Morgunblaðið - 13.01.2021, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 13.01.2021, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 2021 Ljósmyndir Rutar og Silju Skipholti 31 | 105 Reykjavík | Sími 568 0150 | www.rut.is | Opið alla virka daga kl. 10-17 Passamyndir Tímapantanir í síma 568 0150 eða á rut@rut.is Tryggjum tveggja metra fjarlægð og gætum ítrustu ráðstafana Smiðjuvegi 34 • gul gata Kópavogi • biljofur@biljofur.is Viðgerðir // Bilanagreining // Varahlutir // Smurþjónusta 544 5151 tímapantanir Rótgróið fyrirtæki, starfrækt frá 1992 Getum sótt og skilað bílum á höfuðborgarsvæðinu án endurgjalds Förum yfir bifreiðar fyrir aðalskoðun/endurskoðun og förum með bifreiðina í skoðun Allar almennar BÍLAVIÐGERÐIR Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Hér er allt á fullu og gengur mjög vel. Framkvæmdir eru á áætlun og við stefnum á að opna í vor. Tíma- setningin fer í raun eftir því hvernig ástandið í heiminum og hér verður þá. Við vonum það besta en gerum áætlanir fyrir að bregðast við hinu versta,“ segir Dagný Pétursdóttir, framkvæmdastjóri Sky Lagoon, sem nú er verið að reisa á Kársnesi í Kópavogi. Framkvæmdin við baðlónið er sögð vera ein af þeim stærstu í ferðaþjón- ustu hér á landi síðustu ár. Áætlaður kostnaður er rúmlega fjórir millj- arðar króna. Það er Nature Resort ehf. sem er uppbyggingaraðili verk- efnisins en alþjóðlega fyrirtækið Pursuit verður rekstraraðili baðlóns- ins en það stendur einnig að baki Fly Over Iceland úti á Granda. Staðurinn á að vera fullkominn til slökunar í íslenskri náttúru sem um- lykur gesti og gefa séríslenska upp- lifun. Mikill bergkantur vekur athygli vegfarenda á Kársnesi og segir Dagný að mikið hafi verið lagt í hann. „Það hefur mikil vinna verið lögð í að búa til náttúrulega umgjörð um lónið. Innblástur fyrir bergið er sóttur á nokkra staði, til að mynda á Snæfells- nes og Suðurland. Klettarnir mynda faðm um upplifunina og það verður einstakt að horfa út á sjóinn frá lón- inu. Við hlökkum mikið til að sýna fólki lónið og deila upplifun þess. Það er gaman að fá að taka þátt í að búa til eitthvað einstakt,“ segir Dagný. Sky Lagoon státar meðal annars af stærstu þurrgufu landsins með setu- svæðum á þremur hæðum. Útsýnið úr gufunni er beint út á haf þar sem gestir lónsins geta notið útsýnis yfir Reykjanesfjallgarð, Bessastaði og Snæfellsjökul þegar við á. „Fuglalífið hérna í sjónum fyrir utan er skemmtilegt og stundum koma selir og kíkja á okkur. Það er eitthvað svo ótrúlega róandi og töfrandi við það að sitja hérna inni og fylgjast með sjón- arspili hafs og himins leika saman. Ég er alltaf að sjá eitthvað nýtt. Hér er öllu tjaldað til og þetta er til að mynda stærsta heila rúða sem hefur verið sett upp hérna á Íslandi. Hún vegur um 2,4 tonn og ég verð að við- urkenna að hjartað sló ansi hratt þeg- ar verið var að hífa hana hérna yfir og koma henni fyrir á sínum stað. En út- koman er stórfengleg.“ Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Einstakt Þurrgufan í Sky Lagoon í Kópavogi er að taka á sig mynd og verður gestum hleypt þangað í vor. Stærsta þurrgufa á Íslandi með sjávarútsýni  Sky Lagoon opnað á Kársnesi í vor  Bað í faðmi kletta Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is „Brotthvarf frétta Stöðvar 2 úr op- inni dagskrá eru slæm tíðindi fyrir lýðræðið á Íslandi því þetta setur okkur 35 ár aftur í tímann. Eini opni fréttatíminn verður á vegum ríkisins og það er engin samkeppni. Eftir þessa aðgerð verður bara einn leik- ari á sviðinu,“ segir Páll Magnússon, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, for- maður allsherjar- og menntamála- nefndar Alþingis og fyrrverandi út- varpsstjóri. „Þetta er líka hættulegt fyrir fréttastofu Ríkisútvarpsins því ég held að þeir sem hafa verið lengi á þessum vettvangi séu sammála um það að breytingin sem varð á frétta- stofu Ríkisútvarpsins með tilkomu Stöðvar 2 hafi verið mikil. Fréttirnar bötnuðu mjög mikið. Nú erum við aftur komin á þann stað að ein frétta- stofa er í opinni dagskrá og það er áhyggjuefni.