Morgunblaðið - 06.01.2021, Blaðsíða 22
22 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JANÚAR 2021
Knattspyrnumarkvörðurinn Ce-
cilía Rán Rúnarsdóttir er í við-
ræðum við enska úrvalsdeildar-
félagið Everton um að ganga til
liðs við félagið, samkvæmt heim-
ildum Morgunblaðsins. Útganga
Breta úr Evrópusambandinu gæti
haft talsverð áhrif á skipti Ceci-
líu til félagsins og því líklegt að
markvörðurinn verði lánaður til
liðs í Skandinavíu á næstu leiktíð.
Þrátt fyrir að vera aðeins 17 ára
gömul hefur Cecilía leikið 30
leiki í efstu deild og einn A-
landsleik.
Cecilía á leið til
Englands
Ljósmynd/Sigfús Gunnar
Markvörður Cecilía Rán virðist
vera eftirsótt erlendis.
Stefán Rafn Sigurmannsson er án
félags eftir að hann rifti samningi
sínum við ungverska handknatt-
leiksfélagið Pick Szeged. Stefán,
sem hefur lítið spilað síðustu mán-
uði vegna meiðsla, er staddur hér á
landi til að ná sér að fullu undir
handleiðslu íslenskra lækna og
sjúkraþjálfara. Stefán hefur orðið
landsmeistari í Þýsklandi, Dan-
mörku, Ungverjalandi og á Íslandi,
en hann er þrítugur vinstri horna-
maður sem er uppalinn hjá Hauk-
um. Stefán hefur farið á fimm stór-
mót með íslenska landsliðinu.
Morgunblaðið/Hari
Á krossgötum Stefán Rafn mun
reyna fyrir sér hjá öðru liði.
Stefán riftir í
Ungverjalandi
FRÉTTASKÝRING
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Karlalandsliðið í handknattleik
mætir Portúgal í kvöld í borginni
Matosinhos í 4. riðli undankeppni
EM 2022 og er þetta annar leikur
Íslands í undankeppninni en sá
þriðji hjá Portúgal.
Íslenski hópurinn ferðaðist til
Portúgal á mánudag og tók ferða-
lagið frá Keflavík um fjórtán
klukkustundir en heldur torsóttara
er að komast um Evrópu með flugi
á tímum kórónuveirunnar en við
höfum átt að venjast á umliðnum
árum. Liðið flaug til Amsterdam í
Hollandi og þaðan til Zürich í Sviss
áður en það komst til Portúgal. Það
má því gera ráð fyrir einhverri
ferðaþreytu hjá íslensku landsliðs-
mönnunum í kvöld en vonandi verð-
ur hún ekki of íþyngjandi því and-
stæðingurinn er öflugur. Portúgal
hafnaði jú í 6. sæti á EM fyrir ári.
„Ferðalagið gekk vel en var langt
því það tók fjórtán tíma. Þetta voru
þrír leggir en reyndar var lítil bið á
milli þess sem við flugum og við
sluppum ágætlega við seinkanir.
Ferðalagið gekk því vel fyrir sig
þrátt fyrir að hafa vera tímafrekt,“
sagði Róbert Geir Gíslason, fram-
kvæmdastjóri HSÍ og fararstjóri,
þegar Morgunblaðið tók púlsinn á
honum í gær.
Hann var þá við störf á hótelher-
bergi sínu og sagði það vera skyn-
samlegast í stöðunni þar sem smit
væru tíð í Portúgal um þessar
mundir. Um fjögur þúsund manns
hefðu smitast í landinu á mánudag.
Allur farangurinn skilaði sér með
landsliðshópnum og því urðu engin
skakkaföll er varða ferðalagið út.
Hópurinn fékk auk þess góðar
fréttir í gær þegar í ljós kom að all-
ir í íslenska hópnum fengu nei-
kvæða niðurstöðu úr kórónuveiru-
prófi og þar með jákvæða fyrir
landsliðið. Ekki er slíkt alveg sjálf-
gefið þegar ferðast er um Evrópu
um þessar mundir. Prófið var fram-
kvæmt um morguninn en hópurinn
fer svo aftur í kórónuveirupróf á
morgun.
Fyllsta öryggis gætt
Spurður um aðbúnaðinn og
skipulagið í kringum leikinn sagði
Róbert að Íslendingarnir hefðu
ekki yfir neinu að kvarta. „Við erum
á mjög fínu hóteli ásamt portú-
galska liðinu og höfum ekki undan
neinu að kvarta. Við erum út af fyr-
ir okkur með eina hæð á hótelinu.
