Morgunblaðið - 09.01.2021, Page 29

Morgunblaðið - 09.01.2021, Page 29
MINNINGAR 29 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. JANÚAR 2021 ✝ Haukur Magn-ús Arinbjarn- arson fæddist í Borgarnesi 25. des- ember 1933. Hann lést 28. desember 2020 á sjúkrahúsinu á Akranesi. For- eldrar hans voru Arinbjörn Magn- ússon, f. 16. sept- ember 1897, d. 22. desember 1978, og Guðný Guðnadóttir, f. 9. janúar 1905, d. 6. desember 1992. Systir Hauks er Ásdís, f. 27. september 1936. Hinn 25. desember 1961 giftist Haukur eftirlifandi eiginkonu sinni Ragnheiði Hrönn Brynjúlfs- dóttur frá Brúarlandi á Mýrum, f. 2. ágúst 1939. Ragnheiður er dóttir hjónanna Brynjúlfs Eiríks- ember 2006, Kristján Einar, f. 17. desember 2009, og Alexander, f. 29. ágúst 2016. 4) Einar Bragi, f. 6. janúar 1983, maki Jóhanna Guðmundsdóttir, f. 2. febrúar 1982. Börn þeirra eru Brynja Karen, f. 27. maí 2012, og Hafdís Birna, f. 20. mars 2015. Haukur lauk sveinsprófi í raf- virkjun frá Iðnskólanum í Reykjavík 1957 og meistaraprófi frá Vélskóla Íslands 1960. Hann stofnaði og starfaði hjá Rafbliki sf. í Borgarnesi ásamt félaga sín- um 1959-1962, hjá Bifreiða- og trésmiðju Borgarness 1962-1970 og stofnaði Sandvík hf. 1970 þar sem hann starfaði sem rafverk- taki allt fram til desember 1995 þegar hann lét af störfum eftir al- varlegt heilablóðfall. Útför Hauks fer fram frá Borgarneskirkju í dag, 9. janúar 2021, kl. 14 en vegna sótt- varnareglna verður hún einungis fyrir nánustu aðstandendur. Út- förinni verður streymt: https://tinyurl.com/y2jvbluu Virkan hlekk á slóð má finna á: https://www.mbl.is/andlat sonar, f. 21. desem- ber 1910, d. 12. jan- úar 1976, og Halldóru Guð- brandsdóttur, f. 15. maí 1911, d. 7. des- ember 2000. Börn Hauks og Ragnheiðar eru: 1) Halldór, f. 12. júlí 1962, maki Hanna Dóra Sturludóttir, f. 31. maí 1968. Sonur Halldórs er Hörður Kári, f. 5. desember 2003, og synir Hönnu Dóru eru Símon Konrad, f. 7. janúar 2006, og Gústaf Eiríkur, f. 26. janúar 2008. 2) Brynja, f. 10. maí 1964. 3) Arinbjörn, f. 5. desember 1966, maki Jocelyn Cabaluna Adlawan, f. 6. október 1984. Börn þeirra eru Haukur Mikael, f. 10. sept- Pabbi og mamma byrjuðu að búa í kjallaranum hjá afa og ömmu við Gunnlaugsgötu í Borg- arnesi. Þetta var gott umhverfi að alast upp í og klettarnir og fjaran skammt undan. Árið 1974 fluttum við í nýbyggt einbýlishús við Kveldúlfsgötu sem þau lögðu ómælda vinnu í, ræktuðu stóran garð, reistu gróðurhús og innan fárra ára var þetta nýja umhverfi orðið að grónum stað. Heil ball- hljómsveit fékk að leggja undir sig bílskúrinn í nokkur ár, sem er beint undir hjónaherberginu, en því var sýnt einstakt umburðar- lyndi. Allir höfðu nóg pláss og fjórða systkinið bættist við. Pabbi var vandvirkur maður og leiðbeindi okkur þannig til verka. Þessi eiginleiki gat reynt á þolin- mæðina en áhugi hans og virðing fyrir viðfangsefninu bætti það upp og gerði verkið skemmtilegt. Hann var eftirsóttur rafverktaki, frágangur á verkum hans þótti góður og honum hélst vel á mann- skap. Laxveiðar