Morgunblaðið - 09.01.2021, Page 35
DÆGRADVÖL 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. JANÚAR 2021
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla
Casa býður upp á vaxtalausar raðgreiðslur (Visa / Euro) í allt að 6 mánuði.
L 206 cm Áklæði ct. 70 Verð 609.000,-
L 206 cm Leður ct. 15 Verð 749.000,-
STAN Model 3035 rafmagn
„HVER ÆTLI SÉ AÐ HRINGJA SVONA
SEINT UM KVÖLD?”
„ÞÚ ERT RÁÐINN. FARÐU NÚ HEIM MEÐ
ÞESSA OG ÆFÐU ÞIG Í AÐ KYSSA ÞÁ.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að eiga einhvern að
sem finnst þú einstök.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ÉG OG HIN AFMÆLISKERTIN
VILJUM GEFA ÞÉR EITT
AFMÆLISRÁÐ
OG ÞAÐ
ER HVAÐ? LÆRÐU AÐ LIFA
MEÐ HRYLLINGNUM
GRIMMÚLFUR
GRIMMI, ERTU ENN
ATVINNULAUS?
JÁ, EN ÉG SÉ SÓKNAFÆRI
Í AÐ HÖNDLA MEÐ
POTTJÁRN!
KOMDU MEÐ GULLIÐ ÞITT
EÐA ÞÚ HLÝTUR VERRA AF!
ÓKEI!
ÓKEI!
skóla og fulltrúi á Fræðsluskrifstofu
Austurlands. „Við Anna giftum okkur
á jóladag 1949 og hófum búskap í
Reykjavík. Við bjuggum ýmist í Laug-
arnes- eða Smáíbúðahverfi, en fluttum
á Reyðarfjörð 1977 og síðan í Kópavog
1996. Frá því í mars 2019 höfum við
búið á Hrafnistu í Hafnarfirði.“ For-
eldrar Önnu voru hjónin Sigríður Ein-
ína Þorsteinsdóttir frá Þuríðarstöðum
í Fljótsdal, f. 9.7. 1901, d. 24.8. 1974,
húsmóðir og saumakona, og Jóhann
Frímann Jónsson, f. 2.6. 1898, d. 23.8.
1960, frá Bessastöðum í Fljótsdal, raf-
stöðvarstjóri á Reyðarfirði.
Börn Guðmundar og Önnu: 1)
Stúlka, f. 26.11. 1949, d. 26.11. 1949; 2)
Sigríður, f. 26.10. 1950, líffræðingur í
Kópavogi. Maki: Hermann Her-
mannsson, tæknifræðingur; 3) Magn-
ús, f. 5.11. 1952, tölvunarfræðingur í
Reykjavík. Maki: Anna Dóra Árna-
dóttir húsmóðir og handprjónakona;
4) Rósa Hrund, f. 3.2. 1954, fiðluleikari
í Reykjavík. Maki: Jóhann Guðnason,
skjalaþýðandi og dómtúlkur; 5) Guð-
mundur Frímann, f. 25.12. 1962, vél-
virki á Reyðarfirði. Maki: Anna
Ragnheiður Gunnarsdóttir, garð-
yrkjufræðingur; 6) Arnbjörg, f. 29.12.
1965, sjúkraþjálfari í Reykjavík. Leó
Geir Arnarson, hestamaður. Barna-
börn eru 10, barnabarnabörn 20 og
eitt barnabarnabarnabarn.
Systkini Guðmundar: Aagot, f.
12.8. 1919, d. 28.3. 1983; Emil Jóhann,
f. 25.7. 1921, d. 8.2. 2001; Rannveig
Torfhildur, f. 11.10. 1922, d. 12.2.
2002; Aðalbjörg, f. 17.12. 1923, d.
28.12. 2018; Stefanía, f. 17.11. 1924, d.
11.9. 2007, Stúlka, f. 17.11. 1924, d.
