Morgunblaðið - 04.01.2021, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. JANÚAR 2021
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Margt hefurgengið velhér á
landi í glímunni við
kórónuveirufarald-
urinn þó að mistök
hafi einnig verið
gerð, jafnvel mjög alvarleg.
Þegar horft er á samanburð við
heiminn hafa tilfelli smita og
dauðsfalla hér á landi verið til-
tölulega hófleg, án þess að
sjálfsögðu að lítið sé gert úr
þeim tilfellum sem orðið hafa.
Hvert tilfelli, að ekki sé talað
um dauðsfall, er einu tilfelli of
mikið.
Mörg ríki sem við berum
okkur saman við hafa náð minni
árangri en við og á þann mæli-
kvarða getum við verið ánægð
með okkar hlut. Eitt þessara
ríkja er Ísrael, sem hefur hærri
dánartíðni en Ísland og glímir
nú við mun erfiðari bylgju far-
aldursins en við. Hér hefur tek-
ist að koma í veg fyrir að far-
aldurinn gjósi upp aftur og
vonandi tekst að halda því
áfram.
Nú eru hins vegar líkur á að
Ísrael nái mun fyrr tökum á
faraldrinum en Ísland og virð-
ist það stafa alfarið af því að ís-
realsk stjórnvöld hafa farið
aðra leið en stjórnvöld hér á
landi við að tryggja bóluefni.
Nú er staðan sú að Ísrael hefur
bólusett yfir eina milljón
manna á um hálfum mánuði,
sem er mikill árangur hjá rúm-
lega níu milljóna manna þjóð.
En hvernig stendur á því að
Ísraelar hafa náð slíkum ár-
angri og bólusetja nú um 150
þúsund á dag þegar flestar aðr-
ar þjóðir, þ. á m. Íslendingar,
ná litlum árangri enn sem kom-
ið er.
The New York Times hefur
sagt frá því hvernig Ísrael
tókst þetta og er sú lýsing mjög
umhugsunarverð, ekki síst í
ljósi viðbragða stjórnvalda hér
á landi og svara þeirra þegar
þau eru spurð út í hvers vegna
ekki hafi verið leitað annarra
leiða en þeirrar einnar að
treysta á samstarfið við Evr-
ópusambandið. Ísrael er, líkt
og Ísland, vel búið undir slíkt
bólusetningarátak. Heilbrigð-
iskerfið heldur vel utan um
landsmenn, sem eru skráðir í
kerfið, líkt og hér, og þess
vegna er hægt að halda vel utan
um framkvæmdina. Fámennið
er líka sagt hjálpa Ísrael, en að
því leyti stendur Ísland að
sjálfsögðu miklu framar.
Grunnurinn að árangrinum var
þó að Ísraelar fóru snemma af
stað í að tryggja sér bóluefni
með samningaviðræðum við
lyfjaframleiðendur, eins og
heilbrigðisráðherrann þar í
landi hefur lýst í viðtali. Hann
segir lyfjafyrirtækin hafa verið
áhugasöm um að senda lyf til
Ísraels þar sem
heilbrigðiskerfið
væri þekkt fyrir
skilvirkni og að
safna áreiðan-
legum upplýs-
ingum. „Við erum
fyrst í þessu kapphlaupi heims-
ins vegna þess að við undir-
bjuggum okkur snemma,“ segir
ísraelski heilbrigðis-
ráðherrann.
Ísrael er þegar búið að bólu-
setja um 13% þjóðarinnar og
meira en eitt prósent bætist við
á dag. Það sem meira er, búið
er að bólusetja meira en fjóra
af hverjum tíu þeirra sem eru
yfir 60 ára, en áherslan í fyrstu
lotu er á þann hóp og heilbrigð-
isstarfsmenn, þó að aðrir eigi
einnig möguleika á bólusetn-
ingu.
Ef ekki slær í bakseglin er
hjarðónæmið innan seilingar í
Ísrael, en hér á landi virðist
það enn nokkuð fjarlægur
draumur. Forsætisráðherra Ís-
lands talar um að vonir standi
til að búið verði að bólusetja
meirihluta þjóðarinnar á fyrri
hluta ársins, en hvað þýðir það
í raun?