Auk þess eru fundarsalur og mat-
salur á annarri hæð sem við notum.
Við erum á ráðstefnuhóteli og
portúgalski hópurinn notar aðrar
tvær hæðir fyrir sig og sín funda-
höld. Hér er nægt pláss og það virð-
ast ekki vera margir gestir á hót-
elinu fyrir utan þessi tvö
handboltalið sem þurfa tvær hæðir
hvort vegna sóttvarnaráðstafana,“
útskýrði Róbert.
Eins og áður hefur verið nefnt
gengur glíman við veiruna ekki of
vel í Portúgal eins og staðan er
núna. Ekki er þó útgöngubann í
landinu á daginn en slíkt er í gildi
yfir nóttina.
„Staðan er þannig að við megum
fara í göngutúra fimm saman í hóp.
Hér er grímuskylda bæði innan-
dyra og utandyra. Eftir klukkan 23
á kvöldin er útgöngubann og gildir
það til klukkan 5,“ sagði Róbert.
Útlit fyrir einfaldari heimferð
Þegar rætt var við Róbert um
miðjan daginn í gær hafði íslenski
hópurinn ekki séð keppnishöllina.
Til stóð að liðið myndi æfa í höllinni
í gærkvöldi enda er slíkt ekki leyft
fyrr en niðurstöður úr skimuninni
hafa skilað sér. Engir áhorfendur
verða leyfðir á leiknum í kvöld en
fyrir liggur að á HM síðar í mán-
uðinum verður gefið leyfi fyrir því
að selja 20% þeirra sæta sem
keppnishallirnar hafa.
Liðin halda til Íslands á morgun
og munu taka sömu vél til landsins
frá Amsterdam. Þau munu eigast
aftur við í undakeppninni á Ásvöll-
um á sunnudag en eins og fram hef-
ur komið keppa þau í þriðja skipti í
fyrsta leik liðanna á HM í Egypta-
landi.
„Þökk sé Icelandair verður auð-
veldara að komast heim. Við náum
tengingu í Amsterdam á heimleið-
inni vegna þess að Icelandair
breytti tímasetningum. Okkur tekst
þar af leiðandi að ferðast heim á
fimmtudag. Kunnum við þeim bestu
þakkir fyrir og þau gerðu þetta frá-
bærlega. Annars hefðum við þurft
að gista á leiðinni með tilheyrandi
vandræðum sem fylgja þessu ár-
ferði,“ sagði Róbert Geir enn frem-
ur við Morgunblaðið.“
Tveir sigrar hjá Portúgal
Eins og rifjað var upp í blaðinu í
gær gekk Portúgölum betur en Ís-
lendingum þegar upp var staðið á
EM í fyrra en Ísland vann hins veg-
ar leik þjóðanna í keppninni í
Malmö, 28:25. Portúgal hefur unnið
fyrstu tvo leiki sína í undankeppni
EM. 31:22 gegn Ísrael á heimavelli
og 34:26 gegn Litháen á útivelli. Ís-
land hefur leikið gegn Litháen
heima til þessa í undankeppninni og
vann stórsigur, 36:20.
Mun fjórtán
tíma ferðalag
hafa áhrif?
AFP
Foringinn Mikið mun mæða á Guðmundi landsliðsþjálfara á næstunni.
Íslensku landsliðsmennirnir ósmit-
aðir og tilbúnir í slaginn í Portúgal
England
Deildabikar, undanúrslit:
Tottenham – Brentford ........................... 2:0
Holland
B-deild:
Jong PSV – Go Ahead Eagles ................ 2:3
Kristófer Ingi Kristinsson lék fyrstu 81
mínútuna með PSV og skoraði.
Oss – Jong Ajax........................................ 1:0
Kristian Nökkvi Hlynsson var ekki í
leikmannahópi Ajax.
Undankeppni EM 2022 karla
1.riðill:
Serbía – Frakkland .............................. 27:24
6. riðill:
Hvíta-Rússland – Noregur.................. 33:25
Meistaradeild Evrópu
D-riðill:
Nizhny Novgorod –Zaragoza.......frl. 92:98
Tryggvi Snær Hlinason skoraði 10 stig,
tók 3 fráköst og gaf 1 stoðsendingu á 15
mínútum hjá Zaragoza.
