Morgunblaðið - 06.01.2021, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 06.01.2021, Blaðsíða 21
DÆGRADVÖL 21 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JANÚAR 2021 hafðu það notalegt á nýju ári vottun reynsla ára ábyrgð gæði miðstöðvarofnar Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - sími 577 5177 - ofnasmidja.is Eigum úrval af miðstöðvar- og handklæðaofnum Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „ÁTTU EINHVERN FALLEGAN GJAFAPAPPÍR?” Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að blogga um ástina. ÉG VIL FREKAR VERA FEITUR EN GAMALL GRETTIR, HVAÐ HÆKKAR ALLTAF EN MINNKAR ALDREI? LÍKAMS- ÞYNGD MÍN! ALDUR ÞINN! ÉG ELSKA ÞIG ÞRÁTT FYRIR ALLA ÞÍNA GALLA! GALLAR ÞÍNIR SPILLA HELDUR EKKI ÁST MINNI Á ÞÉR! HVAÐA GALLAR? TAKK, ELSKAN BÓKASA FN „EFTIRFARANDI ÞÁTTUR INNIHELDUR KYN LÍFS SENUR, OFBELDI OG GRÓFAN TALSMÁTA – TIL AÐ BÆTA UPP LÉLEGT PLOTT.” KIIISSSSS bræðslu og kristalsteypu hjá Jónasi Braga glerlistamanni 1992-1996. „Ég er enn að bræða gler, er úr mjög stórri fjölskyldu og það hentar vel að búa til glermuni handa fólk- inu mínu. Svo les ég mjög mikið, var að klára Dýralíf eftir Auði Övu, en hún er um tvær ljósmæður og er alveg dásamleg. Ég er hætt að safna bókum en er dugleg að fara á bókasafnið og panta mér nýjustu bækurnar þar.“ Fjölskylda Eiginmaður Svanborgar er Sigfús Ólafsson, f. 30.4. 1944, tón- menntakennari. Þau eru búsett á Selfossi. Foreldrar Sigfúsar voru hjónin Ólafur Jónsson frá Skála undir Eyjafjöllum, f. 10.1. 1918, d. 12.8. 1989, og Elsa Kristín Sigfús- dóttir Elíassonar skálds, f. 22.12. 1924, d. 8.8. 1948. Sonur Svanborgar og Sigfúsar er Guðmundur Rúnar, f. 24.3. 1965, mjólkurtæknifræðingur í Svarta- skógi. Fyrrverandi eiginkona hans er Heidrun Boettcher. Þau eiga þrjú börn en fyrir átti Guðmundur Rúnar son með Halldóru Þorsteins- dóttur. Þau eru Arnar Freyr, f. 18.12. 1992, Helga Valentína, f. 14.5. 2004, Matthías Wilhelm, f. 20.4. 2007, og Sigmar Benjamín, f. 21.4. 2009. Systkini Svanborgar eru Páll Guðni, f. 8.5. 1947, framkvæmda- stjóri, bús. á Selfossi; Guðjón, f. 18.12. 1952, framkvæmdastjóri, bús. á Selfossi; Stefán Ragnar, f. 3.10. 1954, vélstjóri, bús. í Hafnarfirði; Pálmi, f. 14.10. 1956, vélstjóri, bús. á Selfossi; Gunnar, f. 10.11. 1958, framkvæmdastjóri og Suðurpólfari, bús. á Selfossi; Guðríður, f. 3.10. 1960, fagstjóri matvælagreina í Fjölbrautaskóla Suðurlands, bús. á Selfossi, Sigrún, f. 9.4. 1962, kenn- ari, bús. í Svíþjóð, og Sigríður, f. 23.2. 1964, bóndi og húsmóðir á Vatnsleysu í Bláskógabyggð. Foreldrar Svanborgar voru hjón- in Egill Guðjónsson, f. 5.1. 1921, d. 16.2. 1994, bifreiðarstjóri á Selfossi, og Guðrún Pálsdóttir, f. 20.8. 1924, d. 1.3. 1983, húsmóðir á Selfossi. Svanborg Egilsdóttir Guðný Oddsdóttir húsmóðir í Fossnesi Þórarinn Öfjörð Vigfússon bóndi í Fossnesi í Gnúpverjahr., Árn. Vilborg Þórarinsd. Öfjörð húsmóðir á Litlu-Reykjum í Hraungerðishr., Árn. Páll Árnason bóndi á Litlu Reykjum í Hraungerðishr., Árn. Guðrún Pálsdóttir húsmóðir á Selfossi Guðrún Sigurðardóttir húsmóðir á Hurðarbaki Árni Pálsson bóndi á Hurðarbaki í Villingaholtshr., Árn. Sigríður Einarsdóttir húsmóðir í Reynishólum Jón Jónsson bóndi í Reynishólum í Mýrdal Guðríður Jónsdóttir húsmóðir í Berjanesi Guðjón Einarsson bóndi í Berjanesi í V-Landeyjum Guðrún Eyjólfsdóttir húsmóðir í Seljalandsseli Einar Pálsson bóndi í Seljalandsseli undir Eyjafjöllum Úr frændgarði Svanborgar Egilsdóttur Egill Guðjónsson bifreiðarstjóri á Selfossi Gamall vinur minn AuðólfurGunnarsson læknir sendi mér „þessar fátæklegu vísur með bestu kveðju og nýársóskum“ eins og hann orðar það, og segist ekki vita hvort ég muni eftir þessari vísu, sem fór á milli okkar í vísnakeppni, í síma milli MR og MA um vetur. Stundum andaði köldu milli skól- anna í keppnum þeirra í milli: Yfir freðinn, kaldan Kjöl kemur loksins stakan. Það er ekki á öðru völ en að þíða klakann. Auðólfur heldur áfram: „Ég sleit barnsskónum norður í landi og þar bjó faðir minn okkur Pál Pétursson alþingismann á Höllustöðum undir langskólanám. Eyvindarstaðaheiði mun hafa verið Páli kær. Því sendi ég í minningu hans vísu, sem varð til áður en virkjun og lónið komu til sögunnar. Hér er fögur fjallasýn. Flárnar bláar prýða staðinn. Og þau kalla æ til sín óbyggð fjöllin jöklum hlaðin. Enn um Norðurland. Á ferð um Mývatnssveit, þar sem faðir minn og forfeður áttu rætur: Fögur er hin forna sveit, sem fóstraði mína áa. Ótalmargt í einum reit á sér slíka fáa. Flest er forgengilegt. Fölnar gras og foldarskart fellur á einni nóttu. Eins er svo um æði margt, sem eftir mest þeir sóttu. Samferðafólki fækkar óðum og hillir undir ferðalok. Enn er ég fær í flestan sjó og fer því hvergi smeykur, uns mér færir frið og ró ferðalangur bleikur.“ Þetta er gott bréf og ég man vel þegar við kváðumst á mennta- skólanemendur fyrir norðan og sunnan. Sérstaklega man ég eftir einni stöku, sem Kristján Bersi Ólafsson sendi norður: Ég hef ekki ennþá náð mér einhver þrjótur hefur tjáð mér að Halldór sé mestur hagyrðinga í höfuðstað þeirra Norðlendinga. Og nóg um það. Mér finnst fara vel á því að rifja þessa braghendu upp um áramót: Tíminn, lífið, lestir, dyggðir, löður fjara, þraut og heill hjá þjóða skara, það er allt að koma og fara. Gömul vísa að lokum: Ef ég væri orðinn fær að skapa örlög manna hér í heim, hefði ég annan taum á þeim. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Bréf frá góðum vini

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.