Því miður hafa svör ráða-
manna hér á landi um þessi efni
verið ósannfærandi og ófull-
nægjandi. Sagt er að rétt hafi
verið að fara í samflot með Evr-
ópusambandinu um bóluefni,
sem má vel vera rétt. En átti
það að útiloka að farin væri sú
leið sem Ísraelar og ýmsar aðr-
ar þjóðir, svo sem Bretar, ber-
sýnilega fóru? Hefði ekki verið
hyggilegt að halda öllum mögu-
leikum opnum, reyna allar leið-
ir? Þá hefur komið fram að rík-
isstjórnin hafi ekki einu sinni
rætt möguleikann á að veita
bóluefnum bráðaleyfi líkt og
Bretar hafa gert. Hvernig má
það vera að slíkt hafi ekki verið
rætt og skoðað í þaula?
Í Bretlandi segist heilbrigð-
isráðherrann ætla að ryðja úr
vegi óþarfri skriffinnsku sem
komið hefur í veg fyrir að næg-
ur fjöldi heilbrigðisstarfs-
manna fengist til að fram-
kvæma bólusetningar. Getum
við ekki leitað lausna líkt og
Bretar og Ísraelar, eða erum
við orðin of föst í regluverkinu?
Ein lausn til að hraða bólu-
setningum hér á landi er í skoð-
un, að því er fram hefur komið,
en sem stendur virðist hún að-
eins í skoðun innanhúss hjá Pfi-
zer. Vonandi verður niður-
staðan jákvæð og þá kann að
vera að stjórnvöld hér sleppi
fyrir horn. Eins kann að vera
að unnt verði að finna aðrar
leiðir, en þá þarf fyrst að vera
vilji til að leita þeirra. Við-
horfið þarf að vera að ryðja
hindrunum úr vegi en ekki að
nota þær sem afsökun fyrir að-
gerðaleysi.
Hvað kemur í veg
fyrir að við getum
bólusett eins og
Ísraelar og Bretar?}
Hindrunum verður
að ryðja úr vegi
E
nn hafa stjórnvöld ekki getað sagt
landsmönnum með fullnægjandi
hætti hvenær verður búið að bólu-
setja þjóðina gegn kórónuveir-
unni. Ef marka má orð Kára Stef-
ánssonar þá verður það ekki fyrr en seint á
árinu, sem er óásættanlegt. Samkvæmt orðum
forsætisráðherra virðumst við upp á náð og mis-
kunn stjórnenda erlendra lyfjafyrirtækja komin.
Frá því að Miðflokkurinn bað um umræðu í
þinginu fyrir jól hefur ekkert skýrst frekar um
tímasetningar á komu bóluefna. Þegar reynt er
að knýja á um svör eru viðbrögð stjórnvalda að
senda út enn eina fréttatilkynninguna um samn-
inga um kaup á bóluefnum, en ávallt án
afhendingartíma. Landsmenn eru engu nær og
vonlaust er að gera nokkrar áætlanir.
Svo virðist sem sú ákvörðun stjórnvalda að
leita á náðir Evrópusambandsins hafi ekki verið vel ígrund-
uð. Mörg hinna frjálsu ríkja hafa samið um nóg af bóluefni
meðan ESB hefur verið í vandræðum og það réttilega gagn-
rýnt fyrir skrifræði og flókið kerfi. Utanríkisráðherra, sem
varla hreyfir sig án þess að spyrja ESB, hefur væntanlega
haft hönd í bagga með samninga um bóluefni og því hljóta
hann og heilbrigðisráðherra að gefa sameiginlega skýrslu
um hvernig staðið var að málum.
