Mosfellingur - 22.04.2021, Side 8
Sigur Rós hlaut
heiðursverðlaun
Hljómsveitin Sigur Rós var heiðruð
á Íslensku tónlistarverðlaununum
sem fram fóru í Silfurbergi í Hörpu
í kvöld. Hljómsveitin sagði það
ólýsanlegt fyrir „gamla réttarsals-
gengna menn“ að hljóta þessa
viðurkenningu. Sveitin þakkaði
sömuleiðis landanum öllum fyrir
góðar viðtökur við „furðumúsík“
þeirra. Hljómsveitin var stofnuð
í Mosfellsbæ árið 1994 en nafnið
kom frá nýfæddri systur söngvara
og gítarleikara sveitarinnar, Jóns
Þórs Birgissonar eða Jónsa. Ásamt
honum skipuðu hljómsveitina þeir
Georg Holm, Ágúst Ævar Gunn-
arsson og síðar Kjartan Sveinsson,
hljómborðsleikari og Orri Dýrason,
trommari. Hljómsveitin hefur gefið
út sjö breiðskífur, gert kvikmyndir,
ferðast um Ísland og allan heiminn.
Fyrsta plata Sigur Rósar, Von, kom
út árið 1997 en plata þeirra, Ágætis
byrjun, sem kom út árið 1999 náði
eyrum tónlistarunnenda um allan
heim. Velgengnin hélt áfram á
plötunni () árið 2002 þar sem þeir
bjuggu til sitt eigið tungumál,
Vonlensku eða Hopelandic. Áhorf-
endahópurinn stækkaði áfram og
hljómsveitin fór í fjölmörg tónleika-
ferðalög. Hún kom sér svo fyrir í
nýju hljóðveri í gamalli sundlaug í
Álafosskvosinni í Mosfellsbæ sem er
fyrir löngu orðið goðsagnakennt og
er enn starfrækt.
Ingólfur Hrólfsson formaður
s. 855 2085 ihhj@simnet.is
Úlfhildur Geirsdóttir varaformaður
s. 896 5700 bruarholl@simnet.is
Margrét Ólafsdóttir gjaldkeri
s. 863 3359 margretjako@gmail.com
Snjólaug Sigurðardóttir ritari
s. 897 4734 snjolaugsig@simnet.is
Kristbjörg Steingrímsdóttir meðstjórnandi
s. 898 3947 krist2910@gmail.is
Jóhanna B. Magnúsdóttir 1. varamaður
s. 899 0378 hanna@smart.is
Bragi Bergmann Steingrímsson
2. varamaður bbergman@hive.is
StJÓrn FaMoS
Eldri borgarar • þjónustumiðstöðin eirhömrum • fram undan í starfinu
Skrifstofa félagsstarfsins er opin
alla virka daga kl. 13–16. Sími félags-
starfsins er 586-8014. Forstöðumaður
félagsstarfs eldri borgara í Mosfellsbæ
er Elva Björg Pálsdóttir tómstunda-
og félagsmálafræðingur, s: 698-0090.
Skrifstofa FaMos á Eirhömrum
er opin alla fimmtudaga frá kl. 15–16.
FélaG aldraðra
í Mosfellsbæ og nágrenni
famos@famos.is
www.famos.is
aðalfundur FaMos
Aðalfundur FaMos verður haldinn í
Harðarbóli, Félagsheimili Hestamanna-
félagsins Harðar, mánudaginn 10. maí
kl. 20, ef búið verður að losa nægilega
um samkomutakmarkanir. Nánari
upplýsingar verða sendar í tölvupósti
þegar nær dregur.
Stjórn FaMos
Íþróttir byrja aftur
Öll starfsemi er
byrjuð aftur á
vegum íþrótta-
nefndar Famos.
Allt verður á
sama tíma og
áður. Um er að
ræða vatnsleikfimi, ringó, boccia, dans-
leikfimi, púttæfingar og leikfimisæfingar
í World Class. Minnum á gönguhópinn
sem er fyrir alla kl. 13:00 á miðvikudög-
um. Hittumst við Fellið/Varmá. Nánari
upplýsingar veitir formaður íþróttanefndar
Famos á netfanginu brassinn@simnet.is,
eða í síma: 8457490.
lengri opnunartími
Félagsstarfið Hlaðhömrum 2 er komið
með nýjan og lengri opnunartíma og er
framvegis opið á eftirfarandi tímum:
Mánud. - fimmtud. 11:00-16:00. Föstud.
