Mosfellingur - 01.04.2021, Side 18

Mosfellingur - 01.04.2021, Side 18
Hestamannafélagið býður upp á aðstöðu Hestamannafélagið Hörður stefnir nú að því að bjóða börnum og unglingum á aldrinum 10–18 ára aðstoð við að stíga sín fyrstu spor í hestamennsku. Félagið mun bjóða upp á aðstöðu fyrir börn sem eiga hest og vantar pláss fyrir hann, sem og þeim sem ekki eiga hest en langar að annast hest og komast á hestbak. Lagt verður upp með að hafa til staðar góða hesta og reiðtygi og verður gjald fyrir aðstöðuna niðurgreitt. Fagfólk mun vera til staðar og leiðbeina börnum og aðstandendum. Hægt verður að taka á móti takmörkuðum fjölda barna og hefst starfið í september. „Okkur langar að gefa barninu þínu einstakt tækifæri til að kynnast ævintýraheimi hestamennskunnar,“ segir í tilkynningu frá Herði sem hyggst starfrækja félagshesthús frá og með haustinu. - Fréttir af Mosfellingum18 Þverholt 2 I Mosfellsbær 270 I Sími 525 6700 I mos.is Umsóknarfrestur er til og með 18. apríl 2021 Umsóknir ásamt starfsferilsskrá og kynningarbréfi sem greinir frá reynslu, menntun og fyrri störfum ásamt rökstuðningi fyrir hæfni í starfið skulu berast á ráðningarvef Mosfellsbæjar (www.mos.is/storf). Nánari upplýsingar um starfið gefa Jóhanna B. Hansen framkvæmdastjóri umhverfissviðs eða Tómas Guðberg Gíslason umhverfisstjóri í síma 525-6700. Um framtíðarstarf er að ræða. Öllum umsóknum verður svarað. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands ísl. sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Ráðið er í öll störf óháð kyni. Fagstjóri hjá Veitum Mosfellsbæjar MOSFELLSBÆR AUGLÝSIR LAUST STARF FAGSTJÓRA HJÁ VEITUM MOSFELLSBÆJAR. Vatns-, hita- og fráveita Mosfellsbæjar annast daglegan rekstur og viðhald veitukerfa og annast heimlagnir og nýframkvæmdir sem heyra undir umhverfissvið Mosfellsbæjar. Fagstjóri ber ábyrgð á heimlögnum, viðhaldsframkvæmdum og öðrum daglegum veituframkvæmdum. Fagstjóri veitir ráðgjöf um málefni vatns-, hita- og fráveitu Mosfellsbæjar og kemur að undirbúningi nýframkvæmda á vegum veitna Mosfellsbæjar. Fagstjóri hefur umsjón með innkaupum, útboðum og samningum auk þess að stýra verktökum og hafa með þeim eftirlit. Um fullt starf er að ræða. Mosfellsbær er öflugt og eftirsótt sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi. Menntunar- og hæfnikröfur: • Menntun á sviði pípulagninga, vélvirkjunar eða sambærilegt iðnnám • Tæknimenntun sem nýtist í starfi æskileg • Reynsla á sviði rekstrar veitna er æskileg • Reynsla af verkefnastjórnun er æskileg • Þekking á samningagerð er skilyrði • Reynsla og þekking á stjórnun verklegra veituframkvæmda er skilyrði • Góð tölvukunnátta og þekking á teikniforritum er skilyrði • Góðir samskiptahæfileikar og hæfni til að tjá sig í rituðu og töluðu máli nauðsynleg • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður • Góð íslenskukunnátta er skilyrði Foreldrafélag Helgafellssskóla hefur staðið fyrir páskabingói fyrir börn og foreldra að undanförnu. Leikskóladeildirnar héldu bingóið á útisvæði skólans þar sem börnin fengu skemmtilegan glaðning þegar þau voru búin að finna allar myndirnar á spjaldið sitt. Páskabingó við Helga- fellsskóla Skotömmurnar gera það gott á landsmóti Landsmót STÍ var haldið af Skotfé- lagi Reykjavíkur í Egilshöll þann 13. mars. Í kvennaflokki (50m) sigraði Bára Einarsdóttir úr SFK með 610,6 stig, önnur varð Jórunn Harðardótt- ir úr SR með 607,7 stig og í þriðja sæti hafnaði Guðrún Hafberg úr SFK með 576,2 stig. Skotömmurnar úr Mosó, þær Bára og Guðrún Hafberg tóku svo silfur og brons í þrístöðu. Ömmurnar hafa keppt fyrir Skotíþróttafélag Kópavogs en kalla nú eftir skotíþróttafélagi í Mosfellsbæ. www.fastmos.is Sími: 586 8080 Örugg og góð þjónusta

x

Mosfellingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.