Í umræðuþættinum Kryddsíld á gamlársdag benti for-
maður Miðflokksins á klúður ESB en formaður Viðreisnar
kom þá ESB strax til varnar. Þessi staða er ekki ný. Þegar
ESB er gagnrýnt stíga fram einhverjir sem enn trúa á það
sem lausn allra vandamála að ganga í ESB. Jafnvel þótt
dæmin séu mörg um hversu óæskilegt er fyrir
Ísland að gerast aðili. Trúin á hið útlenda yfir-
vald er sumum svo tamt að liggur við ofsatrú.
Bretar gengu úr ESB um áramótin og voru
með þeim fyrstu til að tryggja sér nægt bóluefni
en að hætta í ESB gekk ekki þrautalaust þrátt
fyrir að Bretland sé efnahagslegt stórveldi og
lykilþjóð í öryggismálum Evrópu. Bretar nýttu
sér frelsið meðan helstu samstarfsaðilar og
keppinautar verða bundnir skrifræðinu í Bruss-
el.
ESB-trúin mun eflaust einnig gera vart við
sig með þeim rökum að leiðin út úr efnahags-
vandanum sé innganga í ESB. Það er vitanlega
rökleysa líkt og það var eftir bankahrunið. Ef
Ísland hefði verið í ESB 2008 værum við enn að
glíma við hrunið líkt og Grikkir, Spánverjar,
Ítalir o.fl. Ríkisstjórn Sigmundar Davíðs 2013-
16 hefði ekki tekist að láta kröfuhafa föllnu bankanna greiða
hundruð milljarða í ríkissjóð hefðum við verið í ESB. Þá er
líka ljóst að „hinir trúuðu“ munu ekki þola nokkra gagnrýni
á samstarf Íslands og ESB, hvort sem það er á vettvangi
EES-samningsins eða annars staðar.
Þegar stefna stjórnmálaflokkanna verður metin mun öll-
um verða ljóst að Miðflokkurinn er eini stjórnmála-
flokkurinn sem einarðlega er andvígur inngöngu Íslands í
ESB. Þannig verða hagsmunir landsins best tryggðir.
Gunnar Bragi
Sveinsson
Pistill
Það vantar skýr svör um komu bóluefnis
Höfundur er þingmaður Suðvesturkjördæmis
og formaður þingflokks Miðflokksins.
gunnarbragi@althingi.is
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
SVIÐSLJÓS
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
Það er ofboðslega mikið und-ir,“ segir BjarnheiðurHallsdóttir, formaður Sam-taka ferðaþjónustunnar,
um stöðuna í ferðaþjónustunni hér á
landi. Því lengur sem fyrirtækin
þurfa að kljást við afleiðingar kórónu-
veirufaraldursins, því meiri hættu
eru þau í og því treysta þau mörg
hver á að rofa fari til.
Einhver hreyfing virðist þó vera
komin á bókanir bæði á meðal ferða-
þjónustufyrirtækja sem bjóða upp á
afþreyingu innanlands og hjá ferða-
skrifstofum sem bjóða upp á ferðir
fyrir Íslendinga út fyrir landsteinana.
Þeir ferðaþjónustuaðilar sem Morg-
unblaðið ræddi við eru bjartsýnir á
árið sem nú er hafið.
„Fólk er farið að spyrjast fyrir
og farið að huga að ferðalögum, allt
bara í rólegum skrefum. Við ætlum
að vera bjartsýn á að það verði stíg-
andi í þessu nú þegar bóluefnið er
farið að berast,“ segir Þórunn Reyn-
isdóttir, forstjóri Úrvals-Útsýnar.
Þórunn er ýmsu vön en segir að
árið sem nú er að baki sé sérstakt og
hana hafi ekki órað fyrir því að upp-
lifa slíkt ástand og að það myndi vara
í svo marga mánuði.
