Morgunblaðið - 09.01.2021, Side 22

Morgunblaðið - 09.01.2021, Side 22
FRÉTTASKÝRING Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Það styttist óðum í þingkosn-ingar í Noregi en þær farafram 13. september nk. ogbendir allt til þess, miðað við það hvernig mál standa nú, að vera Noregs í EES-verði tekin til skoðunar í kjölfar kosninganna þrátt fyrir að flokkar sem vilja verja samninginn fái meirihluta á þinginu. Ein mesta breyting í norskum stjórnmálum undanfarin misseri er gríðarleg fylgisaukning norska Mið- flokksins (n. Senterpartiet) í könn- unum. Flokkurinn, sem á síðustu öld var landsbyggðarflokkur sem hall- aðist til hægri, hefur á 21. öldinni orðið smáflokkur sem hallar frekar til vinstri. Hefur hann átt aðild að svokallaðri rauð-grænni fylkingu norskra stjórnmála sem árin 2005 til 2013 myndaði ríkisstjórn Jens Stolt- enberg, þáverandi formanns Verka- mannaflokksins. Miðflokkkurinn, sem nú mælist með um 19-20% fylgi, er samkvæmt nýjustu könnunum annaðhvort næststærsti eða þriðji stærsti flokk- ur landsins. Þennan aukna styrk í könnunum hefur hann nýtt til að setja EES-samninginn aftur á dag- skrá ásamt Sósíalíska vinstriflokkn- um (n. Sosialistisk venstreparti), en flokkarnir hafa í áraraðir verið and- snúnir samningnum. Vilja annan samning Það er hins vegar ekki aðeins fylgisaukning sem gefur flokkunum tilefni til þess að endurvekja um- ræðuna um EES-samninginn heldur vilja fulltrúar þeirra meina að Bret- ar hafi með sínum samningi við Evr- ópusambandið vegna útgöngu þeirra úr sambandinu fengið mun betri kjör en Noregur fær í gegnum EES, að samkomulagi Breta og ESB um fiskveiðar undanskildu. „Bretland hefur nú fengið samning sem gefur þeim meira frelsi og aukið sjálfstæði,“ hefur Klasse- kampen eftir Marit Arnstad, þing- flokksformanni Miðflokksins. Telur Arnstad að með samningnum hafi Bretar tryggt aðgang að innri mark- aði ESB án þess að skuldbinda sig gagnvart stöðugt aukinni samþætt- ingu regluverks aðildarríkjanna sem setja hömlur á sjálfsákvörðunarrétt ríkja. Kveðst hún hins vegar setja fyrirvara varðandi tilhögun sam- komulagsins um fiskveiðar. Undir þetta tekur Heming Olaussen, stjórnarmaður í miðstjórn Sósíalíska vinstriflokksins. „Brexit- samningurinn sýnir að það er aug- ljóslega hægt að finna betri valkosti en EES. Brexit sannar að viðskipti við ESB séu ekki háð aðild að EES.“ Opna á úttekt Samkvæmt könnun sem dag- blaðið VG birti sl. fimmtudag fá vinstriflokkarnir meirihluta á norska Stórþinginu. Hins vegar er einnig ljóst að ríkisstjórn vinstri- flokka verður ekki mynduð án sósí- alista og miðflokksmanna enda mælist Verkamannaflokkurinn að- eins með 20,5%. Verkamannaflokkurinn hefur ávallt verið talsmaður aðildar Nor- egs að EES-samningnum og hefur jafnframt stutt aðild að ESB. Var því eðlilegt að Jonas Gahr Støre, for- maður Verkamannaflokksins, lýsti því yfir í Dagsavisen á dögunum að flokkurinn hyggist ekki eiga aðild að ríkisstjórn sem ekki hefur EES- aðild sem grundvallaratriði í stefnu sinni. Hefur formaðurinn þó sagst reiðubúinn til að láta undan kröfu um að láta gera úttekt á valkostum öðrum en EES. Sagði Støre þetta þrátt fyrir að hafa lýst því yfir að flokkurinn telji ekki tilgang í að „nota tíma og orku á þessa tegund af úttektum miðað