“ Páll segir það lengi hafa verið skoðun sjálfstæðismanna að taka beri Ríkisútvarpið af auglýsinga- markaði og skapa þannig vettvang fyrir óbjagaðan samkeppnismarkað. Hann gerir því ráð fyrir því að Sjálf- stæðisflokkurinn muni í stórum dráttum styðja fjölmiðlafrumvarp Lilju Alfreðsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra, sem hún segir fyrsta skrefið að því að taka Ríkisútvarpið af auglýsingamarkaði. Í kjölfar þess að það verður gert seg- ir Páll nauðsynlegt að skoða hlut- verk útvarpsins til framtíðar. Þriðjungur gjalds yrði frjáls Undir það tekur Þorsteinn Sæ- mundsson, þingmaður Miðflokksins og nefndarmaður í allsherjar- og menntamálanefnd. Sjálfur kveðst hann enga skoðun hafa á því hvaða ákvarðanir Stöð 2 tæki á viðskipta- legum forsendum, en að nauðsynlegt væri að taka upp umræðu um stöðu RÚV á fjölmiðlamarkaði, og minnir á að þingmenn Miðflokksins hafi ný- lega lagt fram tillögu þess efnis að fólki yrði frjálst að beina þriðjungi af útvarpsgjaldinu að þeim fjölmiðli sem því hugnaðist. Árferðið ekki eðlilegt Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, þingmaður Vinstri-grænna og nefndarmaður í allsherjar- og menntamálanefnd, segir að tryggja þurfi fjármögnun RÚV ef taka eigi stofnunina af auglýsingamarkaði. „Ég ætla ekki að tjá mig um það núna hvort þessi aðgerð hjá Stöð 2 sé bein afleiðing af veru RÚV á auglýs- ingamarkaði. Eðli málsins sam- kvæmt hefur verið samdráttur í aug- lýsingatekjum vegna ástandsins. Staðan á auglýsingatekjum núna er ekki endilega sú að hún endurspegli nákvæmlega stöðuna þegar árferðið er eðlilegt,“ segir Bjarkey. Þá sé vera RÚV á auglýsingamarkaði hag- ur bæði auglýsenda og neytenda. „Ég hef sagt að það hljóti að vera hagur bæði neytenda og auglýsenda að auglýsa í útvarpi og sjónvarpi sem allir sjá og heyra hvar sem þeir eru á landinu og ekki síst fyrir þá sem ekki hafa efni á að kaupa sér áskriftar- stöðvar,“ segir Bjarkey. Samflokksmaður Bjarkeyjar og fyrrverandi fjölmiðlamaður, Kol- beinn Óttarsson Proppé, tekur undir að afleiðingar þess að taka RÚV af auglýsingamarkaði þurfi að liggja fyrir áður en gripið verði til þess. Hann segir þó að atburðir heimsins undanfarin misseri undirstriki mik- ilvægi þess að hafa sameiginlegan skilning á staðreyndum mála og að í því samhengi geti ríkisfjölmiðill gegnt lykilhlutverki. „Ef maður horfir á samfélög sem hafa ekki öfl- uga ríkisfjölmiðla heldur hefur hvern í sínum bergmálshelli að hlusta á sín viðhorf þá sér maður mikilvægi eins hlutlausrar framsetn- ingar og kostur er,“ segir Kolbeinn. Tímabært að bregðast við Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdótt- ir, þingmaður Viðreisnar og nefnd- armaður í allsherjar- og mennta- málanefnd, segir tímabært að menntamálaráðherra fari að bregð- ast við stöðunni, sem hafi verið fyr- irsjáanleg, með öðru en almennum yfirlýsingum. Þorbjörg segir að í grunninn séu tvær leiðir til að tryggja virka samkeppni og heilbrigt umhverfi fjölmiðla. „Það er annars vegar gert með styrkjum til einkarekinna fjölmiðla og hins vegar með því að takmarka hlut ríkisins á auglýsingamarkaði. Það er jafnvægislist, enda er hagur samfélagsins alls af því að ríkisút- varp sem og einkareknir fjölmiðlar miðli fréttum. Markmiðið hlýtur að vera að almenningur geti gengið að vönduðum innlendum fréttaflutningi vísum.“ Skoða þurfi stöðu Ríkisútvarpsins  Vilja RÚV af auglýsingamarkaði  Tryggja þurfi rekstrargrundvöll stofnunarinnar  Mikilvægi ríkisfjölmiðils sé óumdeilt  Hægt hefði verið að sjá þetta fyrir  Tvær leiðir til að tryggja samkeppni Morgunblaðið/Eggert Efstaleiti Þorbjörg segir að í grunninn séu tvær leiðir til að tryggja virka samkeppni. Um sé að ræða jafnvægislist.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.