Morgunblaðið - 09.01.2021, Blaðsíða 2
Litir Viðvaranir klukkan 12 í dag.
Gul og appelsínugul veðurviðvörun
tók gildi á stórum hluta landsins í
nótt og árdegis í dag, þar sem vind-
hviður geta farið í 45 m/s og ekkert
veður verður til ferðalaga.
Viðvörunin verður appelsínugul á
Norðurlandi eystra, Austurlandi,
Austfjörðum, Suðausturlandi og
miðhálendi, en gul á Ströndum og
Norðurlandi vestra.
Verst verður veðrið á austurhluta
landsins en appelsínugular viðvaran-
ir áttu að taka þar gildi í nótt og gilda
fram til síðdegis í dag. Þar verður
snjókoma, skafrenningur og stórhríð
á köflum.
Nauðsynlegt er að tryggja lausa-
muni til að forðast foktjón, þar sem
fjúkandi brak getur verið hættulegt.
Ekkert ferðaveður verður, að því er
segir á vef Veðurstofunnar.
Draga fer úr vindi síðdegis í dag
að nýju en frost verður á bilinu 3 til
12 gráður.
Hlé verður af þessum sökum gert
á hreinsunarstarfi á Seyðisfirði um
helgina en veðurspá þar er slæm og
búist er við norðvestan 20-28 m/s
með snjókomu og skafrenningi og
stórhríð á köflum.
Ofsaveður á
Austurlandi
Vara við skafrenningi og stórhríð á
köflum Ekkert ferðaveður verður
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. JANÚAR 2021
STYRKUR -HAGKVÆMNI -HÖNNUN
Landshús - Sími 553 1550 - landshus.is
EFLA verkfræðistofa sér um tæknilega hönnun á öllum húsunum okkar.
- Öll hönnun á burðarvirki, festingumog efnisval er skv. íslenskri byggingarlöggjöf.
KLETTAR SUMARHÚS Viltu lækkabyggingar-
kostnað?
Klettar sumarhús eru útfærð í einingakerfi
Landshúsa. Einingakerfið okkar hefur undanfarin ár fengið afar góðar
viðtökur og hafa húsin okkar risið um allt landmeð góðum árangri.
Markmið okkar er að bjóða upp á lausn sem
gerir fólki kleift að byggja traust hús á
einfaldan og hagkvæman hátt.
Verð frá kr. 8.373.120.
-
65 fmgrunnhús + 35 fm
svefnloft.
Val á gluggum:
Timbur
Ál/timbur
PVC
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
unarstarfs sem nú stendur yfir.
Verkið allt miðast við tímalínu sem
gildir fram í miðjan mars, en ætla
má að ýmsu verði ólokið þá.
Áfram er í gildi hættustig al-
mannavarna á Seyðisfirði.
„Ég dáist að þrautseigju“
„Mikilvægasta verkefnið núna er
að ná utan um íbúana, tryggja vel-
ferð þeirra,“ segir Lilja Alfreðs-
dóttir, mennta- og menningar-
málaráðherra, sem kynnti sér stöðu
mála á Seyðisfirði í vikunni. Hún var
eystra með fulltrúum Minjastofn-
unar Íslands og Margréti Hall-
grímsdóttur þjóðminjaverði sem
meðal annars kynntu sér stöðuna í
Tækniminjasafni Austurlands. Fjór-
ar byggingar þess tók af í flóðunum
og segir ráðherrann afar mikilvægt
að endurreisa safnið. Þar hafi verið
varðveittir munir og minjar sem
vitni um það mikilvæga hlutverk
sem Seyðisfjörður hafi haft, meðal
annars sem tengipunktur Íslands við
umheiminn.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Hreinsunarstarfið gengur ágæt-
lega, en verkefnið er risavaxið svo
nokkur tími mun líða uns afrakstur
fer að sjást,“ segir Vilhjálmur Jóns-
son á Seyðisfirði og bæjarfulltrúi í
Múlaþingi.
Á vef sveitarfélagsins hefur verið
birt áætlun og tímalína þess mikla
verkefnis sem er hreinsun eftir
skriðurnar sem féllu á Seyðisfirði 18.
desember sl. Vegurinn sem aurflóðið
féll yfir hefur nú verið opnaður að
nýju, svo aftur er orðið fært að
frystihúsi Síldarvinnslunnar og út að
Hánefsstöðum. Sumir dagar
hreinsunarstarfsins verða aðeins
fárra daga verk, en stærstu og tíma-
frekustu þættirnir eru hreinsun
skipasmíðastöðvanna tveggja og svo
á húsi Tækniminjasafnsins. Það því
sem næst eyðilagðist og fjöldi muna
þar fór í svelginn. Reyna á að bjarga
því sem bjargað verður – sem raun-
ar er leiðarljós alls þess björg-
„Ég dáist mjög að þrautseigju
Seyðfirðinga, sem ætla að halda
áfram. Innan ríkisstjórnarinnar er
full samstaða um stuðning við upp-
byggingu í bænum. Í mennta-
málaráðuneytinu ætlum við bæði að
styðja við endurreisn Tækniminja-
safnsins og þá öflugu liststarfsemi
sem verið hefur í bænum. Að koma
austur hafði mikil áhrif á mig, svo
sem að tala við börnin og starfsfólk
skólanna. Starf þeirra þarf stuðning
og raunar mörg fleiri verkefni – og
enginn þarf að efast um að Seyð-
isfjörður verði endurreistur,“ segir
Lilja Alfreðsdóttir.
