Morgunblaðið - 04.01.2021, Side 1

Morgunblaðið - 04.01.2021, Side 1
Sveitarstjóri Múlaþings vill að brugðist verði við aurskriðunum á Seyðisfirði með vörnum þannig að byggðin geti verið örugg til framtíð- ar. Rætt verði við stjórnvöld um að gerðar verði al- vöru ofanflóða- varnir, bæði vegna aurskriðna og mögulegra snjóflóða. Segist Björn Ingimarsson sveitarstjóri vænta þess að stjórnvöld bregðist vel við. Björn segir, vegna ummæla Ágústs Guðmundssonar jarðfræðings um að byggðin í Seyðisfirði sé of útbreidd með tilliti til náttúrufars og staðhátta, að ef til vill hafi fólk ekki verið al- mennilega meðvitað um hversu mikil hættan var. Það sem gerðist fyrir jól sýni að þetta sé hættusvæði. Við því verði að bregðast með vörnum til framtíðar. „Byggðin er ekkert á för- um. Við bregðumst við með það mark- mið að hér verði áfram öflugt sam- félag,“ segir Björn. Reiknað er með að bráðaaðgerðir verði ræddar á aukafundi sveitarstjórnar á miðviku- dag. »2 Varnir til að tryggja öryggi til framtíðar  Sveitarstjórn fundar um Seyðisfjörð Björn Ingimarsson M Á N U D A G U R 4. J A N Ú A R 2 0 2 1 Stofnað 1913  2. tölublað  109. árgangur  HEILSA MEIRA EN HREYFING OG HOLLUR MATUR ÍSLAND ÁN FYRIRLIÐANS Á HM FANNST RÉTT AÐ GERA ÞETTA DRÓTTKVÆTT HANDBOLTI 26 TRÚARLJÓÐ DAVÍÐS 29HVATNING OG LÍFSGLEÐI 10 Omeprazol Actavis 20mg14 og 28 stk. Magasýruþolin hylki sem innihalda 20 mg af virka efninu Omeprazol og eru ætluð fullorðnum til skammtímameðferðar við einkennum bakflæðis (t.d. brjóstsviða og nábít). Gleypið hylkin í heilu lagi með hálfu glasi af vatni með mat eða á fast- andi maga. Kynnið ykkur notkunarleiðbeiningar, varnaðarorð og frábendingar áður en lyfið er notað. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgi- seðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is. Markaðsleyfishafi: Actavis Group PTC ehf. T ev a 0 2 8 0 6 2 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Fjármála- og efnahagsráðherra, Bjarni Benediktsson, telur það koma til greina að stjórnvöld hér veiti bráðaleyfi fyrir notkun nýrra bólu- efna vegna kórónuveirunnar. Það hljóti þó að ráðast af því að hægt sé að gera það hraðar en Lyfjastofnun Evrópu tekst. Bretland, Bandaríkin og fleiri ríki hafa heimilað notkun nýrra bóluefna fyrr en Lyfjastofnun Evrópu. „Það gæti verið mikill ávinningur fyrir okkur Íslendinga að hafa sjálf unnið þá vinnu sem þarf til að taka afstöðu til lyfsins en það hlýtur að reyna á í þessu máli hvort við getum gert það hraðar en evrópska lyfjastofnunin,“ segir Bjarni. Hann segir að hér sé fullhæf stofnun en segist þó ekki vita hvort nægur mannskapur og þekk- ing sé til þessa verks. Þórólfur Guðnason sóttvarna- læknir býst ekki við að hér á landi fyrirfinnist sú sérfræðiþekking sem þarf til að veita bóluefnum markaðs- leyfi. Bjarni staðfestir að möguleikinn á íslensku bráðaleyfi hafi ekki verið ræddur í ríkisstjórn. Þá hafa flokkar í stjórnarandstöðu kallað eftir um- ræðu í þinginu um bóluefnin. For- ystumenn þeirra gagnrýna skort á upplýsingum, meðal annars um af- hendingu keyptra bóluefna. Sigurður Ingi Jóhannsson, sam- göngu- og sveitarstjórnarráðherra, segir um möguleika á öðrum leiðum að ef allar upplýsingar hefðu legið fyrir í upphafi faraldursins um það hvaða bóluefni kæmu fyrst á markað og væru best hefði verið hægt að leggja bestu plönin. Mikil óvissa hafi verið á þeim tíma og því verið kostur að vera í samstarfi við hin norrænu löndin og Evrópusambandið. Rúna Hauksdóttir, forstjóri Lyfjastofnunar, segir að ef allt gangi að óskum verði bóluefni Moderna veitt markaðsleyfi hér á morgun. Telur bráðaleyfi koma til greina  Fjármála- og efnahagsráðherra segir að spurningin um eigið mat á nýjum bóluefnum ráðist af því hvort hægt sé að koma þeim hraðar í notkun en fæst með markaðsleyfi Lyfjastofnunar Evrópu MBóluefni vegna kórónuveiru »4, 14 Nýju ári er hægt að fagna á ýmsan máta og kjósa margir að hafa heilsuna í fyrirrúmi þegar nýtt ár gengur í garð. Nú þegar líkamsræktarstöðvar standa lokaðar vegna Covid-19 hefur landinn gripið til þess ráðs að stunda meiri útivist en áður. Það ákváðu þessi tvö að gera nýverið en þau nutu útivistar á Gróttu líkt og margir samlandar þeirra. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Gengið um Gróttu Ferðaþjónustufyrirtæki eru farin að sjá ljós við enda ganganna en einhver hreyfing er að komast á bókanir fyrirtækjanna og virðast fréttir af bólusetningum gegn Co- vid-19 hafa haft áhrif á ferðalöng- un fólks, að sögn ferðaþjónustuað- ila sem Morgunblaðið ræddi við. „Sumarið er farið að líta betur út. Þetta er allt háð því að það verði hægt að opna landamærin með viðunandi hætti,“ segir Þórir Garðarsson, stjórnarformaður Grayline. Bjarnheiður Hallsdóttir, formað- ur Samtaka ferðaþjónustunnar, tekur undir það. „Það gerist ekkert fyrr en búið er að aflétta einhverju þar,“ segir Bjarnheiður. Hún segir að einhver hreyfing sé komin á bókanir, eftir- spurn og leit að þjónustu ferða- þjónustufyrirtækja hérlendis. Bjarnheiður telur að fleiri og fleiri fyrirtæki verði í hættu á því að fara í gjaldþrot eftir því sem lengri tími líði í núverandi ástandi. „Það hefur verið minna um gjaldþrot en búist var við en það er rökrétt að álykta að vandanum hafi bara verið frestað hjá ein- hverjum fyrirtækjum.“ » 14 Háð breytingum á landamærunum  Fleiri og fleiri fyrirtæki í hættu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.