voru hans aðal- áhugamál, bæði með félögum og fjölskyldunni. Á árunum 1968-74 leigði hann ásamt félögum sínum Haukadalsá efri og slepptu þeir árlega gönguseiðum. Þar átti fjöl- skyldan góðar stundir saman í nokkrum veiðitúrum á hverju sumri. Sumir fengu sinn fyrsta lax og nóg var af bleikju. Fyrsta árið var dvalist í tjöldum en síðan var reist lítið veiðihús handan lækjar- ins við Eiríksstaði. Eftir alvarlegt heilablóðfall í desember 1995 breyttist líf pabba og mömmu mjög mikið. Hann dvaldi á Reykjalundi í 10 mánuði og fékk endurhæfingu með góðum árangri. Hann var alveg mállaus í fyrstu og lærði að tala og skrifa upp á nýtt, var óþreytandi að þjálfa sig og sögðu sumir að þrjóskan ynni þar með honum. Pabbi hafði alltaf verið handlag- inn en nú var hægri höndin alveg lömuð. Hann náði góðri færni með þeirri vinstri og góðu valdi á skrift. Hann gat ekki lengur unnið en gat farið í stutta göngutúra með hækju og keyrt bíl. Allra seinustu árin var hann að mestu bundinn við hjólastól. Því er ekki að neita að sá pabbi sem við þekktum áður en hann fékk heilablóðfall kom aldrei alveg til baka þau dýrmætu 25 ár sem hann lifði eftir það. En yfirvegun hans og viljastyrkur var í stíl við þann mann sem við þekktum. Hann kvartaði aldrei og sagði eitt sinn: „Ég hef ekki yfir neinu að kvarta. Ég hef fengið tækifæri í lífinu og sá á Reykjalundi ungt fólk sem fékk ekki tækifæri. Mér finnst bara leiðinlegt að geta ekki talað almennilega.“ Hann virtist heldur ekki æðrast og sagði eitt sinn: „Af hverju ekki ég eins og hver annar, að missa heilsuna?“ Þegar hann gat ekki eitthvað vegna fötlunar sinnar sagði hann: „Hvað gerir það til?“ Pabbi bjó heima til dánardags, sem er auð- vitað umönnun mömmu að þakka. Pabbi og mamma höfðu yndi af að dansa og tóku þátt í hópi sem hittist reglulega og dansaði gömlu dansana og suðurameríska dansa. Eftir að pabbi veiktist lagðist þátttakan af en ef þau fóru á mannamót þar sem var dansað fóru þau alltaf út á gólfið og tví- stigu rólega í takt við tónlistina, svo sem eins og einn dans. Takk fyrir allt elsku pabbi. Halldór, Brynja, Arinbjörn og Einar. Við andlát Hauks móðurbróður okkar rifjast upp margar góðar minningar frá ótal ferðum okkar í Borgarnes í gegnum árin. Margar af okkar bestu bernskuminning- um tengjast Gunnlaugsgötu 5, þar sem amma og afi bjuggu á efri hæðinni og Haukur og Ragga með börnum sínum á neðri hæðinni. Mikill samgangur var á milli hæða og sóttumst við systkinin mjög eftir því að fá að dvelja þar sem oftast, því alltaf voru móttökurnar einstakar og mikið líf og fjör í hús- inu. Minnisstæðar eru allar ferðirn- ar sem Haukur bauð okkur að koma með í, hvort sem var að Brú- arlandi í berjamó, upp í Kolás eða hinar ógleymanlegu Lionsferðir á Akrafjöru. Haukur tók mikið af myndum og þótti okkur alltaf mjög gaman að slides-myndasýn- ingunum þar sem rifjaðar voru upp skemmtilegar minningar. Síðar fluttu þau á Kveldúlfsgöt- una þar sem þau bjuggu sér fal- legt heimili og lögðu mikla rækt við garðinn sem er einstaklega fal- legur og