu Skagamenn Gróttu 2:0 á Sel- tjarnarnesi með mörkum þeirra Gísla Laxdal Unnarssonar og Hlyns Sævars Jónsson og HK 2:1 í Akra- neshöllinni með mörkum þeirra brynjars Snæs Pálssonar og Gísla Laxdal Unnarssonar. Skagamenn sigruðu á fótbolta. net mótinu í fyrra og unnu þá breiðablik 5:2 í úrslitaleik. se Elias Tamburini til liðs við Skagamenn Biðu með að opna tækjasalinn Höskuldur Gunnlaugsson fyrirliði Breiðabliks hampaði bikarnum í leikslok eftir 5-1 sigur á Skagamönnum. Ljósm. Fótbolti.net/ Hulda Margrét. Skagamenn léku til úr- slita í fótbolta.net mótinu Góður árangur Skagamanna á RIG 2021 Ragnheiður Karen Ólafsdóttir eftir sund. Guðbjörg Bjartey Guðmundsdóttir gerir sig klára fyrir keppni. Ingibjörg Svava Magnusardóttir stingur sér til sunds. Enrique Snær Llorens Sigurðsson í miðju sundtaki. Sindri Andreas Bjarnasson er klár í laugina. Stungið sér til sunds. Fremst í mynd er Guðbjörg Bjartey Guðmundsdóttir.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.