Mosfellingur - 01.04.2021, Qupperneq 16
- Fréttir úr bæjarlífinu16
Sigurður Sigurjónsson fyrrum bakari og leigubílstjóri hefur undanfarið ár mætt við
dælustöðina í Reykjahverfi með brauð úr Mosfellsbakaríi og gefið öndunum. „Ég mæti
alltaf hér á sama tíma. Þegar ég byrjaði á þessu þá var hér eitt par en ætli þær séu ekki á
milli 70-80 endur í dag. Þær eru greinilega farnar að þekkja mig því ef að einhver kemur
með mér þá koma þær ekki,“ segir Sigurður.
70-80 endur við Dælustöðina • Mætir alltaf á sama tíma
Gefur öndunum dag hvern
dýravinurinn sigurður
gefur öndunum brauð
Hjólbarðaþjónusta N1
Bíldshöfða 440-1318
Fellsmúla 440-1322
Réttarhálsi 440-1326
Ægisíðu 440-1320
Langatanga Mosfellsbæ 440-1378
Reykjavíkurvegi Hafnarfirði 440-1374
Grænásbraut Reykjanesbæ 440-1372
Dalbraut Akranesi 440-1394
Réttarhvammi Akureyri 440-1433
Notaðu
N1 kortið
Alla leið
á öruggari
dekkjum
Pantaðu tíma
í dekkjaskipti
á n1.is
ALLA LEIÐ
Michelin e-Primacy
• Öryggi og ending
• Frábært grip og góð vatnslosun
• Einstakir aksturseiginleikar
• Ferð lengra á hleðslunni /tanknum
• Kolefnisjafnað að sölustað
Michelin Pilot Sport 4
•Sumardekk fyrir þá kröfuhörðustu
•Gefa óviðjafnanlega aksturseiginleika
•Frábært grip og góð vatnslosun
•Endingarbestu dekkin í sínum flokki
Michelin CrossClimate+
• Sumardekk fyrir norðlægar slóðir
•Öryggi og ending
• Halda eiginleikum sínum vel út líftímann
•Gott grip við allar aðstæður
• Endingarbestu sumardekkin á markaðnum
Vefverslun
Skoðaðu úrvalið
og skráðu þitt
fyrirtæki
Opið mánudaga til föstudaga kl. 8-18
Laugardaga kl. 9-13
Alexander Kárason eða Lexi eins og hann
er alltaf kallaður hefur í vetur í samstarfi
við Varmárskóla staðið fyrir skrúfukvöldum
tvisvar í viku í Lexnesi, eins og hann kallar
heimili sitt.
Þar koma saman nemendur úr Varmár-
skóla og skrúfa og rífa og styrkjast í því
sem þeir hafa áhuga á að gera og fá fyrir
það metið sem valeiningar. Lexi er með
keppnislið í rallýkrossi og þessir unglingar
hafa verið í kringum hann og mótorsportið
undanfarið.
Á áhugasviði unglinganna
„Það má segja að þetta hafi byrjað á því
að ég vildi búa til fast prógram fyrir þessa
krakka og vildi að þeir fengju það metið til
náms. Ég fékk það í geng með stjórnend-
um Varmárskóla að þeir fá þetta sem val-
einingu. Grunnurinn á bak við þetta er að
mér hefur alltaf fundist vanta inn í grunn-
skólann greiningavinnu á áhugasviði ungra
krakka. Þannig geti þeir ræktað styrkleika
sína og séu farnir að pæla áður en þeir
klára grunnskólann.
Ég vil að þessir krakkar fái að kynnast
öllu því sem tengist rafmagni, bílum, raf-
suðu, vélvirkjun og fleiru. Þeir eru með sín
eigin tæki og tól, fjórhjól, krossara og fleira.
Alveg magnaðir krakkar,“ segir Lexi.
Á baksíðu Mosfellings má sjá mynd af
strákum í skúrnum með Lexa.
Öðruvísi valáfangi í Varmárskóla
Skrúfukvöld í Lexnesi
lexi í skúrnum