Staðan: Zaragoza 9, Novgorod 8, KC-
Szombathely 6, Start Lublin 4.
Litháen
Bikarkeppni
16-liða úrslit, seinni leikur:
Siaulai – Alytaus Dzukija ................. 101:74
Elvar Már Friðriksson skoraði 27 stig,
gaf 9 stoðsendingar og tók 1 frákast á 27
mínútum hjá Siaulai.
Siaulai áfram 172:170 samanlagt.
NBA-deildin
Orlando – Cleveland........................... 103:83
Philadelphia – Charlotte.................. 118:101
Atlanta – New York ......................... 108:113
Miami – Oklahoma ............................. 118:90
Toronto – Boston.............................. 114:126
Houston – Dallas .............................. 100:113
Milwaukee – Detroit ........................ 125:115
New Orleans – Indiana .................... 116:118
Golden State – Sacramento ............. 137:106
Sonný Lára Þrá-
insdóttir, lands-
liðsmarkvörður í
fótbolta, hefur
lagt markvarðar-
hanskana á hill-
una eftir langan
og farsælan feril.
Sonný lék 197
leiki í efstu deild
á ferlinum og er
á meðal leikja-
hæstu leikmanna deildarinnar frá
upphafi. Þá lék hún sjö A-
landsleiki. Sonný er uppalin hjá
Fjölni og lék með liðinu frá 2002 til
2013 að undanskildu einu ári hjá
Haukum 2010. Varð hún þrisvar Ís-
landsmeistari með Breiðabliki og
tvisvar bikarmeistari og var fyr-
irliði liðsins. Sonný fékk aðeins þrjú
mörk á sig í 15 leikjum í deildinni
síðasta sumar.
„Ég hef tekið þá ákvörðun að
þetta sé komið gott hjá mér og ég
ætla að snúa mér að einhverju öðru.
Ég er orðin 34 ára og þetta hefur
verið frábær tími hjá Breiðabliki,“
sagði Sonný við Morgunblaðið, en
hún hefði að öllum líkindum verið í
landsliðshópnum á EM á Englandi á
þessu ári, en mótinu var frestað um
eitt ár vegna kórónuveirunnar og
það setti strik í reikninginn. „Það
spilar inn í að EM hafi verið frestað.
Ég hefði örugglega tekið eitt tíma-
bil í viðbót ef EM hefði verið á
þessu ári,“ sagði hún, en hún lauk
þó ferlinum á jákvæðum mótum, en
Breiðablik varð Íslandsmeistari eft-
ir harða keppni við Val síðasta sum-
ar.
„Að enda þetta sem Íslandsmeist-
ari var geggjað. Ég hefði viljað
verða tvöfaldur meistari, en því
miður var það ekki hægt þar sem
hætt var við bikarinn. Það er hins
vegar gott að hætta eftir gott tíma-
bil og hætta þegar maður gat eitt-
hvað enn þá,“ sagði Sonný Lára
Þráinsdóttir.
Sonný Lára
Þráinsdóttir
Sonný leggur
hanskana á
hilluna
Tottenham er einu skrefi frá fyrsta
bikar félagsins frá árinu 2008 eftir 2:0-
sigur á heimavelli gegn Brentford í
undanúrslitum enska deildabikarsins í
fótbolta í gærkvöldi. José Mourinho
stillti upp sínu sterkasta Tottenham-
liði og það reyndist of stór biti fyrir
Brentford, sem er í fjórða sæti B-
deildarinnar.
Moussa Sissoko kom Tottenham yf-
ir á 12. mínútu og var staðan í hálfleik
1:0. Heung-Min Son tvöfaldaði forskot
Tottenham á 70. mínútu og tryggði lið-
inu sigurinn í leiðinni. Josh Da Silva
fékk beint rautt spjald á 84. mínútu hjá
Brentford og voru lokamínúturnar
formsatriði fyrir Tottenham.
Í úrslitum mætir Lundúnaliðið ann-
aðhvort Manchester United eða Man-
chester City en þau eigast við í kvöld
klukkan 19:45 á Old Trafford. Er
venjulega leikið heima og að heiman á
þessu stigi keppninnar en vegna
kórónuveirunnar verður aðeins einn
leikur í hvoru einvígi í undanúrslitum í
ár.
Skrefi nær fyrsta
bikarnum í 13 ár
AFP
Mark Heung-Min Son skorar annað mark Tottenham í gærkvöldi.