við stöðuna sem rík- ir í Noregi í dag“. Flokkurinn, þrátt fyrir afdráttarlausa afstöðu sína til EES, er ekki einungis í þeirri stöðu að verða fyrir þrýstingi mögulegra samstarfsflokka heldur er einnig um að ræða þrýsting að innan. Norska alþýðusambandið LO á sæti í mið- stjórn flokksins og hefur Felles- forbundet, stærsta stéttarfélagið innan LO, lýst því yfir að félagið krefjist þess að leitað verði leiða og valkosta sem ekki fela í sér áfram- haldandi aðild að EES-samn- ingnum. Í annarri fylkingu Eini stóri bandamaður Verka- mannaflokksins í spurningunni um EES er Hægriflokkurinn (n. Høyre) sem hefur í áraraðir, eins og Verka- mannaflokkurinn, talið hag Noregs best borgið innan ESB. Flokkurinn, sem leiðir ríkisstjórnarsamstarf hægriflokka, stefnir að verulegri fylgisaukningu og mun verða sam- kvæmt könnunum stærsti flokkur Noregs. Mælist hann með 25,6% fylgi, en samstarfs- og stuðnings- flokkar hans ná ekki nægilegu fylgi til að ríkisstjórnin haldi meirihluta á þingi. Andstæðingar aðildar Noregs að EES-samningnum gætu því end- að í oddastöðu í kjölfar kosninganna í haust. Eina leiðin fram hjá því væri að Verkamannaflokkurinn og Hægriflokkurinn myndi samstarf, en litlar líkur eru á því. Telja Brexit betri kost en EES-samninginn Ljósmynd/Stortinget Kostir Marit Arnstad segir Brexit-samninginn betri en EES-samninginn. 22 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. JANÚAR 2021 Klúður Evr-ópusam-bandsins í bólusetningarmálum blasir við. Á miðviku- dag höfðu 1,3 millj- ónir manna fengið fyrri bólusetn- inguna við kórónuveirunni af tveimur á Bretlandi, en aðeins 1,1 milljón í öllum aðildarríkjum sam- bandsins. Það eru næstum tveir af hundraði Breta, en aðeins 0,2% af íbúum ESB. Þetta er kaldhæðnislegt vegna þess að þegar Bretar drifu í að samþykkja bóluefnið frá Pfizer og Biontech fitjuðu þeir sem fóru með þessi mál í Evrópusambandinu upp á nefið og sögðu fullir vand- lætingar að Bretar væru með hroðvirkni, en ESB vandvirkni. Leyfi fyrir lyfinu var síðan veitt með hraði þegar gremja fór að safnast upp innan ESB yfir því að sitja eftir í startholunum. Forsaga klúðurs ESB er fróð- leg. Sambandið hefur tekið til sín ýmsa málaflokka í áranna rás, en heilbrigðismál hafa hingað til verið á forræði aðildarríkjanna. Þegar faraldurinn braust út sá fram- kvæmdastjórn ESB sér leik á borði til að láta einnig til sín taka í heilbrigðismálum. Nú skyldi Evr- ópusambandið veita forystu í að útvega bóluefni. Sagði Ursula von der Leyen, forseti framkvæmda- stjórnar ESB, að með því yrði komið í veg fyrir skaðlega sam- keppni um takmarkaða auðlind. Allir myndu leggja í púkkið og kaupmáttur stærstu viðskipta- blokkar heims myndi tryggja miklu betri aðgang og kjör en byð- ust ef hvert ríki þyrfti að semja fyrir sig. Með því að verja íbúa ESB fyrir mestu ógn, sem steðjað hefði að í heilan mannsaldur, væri hægt að sýna fram á mátt sam- bandsins. Framkvæmdastjórnin hefur líklega séð fyrir sér að þegar faraldurinn yrði afstaðinn yrði henni ekið um í opnum bílum um breiðgötur höfuðborga aðildarríkj- anna við fagnaðarlæti fjöldans. Ekki voru allir sannfærðir um að þetta myndi ganga upp. Bretar ákváðu að segja nei takk, enda á útleið úr sambandinu. Íslensk stjórnvöld ákváðu hins vegar að nýta