Mosfellingur - 22.04.2021, Qupperneq 18
- Bókasafnsfréttir 18
Föstudaginn 23. apríl hefst ný sýn-
ing í Listasal Mosfellsbæjar. Lista-
maðurinn er Helgi Skj. Friðjónsson
og sýningin kallast Fjallamjólk.
Viðfangsefni sýningarinnar eru
mjólkurhvít íslensk fjöll.
Listamaðurinn vinnur í mörgum
miðlum og eru verkin sem hann
sýnir nú unnin í tölvu. Sjálfur
lýsir Helgi ferlinu svona: „Staf-
rænan spilar vissulega stóra rullu
í myndunum á þessari sýningu,
en þær eru engu að síður stef við
íslensku landslagsmálunarhefðina
sem er samofin listvitund minni allt
frá æsku.“
Ekki verður haldin sérstök opnun
vegna Covid-19 og grímuskylda er
við lýði. Síðasti sýningardagur er
21. maí.
Listasalur Mosfellsbæjar
Mjólkurhvít fjöll
Um sóttvarnarreglur á safni
Reglur um sóttvarnir breytast ört þessa
dagana og er því ekki vanþörf á að
fara yfir þær reglur sem nú gilda
í Bókasafni Mosfellsbæjar.
Að hámarki mega 20
manns vera inni í safninu
hverju sinni. Starfsfólk er
talið með en ekki börn
á leikskólaaldri. Gestir
safnsins eru hvattir til að
sinna sínum erindum fljótt
og markvisst svo allir komist
að. Ekki er í boði að læra í
safninu, kaffivélinni hef-
ur verið lokað og ekki
er hægt að setjast
niður í tímarita- eða
barnahorninu.
Grímuskylda á ekki við um börn sem
fædd eru 2005 og síðar. Hægt er að
biðja um ákveðin safngögn á
vefsíðunni leitir.is (upplýsing-
ar um ferlið eru á bokmos.
is), með því að hringja eða
senda tölvupóst. Umbeðin
safngögn bíða svo full-
afgreidd í merktum poka
fyrir utan safnið.
Eitthvað er um að þessar
sóttvarnarreglur hafi farið í
taugarnar á gestum en við
skulum muna að með því
að hlíta þeim getum við
haft safnið okkar opið
og starfandi á þess-
um óvissutímum.
Matjurtagarðar
Opnað fyrir umsóknir um matjurtagarða í Mosfellsbæ 3. maí
Matjurtagarðar bæjarins verða staðsettir austan
við Varmárskóla þar sem gömlu skólagarðarnir hafa
verið. Aðkoma að görðunum verður að norðanverðu
frá tjaldsvæðinu við eldri deild Varmárskóla.
Aðgengi að vatni og kaffiskúr verður við garðana.
Staðsetningu garða og fyrirkomulag
má sjá á meðfylgjandi korti.
Leiguverð fyrir matjurtagarða er óbreytt,
eða 2.500 kr. fyrir 50 fm garð.
Tekið er við umsóknum á
netfangið tjonustustod@mos.is
garðar verða tilbúnir til notkunar
föstudaginn 14. maí nk.
Einnig eiga íbúar í Mosfellsbæ
möguleika á að fá leigða mat-
jurtagarða á vegum Reykjavíkur-
borgar í Skammadal. Umhverfis- og
skipulagssvið Reykjavíkurborgar sér
um útleiguna og geta áhugasamir sett
sig í samband við Þóru Jónasdóttur umsjónarmann matjurtagarða
í Reykjavík í síma 411 1111, eða í netfangið matjurtagardar@
reykjavik.is, og látið skrá sig á lista með ósk
um garð. Taka þarf fram að viðkomandi sé
íbúi í Mosfellsbæ.
Umhverfissvið Mosfellsbæjar