„Ég kalla ekki allt ömmu mína í
þessum efnum. Ég starfaði sem for-
stjóri í Bandaríkjunum þegar gos
hófst í Eyjafjallajökli. Mér fannst það
erfitt á þeim tíma en það er smámál
miðað við það sem við höfum gengið í
gegnum undanfarið. Svo eru snerti-
fletirnir svo ótrúlega margir. Þetta er
ekki bara ferðaþjónustan, þetta hefur
snert allar starfsgreinar og líf fólks
þannig að þetta hefur verið mjög sér-
stakt ár fyrir okkur öll.“
Þórir Garðarsson, stjórnar-
formaður Grayline, segir að fyrir-
spurnum hafi fjölgað og fólk sé tilbúið
að byrja að bóka. Það sem fólk sé
helst að bíða eftir sé ítarlegri dagskrá
bólusetninga.
„Sumarið er farið að líta betur út
þegar það fer að líða inn á það. Þetta
er allt háð því að það verði hægt að
opna landamærin með ásættanlegum
hætti,“ segir Þórir.
Hann gerir fastlega ráð fyrir því
að Grayline komist út úr faraldrinum.
„Fyrst við erum enn á lífi þá held ég
að það sé ekkert sem kemur í veg fyr-
ir það. En auðvitað er skafl fyrir
framan dyrnar hjá flestum ferðaþjón-
ustufyrirtækjum. Það mun taka á að
komast í gegnum þennan skafl. En
við erum fullir bjartsýni og finnum
stuðning okkar viðskiptavina og ekki
síður starfsfólksins sem bíður spennt
eftir því að fá að taka til hendinni.“
Þórir telur að það muni taka ís-
lenska ferðaþjónustu sinn tíma að
komast aftur á þann stað sem hún var
á fyrir faraldur. Hann segir framtíð-
ina þó bjarta.
Þórir segir skrýtið að horfa um
öxl, á árið 2020.
„Þetta er náttúrlega alveg með
ólíkindum. Ef einhver hefði spurt
mann fyrir 10 mánuðum hvort við
gætum verið lifandi tekjulausir í tíu
mánuði hefði maður bara haldið að
það væri eitthvað að mönnum. En
með samstilltu átaki hefur okkur tek-
ist að fara í gegnum þetta. Við höfum
náttúrlega ýmsa fjöruna sopið í 40 ár.
Það skiptast á hæðir og lægðir en
ástandið hefur aldrei verið jafn alvar-
legt og núna.“
Bjarnheiður segir að það megi
reikna með því að einhver fyrirtæki
treysti á að rofa fari til þar sem þau
fari annars í þrot.
„Það hefur verið minna um
gjaldþrot en búist var við en það er
rökrétt að álykta að vandanum hafi
bara verið frestað hjá einhverjum
fyrirtækjum. Fleiri og fleiri fyrirtæki
verða í hættu eftir því sem tíminn líð-
ur.“
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Við Strokk Sú var tíðin að margir erlendir ferðamenn sóttu landið heim.
Ferðaþjónustan vonar að slíkt ástand verði bráðlega aftur raunin.
Ferðaþjónustuaðilar
bjartsýnir á nýja árið
Bjarnheiður segir ferðaþjón-
ustuna nú binda miklar vonir við
að bólusetningin gangi vel.
„Hvernig hún þróast, hversu
hratt við getum gert þetta og
hvernig sóttvarnaaðgerðum
verður aflétt samhliða. Það er
eitthvað sem við vitum ekki og
erum að kalla eftir einhverri línu
frá stjórnvöldum með það. Ekki
síst hvað aðgerðir á landamær-
um varðar því það gerist ekkert
fyrr en búið er að aflétta ein-
hverju þar. Svo þurfum við að
horfa til helstu markaðs-
svæðanna okkar líka og þar er
ýmislegt og misjafnt í gangi.“
Fréttir af bóluefnum við Co-
vid-19 hafa haft áhrif á bókunar-
stöðu ferðaþjónustufyrirtækja.
„Við merkjum það alveg að það
er eitthvað að hreyfast í eft-
irspurninni, í fyrirspurnum, bók-
unum og leitum á netinu. Sum-
um fyrirtækjum eru farnar að
berast bókanir svo það er útlit
fyrir að þetta fari nokkuð hratt í
gang þegar aðstæður leyfa.“
Kalla eftir
upplýsingum
SÓTTVARNAAÐGERÐIR