ferðina. Ekki hefur komið fram á hvaða forsendum sú ákvörðun var tekin eða hvernig framganginum hjá ESB þannig að hægt væri að meta hvort ástæða væri til að endurskoða hana. Ekki báru þó öll ríki ESB traust til framkvæmdastjórnarinnar. Strax í vor ákváðu Frakkar, Hol- lendingar, Ítalir og Þjóðverjar að grípa til sinna ráða því að þeim fannst ganga stirðlega. Þeir sömdu um rúmlega 400 milljón skammta bóluefnis við AstraZe- neca, meðal annars til að þrýsta á framkvæmdastjórnina. Þetta var harðlega gagnrýnt í Brussel og á endanum skrifuðu leiðtogar ríkjanna fjögurra auðmjúkt afsök- unarbréf fyrir að hafa rofið hina mikilvægu samstöðu gagnvart lyfjafyrirtækjunum. Líklegt er að sú afsökun sitji í þeim núna. Ljóst er að samn- ingamenn ESB sömdu um of lítið af bóluefni og voru það svifaseinir, sennilega af því að þeir héldu að með því að bíða fengju þeir betri kjör, að sambandið er með þeim öftustu í afhendingarröðinni. Þetta sparnaðar- sjónarmið mun reynast dýrkeypt því að sóttvarnaaðgerðir kosta efnahagslífið svo miklu meira en leggja hefði þurft út fyrir dýrustu bóluefnunum að það hefði ekki einu sinni átt að vera umhugs- unarefni. Í þokkabót virðist hrepparígur hafa orðið til trafala, ef marka má uppljóstranir þýska vikuritsins Der Spiegel. Samkvæmt þeim var ákveðið að panta minna af bóluefni frá Pfizer og Biontech frá Þýska- landi en stóð til boða af þeirri ástæðu að ekki mátti kaupa meira af þýska fyrirtækinu en franska fyrirtækinu Sanofi. Lyfið frá Biontech var fyrst á markað, en komið er í ljós að lyfið frá Sanofi verður ekki klárt fyrr en í fyrsta lagi í lok árs eða upphafi árs 2022. Nú er Evrópusambandið greini- lega að taka við sér og í gær bár- ust fréttir af því að framkvæmda- stjórnin hefði pantað 300 milljón skammta til viðbótar af Biontech og kom fram að það hefði verið gert vegna þrýstings og óánægju. Í grein í nýjasta tölublaði tíma- ritsins The Spectator segir að staðreyndirnar tali sínu máli. „Satt að segja er bólusetningar- herferðin að verða mesta stórslys ESB frá evrukreppunni 2010-11,“ segir í blaðinu. „Á meðan hún gerði aðeins þrjú lönd gjaldþrota og dæmdi heila kynslóð Grikkja til fátæktar mun þetta leiða til dauða tugþúsunda manna.“ Í greininni segir að bóluefna- hneykslið sé að breytast í endur- tekningu á evrukreppnunni. ESB setji sér markmið, en það sé von- laust að því takist að koma sér upp bolmagni til að ná þeim. Það hafi komið sér upp sameiginlegum gjaldmiðili án þess að vera með neitt af því gangverki sem þurfti til að það gengi upp. Nú hafi það búið til stefnu í heilbrigðismálum án þess að hafa sjóði eða sérþekk- ingu til að standa við sitt. Bóluefnamálið hefur afhjúpað getuleysi, fúsk og vanmátt ESB. Fögur fyrirheit kunna að hafa hljómað vel í upphafi, en íslenskir ráðamenn hefðu átt að kveikja á því að í óefni stefndi miklu fyrr og grípa til sinna ráða. Hér ætti að vera fyrir hendi næg þekking og sambönd til að gæta hagsmuna Ís- lands. Til að bjarga málum hafa Kári Stefánsson, forstjóri Ís- lenskrar erfðagreiningar, og Þór- ólfur Guðnason sóttvarnalæknir reynt að semja við Pfizer um að bólusetja stóran hluta þjóðarinnar í rannsóknarskyni. Í gær sagði Kári að útlit væri fyrir að það myndi ekki ganga. Haft var eftir honum á mbl.is í gær að þar hefði