Mosfellingur - 01.04.2021, Qupperneq 34
Besta platan
Heilsa er ekki bara að sofa, borða og hreyfa sig. Heilsa snýst um
miklu meira. Viðhorf til lífsins til
dæmis. Það er hægt að skrolla sig í
gegnum lífið með neikvæð gleraugu
á nefinu og finna öllu og öllum allt til
forráttu. En það er líka hægt að fara
hina leiðina, einbeita sér að því að
gera hluti sem maður hefur gaman
af. Þríeykið sem heldur úti hlað-
varpinu „Besta platan“ er í seinni
flokknum.
Þeir Skálmaldarbræður Baldur og Snæbjörn og félagi þeirra,
doktorinn Arnar Eggert, ræða saman
í þessum hlaðvarpsþáttum um
hljómsveit eða listamann og fara
aðallega yfir þá plötu sem Snæbjörn
leggur upp með að sé besta plata
viðkomandi. Ég hef mikið verið
að hlusta á þessi þætti undanfarið
– yfirleitt þegar ég er að iðnaðar-
mannast eitthvað heima hjá mér.
Vinnan flýgur áfram undir spjalli og
stundum söng þessara herramanna.
Það skín sterkt í gegn hvað þeir hafa
gaman af því sem þeir eru að gera og
að vera saman.
Það er sömuleiðis greinilegt að þeir tækla hvert viðfangsefni
af virðingu og heiðarleika. Og gera
oft grín að sjálfum sér fyrir að hafa
þegar þeir voru yngri verið fullir af
fordómum og fyrir að hafa „haldið
með“ ákveðinni hljómsveit og litið
niður á aðra af því að umhverfið
sem þeir voru í nánast krafðist þess.
Allir hafa þroskast upp úr því og eru
óhræddir að viðurkenna hvað þeim
þykir gott og skemmtilegt, sama
hvaðan það kemur og hvað það
heitir.
Það er ótrúlega heilsueflandi þegar covidið heldur áfram að
stríða okkur, jörð skelfur eða logar og
íslensku landsliðin okkar í fótbolta
tapa öllu sem þau komast í, að
slökkva á fréttum, út-
varpi og umhverf-
inu eiginlega og
velja sér í staðinn
skemmtilegan þátt
í „Bestu plötunni“.
Við höfum alltaf
val, við getum
valið skemmtilegu
leiðina í lífinu. Ég
mæli með henni!
Heilsumolar gaua
- Aðsent efni34
Guðjón
Svansson
gudjon@kettlebells.is
www.fastmos.is
Sími: 586 8080 Bíldshöfða 14 | Reykjavík | s. 520 3200
www.artpro.is
Ekki alls fyrir löngu þá barst mér
skoðanakönnun sem fjallaði um
upplifun mína á því hvernig mér
fyndist að búa á þeim stað sem ég
bý. Að mínu mati þá var ekki erfitt
að svara þeim spurningunum öll-
um í þá veru að hvergi á jarðríki er
betra að búa en í Mosfellsbæ.
En eftir á að hyggja þá fékk ég
bakþanka vegna þess að marg oft hef ég
orðið var við það að pólítíkusar bæjarins
veifi þessari skoðannakönnun sem merki
um eigið ágæti og afrek og þess vegna vil ég
hér með koma því á framfæri að það er ekki
vegna þeirra afreka sem ég svaraði þessari
skoðanakönnun eins og ég gerði eða að það
er hvergi betra að búa en í Mosfellsbæ. Ég
tala svo nú ekki um umhverfið og náttúr-
una!
Ég bý í þeim hluta Mosfellsbæjar sem oft
er kallað olnbogabarn Mosfellsbæjar eða í
Mosfellsdal. Nafnið dregur sennilega taum
af því að við erum oftast síðust í röðinni
þegar kemur að ýmsum framkvæmdum á
vegum bæjarins og drífa ekki öll þau gæði
sem bærinn veitir bæjarbúum upp í Mos-
fellsdal einhverra hluta vegna.
Af mörgu er hægt að taka hvað þetta
varðar og töluvert misræmi sem er á milli
Mosdælinga og annara bæjarbúa og má t.d.
nefna að til stóð að leggja ljósleiðara um
allt bæjarfélagið og var sá samstarfssamn-
ingur undirritaður fyrir nokkrum árum í
votta viðurvist og smellt mynd af virtum
bæjarpólitíkusum og forstjórum og birt hér
í þessu ágæta blaði.
Samkvæmt framkvæmdaáætlun þá var
Mosfellsdalur síðastur í röðinni. Þegar kom
svo að Mosfellsdal þá kom babb í bátinn.
