Morgunblaðið - 04.01.2021, Blaðsíða 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. JANÚAR 2021
DANMÖRK
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
„Ef einhver hefði boðið mér þetta
fyrir mót hefði ég tekið því. Þetta
eru 38 stig í sextán leikjum. Það eru
2,4 stig eða svo að meðaltali í leik.
Það þarf rúmlega tvö stig að með-
altali í leik til að fara upp svo það
hefur gengið vel hingað til,“ sagði
knattspyrnuþjálfarinn Ólafur Helgi
Kristjánsson í samtali við Morgun-
blaðið.
Ólafur hætti með karlalið FH og
tók við danska liðinu Esbjerg um
miðjan júlí á síðasta ári. Esbjerg var
þá nýfallið niður í B-deild Danmerk-
ur eftir tvö ár í deild þeirra bestu.
Ólafi hefur tekist vel til við að koma
sigurhugarfari í liðið eins og átta
deildarsigrar í röð gefa til kynna.
Eftir sextán leiki er Esbjerg með 38
stig, eins og topplið Viborg, og í mik-
illi baráttu um að vinna sér sæti í úr-
valsdeildinni. Lærisveinar Ólafs
hafa unnið tólf leiki, gert tvö jafn-
tefli og tapað tveimur leikjum. Sjö
stig eru síðan í lið Silkeborg sem er í
þriðja sæti en með því leikur nú
Skagamaðurinn Stefán Teitur Þórð-
arson. Tvö efstu liðin fara upp þann-
ig að staðan er góð.
Margir litlir þættir gengu upp
„Ég tók við nýju liði og nýjum hóp
í ágúst. Það tók tíma að finna liðið og
finna takt og annað. Við fórum svo á
gott skrið. Við töpuðum á heimavelli
fyrir einu af liðunum í neðri hlut-
anum en svo komu átta sigrar. Það
er samspil ýmissa þátta. Hlutirnir
sem við höfðum verið að vinna með
byrjuðu að tikka og meiri stöð-
ugleiki á hvernig liðinu var stillt
upp. Það eru margir litlir þættir sem
gengu upp,“ sagði Ólafur um gott
gengi síðustu vikna. Hann segir ekki
endilega kröfu hjá félaginu að fara
upp um deild á þessu tímabili, en að
sjálfsögðu hefur Esbjerg lítinn
áhuga á að staldra lengi við í B-deild
eftir fall.
„Að komast upp eins fljótt og
hægt er, það er markmiðið. Ég tók
við í frekar erfiðri stöðu þar sem var
mikið um mannabreytingar og ein-
hverjir sem fóru alveg og aðrir sem
voru lánaðir. Hópurinn var svolítið
slitinn þegar ég tók við. Klúbburinn
gerir hins vegar kröfur um að fara
upp eins fljótt og hægt er. Það er
fínt ef það gerist í ár, en það var ekki
sagt við mig að við þyrftum að fara
upp í ár. Það segir sig hins vegar
sjálft að lið sem fellur vill komast
upp aftur,“ sagði Ólafur sem hefur
einnig stýrt Nordsjælland og Rand-
ers í Danmörku og spilaði á árum áð-
ur með AGF í úrvalsdeildinni. Hann
er kominn í vetrarfrí en keppni í
deildinni hefst að nýju 12. febrúar.
Finnskur Íslandsvinur
Leikmannahópur Esbjerg er
áhugaverður en í honum eru leik-
menn eins og Finninn Pyry Soiri,
sem varð þjóðhetja á Íslandi þegar
hann skoraði gegn Króatíu í und-
ankeppni HM í Rússlandi en markið
átti stóran þátt í að Ísland hafnaði í
efsta sæti riðilsins og fór beint á
HM. Landi hans og samherji í lands-
liðinu Joni Kauko er einnig í liðinu
sem og Rodolph Austin, lands-
liðmaður Jamaíku og fyrrverandi
leikmaður Leeds á Englandi. Þá
fékk Ólafur Bolvíkinginn Andra
Rúnar Bjarnason til sín frá Kais-
erslautern í Þýskalandi fyrir þetta
keppnistímabil.
„Ég var með Joni Kauko hjá
Randers líka. Hann er búinn að vera
mjög góður. Svo fengum við leik-
mann frá AGF, Jakob Ankersen,
sem hefur einnig spilað vel. Austin
er svo toppmaður, fyrirliðinn minn
og mikill stríðsmaður,“ sagði Ólafur.
Andri þarf að nýta fríið vel
Andri Rúnar hefur spilað ellefu
leiki í deildinni, þar af fimm í byrj-
unarliði, og skoraði í þeim tvö mörk.