ekki verið leitað eftir sambæri- legum samningi og Ísrael hefði gert, en sá mikli fjöldi bóluefna- skammta sem Ísraelar hefðu tryggt sér frá Pfizer sýndi hvað það gæti verið „mikilvægt að geta hagað sér eins og sjálfstæð þjóð“. Þann lærdóm má óhikað draga af reynslunni af því að fylgja ESB í bóluefnamálum. „… mikilvægt að geta hagað sér eins og sjálfstæð þjóð“} Bóluefnaklúður ESB Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Þ ann 10. desember 2020 tók gildi reglugerð um takmarkanir á sam- komum vegna farsóttar af völdum Covid-19. Síðan sú reglugerð tók gildi hefur staða faraldursins hér- lendis verið tiltölulega góð. Samstaða meðal almennings og gildandi sóttvarnaaðgerðir báru árangur og komu í veg fyrir að farald- urinn færi vaxandi hér innanlands yfir jól og áramót. Nú er svo komið að mat sótt- varnalæknis er að mögulegt sé að aflétta tak- mörkunum á samkomum að einhverju leyti. Þó er mikilvægt að við höfum í huga að stað- an er viðkvæm. Faraldurinn er á uppleið í löndunum í kringum okkur, auk þess sem nýtt og bráð- smitandi afbrigði veirunnar hefur greinst. Breytingar á reglum um aðgerðir á landa- mærum eru í skoðun þessa dagana í heilbrigðisráðu- neytinu með hliðsjón af vexti faraldursins erlendis. Við þurfum sem fyrr að fara varlega og megum ekki gleyma mikilvægi einstaklingsbundinna sóttvarna. Nýjar reglur um takmarkanir á samkomum innanlands taka gildi 13. janúar nk. og og gilda til 17. febrúar næstkomandi. Sótt- varnalæknir setur tillögur sínar fram með fyrirvara um að þróun faraldursins snúist ekki á verri veg. Meginefni nýju reglnanna er að fjöldatakmarkanir verða 20 manns í stað tíu, heilsu- og líkamsrækt- arstöðvum verður gert kleift að hefja starfsemi á ný en með ströngum skilyrðum og skíðasvæðunum sömuleiðis. Íþróttastarf barna og fullorðinna verður heimilað að uppfylltum skilyrðum og sömuleiðis íþrótta- keppnir án áhorfenda. Fjöldamörk í sviðs- listum verða aukin þannig að 50 manns mega vera á sviði og í sal 100 fullorðnir og 100 börn. Sama gildir um aðra menningar- viðburði. Þessar afléttingar eru mikilvægar og eru enn eitt skref í átt að því að við nálg- umst það að samfélagið okkar komist í eðli- legra horf. Á milli jóla og nýárs hófum við bólusetn- ingar gegn Covid-19, þegar fyrstu skammtar bóluefnis frá framleiðandanum Pfizer bárust okkur. Sá áfangi var merkilegur og markaði þáttaskil í baráttunni okkar við veiruna. Ís- land hefur þegar tryggt sér bóluefni sem dugar fyrir alla þjóðina og rúmlega það og á grundvelli samstarfs okkar við Evrópusam- bandið um bóluefni er okkur tryggt hlutfalls- lega sama magn af bóluefnum og aðrar þjóðir í Evrópu- samstarfinu fá miðað við höfðatölu. Á næstu vikum og mánuðum halda bólusetningar áfram, um leið og okkur berast bóluefni hingað til lands. Bóluefni frá framleið- endunum Moderna er væntanlegt hingað til lands í næstu viku og meira af bóluefni frá framleiðandanum Pfizer í seinni hluta janúarmánaðar. Á vefnum boluefni.is birtast nýjustu fréttir af bólu- efnamálum, framkvæmd bólusetninga, af forgangs- hópum og samningum og ég hvet öll til að fylgjast með þeirri síðu. Svandís Svavarsdóttir Pistill Breyttar samkomutakmarkanir Höfundur er heilbrigðisráðherra STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.