Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2020, Blaðsíða 53

Náttúrufræðingurinn - 2020, Blaðsíða 53
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags 273 Ritrýnd grein / Peer reviewed Suðursveitungar segja, að fyrir all-löngu hafi fundist í Hálsaskerjum austan við Hálsatind gjarðahringja og skeifa, en þangað hafi ekki verið farið með hesta í manna minnum fyr en Cambridge-leiðangurinn undir stjórn Brian Roberts fór þarna um 1932. Var farangur þeirra fluttur úr Staðardal upp á Heinabergsjökul [Skálafellsjökul] á hestum og Skarp- hjeðinn Gíslason á Vagnstöðum fenginn til fylgdar. TENGSL SKRIÐUKLAUSTURS VIÐ BORGARHÖFN Borgarhafnar er getið í Landnámu.15 Þar var hálfkirkja samkvæmt máldaga sem talinn er frá 1343 og lá til hennar bænhús í Heggsgerði, eins og Hest- gerði kallaðist fyrrum. Borgarhöfn var sögð 80 hundraða jörð og mun eignarhlutur kirkjunnar fram á 15. og 16. öld aðeins hafa numið um 10 hundr- uðum en mestur hlutinn verið bænda- eign. Árið 1504 eignaðist Narfi Jóns- son príor á Skriðuklaustri 20 hundruð í Borgarhöfn með öllum gögnum og gæðum. Til viðbótar virðist klaustrið á Skriðu hafa eignast 40 hundruð á árunum 1520–1523. Afganginn eignað- ist Ögmundur Pálsson Skálholtsbiskup, líklega árið 1526.16 Sýnir þetta glöggt hversu eftirsótt jarðarhlunnindin í Borgarhöfn voru á þessum tíma. Kirkju- bæjarklaustur átti hins vegar býlin í kring, Hestgerði og Smyrlabjörg, en þau voru hvort um sig aðeins metin á 12 hundruð. Auk jarðarrekans í Borg- arhöfn átti Skriðuklaustur að hálfu á móti Sandfellingum 18 hundraða fjöru í Öræfum, milli Kvíár og Hamraenda.8 Fyrir utan bein not af fiskafurðum og reka hefur eflaust verið um að ræða arð af útflutningi skreiðar, en um þann þátt skortir heimildir. Eftir siðaskipti eignaðist konungur allar klausturjarðir, þar á meðal eignarhlut Skriðuklausturs í Borgarhöfn (13. og 14. mynd). Eins og áður greinir telja heimildar- menn að um gagnkvæm erindi hafi verið að ræða þá sótt var yfir jökul, Hér- aðsbúar hafi farið suður yfir til róðra og að ná sér í fiskafurðir og Skaftfellingar leitað fjallagrasa við Snæfell. Um fyrri þáttinn kom sitthvað í ljós við uppgröft klausturrústa á Skriðuklaustri. Um það segir frumkvöðullinn Steinunn J. Kristjánsdóttir meðal annars:17 „Sem fyrr segir er heimild fyrir þv að klaustrið hafi átt báta en mestu skiptir þó að það átti fjölda útvegs- jarða – alveg frá Héraðsflóa og suður í Suðursveit. Þessar jarðir hafa verið klaustrinu mikilvæg tekju- lind vegna vertolla. Þannig hefur 9. mynd. Árni Magnússon (1663– 1730). – Icelandic scolar and librarian. 10. mynd. Goðahryggur til norðurs. Goðaborg dökkur hamar. Hoffellsjökull og Lambatungna- jökull. Efst til hægri á myndinni sést í Snæfell. – The mountain ridge Goðahryggur in the east of Vatnajökull with glaciers on both sides. Goðaborg black rock. Snæfell in upper corner right. Ljósm./Photo: Hjörleifur Guttormsson 1989. 12. mynd. Þorvaldur Thoroddsen (1855–1921). – Icelandic geologist and geographer. 11. mynd. Sveinn Pálsson (1762–1840). – Icelandic physician and naturalist.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.