vel við haldið. Miklar breytingar urðu á þeirra högum þegar Haukur fékk heilablóðfall 1995. Fjölskyldan stóð þétt við bakið á honum og með góðum stuðningi Röggu og krakkanna gat hann bú- ið heima alla tíð sem var ómetan- legt fyrir alla. Þótt Haukur gæti ekki tekið beinan þátt í umræðum fylgdist hann vel með og var vakandi yfir því sem fór fram og gat hann oft fyllt í eyðurnar ef á þurfti að halda í samræðunum, því hann var vel minnugur. Þau systkinin mamma og Haukur voru alla tíð mjög náin og var það mömmu mjög dýrmætt að geta verið til staðar þegar á þurfti að halda, hvort sem það var á Kveldúlfsgötunni eða á hennar heimili í Reykjavík. Elsku Ragga, Halldór, Brynja, Ari, Einar og fjölskyldur, við sendum ykkur innilegar samúðar- kveðjur um leið og við þökkum okkar kæra frænda fyrir sam- fylgdina. Nú bljúg við þökkum alla alúð þína, og umhyggju er jafnan kom frá þér. Nú sjálfur drottinn annist öndu þína og inn þig leiði í dýrðarvist hjá sér. (Jónína Þ. Magnúsdóttir) Birna, Pétur og Bryndís. Kynni af Hauki Arinbjarnar- syni mági okkar spanna orðið nærri heila mannsævi frá því hann kom inn í Brúarlandsfjöl- skylduna er hann og Ragga systir okkar fóru að draga sig saman. Haukur var prúðmenni og vel gefinn til munns og handa, kom- inn af gæðafólki í Borgarnesi, ættuðu vestan af Mýrum, og vann sér fljótt traust allra í fjölskyld- unni. Hann lærði raf- og rafvéla- virkjun og var á þessum tíma að hasla sér völl sem rafvirki og vann m.a. við uppgerð rafmótora og skylda hluti, en þetta var á þeim tíma sem slíkum hlutum var hald- ið við. Haukur var góður fagmað- ur, skipulagður í allri vinnu og átti gott með að sjá við upphaf verks hvernig það myndi líta út fullgert. Verkin hans Hauks litu vel út og það var sammerkt með þeim að þau áttu sér endapunkt, þau klár- uðust, af þeirri nákvæmni og snyrtimennsku sem einkenndu meistarann. Það hefur verið haft á orði að til þess að vera viss hvort Haukur hafi lagt í tiltekið hús eða ekki sé nægilegt að opna raf- magnstöfluna. Hann var annálað snyrtimenni og oftar en ekki þegar hefja skyldi raflagnavinnu og mikið rusl var fyrir eftir aðra iðnaðarmenn tók Haukur sér kúst í hönd áður en hann hóf sitt verk og var þannig fyrirmynd annarra í umgengni á verkstað. Hann var bæði ákveðinn og hrein- skilinn og ef á þurfti að halda gat hann svarað fyrir sig þannig að vel skildist. Um árabil tók Hauk- ur þátt í félagsmálum, svo sem í Umf. Skallagrími, Lions og Iðn- aðarmannafélagi Borgarness, hvar hann var í stjórn um árabil. Þá sat hann í stjórn KBB og var eitt kjörtímabil 1. varamaður B- listans í hreppsnefnd. Í tómstund- um fór hann stundum á veiðar og hafði um tíma, ásamt vinafólki, Haukadalsá efri í Dölum á leigu. Árið 1995 varð honum óvænt kippt út úr daglegum athöfnum, en þar var að verki blóðtappi sem olli málstoli og lömun öðrum meg- in líkamans. Að lokinni sjúkra- húsdvöl tók við ströng þjálfun og komu þá persónueiginleikar hans, þolinmæði og þrautseigja vel í ljós og árangur varð talsverður, m.a. fór hann að geta gengið við