13:00-16:00. Handavinnuleiðbeinandi
verður á staðnum alla daga nema föstu-
daga. Opnunartími gæti breyst þegar
sumarfrí starfsmanna verða.
Bestu kveðjur, starfsmenn félagsstarfs
Mosfellsbæjar
oPnUn
Myndlistarsýningar
Nemendur á listmálunarnámskeiði í
félagsstarfi eldri borgara munu halda
sýningu á verkum sínum í anddyri
íþróttamiðstöðvarinnar að Lágafelli.
Sýningin verður opnuð fimmtudaginn
29. apríl kl 18:00 og mun standa út
maímánuð. Öll hjartanlega velkomin.
demantamyndir
Vorum að taka upp nýja sendingu af
demantamyndum sem eru til sölu í
handverksstofu. Mjög fallegar myndir á
góðu verði. Verið velkomin.
Kveðja, félagsstarfið.
- Fréttir af Mosfellingum8
Ágústa Fanney Snorradóttir kvikmynda-
gerðarkona rekur fyrirtækið Mission fram-
leiðsla sem staðsett er í Háholti 14.
Ágústa hefur búið í Mosfellsbæ síðan í
byrjun 2019 ásamt konu sinni og tveimur
dætrum. Ágústa er menntuð í kvikmynda-
gerð og sjónvarpsframleiðslu frá skólanum
COC í Kaliforníu. „Ég útskrifaðist 2013 og
gerði þá heimildamyndina HUMAN TIME-
BOMBS sem tekur á taugasjúkdóminum
AHC, myndin hlaut fjölda verðlauna og
mikla athygli,“ segir Ágústa sem stofnaði
svo Mission framleiðslu árið 2017. „Eldri
dóttir mín fæddist sama ár og ég stofnaði
fyrirtækið og sú yngri kom í heiminn 17
mánuðum síðar í Kaliforníu þar sem við
vorum búsettar á þeim tíma.
„Ég hef unnið með nokkrum fyrirtækjum
hérna heima, framleitt og leikstýrt alls kon-
ar efni en ég starfa einnig sem tökumaður
og klippari. Það er virkilega gaman að vera
núna komin með Mission framleiðslu í
gang og ekki skemmir fyrir að vera staðsett
hér í dásamlega Mosfellsbæ.“
Margra ára samstarf við Góðvild
Ágústa er að framleiða ýmis myndbönd
og kynningarefni og má þar nefna Spjallið
með Góðvild sem sýndur er í hverri viku á
vísir.is.
Þættirnir eru afurð margra ára samstarfs
Ágústu og Sigurðar Hólmars Jóhannessonar
sem er framkvæmdastjóri Góðvildar. „Þegar
ég fékk það verkefni á vegum Góðvildar um
að gera kynningamyndbönd fyrir félagið þá
kviknaði þessi hugmynd að þáttunum. Ég
fann að það var bara of mikið af hlutum
sem þyrfti að ræða og koma hreyfingu á
varðandi þennan málaflokk.
Inntak þáttanna er að koma mikilvægum
málefnum langveikra og fatlaðra á Íslandi
á framfæri. Við erum að vekja athygli
á öllu sem við kemur þessum mála-
flokk, viðmælendur okkar spanna
allan skalann, allt frá sjúklingum,
foreldrum langveikra og fatlaðra
barna til stjórnenda og stjórn-
málamanna sem hafa meira með
kerfið að gera.“
anna Greta nýjasti
viðmælandinn
„Þættirnir fóru að
stað síðasta haust eru
sýndir alla þriðjudaga
á vísi, áhorfið hefur
verið mikið og við fengið mikil viðbrögð.
Það er gaman að segja frá því að í nýj-
asta þættinum er viðmælandi okkar hún
Anna Greta Ólafsdóttir skólastjóri
Varmárskóla.
Anna Greta er sjálf með ADHD
og henni er mikið í mun að
skólakerfið mæti börnum á
þeirra forsendum. Hún hefur
góða og skýra sýn á skólakerfið
á Íslandi og sterkar skoðanir á
því hvernig við eigum að mæta
börnum með námsörðug-
leika betur, hún er alveg
frábær fyrirmynd,“ segir
Ágústa að lokum og tek-
ur fram að alla þættina
má nálgast á Vísir.is.
Ágústa með Mission framleiðslu í Mosfellsbæ • Spjallið með Góðvild sýnt vikulega
Vilja koma málefnum lang-
veikra og fatlaðra á framfæri
AnnA gretA í settinu hjá ágústu
ágústA fAnney