Ólafur á von á meiru frá Andra á
nýju ári.
„Andri var ekki í alveg nógu góðu
standi þegar hann kom frá Þýska-
landi. Hann var að komast á góðan
stað þegar hann meiddist bæði í baki
og aftan í læri sem setti hann alveg
út, en hann hefur skorað mikilvæg
mörk fyrir okkur. Því miður hefur
hann hins vegar ekki náð nægilega
mörgum mínútum. Við byrjum að
æfa aftur 11. janúar og hann þarf að
nýta jólafríið vel og vinna í þessum
meiðslamálum og koma til baka svo
hann geti spilað reglulega,“ sagði
Ólafur.
Var ekki að bíða eftir neinu
Ólafur stýrði FH í tvö heil tímabil
og endaði í fimmta og þriðja sæti Ís-
landsmótsins árin 2018 og 2019. FH
var hins vegar í áttunda sæti með
tvo sigra eftir fimm leiki þegar kall-
ið frá Esbjerg kom og leiðir skildi.
Þrátt fyrir erfitt gengi með FH síð-
asta sumar var Ólafur ekki að bíða
eftir símtölum annars staðar frá.
„Ég var ekki að bíða eftir neinu.
Þetta gerist eins og þetta gerist í
þessu, þetta kom allt í einu. Stund-
um kemur þetta á slæmum tímum
og þetta var ekki fyrsta símtalið
sem kom að utan eftir að ég kom
heim. Ég var búinn að segja nei ansi
oft við nokkur félög. Þegar þetta
kom núna fannst mér þetta góður
tímapunktur og gott tækifæri.“
Mikil einangrun í Danmörku
Ólafur hefur lítið að gera á milli
æfinga og leikja þar sem kórónu-
veiran hefur verið skæð í Dan-
mörku. „Ástandið er ekkert skárra í
Danmörku en á Íslandi. Það er
mikil einangrun og maður fer í
vinnuna á morgnana og síðan heim.
Maður fer í mesta lagi í búðina og
reynir að gera það þegar það eru
fáir. Þegar veðrið var sæmilegt fór
maður á golfvöllinn eða í göngutúr,
en það er það mesta sem maður
gerði. Maður reynir að halda sér í
búbblu,“ sagði Ólafur Krist-
jánsson.
Markmiðið er að komast
upp eins fljótt og hægt er
Ólafur H. Kristjánsson og hans menn í Esbjerg unnu átta leiki í röð fyrir fríið
Ljósmynd/Esbjerg
Sigurganga Ólafur Helgi Kristjánsson og hans menn í Esbjerg unnu átta síðustu leiki ársins 2020 og klifruðu upp í
annað sæti deildarinnar. Þeir standa því ágætlega að vígi í baráttunni um að endurheimta sætið í úrvalsdeildinni.
Snorri Einarsson er í 51. sæti í
heildarkeppninni í skíðagöngu á
Tour de Ski-mótaröðinni en þriðji
keppnisdagurinn í Val Müstair í
Sviss fór fram í gær. Snorri hóf leik
í 53. sæti en átti 50. besta tímann og
færði sig því aðeins upp listann en
fyrsta hluta Tour de Ski lauk í gær.
Í dag er hvíldardagur og hefst svo
annar hluti mótsins í Toblach á Ítal-
íu á morgun en þar fara fram tvær
keppnir. Að lokum fara svo síðustu
þrjár keppnirnar fram í Val di
Fiemme á Ítalíu en alls eru 84 kepp-
endur skráðir til leiks.
Upp um nokkur
sæti í Sviss
Ljósmynd/Ski.is
51 Skíðagöngukappinn Snorri Ein-
arsson er á leið til Toblach á Ítalíu.
Grindvíkingurinn Jón Axel Guð-
mundsson átti góðan leik þegar
Fraport Skyliners heimsótti Mittel-
deutscher í efstu deild Þýskalands í
körfubolta á laugardaginn en loka-
tölur urðu 94:89, Fraport í vil. Jón
Axel skoraði 18 stig, gaf 9 stoð-
sendingar tók þrjú fráköst og stal
þremur boltum á 36 mínútum. Að-
eins Bandaríkjamaðurinn Matt Mo-
bley skoraði meira eða 29 stig, en
Jón Axel spilaði mest leikmanna
Fraport í leiknum. Fraport er í tí-
unda sæti deildarinnar með fjóra
sigra og sex töp.
Atkvæðamikill
í Þýskalandi
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
18 Jón Axel hefur verið öflugur fyr-
ir Fraport Skyliners í tímabilinu.