hækju og náði að ákveðnu marki að mynda orð og setningar. Haukur var góður bílstjóri og við heim- komu af sjúkrahúsinu, þá farþegi í bíl, sem var óvenjulegt, reyndi hann með erfiðismunum að segja bílstjóranum til þegar beygt var heim að Kveldúlfsgötu 2a. Hugs- unin var skýr en erfiðleikum háð að meitla hana í orð. Síðar gat Haukur farið að keyra sjálfur, sem var þó aðallega innanbæjar. Að lenda í áfalli sem þessu reynir verulega á en Haukur sætti sig furðu vel við örlög sín. Hafa verð- ur þó í huga að hann var dulur á eigin tilfinningar og að tala um sjálfan sig var honum alla tíð fjar- lægt en saman tókust þau Ragga á við þetta og náðu því besta út úr aðstæðum. Til dæmis náðu þau að ferðast talsvert, aðallega þó inn- anlands, og gátu haldið saman heimili á Kveldúlfsgötunni alla tíð. Heimili þeirra stóð stórfjöl- skyldunni ævinlega opið og marg- ar samverustundir höfum við átt þar í áranna rás. Við kveðjum mág okkar með virðingu og þökk í huga og vottum Röggu og að- standendum öllum djúpa samúð. Helga, Ólöf, Guðbrandur og Guðmundur Þór Brynjúlfsbörn. „Þannig líður tíminn,“ var sagt og tíminn líður áfram. „Þetta er ekki búið,“ eins og sagt er nú um stundir. Minningarnar um Hauk lifa áfram, okkur svo hlýjar og kærar. Aftur um áratugi, við þátttöku í Félagi iðnaðarmanna, veiðiferðir í Dalina, sáust þar fiskar og ilmur frá blómum náttúrunnar á slóðum forfeðranna. Tíminn líður og ný öld komin og þá hefjast ný ævintýri okkar. Fjarkinn ferðast saman nánast um allt land. Farið um vegi og stundum ekki vegi, um Kaldadal, Kjalveg, Kjaransbraut, hringveg- inn og jarðgöng í Héðinsfjörð og fleiri og fleiri. Alltaf var Haukur viss um örnefni staðanna sem við fórum hjá enda búinn að lesa sér vel til. Margs er að minnast. Við Dýrafjörð, hjá Seftjörninni í Haukadal, var opnuð Gíslasaga Súrssonar, 1.000 ára, og bæði Sef- tjörnin og sagan lifir áfram eins og Einhamar, en þar féll Gísli. Úr Keldudal er Kjaransbraut hjá Hrafnhólum yfir í Svalvoga til Lokinhamra. Eitt sinn kaffi við Hótel Jötnagil, dvalið á Hala, komið í vöfflukaffi í Sænautasel, gist í Ábót (avant!) á Ströndum, horft til Skreflufjalls og Urðartinds. Við Borgarfjörð eystri skoðaður Hafnarhólminn, lundaheimurinn með sínum ótal tröppum, og lét Haukur sig hafa það að ganga upp alla leið á útsýnispallinn. Þar blöstu við okkur Dyrfjöllin öfug- um megin frá Héraði séð. Við munum líka eftir því að kíkja ofan í Kolugljúfur í Víðidal og stíga upp í báta við Grandavör á Njáluslóðum. Uppi á Bolafjalli var fagnað afmæli í dandalablíðu þar sem Jökulfirðir blöstu við okkur, ferðast um í Hrísey í hey- vagni og gengið um kríuvarp í Vigur. Þannig mætti halda áfram allan hringinn. Í öllum þessum vikuferðum var rík áhersla á að fræðast og hafa gaman. Við settum okkur það að hafa alltaf gott að borða að kveldi og eitt kvöldið voru sumarjól, með hangikjöti og öllu tilheyrandi. Þá lauk oft deginum með smá kvöld- sögu. Að síðustu mátti ekki gleyma að hafa berjatínurnar með enda mikið áhugafólk um að tína ber og komum við oft með mikið