Mosfellingur - 01.04.2021, Síða 36

Mosfellingur - 01.04.2021, Síða 36
Sendið okkur myndir af nýjum Mos- fellingum ásamt helstu upplýsingum á netfangið mosfellingur@mosfellingur.is Í eldhúsinu Við eigum aðeins eitt Vandamál Ef við myndum bara muna að við erum öll Eitt þá er ég viss um að öll heimsin s vandamál myndu gufa upp. Það trúa auðvitað ekki allir að við séum eitthva ð stærra og meira, handan formsins, og ég ætla ekki að reyna að sannfæra neinn um það. Enda er það óþarfi, punkturinn m inn stendur óháð því. Ok. Ef við ímyndum okkur að ALLIR væru meðvitaðir um að einstaklingur hinum megin á hnettinum geti komið af stað atburðarrás, sem ferðast yfir haf o g lönd og hefur áhrif á alla jarðarbúa - þ á myndum við 100% haga okkur öðruvís i. Það fæst eflaust ekki skýrara dæmi en raunveruleiki okkar í dag! Heimsfaral d- urinn sannar að þrátt fyrir hvað við er um ótrúlega mörg þá erum við nátengd. Þ ótt við séum í hvert í sínum líkamanum þ á erum við ekki raunverulega aðskilin – við erum öll fljótandi í sömu súpunni. All t sem við gerum hefur einhver áhrif á a lla aðra. Við erum Eitt. Allt það sem ég geri hefur keðjuverk- andi áhrif sem endar alltaf á að koma til baka til mín. Nú geng ég út frá því að i nnst inni hljóti allir að vilja upplifa frið, vel líð- an, hamingju, velgengni og ást á sjálfu m sér, öðrum og lífinu. Er þá ekki slæmt fyrir mig að koma illa fram við aðra? Er þá ekki best fyrir mig að koma vel fram við all a, borga fólki mannsæmandi laun og gan ga ekki of hart á auðlindir náttúrunnar? Því ef ég stuðla að eymd fólks og þjáningu m náttúrunnar þá verður til meiri vanlíð an á Jörðinni okkar þar sem ég einmitt bý ? Væri ekki galið af mér að trúa að neikv æð háttsemi mín myndi ekki koma í bakið á mér með einum eða öðrum hætti? Ójafnvægið sem við sjáum í heiminum í dag er afleiðing þess að mannkynið he fur trúað svo lengi á aðskilnað sem leiðir til samkeppni og býr til ímyndaðan skort á auðlindum og ýmsum hlutum sem við teljum okkur þurfa. En í raun er nóg p láss fyrir alla (bæði til þess að búa og fá að vera þeir sjálfir) og nægar auðlindir til þess að öllum líði vel. Ef við gætum bara breyt t þessu hugarfari þá yrðu allir öryggir, við myndum deila mat og auðlindum og enginn þyrfti að berjast fyrir samþykk i eða eigin tilverurétti! Hugarfarsbreytingin byrjar innra með mér og þér, enda höfum við ekki raun - verulegt vald yfir neinum nema okkur sjálfum. Ef við förum að hugsa og haga okkur eins og við séum öll Eitt munum við í sameiningu á endanum fella tjald hins ímyndaða aðskilnaðar og útrýma þjáningu. Þvílíkur máttur sem við höfum. Freyja og Tómas Þór skora á Sverri og Hrefnu að deila næstu uppskrift Freyja Ágústsdóttir og Tómas Þór Þorsteinsson deila hér með okkur girnilegri uppskrift af kjötbollum Hráefni: • 600 gr nautahakk • 4 sneiðar beikon • 1 dl saxaðar döðlur • 1 dl rifinn ostur • 1 egg • 2 dl matreiðslurjómi • 1 teningur nautakraftur • salt & pipar 6-8 Kartöflur Olía Salt & pipar Aðferð: 1: Skerið kartöflur í báta og setjið í eldfast mót, veltið upp úr olíu, salti og pipar. Bakið við 180 gráðu hita í u.þ.b. 40 mínútur. 2: Nautahakk, beikon, döðlur, ostur og egg er sett í skál. Öllu blandað saman og kryddað með salti og pipar eftir smekk. Litlar bollur mótaðar með höndunum. 