Morgunblaðið - 09.01.2021, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. JANÚAR 2021
DIMMALIMM
Laugavegi 53 | Sími 552 3737 | Opið mán.-fös. 10-18, lau. 10-17
dimmalimmreykjavik.is
DimmalimmReykjavik
30%
50%
afsláttur
til
ÚTSALAN
ER HAFIN!
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
„Sorpvísitalalan“ lækkaði í fyrra ef
miðað er við heildarmagn úrgangs
sem barst til Sorpu bs. Áætlað er að
byggðasamlaginu
hafi borist um 207
þúsund tonn af úr-
gangi á nýliðnu
ári, en endanlegar
tölur liggja ekki
fyrir. Árið 2019
var magnið ríflega
225 þúsund tonn
og er samdrátt-
urinn á milli ára
tæp 11%. Metárið
í þessu samhengi
er 2018, en þá bárust Sorpu um 263
þúsund tonn af úrgangi og frá og með
2014 jókst sorpmagnið ár frá ári til
2019.
Samkvæmt upplýsingum frá Gunn-
ari Dofra Ólafssyni, sérfræðingi hjá
Sorpu í samskiptum og samfélags-
virkni, minnkaði magn þess úrgangs
sem skilað var til urðunar í Álfsnesi
samkvæmt bráðabirgðatölum, fór úr
131 þúsund tonnum 2019 í 105.000
tonn í fyrra. Í móttöku- og flokkunar-
stöðinni í Gufunesi stendur magnið af
blönduðum úrgangi frá sorphirðu
sveitarfélaga nokkurn veginn í stað
milli ára. Um 16% samdráttur varð
hins vegar í magni úrgangs sem skilað
var frá rekstraraðilum í móttöku- og
flokkunarstöðina. Síðustu mánuði árs-
ins varð þó aukning í þessum þætti
starfseminnar.
Magn úrgangs á endurvinnslu-
stöðvum jókst um nálægt 10%, en
endanlegar tölur liggja ekki fyrir.
Heimsóknum á endurvinnslustöðvar
fjölgaði sömuleiðis um tæplega 10%
og fóru 976 þúsund ökutæki við-
skiptavina um endurvinnslustöðv-
arnar í fyrra, en voru 888 þúsund
2019.
Meira nýtanlegt
Gunnar Dofri segir að í fyrra hafi
lítið eitt minna magn verið selt í Góða
hirðinum en árið áður. Þetta sé at-
hyglisvert í ljósi erfiðra aðstæðna
vegna kórónuveikinnar og þannig hafi
verslunin í Fellsmúla og Efnissalan á
Sævarhöfða verið lokaðar um tíma. Á
móti komi að netverslun var sett á
laggirnar og verslun við Hverfisgötu
tók til starfa.
Þá sé athyglisvert að þó svo að
heldur minna hafi komið í nytjagáma
á endurvinnslustöðvum hafi meira af
því verið nýtanlegt í Góða hirðinum.
Hlutfall þess sem er selt af því sem
kemur inn í Góða hirðinn í gegnum
nytjagáma frá endurvinnslustöðvum
er rúm 57%. Það hlutfall hefur aukist
úr 27% frá árinu 2018.
Í minnisblaði Helga Þórs Ingason-
ar, fráfarandi forstjóra Sorpu, sem
lagt var fram á stjórnarfundi í síðasta
mánuði, kemur fram að reksturinn á
Hverfisgötu hafi gengið vel. „Svo vel
að fyrir liggur tillaga um að framhald
verði á rekstri verslunar GH á Hverf-
isgötu enda gerir sá rekstur miklu
meira en að standa undir sér og sala
nytjahluta þar virðist vera hrein við-
bót við þá sölu nytjahluta sem staðið
hefur yfir í versluninni í Fellsmúla.
Sama á við um söluna í vefverslun
GH.“
Uppkeyrsla í Gaju
Gas- og jarðgerðarstöðin í Álfsnesi,
Gaja, hefur verið í uppkeyrslu síðustu
mánuði. Stöðin er komin í stöðugan
rekstur, en er ekki enn keyrð á fullum
afköstum, að sögn Gunnars Dofra.
Stöðin fékk starfsleyfi í október eftir
að hafa verið með undanþágu frá
starfsleyfi frá því í ágúst. Þegar er
byrjað að afhenda metan í gas-
hreinsistöð Sorpu, en moltan er í
vinnsluferli. Með tilkomu Gaju verður
urðun á lífrænum úrgangi frá heim-
ilum á höfuðborgarsvæðinu hætt.
Lækkun varð á „sorpvísi-
tölunni“ annað árið í röð
Heildarmagn úrgangs til Sorpu var 207 þúsund tonn í fyrra
Heildarmagn úrgangs til SORPU 2001 til 2020*
Þúsundir tonna
*Áætlun fyrir 2020. Heimild: SORPA.
2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 2019 2020
300
250
200
150
100
50
207
225
209
223
167
234
152
143
263
57% þess sem skilað er í nytjagáma selst í Góða hirðinum
Hátt í milljón ökutæki komu árið 2020
með úrgang á endurvinnslustöðvar
Gunnar Dofri
Ólafsson
Karitas Ríkharðsdóttir
karitas@mbl.is
Tekist var á í dómsal í Hæstarétti í
gær um meiðyrðamál Benedikts
Bogasonar, forseta Hæstaréttar,
gegn Jóni Steinari Gunnlaugssyni,
fyrrverandi hæstaréttardómara. Jón
Steinar hafði áður verið sýknaður í
Héraðsdómi Reykjaness og Lands-
rétti. Lögmenn tvímenninganna tók-
ust meðal annars á um skilgreiningu
og notkun orðsins „dómsmorð“ og
hvort um gildisdóm eða fullyrðingu
væri að ræða.
