Morgunblaðið - 13.01.2021, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 13.01.2021, Qupperneq 1
M I Ð V I K U D A G U R 1 3. J A N Ú A R 2 0 2 1 Stofnað 1913  10. tölublað  109. árgangur  SKRÁNING Í KAUPHÖLL KOSTNAÐARSÖM TAKA YFIR ALLT HÚSIÐ HM FER AF STAÐ OG FYRSTI LEIKUR LIÐSINS Á MORGUN AFSAKIÐ Í ÁSMUNDARSAL 24 HANDKNATTLEIKUR 22-23VIÐSKIPTAMOGGINN Mikil ljósadýrð hefur verið yfir landinu síðustu kvöld svo að- dáun landans hefur vakið. Mikið sjónarspil og litrík skraut- sýning var yfir Skjálfandaflóa á mánudagskvöldið, eins og sjá má á þessari mynd sem tekin var við sjóböðin á Höfðanum við Húsavík. Heldur mun draga úr virkni norðurljósanna næstu daga, skv. spá Veðurstofunnar. Hins vegar fara kraftur og afl sólarinnar vaxandi þessi misserin, eftir ládeyðu síðustu árin, og því má í næstu framtíð vænta fleiri góðra sýninga í líkingu við þær sem landsmönnum hafa boðist að undanförnu. Litrík skrautsýning yfir Skjálfandaflóa Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson  Staðgreiðsla út- svars reyndist heldur meiri á síðasta ári en bú- ist var við, sér- staklega á sein- ustu mánuðum ársins. Fram kemur í saman- tekt Sambands ís- lenskra sveitarfélaga að útsvar sem innheimt var í staðgreiðslu frá febr- úar til desember í fyrra var 4% hærra en á sömu mánuðum á árinu á undan. Þegar leið að hausti varð staðgreiðslan meiri, einkum í desem- ber, og var 7,2% hærri á tímabilinu júlí til desember í fyrra en á sömu mánuðum 2019. Allmikill munur var þó á staðgreiðslunni milli landshluta. Undir lok nýliðins árs fengu sveitar- félögin greitt útsvar upp á 3,1 millj- arð króna, sem hafði verið frestað fyrr á árinu vegna frestunar gjald- daga til að mæta afleiðingum veiru- faraldursins. Komu þessar greiðslur í árslok sveitarfélögum nokkuð á óvart. Áætlað er að afkoma A-hluta sveitarfélaga hafi verið neikvæð um tæpa 18 milljarða í fyrra. »12 Staðgreiðslan var 7,2% hærri á seinni hluta ársins en 2019 Útsvar af launum er stærsti tekjuliður sveitarfélaga. Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is Athafnamaðurinn Jón Ásgeir Jó- hannesson segist sjá tækifæri í um- breytingu á rekstri olíufélagsins Skeljungs. Sjálfur er hann stjórnar- formaður félagsins en auk þess hefur hann leitt fjárfestahópinn Streng sem nú er með meirihluta í Skelj- ungi. Í miðopnuviðtali í Viðskipta- Mogganum segir Jón Ásgeir Skelj- ung hafa verið spennandi fjárfestingarkost. Hins vegar þurfi ákveðin stefnu- breyting að eiga sér stað hjá fyrir- tækinu. Hann útilokar ekkert hvað framtíðaráform Skeljungs varðar, en kveðst m.a. sjá mikil tækifæri í net- verslun. Kórónuveirufaraldurinn hafi enn fremur flýtt þeirri þróun um heim allan. Jón Ásgeir segir að þrátt fyrir það sé Ísland enn tals- vert á eftir í þró- uninni. Ræðir við erlenda aðila Í viðtalinu greinir Jón Ás- geir frá því að við- ræður hafi átt sér stað við öfluga er- lenda aðila um aðkomu að fjár- mögnun ákveðinna verkefna á vegum Skeljungs. Aðspurður segir hann vel koma til greina að færa rekstur Skeljungs út fyrir landstein- ana síðar. Þannig komi jafnframt til greina að selja dótturfélag olíu- félagsins í Færeyjum, P/F Magn. Fjármagnið úr umræddri fjárfest- ingu megi jafnvel nýta til annarra fjárfestingarverkefna erlendis. „Ég sé alveg fyrir mér að Skelj- ungur verði erlendis síðar meir. Ég horfi á þetta þannig að félagið er að stórum hluta í fjárfestingastarfsemi með því að eiga þennan rekstur í Færeyjum. Sú fjárfesting gerir lítið fyrir kjarnastarfsemina á Íslandi. Hugsanlega verður hægt að um- breyta þeirri fjárfestingu í aðra fjár- festingu erlendis,“ segir Jón Ásgeir sem kveðst horfa til Bretlands í því samhengi. Þar séu spennandi tæki- færi, en athafnamaðurinn er með sterk tengsl þar eftir að hafa átt þátt í rekstri margra af stærstu vöru- merkjum landsins. Mikil tækifæri í rekstri í Bretlandi  Jón Ásgeir kveðst vilja breyta stefnu olíufélagsins Skeljungs Jón Ásgeir Jóhannesson MViðskiptaMogginn Kórónuveirusmit greindist hjá sjúk- lingi á hjartadeild Landspítala í gær við útskrift hans af spítalanum. Lok- að hefur verið fyrir innlagnir á deild- ina og allir 32 sjúklingar skimaðir. Sýni þeirra reyndust neikvæð þegar niðurstöður bárust seint í gærkvöldi. Beðið er niðurstaðna úr skimun starfsfólks deildarinnar, sem telur á annað hundrað, en þeirri skimun lýkur árdegis í dag. Már Kristjánsson, yfirlæknir smitsjúkdómadeildar Landspítalans og formaður sóttvarnanefndar, seg- ist reikna með því að hægt verði að greina frá niðurstöðum skimana upp úr hádegi. »6 Morgunblaðið/Ómar Smit Landspítalinn við Hringbraut. Smit á hjartadeild

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.