3: Hitið olíu á pönnu og steikið bollurnar á öllum hliðum, færið síðan í eldfast mót og bakið á 180 gráðu hita í 12-15 mínútur (eða þar til bollurnar eru eldaðar í gegn). 4: Matreiðslurjóma er hellt út á pönnuna sem kjötbollurnar voru steiktar á og nautakraftur settur út í, látið sjóða svo krafturinn leysist upp. Þegar bollurnar eru teknar úr ofninum er þeim hellt à pönnuna og velt upp úr sósunni og síðan borið fram með kartöflubátum.  Verðiykkuraðgóðu! svanhildur steinarrs Kjötbollur með beikoni og döðlum Sendið okkur myndir af nýjum Mosfellingum ásamt helstu upplýsingum á netfangið mosfellingur@mosfellingur.is hjá freyju og tómas i Mímir Freyr Árnason fæddist í Björkinni 16. júlí 2020. Hann fæddist 14 merkur og 51 cm. Foreldrar eru Sigurlaug Lilja Jónasdóttir og Árni Rúnarsson. Hann á einn bróður sem heitir Hrafntýr Þór Árnason, fæddur 2. des 2017. heyrst hefur... ...að Ísólfur í Hlégarði sé orðinn nýr umboðsmaður Bubba Morthens. ...að hljómsveitin Kaleo sé nú sú mest spilaða af íslenskum tónlistarmönn- um á Spotify eftir að hafa tekið fram úr Of Monsters and Men. ...að Karen og Lexi eigi von á tvíburum í sumar. ...að eigendur Brúneggja séu að stefna RÚV og Matvælastofnun vegna umfjöllunar um fyrirtækið fyrir fjórum árum. ...að Allt Fasteignasala sé að hreiðra um sig í Kjarnanum þar sem Íslands- banki var eitt sinn. ...að Bjarki Bjarna sækist eftir 4.-5. sæti í forvali VG í Suðvestur fyrir Alþingiskosningarnar. ...að Hafrún og Þrándur eigi von á sínu þriðja barni. ...að Davíð Gunnlaugs hafi á dögunum verið valinn PGA golfkennari ársins á Íslandi. ...að Skátarnir séu byrjaðir með páskaáskorun á fellin. ...að búið sé að stofna rafíþróttadeild innan Aftureldingar. ...að knattspyrnukonan Hafrún Rakel hafi verið valin í landsliðshóp Íslands fyrir næsta verkefni. ...að efnt hafi verið til samkeppni um nafn á eldri deild Varmárskóla sem brátt verður aðskilin frá þeirri yngri. ...að Jóhann Ingi og Sif Gunnars eigi von á barni. ...að Mosfellsbær auglýsa nú eftir skólastjórum í bæði Varmárskóla og í Listaskólann. ...að maður hafi ógnað starfsfólki Mos- fellsbæjar fyrir helgi og lögreglan verið kölluð til. Öryggisvörður hefur staðið vaktina síðan en þetta er ekki í fyrsta skipti sem þetta gerist. ...að myndband af félögum úr blak- deild Aftureldingar taka æfingu við gosstöðvarnar hefur farið á mikið flug um allan heim. ...að verið sé að stela gaskútum í Leirvogstungu í skjóli nætur. ...að komin sé af stað páskaáskorun í Tindaáskorun Mosverja. ...að rúmlega 100 hugmyndir séu komnar í Okkar Mosó en skilafrestur er til 6. apríl. ...að vestið hennar Laufeyjar hafi verið brennt á galdrabrennu í kvenna- partýi Hönnu Sím. ...að Heilsugæslan sé nú flutt í nýtt húsnæði í Sunnukrikanum. ...að umsóknarfrestur sé til 23. apríl fyrir krakka í unglingavinnuna í sumar. ...að Svandís eigi afmæli í dag, 1. apríl. ...að næsti Mosfellingur komi út á sumardaginn fyrsta. ...að fótboltastelpunum í Aftureldingu séð spáð upp í Pepsi-deild í sumar ef marka má ótímabæra spá .net. mosfellingur@mosfellingur.is - Heyrst hefur...36 Sveinbjörn Mar fæddist á Lands- spítalanum þann 9. febrúar 2021. Hann var 52 cm og 3960 gr. Foreldrar hans eru þau Erla Snædís Sveinbjörnsdóttir og Andri Mar Björgvinsson en fyrir eiga þau Áslaugu Öglu sem er þriggja ára.

x

Mosfellingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.