Benedikt krefst þess að fimm um-
mæli í bókinni „Með lognið í fangið –
Um afglöp Hæstaréttar eftir hrun“
verði dæmd dauð og ómerk. Segir
hann að Jón Steinar saki í henni
Benedikt og aðra dómara, sem
mynduðu meirihluta í máli 279/2011,
um dómsmorð.
Málið sem um ræðir er mál
ákæruvaldsins gegn Baldri Guð-
laugssyni, fyrrverandi ráðuneytis-
stjóra fjármálaráðuneytisins, sem
dæmdur var í tveggja ára fangelsi
fyrir innherjasvik og brot í opinberu
starfi. Fyrir liggur að Jón Steinar og
Baldur voru og eru vinir og ráku um
tíma saman lögmannsstofu.
Vilhjálmur H. Vilhjálmsson rak
málið fyrir hönd Benedikts og Gest-
ur Jónsson flutti mál Jóns Steinars,
og var sá síðastnefndi viðstaddur í
dómsal í gær en það var Benedikt
ekki.
Sagður hafa herjað á dómara
Í málflutningi sínum sagði Vil-
hjálmur að Jón Steinar hefði herjað
á dómara í máli Baldurs á sínum
tíma að sýkna vin sinn. Jón Steinar
hefur gengist við því að hafa reynt að
hafa áhrif á niðurstöðu í máli Bald-
urs meðan á málaferlum stóð en seg-
ir ekkert banna það.
Gestur Jónsson fór mikinn um
störf og þekkingu Jóns Steinars, sem
fékk lausn þegar Benedikt var skip-
aður forseti Hæstaréttar Íslands.
Gestur sagði engan núlifandi Íslend-
ing hafa tjáð sig meira um dómsmál
á opinberum vettvangi en Jón Stein-
ar. Gagnrýni hans vær oft hvöss en
ávallt byggð á málefnalegum rökum.
Hann benti á að siðareglur dóm-
ara hefðu verið settar eftir að bók
Jóns Steinars var skrifuð og gefin út.
Þá fór hann yfir að gagnrýnin á
dómnum sem um ræðir hefði verið
upp á 23 blaðsíður sem ekki væri
hægt að smækka niður í eitt orð. Þar
hefðu sjónarmið hans verið útskýrð
og rökstudd með lögfræðilegum
hætti.
Nánari umfjöllun á mbl.is.
Dómarar takast á um „dómsmorð“
Meiðyrðamál Benedikts Bogasonar, forseta Hæstaréttar, gegn Jóni Steinari Gunnlaugssyni, fv.
hæstaréttardómara, tekið fyrir í Hæstarétti í gær Jón Steinar var viðstaddur en Benedikt ekki
Morgunblaðið/Eggert
Hæstiréttur Tekist var á í dómsal í meiðyrðamáli forseta Hæstaréttar gegn
fyrrverandi dómara við réttinn. Deilt er um fimm ummæli Jóns Steinars.
Jón Steinar
Gunnlaugsson
Benedikt
Bogason
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Ásdís Ýr Pétursdóttir, upplýsinga-
fulltrúi Icelandair, segir félagið ekki
geta upplýst hversu miklar bætur
það fær frá flug-
vélaverksmiðjun-
um Boeing vegna
kyrrsetningar
Max-þotnanna.
Fram kom í
umfjöllun Fin-
ancial Times að
upphæðin skiptist
í 244 milljónir
dala í sektir, 1,8
milljarða dala til
flugfélaga og 500
milljónir dala í sjóð til fjölskyldna
fórnarlamba tveggja flugslysa.
Á fjórða hundrað fórust
Nánar tiltekið gerir Boeing sam-
komulag við dómsmálaráðuneyti
Bandaríkjanna sem felur í sér að
ekki verður af sakamálameðferð.
Alls létust 346 manns í tveimur
slysum en flugmennirnir lentu í
vandræðum með nýjan stjórnbúnað.
Voru Max-þotur kyrrsettar um heim
allan í kjölfarið en Icelandair hafði
pantað 16 slíkar þotur.
Ásdís Ýr segir Icelandair munu
yfirfara efni samkomulagsins.
Tjón af völdum kyrrsetningar
„Líkt og áður hefur verið greint
frá hefur Icelandair gengið frá sam-
komulagi við Boeing vegna tjóns af
völdum kyrrsetningar Boeing 737-
MAX-flugvéla félagsins. Fjárhæð
skaðabóta er trúnaðarmál. Icelanda-
ir er nú að kynna sér samkomulagið
sem vísað er til og tilkynnt var um í
gær en samkvæmt því ber Boeing að
greiða viðskiptavinum sínum skaða-
bætur að fjárhæð 1.770 milljónir
bandaríkjadala vegna tjóns af völd-
um kyrrsetningarinnar,“ sagði hún.
Leynd er yfir
bótum Boeing
Icelandair vísar til trúnaðar aðila
Ásdís Ýr
Pétursdóttir
Morgunblaðið/Hari
Brottför Boeing MAX 8-þotunni
Mývatn flogið utan til geymslu.