11.12. 1924; Guðný Ragnheiður, f.
16.5. 1927, d. 14.8. 2019; Sigurður, f.
2.6. 1928, d. 27.3. 2011.
Foreldrar Guðmundar voru hjónin
Rósa Sigurðardóttir, f. 6.11. 1898, d.
21.5. 1939, húsmóðir á Reyðarfirði, og
Magnús Guðmundsson, f. 23.4. 1893,
d. 28.3. 1972, verslunarmaður á
Reyðarfirði og í Reykjavík.
Guðmundur
Magnússon
Þuríður Stefánsdóttir
húsfreyja í Neðri-Miðbæ
Andrés Guðmundsson
bóndi í Neðri-Miðbæ
í Norðfirði
Munveig Andrésdóttir
húsfreyja í Álftavík eystri, á
Vestdalseyri og Seyðisfirði
Sigurður Pétur Jónasson
b. og verkamaður í Álftavík eystri,
á Vestdalseyri og Seyðisfirði
Rósa Sigurðardóttir
húsfreyja á Reyðarfirði
Guðrún Sigurðardóttir
húsfreyja á Barkarstöðum
Jónas Kristjánsson
bóndi á Barkarstöðum í Svartárdal,A-Hún.
Guðrún Gunnarsdóttir
húskona á Eiði, síðar á Dísarstöðum
Rögnvaldur Rögnvaldsson
húsmaður í Hlíð og á Eiði á
Langanesi
Guðný Ragnheiður Rögnvaldsdóttir
húsfreyja á Dísarstöðum
Guðmundur Árnason
bóndi á Dísarstöðum og Felli í Breiðdal
Guðlaug Árnadóttir
húsfreyja á Randversstöðum
Árni Bjarnason
bóndi á Randversstöðum í Breiðdal
Úr frændgarði Guðmundar Magnússonar
Magnús Guðmundsson
verslunarmaður á
Reyðarfirði og í Reykjavík
Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson:
Sokknum þínum er hún á.
Út sig teygir landi frá.
Stígur eða stétt er þá.
Stafur grískur vera má.
Þannig leysir Guðrún B. gátuna
með þeirri athugasemd, að „gríska
t heitir tau í alpha-omega-
stafrófinu“:
Tá á sokki Siggu var.
Sat hún fremst á tánni.
Táið þangað þreytta bar,
í þanka Tau á kránni.
Helgi R. Einarsson svarar:
Táin sokkum er víst á
og einnig teygist landi frá.
Stíginn tána telja má.
Tá er stafur grískum hjá.
Eysteinn Pétursson á þessa
lausn:
Sokkum öllum á er tá.
Út í haf tá ganga má.
Tái stend ég einatt á,
og svo táið rita á ská.
Þessi er lausn Hörpu á Hjarð-
arfelli:
Oft á sokkum teygist tá
Tá svo skagar landi frá
Kalla stíg og stétt tá má
Stafur grískur tá er þá
Helgi Þorláksson svarar:
Í hásokkum með heilli tá
haldið var út á nessins tá,
kjagað um stíg sem kallast tá,
kenndur bagall er við tá.
Þannig skýrir Guðmundur gát-
una:
Fremst á sokk má finna tá.
Fram nær táin sjóinn á.
Stétt er tá, sem stíg ég á.
Stafur grískur tá er þá.
Þá er limra eftir Guðmund:
Bjarghildi var til baga tá,
en bjagaða tókst að laga tá,
og spánnýja tá
hún teygði þá
og tók á rás út á Skagatá.
Og loks ný gáta eftir Guðmund:
Hillir undir heiðan dag,
hækka á lofti sólin fer,
nýja árið nýjan brag
og nýja gátu færir þér:
Leikfang þetta lítið er.
Lítið bein á fæti þér.
Heybaggi, sem hestur ber.
Horsk sú kona þykir mér.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Dugir meðan
á tánum tollir