Morgunblaðið - 09.01.2021, Page 34

Morgunblaðið - 09.01.2021, Page 34
34 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. JANÚAR 2021 30 ára Birkir ólst upp á Álftanesi en býr í Kópavogi. Hann vinnur við smíðar hjá FF Verk- tökum. Maki: Árný Guðjóns- dóttir, f. 1991, leik- skólakennari á Sól- hvörfum í Kópavogi. Börn: Elmar Logi, f. 2018, og stjúpsonur er Sölvi Hrafn, f. 2013. Foreldrar: Elínborg Salóme Jónsdóttir, f. 1962, d. 2017, húsgagnabólstrari, og Hilmar Breiðfjörð Þórarinsson, f. 1961, húsasmíðameistari, búsettur á Álftanesi. Birkir Freyr Hilmarsson Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Það er engin þörf á að reyna að vera klár eða hugsa hlutina upp á nýtt. Vertu á varðbergi gegn orkusugum. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú stendur frammi fyrir vali sem get- ur haft mjög örlagaríkar afleiðingar í fram- tíðinni. Treystu viðbrögðum þínum og til- finningum. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Í dag er góður dagur fyrir æv- intýri. Hlutirnir ganga oft betur og hraðar fyrir sig ef þú reynir að verja þig fyrir um- hverfinu. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú kannt að standa frammi fyrir vandamáli sem þér finnst þú ekki reiðubú- inn til þess að glíma við. Láttu ekki hugfall- ast. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þetta er ekki rétti tíminn til einveru. Þú verður að ganga í það að leysa þau verkefni, sem fyrir liggja. Gættu þess að taka frá tíma fyrir eitthvert létt sprell í dag. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Það vefst eitthvað fyrir þér að taka ákvörðun um framhaldið í erfiðu máli. Gefðu þér tíma til þess að hugsa málið vandlega og leysa málið. 23. sept. - 22. okt.  Vog Undirbúningur er nauðsynlegur, því það hefnir sín alltaf að æða óundirbúinn af stað. Vertu sjálfstæður og hlauptu ekki eft- ir duttlungum annarra. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Eitthvað óvænt hendir þig í dag og það er bara að vera viðbúinn og njóta þess sem dagurinn gefur. Settu þér markmið og sæktu að því af dugnaði og festu. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Sýndu fjölskyldu og foreldrum þolinmæði í dag. Nú væri líka ráð að leggja lokahönd á skapandi verkefni sem þú hefur unnið að, útkoman mun gleðja þig. 22. des. - 19. janúar Steingeit Gerðu sjálfum þér greiða og átt- aðu þig á því að þú hefur gott af því að fara eitthvað afsíðis og njóta þess að vera í ein- rúmi. Tíminn vinnur með þér. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Vertu ekkert að ræða framtíð- aráætlanir þínar við aðra, því þú munt ekki fá þá hvatningu sem þú þarft á að halda. 19. feb. - 20. mars Fiskar Kátínan hefur ráðið ríkjum hjá þér um tíma og engin ástæða til annars en að halda henni við. tæka samvinnu við fjölda fólks í skól- um og sveitarstjórnum. Á Austur- landi vantaði sárlega sérkennara og ég er stoltur af því að hafa komið á fót námi í sérkennslufræðum á Hall- ormsstað 1987-1989, sem gaf kenn- urum í umdæminu kost á að afla sér þessarar menntunar. Þetta var í fyrsta sinn sem nám á háskólastigi fór fram utan Reykjavíkur.“ Störfum fræðslustjóranna í öllum umdæmum landsins eru gerð góð skil í bók sem heitir: Allt í öllu. Hlutverk fræðslu- stjóra 1975-1996 eftir Börk Hansen og Ólaf H. Jóhannsson. Í ritinu Lit- sem hann tók við skólastjórastarfi 1961. „Næstu árin voru bæði anna- söm og gefandi og þegar stofnað var til skóla í Breiðholti, nýjasta úthverfi Reykjavíkur, var ég ráðinn skóla- stjóri og tók til starfa haustið 1969. Sérlega eftirminnileg er herferð gegn reykingum sem hófst hjá 6. bekkingum í skólanum síðla árs 1976 í samvinnu við Krabbameinsfélag Reykjavíkur. Haldin voru námskeið og starfshópar úr bekkjunum sinntu afmörkuðum verkefnum og kynntu niðurstöður fyrir skólasystkinum, kennurum, framkvæmdastjóra Krabbameinsfélagsins og lands- kunnum íþróttamönnum á sal. Fleiri skólar fylgdu í kjölfarið og herferðin var kynnt í sjónvarpi og öðrum fjöl- miðlum. Árangurinn af þessu starfi var gríðarlegur og reykingar í efstu bekkjum lögðust nær af.