Mosfellingur - 22.04.2021, Side 28

Mosfellingur - 22.04.2021, Side 28
Sendið okkur myndir af nýjum Mos- fellingum ásamt helstu upplýsingum á netfangið mosfellingur@mosfellingur.is Í eldhúsinu hvað gerist næst? Þegar ég skrifaði pistil hér síðast í bæj ar- blað okkar Mosfellinga þá var ég bjart sýnn á betri tíma. Bjartsýnn á að næst þega r ég skrifaði pistil þá væru komnir bjart ari tímar hvað Covid varðar. Að við Mosfe ll- ingar yrðum meira og minna bólusett og öll valhoppandi af gleði yfir því að fá a ð mæta frjáls í ræktina, sund, leikhús og svo framvegis. Ég hafði ímyndað mér að ástandið væ ri svipað og þegar beljunum er hleypt út á vorin, eða svona þar um bil. Ég sá fyrir mér smekkfulla Bónus eða Krónuna af glöðum Mosfellingum slefandi upp í hvert annað af einskærri gleði við það eitt að geta tekið aftur í spaðann á gömlum kunningja. Að Barion væri stútfullur f rá morgni til kvölds og það væri þétt seti ð á öllum borðum. Og það væri ekki þverf ótað í World Class og Eldingu fyrir sveittum kroppum sem rífa í lóðin og hlaupa á brettunum svona til að vinna upp glat aða tíma. En enn og aftur þegar kemur að því að spá í framtíðina er ég með skituna upp á bak og væntingar mínar heldur órau n- hæfar. Þessi Covid fjandi staldrar enn við og virðist ekki vera á förum. Það lítur út fyrir að við þurfum að halda Þorrabló t Aftureldingar í haust og fjölmenn afm æli og aðrar veislur verða að bíða betri tím a. Þetta ástand er náttúrulega löngu hæt t að vera ásættanlegt, fólk skiptist í fylk ing- ar um hvort eigi að skella í lás á klakan um tímabundið eða reyna að standa storm inn af sér. Hvað svo sem verður gert þá ve rður eitthvað að fara að lagast. Atvinnuásta nd- ið þarf að komast á réttan kjöl og hluti rnir þurfa að komast aftur af stað. Ekki geta allir opnað OnlyFans reiknin g til þess að færa björg í bú og salt í grau tinn ... Og hvað allt þetta nú kallast. Ég er a ð minnsta kosti viss um að ég færi ekki v el út úr þeirri atvinnugrein ... Upp með sprauturnar og áfram gakk. þetta gengur ekki svona lengur. Sverrir og Hrefna Fanney skora á Hrafnhildi og Þór að deila næstu uppskrift Sverrir Ágústsson og Hrefna Fanney Matthíasdóttir deila hér með okkur girnilegri uppskrift að humarpizzu. Pizzabotn 2 stk 12“ botnar (eða nota tilbúið deig) • 250 g spelt • 3 stk vínsteinslyftiduft • ½ tsk salt • 1 tsk oregano • 2 msk ólífuolía • 125 ml heitt vatn Þurrefnum blanda saman í skál. Bætið olíunni út í, síðan vatninu og hnoðið deigið. Stráið smá spelti á borðið, skiptið deiginu í tvennt og fletjið frekar þunnt út í tvo hringlaga botna ca 25 cm í þvermál. Setjið bökunarpappír á ofnplötu, deigið þar ofan á og forbakið við 200°C í 3- 4 mín. og setjið síðan rakt viskastykki ofan á botnana svo þeir verði ekki að tvíbökum! Hráefni ofan á pizzubotn: • Slatti af humri sem er hreinsaður og lagður í olíu með hvítlauk, maldonsalti og pipar • Rifinn mozzarellaostur • Saffran (má sleppa) • Ósaltaðar pistasíuhnetur ca ¾ úr poka á hverja pizzu • Klettakál ca ¾ úr poka á hverja pizzu Ostinum er stráð á pizzubotnana, rétt áður en humarinn er tekinn úr skálinni er smá saffrani stráð yfir humarinn. Raðið humrin- um yfir ostinn, myljið aðeins hneturnar og stráið yfir og skellið svo í ofninn á 200°C í ca 15 mín. Sósa: • Safi úr einni sítrónu • 4 msk olía • 4 tsk gróft sinnep • 6 msk hunang • Salt og pipar Blandið olíu, sinnepi, og hunangi vel saman, setjið sítrónusafann út í smám saman og smá salt og pipar. Þegar pizzan er klár og tekin úr ofninum þá er klettakálinu og sósunni dreift yfir, sósan er líka borin fram með pizzunni.   