Morgunblaðið - 04.01.2021, Side 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. JANÚAR 2021
Fullkomið flatbrauð f
yrir öll tækifæri
„BARA AÐ VIÐ HEFÐUM HIST ÞEGAR VIÐ
VORUM BÆÐI MEIRA AÐLAÐANDI.”
„ÉG ER MEÐ ROSAVERK Í VINSTRA
NÝRANU.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að vera pabbi.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ÉG HELD AÐ LÍSA
SÉ REIÐ ÚT Í MIG
Æ,
JÓN …
ÞÚ ERT MEÐ SVO LÁGT
SJÁLFSÁLIT … ÞÚ TRÚIR
ALLTAF ÖLLU ÞVÍ VERSTA
ÉG LEITA AÐ ÁST
OG UMHYGGJU Á
KOLRÖNGUM STÖÐUM!
HÚN SAGÐI „ÉG
ER REIÐ ÚT Í
ÞIG”
ÞAÐ GETUR
ÞÝTT HVAÐ
SEM ER!
KVÖRTUNARDEILD
unartogaranna,“ segir Kristján sem
hefur haldið tryggð við vesturbæinn
þótt hann sé hættur að veiða massa-
dóna.
Fjölskylda
Eiginkona Kristjáns er Ingibjörg
Sigurðardóttir, f. 12.8. 1951, lífeinda-
fræðingur, síðar kaupmaður með
verslunina MKM. Foreldrar hennar
eru hjónin Sigurður Helgi Egilsson, f.
5.2. 1921, d. 27.4. 2001, forstjóri LÍÚ,
og Sigríður Aðalbjörg Þorláksdóttir
Bjarnar, f. 25.4. 1927, d. 16.9. 2012,
húsfreyja.
Börn Kristjáns og Ingibjargar eru
1) Jóhann Ingi, f. 11.9. 1975, viðskipta-
fræðingur, maki Inga Rósa Guð-
mundsdóttir, breytinga- og gæðastjóri
Lyfjastofnunar. Þau eiga börnin Krist-
ján Inga, f. 2003, Guðveigu Lísu, f.
2007, Guðmund Orra, f. 2009 og Jó-
hann Má, f. 2012. 2) Sigríður Ósk, f.
21.5. 1978, söngkona og tónlistarkenn-
ari. Hún á dótturina Helenu Ingu
Kristinsdóttur, f. 2014. 3) Guðrún
Helga, f. 26.6. 1986, fatahönnuður og
MBA-nemi, maki Eldur Ólafsson, for-
stjóri AEX Gold. Þau eiga dæturnar
Íseyju, f. 2010, Grímheiði, f. 2014 og
Ingibjörgu Drífu, f. 2019. Systkini
Kristjáns eru Guðrún, f. 9.12. 1952,
flugfreyja; Heiða Elín, f. 7.9. 1955, inn-
anhússarkitekt og Jóhann Gísli, f. 26.4.
1968, sölustjóri Loftleiða.
Foreldrar Kristjáns eru hjónin
Jóhann Gíslason, f. 1.5. 1925, d. 9.5.
1968, deildarstjóri flugrekstrar- og
tæknideildar Flugfélags Íslands, og
Vilborg Guðrún Kristjánsdóttir, f.
29.3. 1930, ritari á skrifstofu forseta
Íslands.
Kristján
Jóhannsson
Vilborg Guðnadóttir
húsfreyja Haugi Gaulverjabæ,
síðar í Reykjavík
Hafliði Magnússon
bóndi á Álfsstöðum og Haugi.
Síðar verkamaður í Reykjavík
Guðrún Hafliðadóttir
húsfreyja í Reykjavík
Kristján Kristjánsson
frá Ósi, togaraskipstjóri í
Reykjavík
Vilborg Guðrún
Kristjánsdóttir
ritari á skrifstofu forseta
Íslands í Reykjavík
Friðrika Kristensa Lúðvíksdóttir
húsfreyja í Miðdal, Hólssókn
Kristján Jónsson
bóndi í Miðdal, síðar verkstjóri í
Bolungarvík
Jónína Margrét Gísladóttir
húsfreyja í Nesi í Selvogi
Páll Grímsson
útvegsbóndi, formaður og
hreppstjóri í Nesi í Selvogi
Grímheiður Elín Pálsdóttir
kirkjuvörður Fríkirkjunnar í
Reykjavík
Gísli Jóhannsson
formaður frá Eyrarbakka,
síðar iðnaðarmaður í
Reykjavík
Ingibjörg Rögnvaldsdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Jóhann Gíslason
fiskimatsmaður í Reykjavík
Úr frændgarði Kristjáns Jóhannssonar
Jóhann Gíslason
deildarstjóri
flugrekstrar- og
tæknideildar Flugfélags
Íslands í Reykjavík
Eyþór Árnason frá Uppsölum íSkagafirði sendi þessar vísur í
árlegum jólapósti sínum:
Kaffærð öll í kóvídmekki
knúsið góða fyrir bí.
Koma jólin kannski ekki
hverjir geta svarað því?
En jólagrautinn maður mallar
því merkilegt ég heyrði tíst.
Þórólfur minn þreyttur kallar:
þrettándinn hann kemur víst!
Bóluefnið bugar gest
brosa allar stéttir.
Landinn ærist, laus við pest
löngu fyrir réttir.
Á Boðnarmiði yrkja hagyrðingar
og skáld áramótavísur. Ingólfur
Ómar Ármannsson:
Hverfur lýðum æði ótt
æskublíður glaumur.
Árin líða undurfljótt
eins og stríður flaumur.
Kristjana Sigríður Vagnsdóttir
heldur áfram:
Ellin við mér brosir blíð,
bresta ei vonir fínar.
Alltaf batnar andans hríð,
óskir rætast mínar.
Sigrún Haraldsdóttir segir frá
því, að hún fór í reiðtúr í bál-
hvössum norðanvindi. Þetta er
ferðalýsingin:
Eins og pakki oná á klakki
örm að hjakka fékk,
vinds í snakki, völt í hnakki,
vart á Blakki hékk.
Jóhann S. Hannesson orti:
Ég veit um óvitlausa menn
sem vilja ekki trúa því enn
að þó vond þyki samtíðin
verður samt framtíðin
verri. Þeir trúa því senn.
Við höfum kynnst því á síðustu
dögum að þessi veðurfarslýsing Jó-
hanns getur vel staðist:
Á norðurhafseyjunni Íslandi
er ekki við kvöldgöngur sýslandi
því vindhviður ærnar
næða um eyrun og tærnar
og öskrandi fremur en hvíslandi.
Davíð Hjálmar Haraldsson yrkir
og kallar „Hvassviðri“:
Allt til að fjúka var fokið
svo fádæma mikið var rokið
að Helga í Mó
hóstaði og dó
því að stormurinn stíflaði kokið.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Úr jólapóstinum og veðrið