Fyrirtækið Míla var ekki tilbúið að
leggja ljósleiðara um Mosfellsdal
vegna þess að það þótti ekki hag-
kvæmt og ekki bissness fyrir fyr-
irtækið þrátt fyrir fyrri yfirlýsingar
að það skyldi leggja ljósleiðara
um allt bæjarfélagið og viljayfir-
lýsingu þar um. Var brugðið á það
ráð að sækja um dreifbýlisstyrk til
Fjarskiptasjóðs til að fjármagna verkefnið
í ljósi átaksins „Ísland ljóstengt“. Fékkst
styrkur sem miðast af því að þeir sem ekki
hafa kost á því að tengjast ljósneti gætu
fengið styrk.
Efla verkfræðistofa var fengin í það að
skipuleggja verkefnið og komast að því
hverjir væru styrktarhæfir og hverjir ekki.
Virðist vera að þeirra vinna hafi verið fólgin
í því að fara inn á heimasíðu Mílu og slá inn
heimilisföngum hverjir gætu hugsanlega
tengst ljósneti og hverjir ekki og niðurstaða
fengin samkvæmt því með frekar óvísinda-
legum niðurstöðum.
Niðurstaða bæjarfélagsins var sú að þeir
sem væru styrktarhæfir greiddu 125 þúsund
og óstyrktarhæfir greiddu 375 þúsund krón-
ur til að fá ljósleiðara. Míla mátti svo sjálft
velja eftir eigin geðþótta úr þau heimili sem
gátu fengið tengingu á lægra gjaldinu burt
séð hvort styrkur fengist eða ekki. Nú spyrja
margir af hverju ættu íbúar Mosfellsdals að
greiða eitthvað umfram aðra sérstaklega í
ljósi þess að allir aðrir íbúar greiddu ekki
neitt, en svona er nú að vera olnbogabarn
Mosfellsbæjar.
Mikil áhersla var lögð á það af hálfu
íbúafélagsins Víghóls að bæjarfélagið sem
hafði yfirumsjón og var ábyrgðaraðili að
framkvæmdinni framkvæmdi þetta allt í
nánu samstarfi við íbúa og íbúasamtökin.
Ekki er hægt að segja að það hafi verið gert
með nokkrum hætti og allar ákvarðanir
teknar í reykfylltu bakherbergi og svo að
lokum tilkynnt hvernig þetta ætti allt sam-
an að vera.
Það sjá það allir að hér er ekki um opið
og sanngjarnt ferli að ræða og samkvæmt
skoðanakönnun sem íbúafélagið gerði á
meðal íbúa þá hefðu þeir sjálfir kosið, af
því á annað borð væri gjaldtaka, að þá yrði
hún jöfn og sama greiðsla sem öll heimili
greiddu jafnt.
Einnig vildi fólk að Mílu hefði ekki verið
gefið opið leyfi að bjóða eftir eigin geðþótta
betri kjör á tengingu til einstakra heimila.
Þetta endurspeglar heilbrigðan hugsun-
arhátt hjá íbúum Mosfellsdals sem er að
skipting á einhverjum gæðum skuli skipt
með jöfnum og réttlátum hætti á milli allra
íbúa dalsins.
Eins og ferlið var framkvæmt þá er það
allt mjög ámælisvert og allt til þess fallið
að skapa sundrung á meðal íbúa. Hið
gagnstæða gerðist hins vegar sem var að
þetta þjappaði fólki frekar saman í því að
fordæma svona vinnubrögð og munum við
leggja mikla áherslu á í framtíðinni að allar
ákvarðanatökur verði gerðar í sátt og í sam-
vinnu við íbúa í gegnum íbúasamtökin.
Já, gott fólk! Það er þess vegna sem það
er best að búa í Mosfellsbæ. Það er vegna
þess að íbúar Mosfellsdals- og bæjar er gott
og réttlátt fólk og niðurstöður allra kannana
um hvar best er að búa hefa bara alls ekkert
með bæjaryfirvöld eða pólitíkusa að gera.
Guðmundur Hreinsson
Greinarhöfundur situr í stjórn
Víghóls íbúasamtaka Mosfellsdals.
Það er best að búa í Mosfellbæ!