af þeim heim. Á meðan við þrjú hlupum um móa og tíndum í föturnar sat Haukur hinn rólegasti í bílnum og hlustaði á útvarpið eða las í ferða- bókunum okkar. Á Kveldúlfsgötuna komum við mjög oft og var alltaf vel tekið á móti okkur. Haukur og Ragga voru svo samstiga og er barna- börnin komu eða um þau var rætt ljómaði Haukur enda áttu þau ljúfan stað í hjarta hans. Brosið hans var svo blítt við því sem er, geymt sem ekki er. „Þeir eru ríkir sem eiga vini.“ Enginn er eilífur en kær vinur okkar hann Haukur er kvaddur hér í dag og fylgir því mikill sökn- uður. Fjölskyldu Hauks, Röggu, Halldóri, Brynju, Arinbirni, Ein- ari Braga og fjölskyldum, vottum við okkar dýpstu samúð. Blessuð sé minning okkar góða vinar, Hauks Magnúsar Arinbjarnar- sonar. Ferðafélagarnir, Heimir og Olga. Haukur Magnús Arinbjarnarson Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN Útfararþjónusta í yfir 70 ár Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, MARGRÉT ÓLAFSDÓTTIR, lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð fimmtudaginn 24. desember. Útförin fór fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Ari Ólafsson Karítas Ólafsdóttir Björg Elín Ólafsdóttir Smidt barnabörn og barnabarnabörn Faðir minn, sonur, bróðir og mágur, KRISTINN ÓLAFUR KRISTINSSON líffræðingur, Fellabrekku 19, Grundarfirði, varð bráðkvaddur að morgni miðvikudagsins 30. desember. Útförin fer fram mánudaginn 11. janúar klukkan 13 frá Fossvogskirkju. Vegna samkomutakmarkana verða aðeins nánasta fjölskylda og vinir viðstödd útförina. Hægt verður að fylgjast með streymi af athöfninni á YouTube á slóðinni utfor-kristins-olafs.is Skúli Jón Árdís Sveinsdóttir Kjartan Gunnarsson Sigrún Kristinsdóttir Bjarki Sveinbjörnsson Valdís Kjartansdóttir Bragi Karlsson Gunnhildur Kjartansdóttir Ólafur Erlendsson Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, KRISTÍN GUÐMUNDSDÓTTIR, síðast til heimilis að Sólheimum 23 í Reykjavík, lést á Hrafnistu að kvöldi jóladags. Útförin fer fram frá Lágafellskirkju föstudaginn 15. janúar klukkan 13. Vegna fjöldatakmarkana verður einungis nánasta fjölskylda viðstödd útförina en henni verður streymt á https://youtu.be/aD-mBbe6bnA Guðmundur Þ. Halldórsson Helga Herbertsdóttir Guðrún Halldórsdóttir Smári Einarsson Gróa Halldórsdóttir Ragnheiður Halldórsdóttir Haraldur E. Jónsson Ómar Halldórsson og fjölskyldur Elsku eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ANNA GUÐLAUG ÞORSTEINSDÓTTIR frá Reykholti, Fáskrúðsfirði, til heimilis að Frostafold 14, Reykjavík, lést í faðmi fjölskyldunnar á heimili sínu fimmtudaginn 31. desember. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju miðvikudaginn 13. janúar klukkan 13. Vegna fjöldatakmarkana verður útförinni streymt á utfor-anna.is Ólafur Kristinsson Kristinn Ólafsson Cecilie B. Björgvinsdóttir Þorsteinn Ólafsson Lise M. Kaspersen Aðalbjörg Íris Ólafsdóttir Eiríkur Ingvarsson Brynjar Ólafsson Melanie Davíðsdóttir Örvar Omrí Ólafsson Kolbrún Kjartansdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.