Morgunblaðið - 04.01.2021, Side 13

Morgunblaðið - 04.01.2021, Side 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. JANÚAR 2021 Álnabær Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta. Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 ■ Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 ■ Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 ■ alnabaer.is Við erum sérhæfð í gluggatjöldum alnabaer.is TWIN LIGHT RÚLLUGARDÍNA Alls hafa sjö fundist látin eftir að leirskriða féll í bænum Ask í Gjer- drumfylki í Noregi sl. miðvikudags- morgun. Þriggja er enn saknað, að sögn lögreglu. Bjørn Christian Willersrud, tals- maður lögreglu, sagði í gærkvöldi að enn hefðu björgunarmenn ekki gefið upp alla von um að fólk finnist á lífi. Leita átti áfram í nótt með aðstoð sporhunda, þyrlna og dróna. Þrennt fannst látið í gær. Staðfest var að karlmaður og 2 ára dóttir hans eru meðal hinna látnu en þung- aðrar eiginkonu mannsins er saknað. Norsku konungshjónin, Haraldur og Sonja, og Hákon krónprins heim- sóttu Ask í gær. „Mér er orða vant því þetta er alger hryllingur,“ sagði konungur við fjölmiðla. „Það eru auðvitað allir mjög miður sín. Stemningin er eiginlega bara óraunveruleg, ég hef ekki upplifað svona áður,“ sagði Gréta Björk Guð- mundsdóttir, íbúi í Ask, við mbl.is í gær. Hún segir hús sitt vera á örugg- um stað, á fjalli þar sem jarðvegur er stöðugur. Norskir fjölmiðlar segja að skrið- an sem féll í Ask hafi verið ein stærsta kvikleirsskriða sem um geti í Noregi. Skriðusvæðið sé um 700 metra langt og 300 metra breitt. Slíkar skriður eru þekktar í Noregi þar sem jarðvegur er gamall sjávar- botn, blandaður salti sem bindur hann saman. Ef saltið skolast burt breytist jarðvegurinn í kvikleir og lítið þarf til að hann skríði fram. AFP Skriðan Loftmynd sem tekin var í gær af svæðinu þar sem jarðskriðið varð í bænum Ask í Noregi. Enn er leitað að fjórum einstaklingum sem saknað er á svæðinu en sex hafa fundist látnir. Minningarstund Norsku konungshjónin kveiktu á kertum í kirkjunni í Gjerdrum til að minnast þeirra sem fórust í náttúruhamförunum. Þriggja enn saknað eft- ir jarðskriðið í Noregi  Björgunarmenn segjast ekki hafa gefið upp alla von Indversk stjórnvöld gáfu í gær út neyðarleyfi til að nota tvö bóluefni gegn kórónuveirunni. Annað er framleitt af AstraZeneca/Oxford í Bretlandi og hitt er indverskt, fram- leitt af Bharat Biotech og er nefnt Covaxin. Áformað er að bólusetja allt að 300 milljónir manna á Indlandi fyrir mitt árið en alls búa 1,3 milljarðar manna í landinu. Covaxin verður notað sem eins konar neyðarbóluefni, fari svo að ekki takist að fá nægilega marga skammta af bóluefni AstraZeneca. Gera má ráð fyrir að helstu upplýs- ingar um Covaxin verði gerðar op- inberar á næstunni. Þá hafa Egyptar samþykkt notk- un á bóluefni, sem kínverska fyrir- tækið Sinopharm hefur framleitt. Þegar hafa 50 þúsund skammtar af bóluefninu verið fluttir til landsins. Til stendur að byrja að dreifa bóluefni AstraZeneca í Bretlandi í dag. Þarlend stjórnvöld boðuðu jafn- framt að hugsanlega yrðu sóttvarna- reglur hertar á ýmsum svæðum þar í landi vegna útbreiðslu veirunnar. Talsmenn Evrópusambandsins sögðu um helgina að sambandið væri reiðubúið að aðstoða lyfjafyrirtæki við að auka framleiðslu á bóluefnum. Sagði Stella Kyriakides, sem fer með heilbrigðismál í framvæmdastjórn ESB, að framleiðslugeta fyrirtækj- anna væri alls ekki næg. Stjórnvöld í Ísrael sögðu í gær að áætlað væri að búið yrði að bólusetja um fimmtung landsmanna með tveimur skömmtum af bóluefni Pfi- zer fyrir lok janúar. Samkvæmt talningu AFP-frétta- stofunnar hafa að minnsta kosti 1.836.918 manns látist af völdum kórónuveirunnar en að minnsta kosti 85,6 milljónir manna hafa sýkst. Fleiri bóluefni fá neyðarleyfi  ESB vill aðstoða lyfjaframleiðendur AF Bólusett Kona bólusett með bólu- efni Pfizer í Tel Aviv í Ísrael í gær.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.