Spánn
Zaragoza – Real Betis................ (frl.) 96:95
Tryggvi Snær Hlinason skoraði 9 stig og
tók 6 fráköst á 24 mínútum með Zaragoza.
Valencia – Gran Canaria.................. 101:85
Martin Hermannsson skoraði 15 stig og
gaf 2 stoðsendingar á 18 mínútum með Val-
encia.
Baskonia – Andorra ............................ 84:67
Haukur Helgi Pálsson skoraði 6 stig, tók
2 fráköst og gaf 5 stoðsendingar á 19 mín-
útum fyrir Andorra.
B-deild:
Girona – Mallorca Palma.................... 80:83
Kári Jónsson skoraði 5 stig og tók 2 frá-
köst á 20 mínútum með Girona í sínum
fyrsta leik með liðinu.
Þýskaland
Mitteldeutscher – Fraport ................. 89:94
Jón Axel Guðmundsson skoraði 18 stig,
tók 3 fráköst, gaf 9 stoðsendingar og stal 3
boltum á 36 mínútum með Fraport.
Litháen
Juventus – Siaulai ............................... 96:82
Elvar Már Friðriksson skoraði 16 stig,
tók 3 fráköst og gaf 3 stoðsendingar á 29
mínútum hjá Siaulai.
NBA-deildin
Houston – Sacramento....................... 102:94
Indiana – New York ......................... 102:106
Orlando – Oklahoma City .................. 99:108
Philadelphia – Charlotte.................. 127:112
Atlanta – Cleveland.............................. 91:96
New Orleans – Toronto.................... 120:116
Þýskaland
Kupfalz – Leverkusen......................... 21:24
Hildigunnur Einarsdóttir skoraði 1
mark fyrir Leverkusen.
Danmörk
Odense – Vendsyssel........................... 29:19
Steinunn Hansdóttir skoraði 3 mörk fyr-
ir Vendsyssel. Elín Jóna Þorsteinsdóttir
varði 6 skot í marki liðsins.
Noregur
Storhamar – Oppsal ............................ 32:26
Birta Rún Grétarsdóttir lék ekki með
Oppsal.
Ísak Bergmann
Jóhannesson,
hinn 17 ára
gamli leikmaður
Norrköping og
21-árs landsliðs-
ins í knatt-
spyrnu, er í hópi
fimmtíu „vonar-
stjarna ársins
2021“ sem frétta-
ritarar heima-
síðu UEFA, Knattspyrnusambands
Evrópu, hafa valið í ársbyrjun.
Þetta eru þeir ungu leikmenn á
aldrinum 16-21 árs sem taldir eru
líklegastir til að slá í gegn á árinu
2021. Í umfjöllun um Ísak segir að
hann sé þegar lykilmaður á miðj-
unni hjá sænska úrvalsdeildarliðinu
og hafi spilað fyrsta A-landsleikinn
gegn Englandi í nóvember.
Ísak er einn af þeim yngstu í
hópnum, aðeins hinn 16 ára gamli
Youssoufa Moukoko hjá Dortmund
í Þýskalandi, sem hefur þegar spil-
að í Meistaradeildinni og skorað í
þýsku 1. deildinni, er ekki orðinn
sautján ára gamall.
Jafnaldrar Ísaks á listanum eru
m.a. Jude Bellingham, Englending-
urinn hjá Dortmund, Yusuf Demir,
leikmaður Rapid Vín, Wahidullah
Faghir, leikmaður Vejle, og Jamal
Musiala, leikmaður Bayern Münch-
en. Þá eru á listanum leikmenn sem
þegar hafa látið talsvert til sín taka
eins og Wesley Fofana, miðvörður
Leicester, og Curtis Jones, miðju-
maður Liverpool, sem báðir eru 19
ára gamlir.
Ísak í afar
góðum
félagsskap
Ísak Bergmann
Jóhannesson
Lið Esbjerg er frá samnefndri
72 þúsund manna hafnarborg á
vesturströnd Danmerkur, sem
er fimmta stærsta borg Dan-
merkur.
Heimavöllur liðsins, Blue
Water Arena, rúmar 18 þúsund
áhorfendur.
Liðið hefur fimm sinnum
orðið danskur meistari, síðast
1979, og þrisvar bikarmeistari,
síðast 2013.
Fjórir Íslendingar hafa leikið
með aðalliði Esbjerg á undan
Andra Rúnari Bjarnasyni. Kári
Árnason (2008-09), Gunnar
Heiðar Þorvaldsson (2008-09),
Arnór Smárason (2010-2013)
og Guðlaugur Victor Pálsson
(2015-2017).
Esbjerg