Morgunblaðið - 06.01.2021, Side 2

Morgunblaðið - 06.01.2021, Side 2
Hlýtt hefur verið í veðri á höfuðborgarsvæðinu síðustu daga og það hafa verktakar nýtt sér vel. Fyrir framan hið sögufræga Landssímahús við Austurvöll var unnið að malbikssögun í vikunni en þar eru framkvæmdir við gerð hótelsins Curio by Hilton í fullum gangi. Til stendur að opna hótelið næsta sumar en framkvæmdir hafa tafist nokkuð á liðnum misserum. Guðjón Samúelsson, húsa- meistari ríkisins, teiknaði Landssímahúsið. Morgunblaðið/Árni Sæberg Malbikssögun á blíðviðrisdegi í miðbænum 2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JANÚAR 2021 Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is Amerísk heimilistæki rafvorur.isRAFVÖRUR ehf Þvottavélar og þurrkarar sem taka 10-17 kg Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Skipulagsstofnun telur að umhverf- isáhrif áformaðrar Svartárvirkjunar í Bárðardal verði í heild verulega neikvæð. Gengur álit stofnunarinnar þvert á niðurstöðu umhverfismats ráðgjafa SSB orku sem áformar að virkja. Þeir telja ekki líklegt að Svartárvirkjun hafi umtalsverð um- hverfisáhrif í för með sér. SSB orka áformar að virkja neðri hluta Svartár. Gert er ráð fyrir upp- settu afli um 9,8 MW. Samið hefur verið við HS orku um kaup á orkunni. Mikið verndargildi Skipulagsstofnun bendir á að Svartárvirkjun muni raska votlendi og jarðminjum sem njóta sérstakrar verndar samkvæmt lögum um nátt- úruvernd. Helstu áhrif framkvæmd- arinnar felist þó í áhrifum á vatnafar og lífríki vatnsfalls með mikið vernd- argildi. Auk þess muni virkjunin raska sérstæðu landslagi sem ætla megi að hafi mikið upplifunargildi. Skipulagsstofnun vekur athygli á því að þótt uppsett afl sé undir 10 MW muni virkjunin hafa í för með sér að náttúruverðmæti raskast verulega. Áformin kalla á breytingu á aðal- skipulagi Þingeyjarsveitar en þar hefur ferlið verið í biðstöðu á meðan unnið hefur verið að umhverfismati. Skipulagsstofnun telur niðurstöður umhverfismatsins gefa tilefni til að endurskoða áform um að gera ráð fyrir Svartárvirkjun í aðalskipulagi sveitarfélagsins. helgi@mbl.is Mælt á móti Svartárvirkjun Ljósmynd/Skipulagsstofnun Svartá Ætlunin er að virkja neðri hluta Svartár í Bárðardal. Veronika Steinunn Magnúsdóttir veronika@mbl.is Fjögur nýleg dauðsföll meðal fólks sem farið hefur í bólusetningu við kórónuveirunni hafa skiljanlega vak- ið mikla umræðu, jafnvel ugg, en sérfræðingar eru á einu máli um að engar vísbendingar séu um að þar á milli séu bein tengsl. Öll áhersla hafi verið á að bólusetja viðkvæmasta aldurshópinn, en þar séu dauðsföll ekki ótíð undir hvaða kringumstæð- um sem er. Um 5.000 manns hafa verið bólusett á Íslandi. Ólafur Samúelsson, öldrunar- læknir á hjúkrunarheimilinu Eir í Grafarvogi, bendir á að þegar litið sé til þessa hóps, viðkvæmra einstak- linga yfir áttræðu, alls um 5.000 manns, þá megi að öllu jöfnu heita ólíklegt að þrír láti ekki lífið á einni viku. Gróflega megi áætla að um 10- 15 manns deyi á hjúkrunarheimilum á viku, undir venjulegum kringum- stæðum. „Það sem gerist með bólusetningu er að ónæmiskerfið ræsist og það getur komið svokallað bólgusvar. Þess vegna fá sumir hita og svoköll- uð flensulík einkenni. Það gæti vel verið að fólk með undirliggjandi sjúkdóma, sem er í afar viðkvæmu ástandi, finni fyrir slíku en það er af- ar ólíklegt,“ segir Ólafur í samtali við mbl.is. Ólafur minnir á að á hverju ári sé nákvæmlega sami hópur bólusettur við inflúensu: „Það hefur aldrei sýnt sig að sú bólusetning auki dánarlíkur og það er ólíklegt að bóluefnið við Covid-19 geri það,“ segir hann. Þó þurfi vitaskuld að rannsaka andlátin gaumgæfilega og halda ut- an um upplýsingar um aukaverkanir líkt og Lyfjastofnun hefur gert, og hefur því Embætti landlæknis skip- að starfshóp sem mun kanna tildrög andlátanna sem tilkynnt hefur verið um. „Þegar svona gerist er það skoðað ofan í kjölinn. Ef ég á að segja mína skoðun þá tel ég ekki ástæðu til að hafa áhyggjur af bólusetningunni. En það þarf að skoða þetta því þetta er í tímalegu samhengi,“ segir Ólaf- ur. Engin tengsl bóluefnis og dauðsfalla  Dauðsföll ekki ótíð í elsta og viðkvæmasta hópnum  Um 10-15 deyja á hjúkrunarheimilum í viku hverri  Dauðsföllin fjögur verða rannsökuð gaumgæfilega  Vendilega fylgst með öllum aukaverkunum Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Bólusetning Um 5.000 manns hafa verið bólusett við kórónuveirunni á Ís- landi að svo stöddu, heilbrigðisstarfsfólk og elsti og viðkvæmasti hópurinn. Vísbendingar eru um að líklegra sé að börn smitist af nýjum og bráð- smitandi stofni kórónuveirunnar en af fyrri afbrigðum. Þetta kemur fram í frétt danska blaðsins Børsen í gær þar sem vitnað er til Astrid Iversen, prófessors við Oxford- háskóla. Iversen segir að fram til þessa hafi börn á aldrinum 0-10 ára smitast minna en fullorðnir. Hún segir að þeir yngstu virðist ber- skjaldaðri nú en áður. Áhyggjur prófessorsins lúta ekki að veik- indum barnanna sjálfra heldur því að þau geti aukið smithættu í sam- félaginu. Það geti haft víðtækar af- leiðingar í sambandi við umönnun og skólastarf. „Það er alvarlegt fyr- ir samfélagið ef ekki er hægt að hlúa að yngstu börnunum eða láta þau fara í skóla. Rannsókn á þessu er í forgangi núna,“ segir hún. Óttast að börn smit- ist af nýju afbrigði Vinnumálastofnun barst 141 til- kynning um hópuppsagnir á ný- liðnu ári, þar sem 8.789 manns var sagt upp störfum. Þetta er mesti fjöldi hópuppsagna sem tilkynntur hefur verið til stofnunarinnar á einu ári. Þrjár tilkynningar um hópuppsagnir bárust í desember 2020 þar sem 137 starfsmönnum var sagt upp störfum. Af þeim voru 94 starfsmenn í menningar-, íþrótta- og tómstundastarfsemi, 32 í iðnaði og 11 í flutningastarfsemi. Uppsagnirnar koma allar til fram- kvæmda í apríl. Mesti fjöldi hóp- uppsagna á einu ári

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.