Verðiykkuraðgóðu! Högni snær Humarpizza hjá sverri og hrefnu heyrst hefur... ...að pizzastaðurinn Pizzan ætli að opna við hlið Krónunnar þar sem Blackbox var áður. ...að 10 umsækjendur hafi verið um stöðu skólastjóra við Varmárskóla. ...að Greta Salóme sé búin að kaupa sér hús í Helgafellshverfi. ...að Mosfellingurinn Sigríður Dögg Auðunsdóttir bjóði sig fram til for- manns Blaðamannafélags Íslands. ...að Heima með Helga, sem tekið var upp í Hlégarði, hafi verið valið tónlistarviðburður ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum. ...að golfarar vilji fá salernisaðstöðu við 8. braut á Hlíðavelli. ...að veitingastaðurinn Serrano sé búinn að kaupa glerhýsið í Bjarkarholtinu. ...að strákarnir í Kaleo séu að koma út með nýja plötu um helgina en nýjasta myndaband þeirra við gosstöðvarnar hefur slegið í gegn. ...að það sé að koma ný vallarklukka á Fagverksvöllinn. ...að 2.000 fm húsnæði Sigurplasts við Völuteig sé til sölu. ...að hægt sé að leigja borðspil á bókasafninu og þeim fari fjölgandi. ...að ærslabelgurinn á Stekkjarflöt sé kominn í gagnið eftir veturinn. ...að Anna Guðrún og Maggi.net eigi von á sínu öðru barni í haust. ...að knattspyrnumaðurinn Arnór Gauti ætli að spila með Aftureldingu í sumar. ...að Steinunn og Stefán eigi von á sínu fyrsta barni í sumar. ...að mosfellska hljómsveitin Redline hafi verið að gefa út ábreiðu af lagi Pearl Jam og fengið góð viðbrögð. ...að stjörnukylfingurinn Valdís Þóra sé komin í þjálfarateymi Golfklúbbs Mosfellsbæjar. ...að handknattleiksmaðurinn Elvar Ásgeirs sé kominn í landsliðshóp Íslands sem leikur þrjá leiki í næstu viku. ...að Una Hildardóttir hafi landað þriðja sætinu í forvali VG í Suðvesturkjördæmi. ...að Lágafellskirkja verði lokuð í tvo mánuði í sumar vegna viðgerða. ...að Mosfellsbær sé að auglýsa lóðina við hlið slökkvistöðvarinnar til sölu fyrir verslun og þjónustu. ...að hátíðarhöld á sumardaginn fyrsta falli niður en Mosverjar verði með tindaáskorun á Lágafell fyrir börn og fjölskyldur. ...að 16 manns hafi sótt um stöðu skólastjóra Listaskóla Mosfellsbæjar. ...að Árni Bragi sé á leiðinni suður og muni spila með Aftureldingu á næsta tímabili en þau Sigdís eiga von á barni í haust. ...að Lexi sé að fara stofna rafíþrótta- deild í Mosfellsbæ næsta fimmtudag. mosfellingur@mosfellingur.is Ellen Una Matthíasdóttir fæddist 21. október 2020 á Akranesi. Fæðingar- þyngd og -lengd: 4.006 gr og 52 cm. Foreldar: Tanja Ösp Þorvaldsdóttir og Matthías Hugi Halldóruson. - Heyrst hefur...28 Við sinnum öllum alhliða garðyrkjustörfum s.s jarðvegsvinnu, hellulögnum, steinhleðslum, timburverki, gróðursetningu, trjáklippingum. Garðmenn leggja áherslu á fagleg vinnu- brögð, vandvirkni og skjóta þjónustu. Sími 893 5788

x

Mosfellingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.