Landað við Strandarbakka
Á fimmtudag var landað úr togar-
anum Gullveri NS á Seyðisfirði. Afli
var 65 tonn, mest þorskur og ýsa.
Vegna hamfaranna var ekki landað
úr skipinu við frystihúsið heldur við
Strandarbakka. Ekki hefur áður
verið landað fiski þar, það er við
bryggjuna þar sem ferjan Norræna
er afgreidd öllu jafna.
Mikilvægast er núna að
tryggja velferð íbúanna
Hreinsun á Seyðisfirði komin á fullt Fólk ætlar að halda áfram
Ljósmynd/Margrét Hallgrímsdóttir
Seyðisfjörður Staðan könnuð við Tækniminjasafn Austurlands en hús þess skemmdust og munir fóru í svelginn.
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Fríhöfnin á Keflavíkurflugvelli situr
uppi með tæplega ársbirgðir af plast-
pokum sem viðskiptavinir verslunar-
innar í komusal flugstöðvarinnar hafa
nýtt undir sælgæti, áfengi og annan
tollfrjálsan varning sem þar má
kaupa. Samkvæmt upplýsingum frá
fríhöfninni má gera ráð fyrir að
birgðirnar samanstandi af 600 til 800
þúsund pokum.
„Það hefur verið hagkvæmast fyrir
Fríhöfnina til þessa að láta framleiða
sem nemur 18-24 mánaða birgðum af
sérmerktum plastpokum. Vegna kór-
ónuveirufaraldursins dróst fjöldi við-
skiptavina fríhafnarinnar mikið og
skyndilega saman í mars í fyrra.
Vegna þess átti fríhöfnin um áramót
tæplega ársbirgðir af plastburð-
arpokum,“ segir í svari frá fyrir-
tækinu, sem er dótturfyrirtæki
Isavia.
Ólögleg vara
Birgðastaðan væri í sjálfu sér ekki
áhyggjuefni vegna þess að ráð er gert
fyrir því að flugumferð og fólksflutn-
ingar milli landa muni taka aftur við
sér.
Hins vegar hefur ný löggjöf sem
Guðmundur Ingi Guðbrandsson um-
hverfisráðherra lagði fyrir þingið og
fékk samþykkta lagt bann við notkun
plastpoka frá og með nýliðnum ára-
mótum. Situr fríhöfnin því uppi með
ólöglega vöru sem engin not eru fyrir.
Í lögunum var ekkert sólarlags-
ákvæði að finna sem tryggði versl-
unum heimild til þess að losa um
fyrirliggjandi birgðir þótt ný innkaup
á hinum skaðlegu pokum væru ekki
heimil.
Bræddir í plastkúlur
Heimildir Morgunblaðsins herma
að slíkur vandi hafi skapast vegna
hinna gríðarlegu plastpokabirgða frí-
hafnarinnar að málið hafi ratað inn á
stjórnarborð Isavia. Að lokum hafi
því þó verið komið í farveg og nú hef-
ur fríhöfnin náð samningi við Pure
North Recycling í Hveragerði um að
taka plastpokana alræmdu til endur-
vinnslu.
Verða pokarnir fluttir þangað í
næstu viku og bræddir í litlar plast-
kúlur. Verður sú plastafurð aftur seld
áfram til einhverra kaupenda sem
framleiða aðrar plastvörur úr kúl-
unum.
Áslaug Hulda Jónsdóttir hjá PNR
staðfestir að samningur sé kominn á
og að hann feli í sér óverulegan
kostnað fyrir fríhöfnina.
„Þetta er hágæðaplast og alveg
hreint. Við getum því rennt þessu
beint í gegnum tækin okkar án þess
að það þurfi að þrífa það. Við höfum
ekki nákvæma mynd af því hvað
þetta er mikið magn en sennilega
ljúkum við við að endurvinna þetta á
innan við viku.“
Bendir Áslaug Hulda á að þetta sé
farsæl lausn á endalokum plastpok-
anna. Umhverfisvænna sé að finna
þeim framhaldslíf með tækni PNR en
að senda þá í brennslu eða til urð-
unar.
„Það er vont þegar það er ekki
hægt að fylgjast með því hvar plastið
endar. En maður spyr sig hvar verið
er að koma ónotuðum plastpokum
fyrir. Það má gera ráð fyrir því að
mikið magn liggi óendurunnið og ég
vona að það fari í besta mögulegan
farveg. Fríhöfnin hefur sýnt frum-
kvæði með því að koma plastpok-
unum í besta mögulega farveg og þeir
munu enda sem umhverfisvænustu
fyrrverandi plastpokar í heimi.“
Ónotaðir plastpokar í endurvinnslu
Fríhöfnin á Keflavíkurflugvelli situr uppi með allt að 800 þúsund ónotaða plastpoka Mega ekki
selja pokana Sendir til endurvinnslu í Hveragerði í næstu viku Verður breytt í aðrar plastvörur
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Veröld sem var Plastpokar verða fátíð sjón í Keflavík þegar flugið tekur
við sér aftur og þá helst í höndum þeirra sem margnýta gamla poka.