“ Síðasta starfið sem Guðmundur gegndi var fræðslustjóri á Austur- landi. „Fluttum við hjónin ásamt tveimur yngstu börnunum á Reyð- arfjörð 1977. Næstu 20 árin sinnti ég þessu víðfeðma umdæmi, sem náði frá Bakkafirði í norðri og suður í Öræfasveit. Þetta var fjölbreytt og krefjandi starf sem bauð upp á víð- G uðmundur Magnússon fæddist 9. janúar 1926 á Reyðarfirði, fjórða barn foreldra sinna, sem eignuðust níu börn á 10 árum. Tvær dætranna voru teknar í fóstur og lítil stúlka lést nokkurra vikna gömul. Fyrstu árin flutti fjöl- skyldan margsinnis, en lengst af leigðu þau aðra íbúðina í Bifröst á Reyðarfirði. „Leiksvæði okkar barnanna voru af öllu tagi, milli fjalls og fjöru. Skól- inn var okkur athvarf og mikilvægt mótvægi kreppunnar sem var á þess- um árum, en jafnframt mennta- og menningarstaður þorpsins. Ég fermdist vorið 1939. Móðir mín var fárveik og lést þremur dögum síðar. Faðir minn hélt heimili með aðstoð elstu systur minnar til vorsins 1940, en eftir það fórum við hvert í sína átt- ina. Næstu árin var ég við alls konar vinnu, einkum til sjós, víða um land. Ég var á síldarbáti norður á Raufar- höfn 1944, þegar ég fékk tilkynningu um skólavist í Héraðsskólanum á Laugarvatni. Ég hafði fengið afsvar nokkrum vikum fyrr, en þegar skóla- stjóranum var sagt að ég spilaði á harmonikku ákvað hann að bjóða mér um borð. Héraðsskólinn á Laugar- vatni var gagnfræðaskóli og merki- legt menningarsetur. Ég var kosinn formaður félags nemenda, tók virkan þátt í félagslífinu og þandi nikkuna.“ Eftir útskrift vorið 1946 hóf Guð- mundur nám í Kennaraskólanum. „Í bekknum mínum var úrvalsfólk og við höfum hist reglulega, allt fram á þennan dag. Síðar á ævinni fór ég í kynnis- og námsferðir utanlands, þar sem þriggja mánaða vist í Bandaríkj- unum, á styrk frá Fulbright- stofnuninni, ber hæst.“ Starfsferill Haustið 1948 var Guðmundur ráð- inn að skólanum á Reyðarfirði, þar sem hann leysti skólastjórann af og kenndi öll almenn fög. „Þar trúlof- uðumst við Anna, en fjölskylda henn- ar bjó einnig í Bifröst.“ Haustið 1949 hóf hann störf við Laugarnesskóla í Reykjavík og kenndi þar til 1960. Barnafjöldinn var mikill og skólinn þrísetinn, svo tekin var ákvörðun um að byggja Laugalækjarskóla, þar ríkt land – lifandi skóli, sem kom út í tilefni af sextugsafmæli Guðmundar 1986, rituðu 16 höfundar fjölbreyttar greinar um störf hans, baráttumál og áherslur í skólamálum. Félagsstörf Guðmundur tók ríkan þátt í nefndar- og félagsstörfum. Hann var organisti í Reyðarfjarðarkirkju um skeið og stýrði samsöng eldri borg- ara í Kópavogi. Hann var varaborg- arfulltrúi Alþýðuflokksins í Reykja- vík 1974-77. Eftir að Guðmundur lauk störfum skrifaði hann bókina Saga Reyðarfjarðar 1883-2003, en áður hafði hann ritað Skólasögu Reyðarfjarðar sem kom út 1998. Hann ritaði fjölda greina í dagblöð og tímarit. Áhugamál Guðmundar hafa alla tíð verið mörg. „Þar er tónlistar- iðkun ofarlega á blaði, en einnig úti- vist, stangveiði, taflmennska, bridge, fótbolti og þjóðlegur fróðleikur.“ Fjölskylda Eiginkona Guðmundar er Anna Arnbjörg Frímannsdóttir, f. 15.1. 1930 á Skriðuklaustri í Fljótsdal, húsmóðir og ritari í Hvassaleitis- Guðmundur Magnússon, fyrrverandi fræðslustjóri – 95 ára Fjölskyldan Anna, Guðmundur, börn og tengdabörn í níræðisafmæli Önnu. Frá vinstri: Anna Dóra, Magnús, Anna Ragnheiður, Guðmundur Frímann, Sigríður, Hermann, Arnbjörg, Leó Geir, Rósa Hrund og Jóhann. Annasamur og gjöfull æviferill Hjónin Anna og Guðmundur árið 1996 þegar þau voru kvödd á Reyðarfirði. 30 ára Harpa ólst upp á Álftanesi en býr í Reykjavík. Hún er við- skiptafræðingur frá HÍ og er í meistaranámi í verkefnastjórnun. Hún vinnur á skrifstofu Hrafnistu en er í fæð- ingarorlofi. Maki: Ingólfur Steinar Pálsson, f. 1985, vinnur í fyrirtækjaþjónustu Tölvulistans. Börn: Aníta Sól, f. 2017, og Glódís Lea, f. 2020. Stjúpdóttir er Birta Marín, f. 2013. Foreldrar: Elínborg Salóme Jónsdóttir og Hilmar Breiðfjörð Þórarinsson. Harpa Björk Hilmarsdóttir Til hamingju með daginn Reykjavík Glódís Lea Ingólfsdóttir fæddist 20. júní 2020 á Landspít- alanum eftir 34 vikna meðgöngu. Hún vó 2.212 g og var 45 cm löng. For- eldrar hennar eru Harpa Björk Hilmarsdóttir og Ingólfur Steinar Pálsson. Nýr borgari

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.