Mosfellingur - 01.04.2021, Qupperneq 26

Mosfellingur - 01.04.2021, Qupperneq 26
 - Íþróttir26 N a m o e h f. - S m i ð j u v e g i 7 4 ( g u l g ata ) - 2 0 0 K ó pavo g i Sími: 566 7310 - jakosport@jakosport.is - jakosport.is AftureldingAr vörurnAr fást hjá okkur sport íslandi Mosfellingarnir Ingi Már Gunnarsson og Gunnar Ólafur Kristleifsson hafa unnið ötult sjálfboðaliðastarf fyrir Aftureldingu síðastliðin 40 ár. Þeir félagar hafa gengt ýmsum störfum fyrir félagið en þeirra aðalstarf hefur þó verið að sinna ritara- og tímavörslu fyrir handboltadeildina. „Íþróttahúsið var tekið í notkun 4. desember 1977, ég held að fyrsta klukkan hafi komið í húsið 1978 en það var Búnað- arbankinn í Mosfellsbæ sem gaf Aftureld- ingu klukkuna, en síðan er nú komin nýr og fullkomnari búnaður í húsið. Við höfum meira og minna sinnt þessu starfi síðan. Við tókum báðir dómarapróf hjá HSÍ í kringum 1980 og dæmdum mikið fyrir félagið og ég dæmdi líka í efstu deild á Íslandi,“ segir Ingi Már. Æfðu báðir með Aftureldingu „Við vorum náttúrlega báðir að æfa hérna bæði handbolta og fótbolta og spiluðum fyrir félagið, svo þróast þetta út í það að við tökum að okkur dómgæslu og svo ritara- og tímavarðastörf. En síðan árið 2000 þá má eiginlega segja að við höfum verið á ritaraborðinu fyrir stákana og svo núna síðust árin líka í kvennaboltanum,“ segir Gunnar. En þeir félagar segja að þetta gefi þeim mikið, að þeir hafi kynnst mörgu skemmtilegu fólki í kringum þetta starf en fyrst og fremst finnst þeim þetta rosalega gaman. Boðið á heimsmeistaramótið í Katar Síðastliðin 15 ár hafa þeir Ingi Már og Gunnar starfað á ritaraboðinu fyrir HSÍ á landsleikjum og öllum stórum leikjum sem HSÍ sér um. „Það hefur líka verið sjálfboða- liðastarf en árið 2015 þá var okkur boðið á vegum HSÍ á HM til Katar. Það var í raun þannig að allar þátttökuþjóðirnar fengu að bjóða 20 manns á mótið og hvert sér- samband hafði frjálst val um það hverjum þeir buðu. HSÍ tók þá ákvörðun að bjóða sjálfboðaliðum sem höfðu unnið fyrir sam- bandið og nokkrum styrktaraðilum. Þetta var ógleymanleg ferð en þarna vorum við á fimm stjörnu hóteli með öllu inniföldu, vorum keyrðir fram og til baka á alla leiki og dekrað við okkur á allan hátt,“ segir Ingi Már. Höfum gaman af þessu ennþá „Það má eiginlega segja að þetta hafi verið bestu launin eða viðurkenningin sem við höfum fengið fyrir okkar sjálfboðaliða- starf, þetta var algjörlega ógleymanlegt ævintýri. Maður hefur verið tengdur handbolta og Aftureldingu meira og minna alla ævi og það hefur verið gaman að fylgjast með og upplifa allar þessar breytingar sem hafa verið hér á Varmársvæðinu á þessum tíma. Við höfum nú stundum grínast með það hvort að það sé ekki kominn tími til að hleypa að yngri og ferskari mönnum, en á meðan við höfum gaman af þessu þá höld- um við áfram,“ segir Gunnar að lokum. Ingi Már og Gunni eiga stóran þátt í glæsilegri umgjörð Sjálfboðaliðar á ritaraborðinu síðastliðin 40 ár ingi már gunnarsson og gunnar ólafur kristleifsson hamagangur að varmá Birkir Ben með nýjan samning Birkir Benediktsson hefur skrifað undir nýjan samning við handknattleiksdeild Aftureldingar til næstu tveggja ára. Birkir hefur verið í hópi öflugustu handknatt- leiksmanna Olís-deildarinnar síðustu ár og burðarás í liði Aftureldingar í fjölda ára. „Birkir hefur gengið í gegnum erfið meiðsli uppá síðkastið sem hann mun sigrast á. Afturelding mun standa þétt við bakið á Birki í þeirri vegferð sem framundan er og hlökkum við mikið til að sjá hann stíga á völlinn aftur þegar sá tími kemur,“ segir Haukur Sörli formaður meistaraflokksráðs karla. Allt íþróttastarf fell­ ur niður á næstunni Vegna hertra sóttvarnaraðgerða sem tóku gildi þann 25. mars fellur allt íþróttastarf á vegum Aftureldingar niður næstu vikurnar. Staðan verður uppfærð á heimasíðu Aftureldingar þegar nýjar fréttir berast. birkir benediktsson

x

Mosfellingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.