Notaðir TOYOTA varahlutir
Bílapartar ehf
Grænumýri 3 | 270 Mosfellsbæ
www.bilapartar.is
Sími: 587 7659
Notaðir TOYO var hlutir
Bílapartar ehf
Grænumýri 3 | 270 Mosfellsbæ
www.bilapartar.is
Sími: 587 7659
Notaðir TOYO varahlutir
íl rt r f
Grænumýri 3 | 270 Mosfellsbæ
www.bilapartar.is
Sí i: 587 7659
Kannanir á líðan barna og unglinga
á covid tímum sýna að full ástæða
þykir að beina betur sjónum að
unglingum okkar.
Nú takast fjölskyldur á við afleið-
ingar faraldurs og þeirra aðstæðna
sem hafa skapast. Íþrótta – og tóm-
stundastarf hefur fallið niður og
miklar takmarkanir verið á félags-
starfi unglinga en við þær aðstæður
er hætta á að við taki eirðarleysi
og einmanaleiki. Ýmislegt er til
ráða og mikilvægast af öllu að taka
höndum saman – það getum við
Mosfellingar.
Niðurstöður kannana
Í febrúar ár hvert leggur Rann-
sókn og greining könnun fyrir
nemendur í 8. – 10. bekk og hefur
það verið gert sl. 10 ár. Í þessum
könnunum er m.a. spurt um líðan,
notkun tóbaks og vímuefna, vin-
áttu, samskipti við þeirra nánustu
og fleira. Ávallt er rýnt í niðurstöður
og brugðist við.
Nýjustu niðurstöður hafa verið kynnt-
ar í nefndum bæjarins, í skólum og fyrir
foreldrum en niðurstöður sýna að það
fjölgar í hópi unglinga sem neyta áfengis
og tóbaks.
Á síðustu mánuðum hefur starfsfólk sem
starfar með unglingum orðið vart við að
neysla sé að aukast í fleiri hópum.
Nikótín í umbúðum sem líta út
eins og saklausir tyggjópakkar,
auðvelt aðgengi að vímuefnum
og óþekktur félagsskapur eru
merki sem foreldrar ættu að vera
vakandi yfir.
Vert er að taka fram að langflest-
ir unglingarnir hér í Mosfellsbæ
eru sannarlega til fyrirmyndar en
má ekki loka augunum fyrir því að
fjölgað hefur í þeim hópi unglinga
sem neyta áfengis og tóbaks. Við
því þarf að bregðast.
Ýmislegt til ráða
Til að bregðast við þessum nið-
urstöðum hafa foreldrafélögin,
grunnskólarnir, skólaþjónustan í
Mosfellsbæ, félagsmiðstöðin Ból-
ið og barnavernd tekið höndum
saman og hafið nú þegar ýmsar
almennar aðgerðir.
Má t.d. nefna að foreldrarölt
er hafið að nýju, sjálfstyrkingar-
námskeið fyrir unglinga í félags-
miðstöðinni og að lögreglan í samstarfi
við barnavernd hefur hitt nemendur elstu
deildar í Varmárskóla og Lágafellsskóla
Í Mosfellsbæ er mikið framboð af fjöl-
breyttu íþrótta– og tómstundastarfi og
ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi.
Frístundastyrkir eru í boði fyrir börn og
unglinga og er nú í boði sérstakur styrkur
fyrir efnaminni heimili.
Gleymum þó ekki að öflugasta forvörnin
fer fram við eldshúsborðið þar sem spjallið
fer fram og traustið er eflt. Einnig er mikil-
vægt að foreldrar innan vinahópanna þekk-
ist og tali saman, en það kemur til góðs ef
upp kemur vandi.
Bæjarfélagið og allir þeir sem með
börnum okkar starfa leggja sig fram við að
hjálpa unglingum sem aðstoðina þurfa. En
á endanum er ábyrgðin alltaf foreldranna
og mikilvægt að sjá þegar hættumerkin
fara að blikka. Spyrjum spurninga, opnum
augum og þorum að vera foreldrar. Þannig
gætum við að velferð unglinganna.
Rafrænn íbúafundur með
foreldrum í Mosfellsbæ
Að lokum viljum við benda á að fimmtu-
daginn 8. apríl mun Mosfellsbær standa
fyrir rafrænum íbúafundi á fésbókarsíðu
bæjarins þar sem boðið verður upp á
áhugaverða fyrirlestra og hvatningu til
foreldra undir yfirskriftinni „Það þarf heilt
þorp til að ala upp barn“. Við hvetjum for-
eldra til að taka þátt í verkefninu og standa
um leið að velferð barna sinna.
Kolbrún G. Þorsteinsdóttir form. fræðslunefndar
Rúnar Bragi Guðlaugsson form fjölskyldunefndar
Sturla Sær Fjeldsted form.
íþrótta- og tómstundanefndar
Tökum höndum saman